Morgunblaðið - 29.11.1987, Side 24

Morgunblaðið - 29.11.1987, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987 Pavel við orgelið í Frikirkjunni Pavel R. Smid menn, sem ætla sér að komast í röð hinna bestu og halda tónleika sem slíkir, að æfa níu klukkustundir á dag ef þeir eiga að vera samkeppn- isfærir, því samkeppnin er þar mikil. Listamenn verða að fá að æfa sig þannig að þeir eigi raun- verulega möguleika. Sjáðu t.d. mig, ég kenni í Söngskólanum, spila í Fríkirkjunni og kenni í Tónlistar- skóla þjóðkirkjunnar og hef samt varla þau laun sem venjulegur tölvufræðingur hefur fyrir dag- vinnu. Slíkt vinnuálag gerir það að verkum að maður getur ekki ein- beitt sér að neinu einu, heldur verður maður að gera svo margt. Við þvílíkar aðstæður er varla hægt að gera sér vonir um að verða nægilega góður tónlistarmaður jafnvel þó maður nýti hveija stund og æfi jafnt virka daga sem helga. En þetta er bara eins og gerist hér, Þetta finnst mér yfirleitt vera einkenni á íslenskum tónlistar- mönnum. Þeir eru í of mörgu." Fór að spila á píanó fjögra ára gamall Pavel R. Smid er fæddur í Pecky, þorpi sem er skammt frá Prag, þann 6. janúar 1949. Þar ólst hann upp hjá foreldrum sínum ásamt bróður sem 'er sjö árum eldri en hann. Foreldrar Pavlo léku á hljóð- færi. „Þau spiluðu oft saman á laugardögum og sunnudögum, og þá léttklassiska tónlist, t.d. eftir Strauss og þess háttar. Mér fannst þetta mjög gaman og fékk snemma mikinn áhuga á tónlist. Ég fór að spila á píanó þegar ég var fjögra ára og var settur til náms fímm Tónlistin var mitt val Ég kynnist konunni minni í tón- listarháskólanum, hún er fædd og uppalin í Búlgaríu en stundaði nám í Prag. Við giftum okkur þegar við vorum um 25 ára og skömmu seinna 'sá ég hina afdrifaríku auglýsingu frá Tónlistarskólanum á Eskifírði. Ég var þá að kenna í Konservatorí- um í Prag en Konservatoríum er tónlistarmenntaskóli. Það eru að- eins til þrír slíkir í Tékkóslóvakíu og fólk sem útskrifast þaðan fær kennararéttindi. Svo gerðist það að á vinnustað mínum var hengd upp auglýsing þar sem sagði að „Kons- ervatoríum á Eskifírði" óskaði eftir að ráða orgelkennara. Lofað var hærra kaupi en ég gat fengið í Prag og auk þess ókeypis húsnæði. Við veltum þessu fyrir okkur hjónin og niðurstaðan varð sú að ég ákvað að sækja um. Konan mín gat þó ekkí farið með mér strax þar sem ára. Ég þurfti að fara langan veg með lest til að komast í skólann en mamma fór með mér og var þá að versla og sinna öðrum erindum meðan ég var í skólanum. Þetta voru mjög skemmtilegar ferðir Ég lagði hart að mér við tónlistamám- ið og líka við almennt nám. Ég stefndi að því að fara í sérstakan skóla sem er sambland af mennta- skóla og háskóla. Pabbi minn vildi að ég yrði rafmangsverkfræðingur eins og hann. En samkeppnin var hörð í þessum efnum og það þarf háar einkunnir til að komast í slíka skóla. í Tékkóslóvakíu er því þann- • ig varið að farið er mjög strangt eftir reglum. Þar tjóir ekki að þekkja mann sem þekkir mann, eins og gerist stundum hér. Ef þú stend- ur þig vel í Tékkóslóvakíu þá nýtur þú allra þeirra réttinda sem á ann- að borð reglur leyfa og enginn getur komið í veg fyrir það, ef þú stendur þig illa þá getur enginn liðkað til fyrir þér. Þar stendur þú og fellur með verkum þínum. Ég náði takmarki mínu og komst í þennan menntaskóla og tók þaðan próf. Til þess að stunda þetta nám varð ég að leggja rnig allan fram og ég varð að fara á fætur klukkan hálf fjögur á morgnana og fara langa leið með lest og kom ekki aftur heim fyrr en klukkan átta á kvöldin. Ég gerði því lítið annað sem unglingur en læra og spila á hljóð- færi. Eg var við píanónám fram til fimmtán ára aldurs en eftir það hef ég leikið á orgel. Eftir að mennta- skólanámi lauk sótti ég um inn- göngu í rafmagnsverkfræði í háskóla og fékk inngöngu. En tón- listin togaði líka alltaf í mig og lengi vel átti ég í töluverðu stríði af þeim sökum. Eg hafði á menntaskólaár- unum sótt einkatíma í orgelleik hjá kennurum við tónlistarmennta- skóla. En svo kom að því að ég sótti um inngöngu í tónlistarhá- skóla í Prag og komst inn og þar með var brautin ákveðin, tónlistin var mitt val. Eru íof morgu Rætt við Pavel R. Smid orgelleikara í Fríkirkjunni í Reykjavík um skoðanir hans á andstæðum íslenskra tónlistarmanna, starf hans sem tónlistarkennari á Eskifirði og uppvöxt hans og skólagöngu í Tékkóslóvakíu Fríkirkjan í Reykjavík hefur yfir sér þennan sérstaka blæ sem ein- kennir timburkirkjur á íslandi. Þeir sem stóðu að byggingu hennar vildu fara aðrar Ieiðir en þjóðkirkjan og það hefur síður en svo fækkað í Fríkirkjusöfnuðinum þau 85 ár sem liðin eru frá byggingu kirkjunnar. Einn hlýjan nóvembermorgun stend ég á tröppum þessar- ar gömlu kirkju og horfi á hvíta svani fljúga með annarlegum hljóðum rétt fyrir ofan vatnsborð tjarnarinnar. Vesalings gráu endurnar hverfa í skugga þessára stóru og hátignarlegu hvítu fugla sem setj- ast með furðu litlum fyrirgangi á vatnið og þurfa varla að taka nema fáein sundtök til þess að gera umhverfi sitt harla rómantískt í grámóskulegri morgunbirtunni. Svona er það nú einu sinni í þessu lífi, sumir eru þannig gerðir að þeir skera sig úr hinum hvers- dagslega fjölda. Ég lem þrjú þung högg á læsta kirkjuhurðina en það kemur eng- inn til að opna. í sama mund og ég reiði höndina til höggs á ný kemur Edda Árnadóttir kirkjuvörður fyrir hornið og bendir mér að fylgja sér. Við förum inn um litlar dyr og alla leið inn Lherbergi þar sem aðstaða er til að setjast niður og fá sér kaffisopa. Þar fæ ég mér sæti og bíð eftir Pavel R. Smid organleikara Frikirkjunnar sem ég ætla að hafa tal af. Edda gefur mér kaffi i bolla sem ég er rétt að byija að dreypa á þegar Pavel birtist. Það er með mannfólkið eins og fuglana, sumir hafa útlitið með sér, aðrir ekki. Flest gerum við okkur hugmyndir um hvemig t.d. listamenn eigi að líta út. Útlit Pavels kom merkilega vel heim og saman við þær hug- myndir sem ég hafði gert mér um slavneskan tónlistarmann. Hávax- inn, dökkur á brún og brá og töluvert alvarlegur í framan. Fædd- ur og alinn upp í Tékkóslóvakíu, þar sem ríkir menning fjarskalega ólík þeirri sem við búum við. Allt- énd fínnst mér maðurinn bera það með sér að hann sé alvarlega þenkj- andi tónlistarmaður sem hafí mikinn metnað í sínu starfí. Samtal mitt við Pavel styrkir fremur en hitt þessa nokkuð svo fljótfærislegu ályktun mína. Eftir að Pavel hefur setið fyrir hjá ljósmyndara Morgunblaðsins býður hann mér heim til sín til nánari viðræðna. Hann kveðst búa steinsnar frá kirkjunni og segir um leið brosandi að það komi sér stund- um vel þvi honum fínnist gott að sofa á morgnana. Þetta er nánast það eina sem ég veit um manninn þegar við röltum uppá Laufásveg og inn í fjögurra hæða hús eitt og þar upp á efstu hæð. Violeta kona hans er heima og ber okkur bros- mild kaffí og meðlæti. Allt á heimili þeirra hjóna vitnar um það hve tón- listin skipar mikið öndvegi í lífí þeirra. í fremri stofu er stórt orgel og í innri stofu stór flygill. Þar eru líka hljómflutningstæki plötur og segulband og framan úr eldhúsi berst ómur af hljómlist eftir Verdi, upptaka frá tónleikum þeirra hjóna. í miðri stofunni er leðursófasett og sófaborð með koparlitri plötu. Ég lít í kringum mig og augu mín stað- næmast við dúkku í tékkneskum þjóðbúningi, sem stendur uppá brúnum hátalara í einu homi stof- unnar og horfír bláum plastaugum sínum á okkur, fyrir ofan hana er þanið kálfskinn á vegginn. Þetta tvennt er í hrópandi andstæðu við lifandi áhugann í augum Pavels þegar hann segir mér frá skoðunum sínum á aðstöðu listamanna á ís- landi. „íslendingar eiga efni í góða tónlistarmenn en þeir ííafa ekki aðstöðu til að vinna sem skyldi að list sinni," segir hann. „Þeir verða að vinna alltof mikið til þess að geta sinnt tónlistinni almennilega. Uti þar sem ég þekki til verða

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.