Morgunblaðið - 25.11.1987, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987
55
hæfíleika að geta séð spaugilegu
hliðamar á tilverunni, ekki síst ef
eitthvað bjátaði á.
Undanfarin tíu ár hafa Ester og
Kristján tekið þátt í starfinu í Galta-
lækjarskógi og þar var sumar-
paradísin þeirra síðustu ár. Þar var
Ester alltaf reiðubúin að skjóta
skjólshúsi yfir fólk í köldum og
votum veðrum og ylja því með heitu
kaffi og hjartahlýju. Og ekki var
síðra að koma í bústaðinn ef sól
skein í heiði. Þá voru stólar færðir
út á verönd og þar nutu menn þeirr-
ar veðurblíðu sem var svo einkenn-
andi fyrir Galtalækjarskóg.
í sumar dró ský fyrir sólu er
Ester veiktist af þeim sjúkdómi sem
nú hefur sigrað hana.
Ester Sighvatsdóttir var mjög
sérstök manneskja. Hún var glað-
lynd og nægjusöm og sjúkdóms-
baráttu sína háði hún af einstöku
æðruleysi. Hún þurfti að fara
nokkrum sinnum í viku á svokallaða
blóðskilunardeild, niður á fyrstu
hæð, en hún lá á þeirri efstu. Þetta
var því alltaf nokkurt ferðalag, þó
að hún vissi að hún væri orðin mjög
veik, kom hún stundum syngjandi
í rúminu sínu. Og þegar hjúkrunar-
konumar á deildinni, vinkonur
hennar, sögðu: „Hvað, þú bara
syngur?" svaraði hún glöð í bragði:
„Já, því ekki það?“ Þannig var hún
alltaf, létt í lund og brosandi og
uppörvaði þá sem í kringum hana
voru. Það var því ekki að undra
þótt þær kölluðu hana prinsessuna
sína.
Síðasta sumar var tómlegt í
Galtalæk. Við vorum alltaf vön að
líta inn í bústað Esterar, en allt í
einu var hún ekki lengur þar. Eng-
in Ester til að hlæja með, engin
Ester til að syngja með, engin Est-
er. _
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi
að fá að búa á heimili Esterar og
Kristjáns fyrsta veturinn minn í
menntaskóla. Ég hafði lítið og
skemmtilegt kjallaraherbergi út af
fyrir mig, en naut þess jafnframt
að vera hjá þessu góða fólki, sem
tók mér eins og ég væri ein úr §öl-
skyldunni. Og í mörg ár eftir þetta
var það svo að ég var stundum
komin upp í Breiðholt áður en ég
vissi af. Það var alltaf svo gott að
koma á Blöndubakkann, Ester var
alltaf svo glöð og ánægð, og reynd-
ist mér ævinlega góð móðursystir,
sem ég gat leitað til hvenær sem
var.
Það er tómlegt í Breiðholtinu
núna þegar Ester er farin. Þó er
eins og hún sé alls staðar nærri.
Hún var ein af þeim fyrstu sem
fluttu þangað, allt í umhverfinu
tengist henni á einhvem hátt og
minnir á hana. Við leitum að and-
liti hennar í mannfjöldanum. En við
finnum hana ekki þar. Við finnum
hana í huga okkar, í öllum góðu
minningunum um hana. Þar er hún
alltaf brosandi, geislandi af
lífskrafti og orku, sem hún er tilbú-
in að miðla okkur. Það er lær-
dómsríkt fyrir okkur hin, sem eftir
stöndum, að minnast þessa. Já, við
höfum lært margt. Og við höfum
margs að minnast.
í huga systkina hennar og æsku-
vina er æskan vafín birtu og gleði.
Þær minningar, sem þau eiga frá
uppvextinum, eru fagrar og dýr-
mætar og þar bar aldrei neinn
skugga á..
Ester gaf okkur mikið í lífínu.
Hún var í senn sterk og viðkvæm
og hún var hrein í gegn, hafði hrein-
an tón, eins og æskuvinkona hennar
orðað það. Það er gæfa að hafa
fengið að kynnast henni.
Hafí hún þökk fyrir allt.
Margrét Pálsdóttir
Birting af-
mælis og
minningar-
greina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í
Aðalstræti 6, Reykjavfk og á
skrifstofu blaðsins í Hafnar-
stræti 85, Akureyri._________
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
VILHELMÍNA SOFFÍA TÓMASDÓTTIR,
Hofsvallagötu 18,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni i dag 25. nóvember kl. 15.00.
Thelma Sigurgeirsdóttir, Gunnar Guðmundsson,
Sigurgeir V. Sigurgeirsson, Elín V. Guðmundsdóttir,
Halldór M. Sigurgeirsson, Elísabet Þórólfsdóttir
og barnabörn.
t
VILHJÁLMUR ÞORSTEINSSON
rafvirki,
Álfheimum 54,
verður jarösunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 26. nóvem-
ber kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Guðmundur Oddgeirsson.
t
Utför dóttur minnar, móður okkar og tengdamóöur,
SÍSÍAR TRYGGVADÓTTUR
ráðgjafa á Sogni,
fer fram frá Langholtskirkju í dag, miðvikudaginn 25. nóvember,
kl. 10.30. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minnast
hennar er bent á SÁÁ.
Magnfrfður Sigurbjarnardóttir,
Lára Stefánsdóttir, Gísli Gíslason,
Fríður Birna Stefánsdóttir, Óskar Jónsson,
Jóhann Gunnar Stefánsson.
t
Þökkum inniiega hlýhug og samúð við andlát og útför sonar okk-
ar og bróður,
SIGURJÓNS HINRIKSSONAR,
Aðalstræti 13,
ísafirði.
Hinrik Guðmundsson,
Þórir Hinriksson,
Daði Hinriksson,
Kristfn Þórisdóttir,
Arnar
Elisabet Hálfdánardóttir,
Aurangusri Hinriksson,
Berta Guðmundsdóttir,
Vincent Newman,
Hinriksson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
JÓNA ÁSGEIRSDÓTTIR,
Álfaskeiði 64, Hafnarfiröi,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn, 26.
nóvember kl. 15.00.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Þökkum auösýnda samúð við andlát og útför eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
KRISTÍNAR JÓHANNESDÓTTUR,
Eiðsvallagötu 1,
Akureyri.
Jakob Jónsson,
Jón Jakobsson, Sigurveig T ryggvadóttir,
Gunnar Jakobsson, Guðrún Helgadóttir
og barnabörn.
t
Móðir mín, '
AUÐUR JÓNSDÓTTIR
frá Ölvaldsstöðum,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 27. nóvember
kl. 10.30. Blóm og kransar afþakkaöir en þeim sem vildu minnast
hennar er bent á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Þorlákur Þórarinsson.
t
Hjartans þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför
móður okkar,
GUÐRÍÐAR ÞÉTURSDÓTTUR,
Sandholti 17,
Ólafsvfk.
Guð blessi ykkur öll.
Aðalsteina Sumarliðadóttir,
Guðni Sumarliðason.
INNRÍTUN TIL
4.DES.
SÍMI:
621066
dBASE 111+ I 7.12.
ERT PÚ AÐ FÁST VIÐ FÉLAGATÖL,
PÓSTLISTA EÐA AÐRAR SKRÁR?
dBASE 111+ GERIR ÞETTA
AÐ EINFÖLDU MÁLI.
EFNI:
• Um gagnasafnakerfi. • Skipulagning og uppsetning
gagnasafna. • Röðun gagna. • Útreikningar
og úrvinnsla. • Útprentun skýrslna, límmiða og gíróseðla.
LEIÐBEINANDI: Valgeir Hallvarðsson, véltæknifræðingur.
TÍMI OG STAÐUR: 7. — 9. des. kl. 13.30 — 17.30 að Ánanaustum 15.
ATHUGIÐ! VR OG STARFSMENNTUNARSJÓÐUR BSRB STYRKJA FÉLAGSMENN SÍNA
____________________TIL ÞÁTTTÖKU í NÁMSKEIÐUM SFÍ._________________
INNRITUN ER AÐ UÚKA h
Word 30. nóv. - 3. des., MS-DOS 30. nóv. - 3. des. og Alvís bókhald 30. nóv. - 3. des.
Stjórnunarfélag íslands
TÓLVUSKOLI
i Ánanaustum 15 • Simi: 6210 66