Morgunblaðið - 29.11.1987, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987
Skátar á Akureyrí:
Lokaliður í afmælisfagnaðinum
í Iþróttaskemmunni á sunnudaginn
SKÁTAR á Akureyri halda
sunnudaginn hátíðlegan og verð-
ur það lokaliður í afmælisfagnaði
skátanna vegna 70 ára afmælis
skátastarfs i bænum. Þann 22.
febrúar síðastiiðinn voru þau tvö
skátafélög sem fyrir voru í bæn-
um sameinuð, Kvenskátafélagið
Valkyijan og Skátafélag Akur-
eyrar, í eitt félag sem hlotið
hefur nafnið Skátafélagið Klakk-
ur. Auk þess var haldið viðamikið
afmælismót í Vaglaskógi í sum-
ar.
Hátíðin hefst klukkan 14.00 í
íþróttaskemmunni á Oddeyri með
móttöku gesta, gjafa- og heillaóska.
Síðan verður húsið opnað almenn-
ingi hálftíma síðar og fer fram
blönduð dagskrá í Skemmunni til
klukkan 18.00 þann sama dag.
Uppistaðan í dagskránni eru verk-
eftii sem allir flokkar í bænum
fengu fyrir skömmu. Þeir eiga að
nota hugmyndaflug sitt og vinna
verkefnið þama á staðnum, að sögn
Tryggva Marinóssonar, annars af
tveimur félagsforingjum Klakks.
Hinn félagsforinginn mun vera Þor-
björg Ingvadóttir. Klukkan 17.00
hefst kvöldvaka, sem opin verður
öllum. Sett verður upp sýning á
ýmsum munum, sem tengjast
skátastarfinu, auk þess sem sett
verða upp tvær til þijár litskyggnu-
sýningar.
Skátamir em allt frá 7 ára og
upp í 18 ára og teljast virkir skátar
í kringum 400 talsins í bænum.
Félagsstarfi akureyrska skáta er
skipt í fimm hverfi, Lunda- og
Gerðahverfí, Glerárhverfi, Oddeyr-
in, Innbærin og Syðri-Brekka_ auk
Miðbrekku og Norðurbrekku. Ágæt
aðstaða er í tveimur hverfunum,
sæmileg í öðrum tveimur, en aftur
á móti engin aðstaða í Glérár-
hverfi. Fyrir dyrum standa fram-
kvæmdir við nýbyggingu fyrir
Glerárhverfí og er stefnt að því að
húsið verið fullklárað á einu ári.
Áætlaður kostnaður við húsið nem-
ur um 4 milljónum króna og sagði
Tryggvi að framkvæmdir yrðu fjár-
magnaðar méð almennum fjáröfl-
unum auk þess sem gert væri ráð
fyrir styrkjum frá bæ og ýmsum
öðrum aðilum. „Þarna ríkir ófremd-
arástand eins og er því við getum
ekki bætt við fleiri skátum á meðan
húsrýmið er ekkert. Við vorum fyrst
í Glerárskóla í nokkuð ár, síðan
fengum við gamalt hús til afnota
sem hét Bandagerði. Það hús var
rifíð fyrir aðra byggingu eftir að
við höfðum verið þar í tvö til þrjú
ár. Þá fengum við aðstöðu í Síðu-
seli, en nú í haust var það rými
tekið fyrir annað á vegum bæjarins
og þá fengum við inni til bráða-
birgða í Síðuskóla.“ Tryggvi sagði
að skátastarf væri mjög öflugt í
bænum og áhugi virtist fara vax-
andi heldur en hitt.
UMÓNNUNAR- OG HJÚKRUNARHEIMIUD
SKJÓL
VERÐUR VÍGT1DESEMBER.
Heimílinu er ætlaö oð verða skjól
fyrirþá aldraða, sem afeinhverjum
ástœðum þarfnast sérstakrar
umönnunar.
Þar eiga allir landsmenn
jafnan aðgang.
Húsið er alls 6 hœðlr og verða tvœr
þeirra teknar í notkun í fyrsta áfanga.
Stefnt er að því að nœstu tvœr verði
tilbúnar í mars 1988 og að byggingin
verði fullbúin í desember 1988.
SKJÓL er sjálfseignarstofnun og
stofnendur hennar eru:
ALÞÝÐUSAMBAND ÍSiANDS ■ REYKJAVÍKURBORG ■ SJÓMANNADAGSRÁÐ ■ STÉTTARSAMBAND BÆNDA
SAMBAND LÍFEYRISÞEGA RÍKIS OG BÆJA m ÞJÓÐKIRKJAN
HEIMILIÐ ER AÐ KLEPPSVEGI 64 I REYKJAVIK
ÁTAKTILSKJÓLS
Hafin er fjársöfnun til styrkfar áfram-
haldandi framkvœmdum og verða
gíróseðlar sendir öllum heimilum
á landinu.
Einnig er tekið við framlögum
á gíróreikning nr. 46226
í Landsbanka íslands.
VIÐ, SEM ÁTT HÖFUM ÞÁTT í VERKINU,
HVETJUM FÓLK TIL AÐ LEGGJA GÓÐU MÁLEFNI LIÐ.
VERKFRÆÐISTOFA STEFÁNS ÓLAFSSONAR HF.
TEIKNISTOFAN HF. ÁRMÚLA 6
TRÉSMIEXJA ÞORVALDAR ÓIAFSSONAR HF.
TRÉSMIÐJA ÚLFARS, AUÐBREKKU 19
SVERRIR SIGURÐSSON, PÍPULAGNINGAMEISTARI
SIGFÚS OG KRISTJÁN SF. MÚRARAMEISTARAR
LOFTORKA HF.
KRISTJÁN SIGGEIRSSON HF.
HEILDVERSLUNIN EDDA HF.
FJARÐARMÓT HF.
EPAL HF.
BRÆÐURNIR ORMSSON HF.
BRAGI KRISTIANSEN, RAFVIRKJAMEISTARI
BUKKSMIEXJAN VÍK HF.
ALMÁLUN SF.
FTomKvœmdanefnd þokkar öllum þeim
sem stutt hafa verkið með framlögum sínum.