Morgunblaðið - 08.11.1987, Síða 18
18 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1987
V-þýskar hraðbrautir:
Er það fleira en eldsneytið
sem knýr ökuþórana áfram?
Frankfurt. New York.
Þegar bílalestimar era allt að 15 km langar og silast er áfram með hraða snigilsins, koma hestöflin
ÞEGAR horft er út um
framrúðuna á Porsche
911 Carrera á 250
kílómetra hraða, virðist
brotna línan á mörkum
akreinanna á
A5-hraðbrautinni (sem
liggur í suður frá
Frankfurt til Darmstadt)
eins og titrandi hvitt strik
og landslagið umhverfis
óljóst sambland af skógi
og bersvæði. Okumenn á
vinstri akreininni færa
sig snarlega yfir til
hægri, þegar lágt og
úteygt snjáldrið á bílnum
birtist í
baksýnisspeglinum.
Þegar Porschinn hægir á sér
niður í 240 km og vinstri akreinin
er auð svo langt sem augað eyg-
ir, fær ökumaðurinn á tilfinning-
una, að hann hrærist í þyngdar-
leysi og sé óvefengjanlegur
konungur steinsteypunnar. En
skyndilega birtist heljarmikill
flunkunýr BMW 735i fólksbíll ein-
um metra fyrir aftan Porschinn
og vinstra stefnuljósið blikkar ótt
og títt, auk þess sem aðalljósin
leiftra af óþolinmæði. Stríðir og
reiðilegir andlitsdrættir öku-
mannsins sjást glögglega í
baksýnisspegli Porschins, sem
lætur undan og víkur til hægri.
BMW-inum er rykkt áfram.
Ökumaður hans, skeggjaður mað-
ur með gleraugu — í kringum
þrítugt — lítur snöggt á þá sem
eru í Porschinum. Sigurgleði og
fyrirlitning vegast á í augnaráð-
inu, en reiðidrættimir eru horfnir
af andlitinu.
Það er laugardagur. Verið vel-
komin í síðdegisumferðina á
hraðbrautinni, þar sem engar
hraðatakmarkanir em í gildi á
löngum köflum (Vestur-Þýska-
land er eina landið í Vestur-
Evrópu, sem ekki setur
hraðatakmarkanir á allar hrað-
brautir.). Hér í Þýskalandi, þar
sem menn hyllast til að líta á rétt-
inn til að aka hratt sem ómetan-
að htlu haldi.
lega frelsisvin í þjóðfélagi, sem
að öðm leyti býr við reglur á öllum
sviðum, hafa sumir vaxandi
áhyggjur af því, sem umferðarsér-
fræðingurinn Richard Spiegel
kallar „hraðasýki þessarar þjóð-
ar“.
Það sem þessum auknu áhyggj-
um veldur, er sú staðreynd, að
dauðaslysum á hraðbrautum
fjölgaði úr 8400 1985 í 8948
1986, en dauðaslysum hafði
fækkað stöðugt í 17 ár þar á
undan. Alvariegum umferðarslys-
um, þar sem mikil meiðsl urðu á
fólki, fjölgaði úr 115.533 í
117.862, en slysum, þar sem
minni háttar meiðsl urðu á fólki,
fjölgaði úr 306.562 í 325.355
samkvæmt opinbemm tölum.
Engu að síður heldur hraðakst-
ur áfram að vera þjóðarsýki, enda
þótt best sé að fá útrás fyrir hana
— eins og í myndinni, sem bmgð-
ið var upp hér fyrir framan —
þegar dregið hefur úr umferðar-
þunganum snemma á morgnana
eða á kvöldin.
En þó að hraðakstur sé þrá-
hyggja hjá fólki, er staðreyndin
sú, að oftar en ekki silast menn
áfram með hraða snigilsins. Það
em nefnilega engar takmarkanir
heldur á die Staue, eins og bíla-
lestamar, sem tíðum setja svip
sinn á hraðbrautina, em kallaðar
á þýsku. í 15 kílómetra langri
Staue kemur hestaflafjöld að litlu
haldi.
Deilur standa um það milli
iandstjómarinnar, voldugra bíla-
framleiðenda og hraðakstursunn-
enda annars vegar og umhverfis-
vemdarsinna og umferðarörygg-
isfélaga hins vegar, hversu hraðan
akstur eigi að leyfa. Sumir hafa
einnig áhyggjur af því, að akstur-
slag mótist meira og meira af
kapggimi og fjandskap.
„A hraðbrautunum er nú svo
komið, að þar ekur hver gegn
öðrum," segir Max Danner, sem
veitir forstöðu umferðarslysar-
annsóknarstofnun Allianz í
Munchen, stærsta tyggingafélags
Vestur-Þýskalands.
Herbert Schnor, innanríkisráð-
herra Nordrhein-Westphalen,
þéttbýlasta ríkis Vestur-Þýska-
lands, segir: „Aksturslag manna
er tvímælalaust orðið hörkulegra
en það var - án tillits til þess tjóns
sem það getur haft í för með sér.
„Sá sem ekur á aflmiklu ökutæki
notar það sem vopn gegn hinum
aflminni."
„Sá sem ekur á afl-
miklu ökutæki notar
það sem vopn gegn
hinum aflminni.“
Ríkisstjóm Helmuts Kohls af-
greiðir hraðakstursumræðumar
sem uppistand af litlu tilefni. Þeg-
ar þingið ræddi og hafnaði setn-
ingu hraðatakmarkana á öllum
hraðbrautum í landinu árið 1985,
sagði Kohl, að slíkar ráðstafanir
leystu engan vanda.
Bemd Bialleck, talsmaður um-
ferðarmála hjá samgönguráðu-
neytinu, segir: „Hraðatakmarkan-
ir era ekki lausnin og era því
ekki á dagskrá. Samkvæmt opin-
beram tölum er meðalhraðinn á
hraðbrautunum 113 kílómetrar á
klukkustund. Aðalslysavaldurinn
á öllum vegum er sá, að ekki er
ekið í samræmi við aðstæður. Það
fyrirkomulag að hafa engar
hraðatakmarkanir veitir ekki að-
eins frelsi, heldur krefst það
einnig ábyrgðar — ábyrgðar sem
m.a. felst í því að aka með tilliti
til aðstæðna hveiju sinni."
„Þar er m.a. átt við, að hyggja
þurfí að umferðarþunga, yfírborði
vegar, veðri og hvenær dagsins
ekið er,“ segir Bialleck.
„Þó að niðaþoka sé á, neita
sumir ökumenn með öllu að hægja
ferðina," segir hann. „En stóra
keðjuárekstramir, sem verða' á
hraðbrautunum í slæmu veðri «g
sjá má myndir af í blöðunum,
stafa ekki af svokölluðum hrað-
akstri. Opinberar tölur sýna, að
meðalhraðinn, þegar þessir
árekstrar verða, er um 80 km/
klst. Vandinn er bara sá, að í
þokunni er það jafnvel of mikill
hraði."
Tölulega séð er hraðbrauta-
kerfíð, sem er 8450 km að lengd,
öraggasta þjóðvegakerfí Vestur-
Þýskalands, bætir Bialleck við.
Þar eiga aðeins 4% umferðarsly-
sanna sér stað.
Hvort sem hraðakstur er goð-
sögn eða veraleiki í vestur-þýsku
þjóðlífí, verður hann æ auðveldari
frá tæknilegu sjónarmiði. Bíla-
framleiðendur keppast við að
framleiða og selja hraðskreiðari
og hraðskreiðari bíla.
„ Við framleiðum eins tæknilega
fullkomna bíla og okkur er mögu-
legt,“ segir Peter Schutz, stjóm-
arformaður Porsche, þegar hann
er spurður um ástæðuna fyrir
því, að fyrirtækið fór út í fram-
leiðslu á Porsche 959, sem nær
315 km hraða á klukkustund.
Carl H. Hahn, stómarformaður
Volkswagen, kallar bílinn „tækni-
lega líkamningu frelsisins".
Hvort ökumenn er svo færir
um að meðhöndla þessa „tækni-
legu líkamningu frelsisins" er
annar handleggur. Það neikvæða
við tæknigetuna er, að hún ýtir
stórlega undir hraðasýki Þjóð-
veija, að sögn sálfræðingsins
Wolfgang Sachs. í nýlegri bók
sinni, „Astin á bflunum“, kemur
hann með þá tilgátu, að það sé
„þrá eftir sigri og hræðsla við
móðgun", sem reki ökuþóra til að
aka fast upp að næsta bfl á undan
á miklum hraða og skjótast fram
fyrir.
Á A5-hraðbrautinni milli
Frankfurt og Darmstadt má sjá
fjölmörg dæmi um þetta hvort
tveggja. Og saga brautarinnar
sjálfrar er tengd hraða. Fyrir
seinni heimsstyijöldina skiptust
tveir Þjóðveijar á um að setja
heimsmet í hraðakstri á þessari
þráðbeinu þjóðbraut. Báðir létu
þeir lífíð við þær tilraunir.
Úr Intemational Herald Tribune
Til sölu
Merzedes Bens 190 E árg. 1984. Beinskiptur,
topplúga, sentrallæsingar o.fl. Ekinn 75 þús. km.
Blár-sans.
Galant 2000 GLS árg. 1985. Beinskiptur, sentral
læsingar, rafmagnsrúðuvinduro.fl. Rauður, ekinn
51 þús km. Mjög fallegir bílar
Upplýsingar í síma 91 -33240 um helgina og á
kvöldin eftir kl. 18.00.
ÞEKKIRÐU
Mér hefur enn ekki tekist að hafa
upp á þér i Reykjavikurheimilis-
fanginu sem þú gafst mér á
Húsavík íjúnís.l.
Vinsamlegast skrifaðu til:
Spencer Cordts,
12 Griswold St.
Walton, N.Y. 13850,
USA.
Citroen BX14E
Til sölu mjög gott eintak, ekinn aðeins 12.000 km,
árg. ’86. Skipti eða skuldabréf koma til greina.
Upplýsingar ísímum 681163 eða 53717 (Ásgeir).