Morgunblaðið - 08.11.1987, Qupperneq 44
44 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1987
Borgarnes:
Afmælistónleikar Tón-
listarskóla Borgarfjarðar
Theodór Kr. Þórðarson
Nemendur og kennarar Tónlistarskóla Borgarfjarðar á lokatónleik-
um í Borgarneskirkju sfðastliðið vor.
Borgurnesi.
TÓNLISTARSKÓLI Bogarfjarð-
ar heldur afmælistónleika í
Borgarneskirkju þriðjudaginn
10. nóvember kl. 21.00. Eru tón-
leikarnir haldnir í tilefni 20 ára
afmælis skólans, sem tók til
starfa haustið 1967.
Á dagskrá tónleikanna verður
^meðal annars kórsöngur Kirkjukórs
Hvanneyrar og einnig munu nokkr-
ir fyrrum nemendur skólans, sem
haldið hafa áfram á tónlistarbraut-
inni, koma fram og þá munu nokkrir
af kennurum skólans flytja tónlist.
Að sögn Björns Leifssonar,
skólastjóra Tónlistarskóla Borgar-
fjarðar, voru nemendur aðeins 39
fyrsta starfsár skólans, en í dag eru
þeir 203 talsins. Tólf kennarar eru
við skólann í dag. Öll sveitarfélög
Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
standa að rekstri skólans í samein-
ingu ásamt ríkissjóði. Kennsla fer
fram á fimm stöðum í héraðinu,
Andakflsskóla, Heiðarskóla, á
-Kleppjámsreykjum, Varmalandi og
Borgamesi. Flestir nemendanna
læra á píanó eða rúmlega helming-
ur, en auk þess er kennt á orgel,
harmonikku, fíðlu, gítar, blokk-
flautu og önnur blásturshljóðfæri.
Önnur tónlistarstörf sem að tengj-
ast skólanum em að Grunnskóli
Borgamess og tónlistarskólinn hafa
staðið saman að rekstri lúðrasveitar
frá 1981 og nokkrir kennarar eru
einnig organistar og kórstjórar í
héraðinu. Starf tónlistarskólans er
samofíð gmnnskólum héraðsins og
ljá þeir húsnæði undir kennsluna.
Að sögn Bjöms Leifssonar var 10.
nóvember valinn fyrir afmælistón-
leikana til að heiðra minningu Ólafs
heitins Guðmundssonar, organista
á Hvanneyri, sem var einn aðal-
hvatamaður að stofnun Tónlistar-
skóla Borgaifyarðar.
TKÞ
Nemendur á lokatónleikunum.
Fjölskylduskemmtun
með Ladda í Gamla bíói
NVSV:
Náttúru- og umhverfis-
verndarsýning barna
í Selásskóla skoðuð
ÞÓRHALLUR Sigurðsson,
Laddi, efnir _ til fjölskyldu-
skemmtunar í íslensku óperunni
í Gamla bíói dagana 12. til 15.
nóvember næstkomandi. Á
skemmtununum verður Laddi
með valin atriði ur skemmtidag-
skrám sem hann hefur sviðsett í
Súlnasal á Hótel Sögu undan-
farna tvo vetur.
Sýningar Ladda í íslensku óper-
unni verða á fimmtudag klukkan
21, á föstudag og laugardag klukk-
an 21 og 23.30 og á sunnudag
klukkan 21. Á sýningunum koma
fram margar þjóðfrægar persónur,
sem Laddi heftir túlkað á undan-
fömum árum og má þar nefna
Skúla rafvirkja, Eirík Fjalar, Olla
úr Heilsubælinu, Bjama Fel,
kínverska kokkinn; Reyni aum-
ingja, Móa gamla, Omar tannlækni
úr Litlu hryllingsbúðinni og fylli-
byttuna svo nokkrir séu nefndir.
Ladda til aðstoðar á sýningunum
verða Edda Björgvinsdóttir, Eggert
Þorleifsson og Haraldur Sigurðsson
auk dansara.
Morgunblaðið/Þorkell
Þórhallur Sigurðsson.
Lukta-Gvend-
ur í bflinn
BLOSSI sf. hefur hafið innflutn-
ing á sjálfvirkum ljósarofa í
bifreiðar. Tæki þetta er raf-
eindatæki, sem kveikir og slekk-
ur sjálfkrafa ljós ökutækisins.
Blossi hefur valið tækinu nafnið
Lukta-Gvendur.
Logi Runólfsson, framkvæmda-
stjóri Blossa sf., sagði að fyrirtækið
hefði hafíð innflutning á tækinu þar
sem á næsta ári verði skylt sam-
kvæmt lögum að aka með ljósin
kveikt allt árið um kring. „Það má
búast við að margir gleymi að
kveikja ljósin eða slökkva þau, sem
veldur því að bfllinn verður raf-
magnslaus," sagði Logi. „Því
bjóðum við fólki þetta tæki, sem
er tengt við rafkefí bflsins. Ég vil
taka fram að ljósin kvikna ekki á
meðan startað er, heldur ekki fyrr
en stigið er é bremsu eða sett í
gír. Þannig taka þau ekki rafmagn,
en þau loga síðan þar til drepið er
á bflnum."
Lukta-Gvendur er svipaður að
þyngd og umfangi og sígarettu-
pakki og er festur undir mælaborð
bifreiða. „Samkvæmt kanadískum
könnunum fækkar umferðaróhöpp-
um um allt að 32% ef ljósin eru
notuð allan sólarhringinn," sagði
Logi. „Þess vegna er Lukta-Gvend-
ur framlag okkar til umferðarör-
yggis."
Náttúruvemdarfélag Suðvest-
urlands fer í kynnisferð f Selás-
skóla við Selásbraut sunnudag-
inn 8. nóvember kl. 14.00. Skoðuð
verður náttúru- og umhverfis-
verndarsýning sem börnin í
skólanum hafa unnið að.
í samvinnu við foreldraráð Selás-
skóla stendur NSVS fyrir heimsókn
á sýningu á verkefnum sem 6-12
ára böm í skólanum hafa unnið að.
Á sýningunni lýsa þau í texta og
myndum hvað náttúru- og um-
hverfísvemd er frá þeirra sjónar-
hóli. Einnig verður sýnt myndband
og nokkrar skyggnur frá undirbún-
ingi sýningarinnar.
Kynnisferðin tekur um einn og
hálfan tíma og em allir velkomnir.
r
Opernunnendur
ÓPERUKVÖLD ÖLL SUNNUDAGS-
KVÖLD í VETUR
Ikvöld
SOFFÍA HALLDÓRSDÓTTIR
Borðapantanir í síma 29499
RESTAURANT
LÆKJARGÖTU 2, II HAÐ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nokkrar af þeim myndum sem eru á sýningunni í Selásskóla. Þetta
eru myndir er sýna umhverfis- og náttúruvernd frá sjónarhóli barn-
anna.