Morgunblaðið - 25.11.1987, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987
5
NÝR BOKAFLOKKUR AB
NÝR bókaflokkur er að hefja
göngu sína hjá Almenna bókafé-
laginu og nefnist hann Ondvegis-
kiljur AB. Þijár fyrstu kiljurnar
eru Ægisgata, Gróður jarðar og
Sjóarinn sem hafið hafnaði.
í fréttatilkynningu frá AB segir:
„Ægisgata eftir John Steinbech
er ein af bestu sögum hans. Hún
lýsir mannlífi í borg í Suður-Kali-
forníu, æskustöðvum höfundar.
Gróður jarðar eftir Knut Hamsun
segir frá óskrifandi og lítt lesnum
einyrkja, ísaki í Landbroti, lurknum
sem trúi á gróðurmoldina, trúir á
vinnuna, einfeldnina og mann-
dyggðina. Sjóarinn sem hafið
hafnaði opnar lesandanum ógn-
vekjandi sýn inn í hugarheim
nokkurra japanskra pilta á gelgju-
skeiði. Bókin var mjög umdeild er
hún kom í fyrsta sinn út hjá Bóka-
klúbbi Almenna bókafélagsins og
seldist upp á skömmum tíma.“
Farseðlar á 50 krónur
Býður einhver betur?
Vinningar í ferðaþristinum eru farseðiar til allra viðkomustaða
Flugleiða í Evrópu og Bandaríkjunum. Hæsti vinningur er
ævintýraferð til Bangkok í Thaiiandi. Freistaðu gæfunnar
og fáðu þér farseðil á 50 krónur.
Miðapantanir í
síma 99-4220 fwgléidir
ÍM 102,2 9104
FERÐASKRIFSTOFA