Morgunblaðið - 15.11.1987, Side 9
HUGVEKJA
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1987
9
Hver er
mestur?
eftir sr. HALLDÓR GUNNARSSON
22. sd. e.Trin. Mt. 18; 1.—20.
Þessi spuming hefur hljóm-
að leynt og ljóst frá upphafi
allt til þessa dags. Hún kemur
ef til vill fyrst fram hjá ein-
staklingnum um það leyti sem
hann hefur skólagöngu. Þar
er tekist strax á um náms-
árangur, en ekki eru minni
átök i skóla um að leiða hóp-
inn og stjóma. Þá er oft um
mikið miskunnarleysi að ræða.
Þekkjum við þetta ekki frá
skólaárum okkar, hvemig sá
minni máttar var leikinn,
hvemig kennarar sem áttu
erfitt með kennslu vom með-
höndlaðir og hvernig uppátæki
gátu farið út fyrir öll takmörk?
Það var alltaf einhver í forystu
sem gerði tilkall til að vera
mestur eða fremstur. Og þeg-
ar sá hinn sami hafði hópinn
sem fylgdi á bak við sig til
að dreifa ábyrgð, þá var næst-
um allt hægt að gera. Skemma
húsgögn og veggi í skólastof-
um, brjóta rúður og gera
eitthvað enn meira sem sann-
aði ótvírætt forystu. Rúðubrot
í verslunum, skemmdir í stræt-
isvögnum og margt, margt
fleira á vafalasut að einhverju
leyti rætur að rekja til þessa.
Við sem eldri emm hneyksl-
umst oft á hvemig sumir
unglingar bijóta af sér. Emm
við þá búin að gleyma eigin
æsku og lokum við augum
okkar gagnvart því sem er að
gerast allt í kringum okkur?
Að vísu em þar meiri klókindi
viðhöfð, því árin og reynslan
hafa kennt þau. Og sannar-
lega er fyrirmyndin víða,
myndir og myndbönd, sem
sýna ljótleikann í öllum til-
brigðum. Getur verið að þær
myndir, sem sýna þann mest-
an og bestan sem afbrotin
fremur, séu að grafa undan
siðferði okkar og ábyrgðartil-
finningu?
Þegar við eldumst, verðum
við vör við að sama fmmskóg-
arlögmálið er í gildi í þjóð-
félaginu, þótt aðferðimar hafi
breyst. Það em átök um for-
ystu á vinnustað, í fyrirtækj-
um, í félögum og í stjóm-
málum, jafnvel einnig milli
tveggja á heimili. í fjarlægð
séð, virðast öll átök erlendis
vera af sömu rótum, spuming-
unni sem sett er fram: Hver
er mestur?
Að baki þeirrar spumingar
er öll barátta mannkynsins,
og á að gera okkur fært að
lifa af gnægtum. En svo er
þó ekki. Tækninni er misskipt
og auðlindunum einnig, þann-
ig að þeir sem em undir em
píndir og arðrændir, en við
sem tilheymm hinum sterka
heimshluta, verðum alltaf
sterkari og ríkari. Framleiðum
mat sem hinn fátæka vantar
en getur ekki keypt, flytjum
hráefni frá þeim og vinnum
fyrir okkur og þannig mætti
áfram telja.
Við virðumst leggja allt
undir til að halda óbreyttri
stöðu í lífsgæðum. Vera með
þeim sterka og fremsta.
„Á sömu stundu komu læri-
sveinamir til Jesú og sögðu:
Hver er þá mestur í himn-
aríki? Og hann kallaði til sín
lítið bam, setti það á meðal
þeirra og sagði: Sannlega segi
ég yður; nema þér snúið við
og verðið eins og bömin, kom-
ist þér alls ekki inn í himnaríki.
Hver sem þvi lítillækkar sig
eins og barn þetta, sá er mest-
ur í himnaríki."
Spumingin var sett fram á
dögum Jesú og hann svaraði
henni á sinn sérstaka hátt,
með því að kalla fram lítið
bam, sem var að hefja sína
þroskagöngu.
Svarið flytur okkur mikinn
boðskap, sem höfðar til fram-
tíðar. Það fjallar um tilgang
lífsins og hvað við bemm úr
býtum. Það er spurt með öðr-
um hætti en við áætlum, önnur
gildi, ekki um það sem við
áorkuðum með klókindum eða
lygum, ekki um það sem við
framkvæmdum til að njóta
hylli, ekki um peningainneign
eða völd, ekki um vopnabirgð-
ir eða tækni, ekki um matar-
birgðir eða hráefni. Það er
spurt um eiginleika bamsins,
sem er opinskátt, kann að
treysta og er hreinskilið. Hvað
varð um þessa eiginleika
bamsins frá bemsku?
Það er verið að segja okkur
frá þessum miklu andstæðum
lífs okkar, að í veikleikanum
er styrkur, að þjáningin getur
gefíð þrek, sorgin getur veitt
hamingju, veikindi geta byggt
upp, að bamið í einlægni sinni
og hreinleika æskunnar er á
vissan hátt sterkara en fullorð-
inn maður með reynslu áranna
að baki og klókindi.
Jesús skýrir svar sitt betur
í næstu setningu þegar hann
segir: „Og hver sem tekur á
móti einu slíku bami í mínu
nafni, hann tekur á móti mér.“
Hér nálgumst við þetta dýr-
mæta, sem allir foreldrar
þekkja, að taka á móti bami
sem fæðist. Finna kærleikann,
ástina og umhyggjuna. Allt
væri til fómar á þeirri stundu
fyrir litla bamið, öll auðæfí
og völd og ef við væmm þá
spurð: Hver er mestur, þá
væri bamið í huga okkar og
þetta lífsundur fæðingar, sem
opnar hjarta okkar fyrir svo
miklum kærleika.
HÉR ERU UPPLYSINGAR SEM SKILA HAGNADI
Sérfræðingar Fjárfestingarfélagsins hafa
ávallt kappkostað að gefa sem gleggstar upp-
lýsingar um alla möguleika varðandi
spamað.
Til marks um það höfum við gefið út marga
veglega bæklinga. í öllum þessum bækling-
um eru haldgóðar upplýsingar um sparnað-
arkosti sem skila þérhagnaði þegar á reynir.
FJÁRFESTINGARFÉIAGIÐ
Hafnarstræti 7 101 Fteykjavík s: (91) 28566
Kringlunni 103 Reykjavík s: (91) 689700
Allt frá árinu 1976 hefur Fjárfestingarfélagið
verið í fararbroddi í öúugri upplýsingastarf-
semi og fáglegri ráðgjöf. Komdu við á verð-
bréfamarkaði okkar í Kringlunni og Hafnar-
stræti 7 og ræddu við ráðgjafa okkar. Fáðu
þér upplýsingabæklinga í leiðinni.
Þú getur einnig hringt eða sent okkur svar-
seðilinn og við sendum þér bæklingana um
hæl.
Símsvari ALLAN SÓLARHRINGINN í síma 28506. Upplýsingar um daglegt gengi Kjarabréfa, Markbréfa, Fjölþjóðabréfa og Tekjubréfa
Gengi: 13. nóv. 1987: Kjarabréf 2,421 - Tekjubréf 1,268 - Markbréf 1,241 - Fjölþjóðabréf 1,060
SVARSEÐILL
Vinsamlegast sendið mér neðangreinda bæklinga:
□ Kjarabréf □ Verðbréfamarkaðurinn
§ □ Tekjubréf □ Fjármálareikningur
l □ Markbréf □ Frjálsi lífeyrissjóðurinn
Nafn:
Heimili:
Staður:
Nafiinr.: