Morgunblaðið - 29.11.1987, Page 38

Morgunblaðið - 29.11.1987, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987 : AFTUR TIL FRÍKU f bók sinni Roots Rocking in Zimbabwe segir tónlistarmað- urinn Fred Zindi frá því að þegar hann hafi hafið sinn tónlistarferil 1965, hafi Bítlarnir verið vinsælasta hljómsveit í Austur-Afríku og því hafi allar afrískar hljómsveitir hermt eftir þeim. Eldrí tónlistarmenn sem hann kynntist bentu honum á það hve tónlist Bítlanna var lík svokallaðri marabi- tónlist sem tíðkast hafði í Zimbawe í áraraðir. Zindi tók ekki mikið mark á þessum ábendingum og um tima þóttu honum líklegast að ef einhver tengsl væru á milli, þá væri það vegna þess að marabitónlistin væri upprunnin á Vesturl- öndum. Síðar áttaði hann sig þó á því að þessu var öfugt fanð; Bítlarnir voru að leika tónlist sem upprunnin var í Afríku. enda öll stórfyrirtækin búin að taka við sér og eru farin að gefa út plöt- ur með afrískri tónlist á ný. Ekki legg ég mat á það hvort það sé gott eða slæmt, en víst er að það þarf ekki stórfyrirtæki til að gera góðar plötur. Þessi áhugi nær ekki síður til annarskonar tónlistar en afrískrar og fyrirtæki eins og Globestyle hafa verið að gefa út það sem þau kalla heimstónlist, tónlist frá Mið- og Suður-Ameríku, Madagaskar, ísra- el og Grikklandi auk Afríkutónlist- ar. Þau fyrirtæki sem eru að gefa út þessa tónlist, og við erum þar á meðal, hafa og komið sér saman um að taka upp sameiginlega dreif- ingu. Tónlistinni verður dreift undir nafninu heimstónlist, sem er kannski ekki gott orð, en til komið til að leysa úr vandræðum plötusala sem veit ekki hvað hann á að gera við þessar plötur; hvar hann á að setja þær f hillur og hvemig hann á að auglýsa þær. Heimstónlistin er nú nokkuð leik- in í útvarpi og salan hefur aukist mikið í kjölfar þess, þó ekki sé enn hægt að segja að þessar plötur selj- ist almennt í hundruðum þúsunda eintaka. Fólk hefur sagt okkur að það laðist að þessari tónlist vegna þess að vestræn popptónlist sé kom- in í öngstræti og það gerist ekkert markvert í henni. Því er fólk áfjáð í að heyra eitthvað nýtt. Vestrænir tónlistarmenn eru einnig famir að sækja innblástur í afríska og suður ameríska tónlist. Fram að þessu hefur Stern’s eingöngu gefið út afríska tónlist. Er það framundan að gefa einn- ig út annarskonar tónlist? Næsta plata okkar verður með brasilískri tónlist, en sú plata er gerð í kjölfar samnings sem Stem’s gerði við brasilískt fyrirtæki um að okkar plötur verði gefnar út þar í landi. Við höfum einnig unnið með öðm smáfyrirtæki og gefum út í samvinnu við það plötu með pakist- anskri söngkonu, en fyrst um sinn, að minnsta kosti, munum við halda okkur við afríska tónlist. Ef við fengjum aftur á móti í hendumar plötu með skemmtilegri tónlist þá myndum við auðvitað gefa hana út. Hverjir eru það sem kaupa þessa tónlist? Nú sagði mér ein- hver að það væri fólk á aldrinum 18 til 25 ára, fólk sem væri of gamalt fyrir Madonnu og of ungt fyrir Dire Straits og Grateful Dead. Fæstir mæla gegn því í dag að vestræn popp- og rokktónlist sé upprunnin í Afríku að mestu. Hún hefur þó tekið svo miklu stakka- skiptum að oft er erfítt að átta sig á upprunanum. Hin seinni ár hafa' afrísk áhrif þó vaxið á ný og má þar benda á hljómsveitir eins og Camper Van Beethoven og tónlist- armenn eins og Sting og Peter Gabriel. Einnig hafa afrískar hljóm- sveitir náð lýðhylli á Vesturlöndum og Zimbawehljómsveitin Bhundu Boys var með vinsælli tónleikasveit- um á Bretlandi í sumar sem leið. Það má því halda því fram að um sé að ræða einskonar afríska tónlistarvakningu í Vestur-Evrópu, þó ekki hafí hennar orðið vart á Islandi nema að litlu leyti. Æ fleiri á Vesturlöndum hlusta nú á sousko- ustónlist frá Zaire, jujutónlist frá Nígeríu, marabitónlist og jittónlist frá Zimbabwe, mbalaxtónlist frá Senegal, eða highlifetónlist frá Ghana og hljómplötufyrirtæki sem sinna þeirri eftirspurn sem þegar er fyrir hendi spretta upp. Nokkur af þeim helstu: Stem’s, Earth- works, Celluloid, Cooking Vinyl og Globestyle. Stem’s er eitt stærsta útgáfufyr- irtæki afrískrar tónlistar í Bret- landi, þó ekki sé það stórt :3amanborið við risafyrirtækin sem jjjefa út popptónlist. Stem’s er rekið uamhliða verslun sem selur afríska tónlist og alskyns jaðartónlist. í kjallaranum undir versluninni eru skrifstofur Stem’s og þar var fyrir Robert Urbanus, annar eigandi fyr- irtækisins sem sagði frá tilurð Stem’s. Raftæki og jaðartónlist Upphaflega var hér raftækja- verslun, en skammt frá er háskóli sem margir afrískir námsmenn gengu í. Þeir komu með plötur með sér og svo fór að búðin fór að kaupa notaðar plötur af þeim og hafði í kassa innan um hraðsuðukatla og þvíumlíkt. Þetta vatt uppá sig smátt og smátt. Námsmennimir fóru að taka með sér plötubunka að heiman til að selja í búðinni og fá þannig aukapening og brátt var þetta orð- inn snar þáttur í rekstri verslunar- innar sem var á endanum nefnd African Music Centre. Þannig gekk þetta í tuttugu ár, að fyrir fímm árum keyptum við félagi minnn búðina. í fyrstu vomm við bara í innflutningi á plötum fyrir búðina, enda var eftirspum eftir afrískri tónlist ekki mikil til að byija með. Eftir því sem áhugi manna glæd- dist á slíkri tónlist fóram við að flytja inn æ meira fyrir aðrar versl- anir og síðan ákváðum við að stofna hljómplötuútgáfu og gefa sjálfír út plötur. Síðan höfum við gefíð út tuttugu plötur sem við höfum ýmist stjómað sjálfír upptökum á hér í Bretlandi eða að við höfum leigt útgáfurétt á plötum sem búið var að gefa út í Afríku eða annars stað- ar í Evrópu. Gott dæmi um okkar útgáfu er nýjasta plata okkar, sem er plata með söngvaranum Salif Keíta, en hann var búinn að gera Alpha Blondy í hlutverki rasta- mannsins sem frelsar svert- ingja úr Babýl- on hvíta mannsins. plötusamning við EMI fyrir Bret- landsmarkað. Upptökustjóri og útsetjari sem býr í París og hefur unnið með mörgum afrískum tón- listarmönnum, fékk hann til að taka upp plötu á sínum vegum. Sá sem sá um upptökuna og útsetningar gefur svo sjálfur út plötuna í Afríku en við kaupum útgáfuréttinn í Bret- landi og Evrópu. Síðan gerði Salif Keíta samning að vestrænum hætti, þ.e. samning sem er bind- andi í einhver ár, við Island Records og Isiand kaupir það sem eftir er af útgáfuréttinum. Við höfum einnig tónlistarmenn á föstum samningi við okkur, en það hefur of mikil fjárútlát í för með sér og því viljum við frekar hafa handbært fé til að geta keypt útgáfurétt á stökum plötum, enda gefur það meiri möguleika á að gefa út gott efni. Er vaxandi áhugi á afriskri tónlist í Bretlandi? Stuttu eftir að við byijuðum með búðina ríkti mikill áhugi á afrískri tónlist, t.d. var Island þá með samn- ing við Nígeríumanninn Sunny Adé og það átti sinn þátt í að glæða áhugann. Sá áhugi dvínaði aftur en nú er áberandi uppsveifla. Fyrir þeim áhugaauka era margar ástæð- ur, sumir segja að það sé ekkert að gerast í annarri tónlist og svo ber einnig að líta til hvítra tónlistar- manna eins og Peter Gabriel og Paul Simon sem hafa nýtt sér afríska tónlist til að gera eitthvað nýtt í vestrænni tónlist. Nú eru Salif KeYta

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.