Morgunblaðið - 29.11.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.11.1987, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987 Kristinn H. Einarsson, framkvæmdastjórí BÍSN: Menntamálaráð- herra að þæfa málið „ÞAÐ er vissulega ánægjulegt að menntamálaráðherra skuli nú loksins rjúfa þögnina um náms- lánin, en svar hans bendir tii að verið sé að reyna þæfa málið,“ sagði Kristinn Einarsson, fram- kvæmdastjóri Bandalags islenskra sérskólanema og stjómarmaður í Lánasjóðnum um svar Birgis ísleifs Gunnars- sonar menntamálaráðherra á Alþingi á fimmtudag við fyrir- spurn Steingríms J. Sigfússonar. Vegna fyrirspumarinnar, sem varðaði Lánasjóð íslenskra náms- manna, sagði Birgir ísleifur að ekki væri ástæða til þess að leiðrétta áhrif hinnar svokölluðu frystingar, þegar Sverrir Hermannsson afnam vfsitölutengingu námslána, enda væri umdeilanlegt hver þau væru. Birgir sagði hins vegar að verið gæti að framfærsluviðmiðun lán- anna gæti verið röng og hann hefði því ritað bréf til stjómar Lánasjóðs- ins þess efnis að kannaðar yrðu leiðir til endurskoðunar. Kristinn H. Einarsson, sagði í samtali við Morgunblaðið að sér sýndist sem menntamálaráðherra væri búinn að viðurkenna að lánin væru of- lág. Þess vegna gæti hann ekki skilið hvers vegna tæki svo þvert á að afnema áhrif frystingar- innar. „Auðvitað er verið að þæfa málið með því að senda það til sjóðs- stjómarinnar. Framfærslunefnd starfaði á vegum sjóðsins í eitt ár án þess að það skilaði nokkru og * það em takmörk fyrir því hversu lengi námsmenn geta beðið." Kristinn sagði að. námsmanna- samtökin myndu skoða málið í næstu viku og ræða viðbrögð. Ostaneysla almenn SMJÖRVI er orðinn algengasta viðbitið hjá fólki, samkvæmt markaðskönnun sem Hagvangur gerði fyrir Osta- og smjörsöluna. 32,3% aðspurðra notuðu smjörva sem feitmeti ofan á brauð, 25,2% notuðu smjörva, 20,3% Létt og laggott, 11,6% Sólblóma og 3,7% Alpa. Aðrar tegundir voni með innan við 1%, en 4,6% aðspurðra sögðust yfirleitt ekki nota feit- :neti ofan á brauð. Leiðrétting ÞAU mistök urðu í frétt Morgun- blaðsins um meint kvótamisferli, að ekki var farið rétt með upplýs- íngar frá Jóni B. Jónassyni, skrifstof ustjóra sjávarútvegs- 'áðuneytisins. Morgunblaðið biðst velvirðingar á oessum mis- tökum um ieið og það leiðréttir þau. Morgunblaðið hafði samband við Jón vegna bréfs Skúla Alexanders- sonar, alþingismanns og fram- kvæmdastjóra Jökuls hf á Heilissandi, þar sem hann deildi á aðferðir sjávarútvegsráðuneytisins varðandi meint misferli við meðferð afla. Jón var inntur eftir gangi mála, en auk fyrirtækis Skúla komu Qögur önnur til sögunnar. í frétt blaðsins, sem birtist þann 25. þessa mánaðar, var ekki skilið nægilega vel á milli máls Skúla annars vegar og hinna. Það, sem Morgunblaðið hafði eftir Jóni, átti við mál hinna fyrirtækjanna, ekki Jökuls hf, nema að framkvæmdastjóra þess fyrir- tækis yrði væntanlega send endan- leg niðurstaða rannsóknarinnar í vikunni. Niðurstöður könnunarinnar birt- ust í Mjólkurvörufréttum, frétta- bréfi Osta- og smjörsölunnar. Osta- og smjörsalan framleiðir þrjár vin- sælustu tegundimar samkvæmt könnuninni og notuðu 77,8% að- spurðra þessar tegundir. Fram kemur að ostaneysla er almenn á íslandi. 87% aðspurðra borðar ost, tæplega 9% í litlum mæli og rúm 4% borða yfírleitt ekki ost. Neyslan er jafn mikil meðal bama og unglinga og þeirra sem eldri eru. Flestir nota ostinn aðailega ofan á brauð, eða 52,5%, 29% nota hann við matargerð (heit- ir ofnréttir), 13% sem ostabakka, 3,5% aðallega í sósur og súpur og 1,4% sem eftirrétt. Óskar H. Gunnarsson fram- kvæmdastjóri Osta- og smjörsöl- unnar segir að mikill fróðleíkur hafí fengist með þessari könnun. Hann segir að það hefði komið á óvart hvað mikill ókunnugleiki væri meðal fólks um fítuinníhald viðbits. í könnuninni hafi t.d. verið spurt hvort fólk teldi smjör eða jurta- smjörlíki vera fítumeira. Yfír helmingur fólks, eða 56,7%, hefði talið smjörið feitara en 4,6% jurta- smjörlíkið. 24% þátttakenda sagðist ekki vita hvor tegundin væri feitari og einungis 15% hefði verið með rétt svar, sem sé að þessar tegund- ir væru jafn feitar. Markaðskönnun Qsta- og smjörsölumiar: Smjörvi er al- gengasta viðbitið Eignir Sambands íslenskra samvinnufélaga við Kirkjusand. Morgunblaðið/Rax Nýtt athafnasvæði Sam- bandsins á Kirkjusandi Njarðvíkurkirkja f DAG, sunnudag, er bamastarf og messa í Ytri-Njarðvíkurkirkju kl. 11. Eftir messu bjóða væntánleg ferm- ingarböm kirkjugestum tíl kaffí- diykkju í safnaðarsal kirkjunnar. Bænastund verður kl. 17 í kirkjunni. f Innri-Njarðvíkurkirkju verður bamastarf kl. 11 í dag. FRUMHUGMYNDIR að væntan- legri nýtingu á húsnæði Sam- bands íslenskra samvinnufélaga við Kirkjusand gera ráð fyrir um 6.600 fermetra skrifstofuhús- næði á fjórum til fimm hæðum. í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir að fiskmóttakan við Laugarlæk verði rifin ásamt áfastri vöru- skemmu. Lóðin er 2,2 hektarar en ekki hefur verið tekin ákvörð- un um frekari nýtingu hennar. Þijú arkitektafyrirtæki voru fengin til að gera frumhönnun á væntanlegu húsnæði og fengu til þess fjóra sólarhringa. í grófri kostnaðaráætlun sem gerð hefur verið er miðað við að kpstnaður fari ekki fram úr söluverði eigna Sambandsins við Sölvhólsgötu og Lindargötu til rfkísíns eða um 280 milljónir króna. „Það sem við höfum í huga er að koma fyrir skrifstofum undir þá starfsemi sem fram fer í húsi Sam- bandsins við Sölvhólsgötu og Lindargötu auk Suðurlandsbrautar 32, en einnig hluta af þeirri starf- semi sem fram fer við Ármúla í húsakynnum Samvinnutrygginga," sagði Guðjón B. Ólafsson forstjóri. „Við teljum að þetta sé hægt enda lítum við fyrst og fremst á frysti- húsið sem fokheldan kassa. Þetta er fjögurra hæða hús og var ekki byggt fyrst og fremst sem frysti- hús. Það virðist vera traustlega byggt en hefur alltaf verið vannýtt. í þessum áfanga verður ekki byggt við húsið en Kklega verður þakinu lyft svo efsta hæðin verði með eðli- legri lofthæð." Gert er ráð fyrir að breytingum verði lokið vorið 1989 en Samband íslenskra samvinnufélaga á að af- henda ríkinu hluta húsnæðisins við Sölvhólsgötu og Lindargötu í apríl á næsta ári. Smárahvammslandið í Kópavogi; Sambandið telur landakaupin þjóna hagsmunum þess - segir Kristján Guðmundsson bæj- arstjóri í Kópavogi Forseti sameinaðs þings um frestun föstudagsfundar Alþingis: Morgiinverkin drjúg í fyrradag átti samkvæmt nýjum starfsreglum Alþingis að vera fyrsti föstudagsfundur þingsins. Einungis Iágu þó fyrir tvö mál sem takfl átti fyrir og var fundinum þvi frestað. Þorvaldur Garðar Kristjánsson, forseti sameinaðs þings, sagði að þetta væri ekki vegna þess að hið nýja fyrirkomu- lag hefði mistekist, síður en svo, morgunverkin hefðu reynst svona dijúg á fimmtudeginum. Þorvaldur sagði að mikíll munur væri nú á þvf hvernig gerð dagskrár þingfunda væri háttað. Áður hefði dagskrá mánudagsfundar ekki legið frammi fyrr en á mánudagsmorgni, en nú væri _ hún tilbúin þegar á fímmtudag. Á dagskrá fundar sam- einaðs þings á mánudag verða kosningar I áfengisvamaráð, Byggðastofnun, stjómamefnd ríkisspítalanna og yfírskoðunar- manns rikisreikninga 1987. Einnig þlngsályktunartillögur um samgöng- ur á Austuriandi og flugfargjöld, könnun á mikílvægi íþrótta, könnun á launavinnu framhaldsskólanema og lagningu vegar með suðurströnd Reykjanesskaga. SAMBANDSMENN telja, í bréfi sem lagt var fyrir bæjarráðsfund í Kópavogi á fimmtudag, að landakaup Sambandsins í Kópa- vogi þjóni hagsmunum Sam- vinnuhreyfingarinnar þegar til lengri tíma er litið. Þeir kveða hins vegar ekki upp úr með það hvort höfuðstöðvar þeirra verði á Kirkjusandi til langframa eða hvort þær verða fluttar til Kópa- vogs, að sögn Kristjáns Guð- mundssonar, bæjarstjóra f Kópavogi. „Sambandsmenn,“ sagði Krist- ján, „héldu fund með bæjarstjóm- inni fyrir fímm til sex vikum, þar sem þeir gerðu grein fyrir sínum hugmyndum um Smárahvamm. Á fundinum var um það rætt að þeir myndu halda annan fund með okk- ur síðar á árinu. Nú hefur verið ákveðið að sá fundur verði um miðj- an desember. Á þeim fundi munu þeir gera grein fyrir hugmyndum sínum um byggingarhraða og skipulagningu í Smárahvammsl- andi. Einnig bjóða þeir okkur í bréfinu lengri umþóttunartíma vegna ákvörðunar um forkaupsrétt, ef við óskum eftir því.“ Varðandi höfuðstöðvar Sam- bandsins segja Sambandsmenn að sú aðstaða. sem þeir fá á Kirkju- sandi sé nægjanleg fyrir skrifstofur Sambandsins á næstu árum. En það er ekkert kveðið upp úr með það hvort höfuðstöðvarnar verði þar til langframa eða hvort þær verði fluttar í Kópavog.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.