Morgunblaðið - 29.11.1987, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987
55
Devito og Crystal í myndinni „Throw Mommy
From the Train“.
lestinni" („Throw Mommy From the
Train") getur aðeins þýtt eitt; geð-
sýki. Það er grínleikarinn Danny
DeVito sem leikstýrir myndinni og
leikur annað aðalhlutverkið á móti
Biliy Crystal. Minnugur Hitchcock-
myndarinnar „Strangers on a
Train" leikur DeVito gæfulítinn rit-
höfund sem búið hefur hjá mömmu
sinni í 40 ár. Crystal leikur rithöf-
und hvers fyrrum eiginkona hefur
stolið skáldsögu frá og gefið út í
sínu nafni. Þeir gera samning; De-
Vito á að ganga frá eiginkonunni
bíræfnu en Crystal samþykkir í
staðinn að henda mömmu DeVitos
úr lest.
Barbra Streisand, sem ekki hefur
leikið (eða gert) bíómynd síðan
„Yentl" kom á tjaldið árið 1983,
leikur á móti Richard Drejrfuss í
myndinni „Nuts“, sem Tom Topor
hefur sett í kvikmyndabúning eftir
leikriti sínu. Hún leikur vændis-
konu, sem sökuð er um morð og
það er Richard Dreyfuss sem leikur
lögfræðing hennar. Sýnist vera enn
eitt réttardramað en með hjálp lög-
fræðingsins reynir vændiskonan að
sýna fram á geðheilbrigði sitt.
Maureen Stapleton leikur mömmu
hennar en Martin Ritt er leikstjóri.
Fyrirtæki Streisands framleiðir.
John Huges framleiðir venjulega
myndir um unglinga í tilfínninga-
flækju en núna vinnur hann með
stjömum sem gætu verið pabbar
uppáhaldsstjamanna hans. Steve
Martin og John Candy fara með
aðalhlutverkin í „Planes, Trains and
Automobiles". Það er gamanmynd,
auðvitað, um sölumann og auglýs-
ingameistara sem betjast við að
koma sér heim fyrir Þakkargjörðar-
daginn og nota sjálfsagt öll farar-
tækin í titli myndarinnar (Flugvél-
ar, lestir og sjálfrennireiðar) í þeirri
baráttu.
William Hurt leikur sjónvarps-
fréttamann í myndinni „Broadcast
News“ um lífíð á fréttastofu stórrar
sjónvarpsstöðvar. Þetta er fyrsta
mynd leikstjórans James Brooks
síðan hann gerði „Terms of Endear-
ment“.
Louis B. Mayer reyndi að
róa kaþólska.
Steven Spielberg gerði
mynd um svipað efni.
Árið 1942 fékk framleiðandinn
Sidney Franklin („Mrs. Miniver")
leikritaskáldið og handritshöfund-
inn Paul Osbom („Madame Gurie")
til að gera handrit eftir sögunni
fyrir 2.250 dollara á viku - í 31.
viku. Hinn 85 ára gamli höfundur
segir núna: Ég man ekki nokkum
skapaðan hlut um „Að eilífu" nema
að mér líkaði hún ekki.“ Franklin
fékk einnig Robert Nathan
(„Portrait of Jenny") og Helen De-
utsch („National Velvet") í málið
og svo vildi aðal-söngvamyndasmið-
urinn í Hollywood, Arthur Freed,
gera söngleik eftir sögunni með
Judy Garland og Peter Lawford.
Þá átti hún að gerast við Kyrrahaf-
ið á stríðsámnum. Judy á að hafa
sagt að myndin væri brandari.
Og aldrei gerðist neitt. Hver sem
ástæðan var komst „Að eilífu“ ekki
á skrið. Á sjöunda áratugnum
reyndi leikritaskáldið Frank D,
Gilroy („The Subject Was Roses")
að gera handrit en mistókst. Leslie
Bricusse reyndi á áttunda áratugn-
um en mistókst og framleiðandinn
David Seltzer („The Omen“) reyndi
en mistókst. Árið 1981, þegar ungl-
ingaparadísin „Bláa lónið" var gerð
fékk einhver þá hugmynd að gera
unglingamynd úr efninu. Það varð
aldrei neitt úr því frekar en öðm.
Og svo hoppum við til ársins
1987. Steven Spielberg tengist þá
málinu í gegnum svipað verkefni,
sem hann hyggst gera. Hann hefur
í undirbúningi mynd sem heita á
„Alltaf“ („Always") og er endur-
gerð MGM-myndarinnar „A Guy
Named Joe“ frá árinu 1943. Spenc-
er Tracy, Van Johnson og Irene
Dunne léku þá í henni en hún fjall-
aði um omstuflugmann sem skotinn
er niður í stríðinu og himneskur
hershöfðingi sendir hann aftur í
heiminn til að leiðbeina ungum flug-
manni. Yfírmenn hjá MGM, sem
ekki vilja láta nöfn sín koma fram,
segja að í samningi MGM/UA við
Spielberg um „Joe“ sé það tekið
fram að ekki megi gera „Að eilífu"
fyrr en í fyrsta lagi eftir að „Allt-
af“ hafí verið sýnd vegna þess að
þær myndu keppa hvor við aðra.
En allt í einu em allir famir að
gera myndir úr himnaríki. „Made
in Heaven", sem nýlega var fmm-
sýnd í Bandaríkjunum er ekkert
ósvipuð „Að eilífu". Leikstjóri henn-
ar er Alan Rudolph en handrits-
höfundamir em Bmce A. Evans og
Raynold Gideon („Stand By Me“).
Myndin sú fjallar um tvær hjarta-
hreinar sálir í himnaríki, strák og
stelpu. Hún á að fara að fæðast
og hann sannfærir Almættið um
að láta hann endurfæðast. Á jörð-
inni lifa þau ólíku lífí en hittast
aftur í myndarlok. Þið kannist við
þetta?
Talsmenn handritshöfundanna
segja að þeir hafí ekkert um tilvist
„Að eilífu" vitað fyrr en þeir luku
við handritið að „Heaven“ og fólk,
sem las það, benti þeim á að það
minnti á söguna „Að eilífu".
Hvort sagan gamla verður ein-
hvemtímann kvikmynduð er ennþá
vafamál. Hún hefur verið í undir-
búningi í 50 ár og gæti verið það
í önnur 50 ár. Kannski bíógestir
eigi eftir að sjá hana árið 2037.
Skildi þá einhver muna eftir hálf-
nöfnunum Thal- og Spielberg.
Úr American Film.
Ap, jún, sept, nóv, þrjátíu hver einn til hinir kjósa sér. Febrúar tvenna fjórtán ber frekar einn þá hlaupár er.
VERSLUNAREIGENDUR! FLJÓT AFGREIÐSLA • Öll almenn prentun • Stimplar • Umbúðapappir • Almanök . V , Jfðfe; SPÍTALASTÍGUR £ FÉLAGS- * Hr^- PRENTSMIÐJAN hf SPÍTALASTÍG 10 V/ÓÐINSTORG sími 11640
Hvað er betri auglýsing en að gefa viðskiptavinum sínum dagatal? Myndina getið þið útvegað eða val- ið úr okkar úrvali. Verð mjög hagstætt.
GARÐBÆINGAR
Vantar 4ra herbergja íbúðarhúsnæði- eða stórt
3ja herbergja- til kaups í Garðabæ. Óskastað-
ur í miðbænum eða sem næst honum.
Einbýlishúsalóð, homlóð, á besta stað í bæn-
um gæti hugsanlega gengið upp í kaupin.
Jarðvegsskipti hafa þegar farið fram.
Góð útborgun í boði- traust viðskipti.
Upplýsingar í síma 43715 um helgina.
JÓLAHANDAVINNA
NÚ ER RÉTTI TÍMINN
JÓLASTRENGIR PÓSTSENDUM
JÓLADÚKAR
TIL AÐ TELJA ÚT
TILBÚNIR OG
í METRATALI
ÓÐINSGÖTU 1 S. 13130