Morgunblaðið - 08.11.1987, Síða 26
26 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1987
mun Bridssamband íslands gangast
fyrir árlegri stofnanakeppni/fyrir-
tækjakeppni í bridssveitakeppni,
laugardaginn 21. nóvember, sunnu-
daginn 22. nóvember og þriðjudag-
inn 24. nóvember. Fyrirkomulag er
Monrad, 9 leikir og 8 spil milli
sveita. Rétt til þátttöku í stofnana-
keppni BSÍ hafa félög og stofnanir
sem reka atvinnu og hafa föstum
starfsmönnum á að skipa. Þá mega
einnig taka þátt félög sjálfstætt
starfandi manna, ef starf þeirra er
að jafnaði rekið af þeim einum sér
án þess að það sé innan fyrirtækja
með öðrum samsvarandi aðilum. í
hverri sveit mega spila þeir starfs-
menn sem eru í föstu starfi að hluta
eða öllu leyti hjá stofnun eða fé-
lagi, á þeim tíma sem keppni fer
fram.
Komi upp ágreiningur um túlkun
reglna þessara sker stjóm BSÍ úr.
Skráning stendur yfir á skrif-
stofu Bridssambandsins (s: 689360
Ólafur). Keppnisgjald pr. sveit er
kr. 7.500. Heimilt er að senda fleiri
en eina sveit frá hverju fyrirtæki,
enda séu þær auðkenndar. Allar
nánari upplýsingar eru veittar á
skrifstofu BSÍ.
Bridsdeild Barðstrend-
ing'afélagsins
Ingólfur Lilliendahl og Sigrún
Jónsdóttir sigruðu í tvímennings-
keppninni eftir hörkukeppni sem
lauk sl. mánudag.
Lokastaðan:
Ingólfur — Sigrún 863
Kristín Pálsdóttir —
Vilhelm Lúðvíksson 860
Kristján Ólafsson —
Stefán Ólafsson 854
Friðjón Margeirsson —
ValdimarÞorleifsson 841
Garðar Jónsson —
Ingimundur Guðmundsson 820
Hraðsveitakeppni hefst 9. nóv-
ember og eru væntanlegir þátttak-
endur hvattir til að láta skrá sig
strax, en skráningu lýkur á sunnu-
dag. Hringið í síma 685762 (Krist-
inn) eða síma 32482 (ísak).
Vesturlandsmót
í sveitakeppni
Undankeppni Vesturlandsmóts í
sveitakeppni verður haldin á Akra-
nesi 21,—22. nóvember nk. Spilaðar
verða 14 32ja spila leikir (eftir þátt-
töku), allir við alla. 4 efstu sveitim-
ar úr undankeppninni leika svo til
úrslita um Vesturlandsmeistaratit-
ilinn í bytjun næsta árs.
Þetta mót er opið öllum bridsspil-
urum á Vesturlandi og þurfa
þátttökutilkynningar að hafa borist
í síðasta lagi-15. nóv. í síma 11080
(Einar).
Núverandi Vesturlandsmeistari í
sveitakeppninni er sveit Inga Stein-
ars Gunnlaugssonar, Akranesi.
Bikarkeppni sveita
á Vesturlandi
Skráning er hafin í bikarkeppni
sveita á Vesturlandi. Þátttökutil-
kynningar þurfa að hafa borist í
síma 11080 (Einar) í síðasta lagi
22. nóvember, en þá verður dregið
í fyrstu umferð.
Núverandi bikarmeistari Vestur-
lands í sveitakeppni er sveit Þóris
Leifssonar, Borgarfirði.
Brids
Arnór Ragnarsson
Ársþinjj Bridssam-
bands Islands
Bridssamband íslands hélt árs-
þing sitt laugardaginn 31. október.
Þingið var vel sótt af fulltrúum
þeirra 47 félaga, sem aðild eiga að
Bridssambandi Islands.
Fráfarandi forseti sambandsins,
Björn Theodórsson, gaf ekki kost á
sér til áframhaldandi starfa og var
Jón Steinar Gunnlaugsson
Reykjavík, kjörinn forseti í hans
stað. Aðrir í stjóm voru kjömir: Til
1 árs: Esther Jakobsdóttir, Frímann
Frímannsson og Jón Baldursson.
Til 2 ára: Sigmundur Stefánsson,
Sigurður B. Þorsteinsson og Þórar-
inn Sófusson. í varastjóm: Bjöm
Pálsson, Bogi Sigurbjömsson og
Einar Guðmundsson. Fram-
kvæmdastjóri er Ólafur Lárusson.
Skipað hefur verið í fastanefndir
innan stjómar. L dómnefnd eiga
sæti: Hermann Lárusson, Jakob R.
Möller og Páll Bergsson. Til vara:
Björgvin Þorsteinsson, ísak Öm
Sigurðsson og Ragnar Magnússon.
í meistarastjganefnd eiga sæti:
Bjöm Eysteinsson, Jón BaMursson
og Sævar Þorbjömsson. í móta-
nefnd eiga sæti: ísak Öm Sigurðs-
son, Ólafur Lárusson og Sigmundur
Stefánsson. í laga- og keppnis-
reglnanefnd eiga sæti: Björgvin
Þorsteinsson, Haukur Ingason og
Jakob R. Möller.
Á þinginu var samþykkt sú breyt-
ing á undanrásum Islandsmótsins í
sveitakeppni, að fjölga sveitum úr
24 í 32 og verður sem fyrr spilað
í fjórum riðlum (8 sveitir í hveijum
riðli). Þetta þýðir að undankeppnin
lengist að mun og hefst því fimmtu-
daginn 10. mars og verða spilaðar
sjö umferðir (í framhaldinu tvær á
föstudegi, tvær á laugardegi og
tvær á sunnudegi). Skv. útreikn-
ingsreglum BSÍ, til íslandsmótsins
Fyrrverandi forseti Bridssambands íslands, Björn Theodórsson, og nýkjörinn forseti sambandsins, Jón
Steinar Gunnlaugsson, spila gegn Sverri Kristinssyni og Ingvari Haukssyni hjá Bridsfélagi Reykjavíkur.
í sveitakeppni, eiga svæðin þá eftir-
talinn „kvóta":
Reykjavík 7 sveitir og 7 sveitir frá
fyrra ári: alls 14 sveitir.
Reykjanes 3 sveitir og 0 frá fyrra
ári: alls 3 sveitir.
Suðurland 3 sveitir og 0 frá fyrra
ári: alls 3 sveitir.
Austfirðir 3 sveitir og 0 frá fyrra
ári: alls 3 sveitir.
Norðurl. eystra 3 sveitir og 0 frá
fyrra ári: alls 3 sveitir.
Norðurl. vestra 2 sveitir og 0 frá
fyrra ári: alls 2 sveitir.
Vestfirðir 1 sveit og 0 frá fyrra
ári: alls 1 sveit.
Vesturland 2 sveitir og 0 frá fyrra
ári: alls 2 sveitir.
íslandsmeistarar 1 sveit.
Samtals því 32 sveitir og til vara:
1. varasveit frá Vestfjörðum. 2.
varasveit frá Reykjavík. 3. vara-
sveit frá Norðurlandi vestra og 4.
varasveit frá Reykjanesi.
Skipan sveita, nöfn og greiðsla
verður að hafa borist mótanefnd
Bridssambandsins ekki síðar en
mánudaginn 22. febrúar 1988. Eru
talsmenn svæðasambands beðnir
um að taka þessa ábendingu til
athugunar vegna undankeppni í
héraði.
Einnig var samþykkt tillaga til
stjórnar þess efnis að Bridssam-
bandið kannaði að ráða starfsmann
í hlutastarf til að sinna útbreiðslu-
og kennslumálum.
Árgjald var samþykkt óbreytt til
áramóta (kr. 25 pr. spilara) en
hækkar í kr. 30 eftir áramót.
Fram kom að fundarmenn voru
mjög ánægðir með frammistöðu
landsliðsins á síðasta Evrópumóti,
þar sem herslumuninn vantaði að
okkar menn næðu verðlaunasæti. Á
næsta ári mun Bridssamband Is-
lands halda Norðurlandamótið í
opnum flokki og kvennaflokki og
Electrolux
útlitsgallaðir kæli- og frystiskápar
með verulegum afslætti !
Afsláttur kr.
TR 1178 Tvískiptur kælir/frystir 12.500,-
TR 1076 Tvískiptur kælir/frystir 10,000,-
TF 966 Frystiskápur
RP 1185 Kæliskápur
RP 1348 Kæliskápur
10.000,-
7.500,-
9.400,-
Vörumarkaðurinn
KRINGLUNNI SÍMI 685440
að auki taka þátt í Ólympíumótinu
sem spilað verður á Italíu haustið
1989. Að auki mun sambandið
senda lið til þátttöku í Evrópumót
yngri spilara sem haldið verður í
Austurríki næsta sumar.
Reikningar sambandsins voru
lagðir fram og er staða sambands-
ins þokkaleg. Helstu framkvæmdir,
utan þátttöku í mótum á erlendri
grundu eru húsakaupin að Sigtúni
9. Hafa þau gengið skammlaust
með stuðningi hreyfingarinnar. Al-
mennur rekstur hefur gengið mjög
vel og eru umtalsverðar hreyfingar
milli ára á einstökum tekjuliðum.
I heild má segja að útlitið sé
gott, enda brids sem íþrótt og fé-
lagsíeg afþreying í mikilli sókn.
(Fréttatilkynning frá BSÍ.)
Opna Stórmótið
í Sandgerði
Þær breytingar hafa orðið á Stór-
móti Bridsfélagsins Muninri í
Sandgerði, að verðlaun verða sem
hér segir: 1. verðlaun: Ferð með
Samvinnuferðum/Landsýn að verð-
mæti 40.000 kr., 2. verðlaun: Ferð
með Samvinnuferðum/Landsýn að
verðmæti kr. 30.000 og 3. verðlaun
kr._ 15.000, allt pr. par.
í ljósi þessara breytinga á verð-
launum, er pörum heimilt að sleppa
þátttökurétti, áður skráðum pörum
og verða þau jað hafa samband við
skrifstofu BSÍ fyrir fimmtudaginn
12. nóv.
Að öðru leyti eru hlutir við það
sama þ.e. 32 pör, barometer m/2
spilum milli para og spilamennska
hefst kl. 10 árdegis. Keppnisstjóri
verður Ólafur Lárusson.
Landsbikarkeppnin
Sökum tafa á skilum gagna frá
einstökum félögum, hefur útreikn-
ingur tafist lítillega, en fljótlega í
næstu viku munu endanleg úrslit
liggja fyrir. Ljóst er að vel yfir 300
pör tóku þátt í Landsbikarkeppninni
í tvímenningi, þar sem sömu spil
voru spiluð um land allt. Er það
mun meiri þátttaka en á síðasta ári
og gleðilegt hvað landsbyggðarspil-
arar hafa tekið vel í þessa keppni.
Stofnanakeppni/fyrir-
tækjakeppni Bridssam-
bandsins
Eins og fram hefur komið áður
Frá keppni hjá Bridsdeild Rangæingafélagsins