Morgunblaðið - 08.11.1987, Side 42

Morgunblaðið - 08.11.1987, Side 42
42 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1987 fclk í fréttum Lou Diamond Phillips skaust upp á stjömuhimininn með feiknahraða á árinu þegar hann lék í kvikmyndinni „La Bamba“ sem er sýnd við miklar vinsældir hér á landi sem annars staðar. í myndinni leikur hann Richie Va- lens sem kom þremur lögum á topp vinsældalista vestanhafs áð- ur en hann lést, en hann varð aðeins 17 ára. Lou er maður á miðjum þrítugs- aldri og aukinheldur nýgiftur. Hann er fæddur á Filippseyjum og er af fiiippeyskum, hawaiísk- um og indjánaættum. Hann fluttist til Bandaríkjanna þegar hann var tveggja ára. Hann hefur lokið háskólaprófi i leiklist, kennt kvikmyndaleik og leikið aukahlut- verk í hinum virtu framhalds- myndaflokkum „Dallas" og „Miami Vice“. í „Dallas" var hann í gerfi ótínds glæpamanns sem rændi Súe Ellen og í „Miami Vice" Iék hann lögreglumann sem var skotinn niður.„Einkennandi fyrir þau hlutverk sem innflytjendur frá Rómönsku-Ameíku og Asíu fá,“ segir hann. En svo var hann valinn til að leika Richie Valens úr hópi 500 umsækjenda. „La Bamba“ mark- ar tímamót, því hún fjallar um spænskumælandi mann og leikar- amir eru það flestir. Fyrir hlutverkið neyddist Lou til að þyngja sig um heil átta kíló Lou Diamond Phillips La Bamba var að gera mig vitlausan Lou í gerfi Richie Valens. og læra á gítar. „Það blæddi úr fingrunum og heil fimm húðlög hreinlega flysjuðust af þegar ég æfði mig,“ segir hann. „En það sem verra var, ég þurfti að kunna öll lögin sem ég læst syngja í myndinni utanað. Ég var neyddur til að ganga með lögin glymjandi í eyrunum daginn út og inn, ég var farinn að vakna um miðjar nætur, gólandi „La Bamba". Þetta var að gera mig vitlausan. Það var svo í júní síðastliðnum sem Lou festi ráð sitt. Su heppna heitir Julie Cyphers og er 22 ára aðstoðarleikstjóri. Þau eru bæði afar framagjöm og láta sig eigin frama mestu varða, „við höfum ekki upp nein áform um að stofna §ölskyldu. Fyrst er það Óskarinn, síðan getum við farið að hugsa um að eignast böm.“ Phíllips hjónakomin setia fmm seqa framann ofar öllu öðm LÍSA BONET Fyrirmyndarstúlkan í furðu- fótum Já en Lísa þó, hvað er að sjá útganginn á þér, hrópuðu vinir og velunnarar kvik- myndadísarinnar og sjónvarps- stjömunnar Lísu Bonet þegar hún birtist í þessari múderingu á verðlaunaafhendingu MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Lísa, sem er þekktust fyrir leik sinn í þáttunum um Fyrirmyndar- foðurinn, þykir hafa tekið gagngerum breytingum síðan hún hóf sjálfstæðan leikferil sinn utan þáttanna. Hún var sögð vera feimin stúlka og hlé- dræg, en sýndi á sér alveg nýja hlið á áðumefndri verðlaunaaf- hendingu. Skýringuna er ef til vill að finna hjá nýja kærastan- um hennar, honum Scott Kraft. Scott þessi er ljóshærður, 26 ára og hitti sína heittelskuðu í veislu í Hollywood. Þau hjónale- ysin þekktust fyrir, en máttu ekki vera að því að líta á hvert annað fyrr en í téðri veislu. „Það bara heyrðist „klikk", þegar við hittumst" segir Lísa og bætir síðan við dreymin á svip „hann hefur gefið mér allt sem mig dreymir um og ég er svo hamingjusöm." Lísa í uppsveiflu. FANGELSI Hlaupandi vegfarendur verða líka að fara eftir umferðar- lögunum Það kannast líklega fáir við nafnið Sture Leksell utan hei- malands hans Svíþjóðar. Nema ef til vill fangelsisyfirvöld í smábæ einum á Fjóni. Þar eyddi hann nefnilega sólarhring bak við lás og slá í síðasta mánuði. Sture þessi er fyrrverandi landsliðsmaður í íshokkí og hefur nú að undanförnu stundað langhlaup til að halda sér í formi. Það er að segja þar til hon- um varð á að hlaupa yfir á rauðu. Umferðarlögreglan danska er vel á verði og handtók Sture þegar og færði hann á lögreglustöðina þar sem hann var dæmdur í tveggja daga fangelsi. Hann var látin laus sólarhring síðar, fyrir góða hegðun. „Þarna hljóp ég yfir á rauðu, mér sýndist græni kallinn lýsa,“ segir Sture sposkur á svip.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.