Morgunblaðið - 29.11.1987, Blaðsíða 1
128 SIÐUR B/C
272. tbl. 75. árg.
SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Tyrkland:
Flokki Ozals
spáð sigri í
kosningunum
Istanbul, Reuter.
ÞINGKOSNINGAR fara fram i
Tyrklandi i dag og sýna skoðana-
kannanir að Sósíaldemókrata-
flokkurinn hefur aukið fylgi sitt
verulega. Víst þykir að Föður-
landsflokkurinn, flokkur Turguts
Ozal forsætisráðherra, hljóti
meirihluta á þingi.
Samkvæmt skoðanakönnun, sem
birtist á laugardag í dagblaðinu
Sabah njóta sósíaldemókratar 28,8
prósenta fylgis og hefur fylgi flokks-
ins þar með tvöfaldast frá því í
síðustu kosningum. Flokknum hafði
verið spáð um 18 prósenta fylgi og
er aukningin rakin til vinsælda Er-
dals Inonu, Ieiðtoga flokksins.
Föðurlandsflokkurinn nýtur 36,3
prósenta fylgis og dugar það til að
tryggja flokki Ozals meirihluta á
þingi en kosið er til 450 þingsæta
að þessu sinni.
æ . -m # j Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Aðventuljos
Suður-afrísk farþegaþota hrapar á Indlandshafi:
Eldur um borð og óttast
að 159 manns hafi farist
Jóhannesarborg, Saint Denis á Reunionæyju, Reuter.
Noregur:
Hafnar við-
ræður um nið-
urgreiðslur til
sjávarútvegs
Ósló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara
Morgunblaðsins.
VIÐRÆÐUR um niðurgreiðslur
norska ríkisins til sjávarútvegsins
1988 eru nú hafnar. Fulltrúar
sjávarútvegsins vilja að ríkið
verji alls um 817 milljónum nor-
skra króna (um 4,6 milljörðum
ísl. kr.) í styrki til atvinnuvegar-
ins, en tilboð stjórnarinnar nam
aðeins 500 milljónum.
Undanfarin ár hafa niðurgreiðsl-
ur minnkað að mun, en útvegsmenn
hafa þó seilst í aðra sjóði til þess
að vega upp á móti. Þeir sjóðir eru
nú til þurrðar gengnir, svo líklega
þurfa útvegsmenn að sætta sig
þessar 500 milljónir. Raddir hafa
þó heyrst um að sjávarútveginum
beri ýmsir sérstakir styrkir, m.a.
vegna tjóns af völdum sels, en það
hefur aukist mjög að undanfömu.
FARÞEGAÞOTA frá Flugfélagi
Suður-Afríku með 159 manns
innanborðs steyptist í hafið að-
faranótt laugardags skammt
undan eyjunni Mauritius á Ind-
landshafi. Flugvélin var af
gerðinni Boeing 747 og var hún
á leið frá Taipei, höfuðborg Tai-
wan, til Jóhannesarborgar með
millilendingu á Mauritius. Óttast
er að allir þeir sem voru um
borð í þotunni hafi farist.
Að sögn talsmanns flugfélagsins
tilkynnti flugmaðurinn um reyk í
flugstjómarklefanum áður en þotan
hrapaði. Var flugvélin þá tæpa 90
kflómetra undan strönd Mauritius.
Kvaðst talsmaðurinn ekki geta sagt
til um hvað hefði valdið reyknum
þótt líklegt yrði að telja að kviknað
hefði í stjómtækjum þotunnar.
Flugleiðin frá Taipei til Mauritius
er um 8.000 kflómetra löng og er
hin lengsta sem flogin er á vegum
suður-afríska flugfélagsins.
Áhöfn franskrar herflugvélar
taldi sig hafa komið auga á flakið
um 60 sjómflur suðaustur af eyj-
unni Reunion, sem er vestur af
Mauritius, en það reyndist vera
rangt. Leit var þegar hafin úr lofti
og skip héldu frá Mauritius. Tals-
maður flugfélagsins sagði á blaða-
mannafundi á Jan Smuts-flugvellin-
um í Jóhannesarborg að
björgunarsveitir hefðu enn ekki
fundið flakið. Um 30 ættmenni far-
þeganna biðu á flugvellinum en
þeim var í fyrstu tjáð að þotan
hefði tafist.
Að sögn heimildarmanna Reut-
ers-fréttastofunnar vom 42 eða 49
Japanar um borð í þotunni. Vom
það sjómenn er ráðið höfðu sig á
togara frá Höfðaborg. Talsmaður
flugfélagsins vildi ekki láta uppi
þjóðemi farþeganna að svo stöddu
en gat þess að þeir hefðu verið 140
að tölu auk 19 manna áhafnar.
Þetta er versta flugslys í sögu
Suður-Afríku. Þann 20. aprfl árið
1968 hrapaði þota af gerðinni
Boeing 707 í Namibíu og fómst
með henni 122 menn en sex kom-
ust lífs af.
- segir fyrrverandi embættismaður
Vínarborjj, Reuter.
FYRRVERANDI háttsettur
embættismaður i Rúmeníu sagði
á föstudag, að Rúmenar ættu á
hættu að einangrast frá komm-
únistaríkjunum jafnt sem
Vesturlöndum ef verkamennim-
ir, sem efndu til óeirða vegna
matarskorts í landinu, yrðu
beittir hörðu. Óttast hefur verið
að stjómin muni gripa til harka-
legra aðgerða til þess að kæfa
andófið í fæðingu.
Silviu Bmcan, sem var sendi-
herra lands síns í Bandaríkjunum
og hjá Sameinuðu þjóðunum á sjö-
unda áratugnum, sagði í samtali
við Reuters-fréttastofuna, að yfir-
gnæfandi meirihluti félaga í
kommúnistaflokknum væri andvíg-
ur aðgerðum gegn verkamönnun-
um, sem réðust á byggingar
flokksins í borginni Brasov fyrir
12 dögum.
Brucan sagðist þó óttast, að
flokksforystan myndi eigi að síður
láta til skarar skríða gegn verka-
mönnunum. „Óeirðimar í Brasov
gefa til kynna, að bikar harðræðis-
ins sé fullur. Verkalýðsstéttin
sættir sig ekki lengur við að vera
meðhöndluð eins og auðmjúkur
þjónn."
Eftir að gripið var til spamaðar-
ráðstafana, sem fyrirskipaðar vom
af Nikolai Ceausescu, einræðis-
herra landsins, hefur verið sífelldur
skortur á nauðsynjavöram og mat-
vælum. Orkuskortur er einnig
alvarlegur og nú þegar vetur geng-
ur í garð blasir við, að húshitun
verði lítil eða engin. Rafmagn mun
duga til þess að láta loga á pemm
i 2-3 stundir á dag, en þá er held-
ur ekki hægt að nota nein raf-
magnstæki önnur. Bannað er að
nota sterkari pemr en 25 kerta.
„Kúgun myndi skapa klofning
milli flokksins og verkalýðsins,"
sagði Bmcan. „Sem gamall flokks-
félagi hef ég áhyggjur af því að
hún yrði ofan á.“
Bmcan hafði þó ekki minnstar
áhyggjur af viðbrögðum erlendis.
„Heimsálitið er nú helsti skjaldberi
mannréttinda og frekar kúgun
kynni einungis að hafa í för með
sér frekari einangmn, ekki bara
frá Vesturlöndum heldur einnig
austantjaldsríkjunum."