Morgunblaðið - 10.12.1987, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987
15
Það er ekki sama hvemig gengið er frá gúmmíbátunum. Það verð-
ur að vera fljótlegt að losa þá. Víða er pottur brotinn eins og sést
á þessari mynd sem var tekin nýlega.
þ.e.a.s. ef hinn sjálfvirki búnaður
gálgans hefði náð því að komast
niður á nægjanlegt dýpi til að opn-
ast. Þama erum við komnir að
grundvallaratriði sem skiptir að
mínu mati miklu máli ef ekki öllu.
Hér vaknar stór spuming. Hvað
geta sjómenn beðið lengi í sjónum
við hlið sökkvandi skips, eins og
Tjalds, eftir þvi að báturinn sökkvi
nægjanlega mikið til að búnaðurinn
virki og bátamir losni og skili sér
upp á yfirborðið. .
I þessu tilfelli var Tjaldur aðeins
0,6 sjómílur frá landi. Er óeðlilegt
að ætla það, að mennimir hafí tek-
ið þá ákvörðun að synda í land,
eftir að hafa misst alla von um að
ná gúmmíbátunum undan Tjaldi?
Enginn getur fullyrt þetta, en
þetta er raunhæfur möguleiki.
Cylinda
uppþvottavélar ★ sænskar og sérstakar
Taka 14 manna borðbúnað og fá hæstu
neytendaeinkunnir fyrir þvott, þurrkun, hljóð-
leika og orkusparnað. Efnisgæði og öryggi
einkenna ASEA. Þú færð ekki betri vélar!
3'á^iFOniX
HATUNI 6A SlMI (91)24420
VATNSVIRKJANS
15—25% AFSLÁTTUR
Á BLÖNDUNAR- OG HREINLÆTISTÆKJUM
FRAM TIL JÓLA
aðurinn geta brotið af sér
ís þegar gúmmíbjörgunar-
báturinn er sjósettur við
þessar aðstæður.
7.3. Gúmmíbjörgunarbátar, sem
komið er fyrir í sjósetning-
arbúnaði skv. þessum
reglum og gengið hefur ver-
ið frá á þann hátt að þeir
byiji að blásast upp um leið
og þeir falla í sjó, skulu
greinilega merktir eftirfar-
andi áletmn á umbúðum
bátanna:
AÐVÖRUN - DRAGIÐ
EKKI ÚT FANGALÍNUNA.
7.4. Staðsetning og frágangur
búnaðar til losunar og sjó-
setningar gúmmíbjörgunar-
báta í gömlum skipum skal
háð samþykki Siglinga-
málastofnunar ríkisins.
Óheimilt er að breyta stað-
setningu sjósetningarbún-
aðar án samþykkis
Siglingamálastofnunar
ríkisins.
7.5. Sjósetningarbúnaður
skal skoðaður árlega. Heim-
ilt er siglingamálastjóra að
veita sérstökum aðilum
heimild til að annast skoðun
og viðhald sjósetningarbún-
aðar gúmmiTjörgunarbáta
skv. nánari fyrinnælum.
Skoðunargjöld fyrir sjósetn-
ingarbúnað gúmmíbáta
skulu ákveðin af samgöngu-
ráðherra.
7.6. Losunarbúnaði á skipum minni
en 50 brl, sem uppfyllir
ákvæði eldri reglna, þarf
ekki að breyta með hliðsjón
af frmangreindum reglum
nema siglingamálastjóri
ákveði annað.
Hvað á að láta sjómenn
bíða lengi í sjónum?
Á þessu sést að Tjaldur var ekki
útbúinn tækjum samkv. reglum sem
segja að tryggja eigi að gúmmí-
björgunarbáturinn falli sjálfvirkt út
fyrir borðstokk skipsins og byrji að
blásast út. Líta verður svo á að það
hefði getað skipt verulegu máli ef
báturinn hefði haft Olsen-gálga
Of lengi daufheyrst
við kostum Sigmunds-
búnaðarins
En við skulum halda áfram með
björgunarbúnaðinn og gefa okkur
það að Tjaldur hefði verið búinn
Sigmundsgálga með sjálfvirkum
opnara, þá losnar gúmmíbáturinn
8—12 sekúndum eftir að búnaður-
inn er kominn í sjó, einnig opnast
fyrir flösku gúmmíbátsins og hann
byijar að blásast upp og jafnframt
flytst hann með gálganum út fyrir
borðstokk og upp á yfírborðið á
örskömmum tíma. Þetta gerist allt
óháð dýpi. Þetta eru augljósir kost-
ir Sigmundsbúnaðar sem því miður
hefur verið daufheyrst við til þessa,
en af reynslu vegna síðustu slysa
er þetta að breytast. (Reglugerð í
endurskoðun.)
Áður en lengra er haldið vil ég
að það komi fram að ástæðan fyrir
því að ég settist niður til að svara
þessari fyrirspum er sú staðreynd
að margir bátar sömu stærðar og
Tjaldur, að ég tali ekki um bátar
þaðan af minni, eru búnir nákvæm-
lega eins losunar- og sjósetningar-
búnaði. Þetta hef ég séð og athugað
í höfnum hér sunnanlands.
Það er einnig sannfæring mín
að margir sjómenn sem eru á þess-
um bátum geri sér ekki grein fyrir
því hve vamarlausir þeir em ef
bátum þeirra hvolfír, en því miður
er það algengasta orsök skipstapa
af stærðinni 30 brúttólestir og
minni. Það er þess vegna lífsnauð-
synlegt fyrir sjómenn að vita
hvemig skip þeirra era búin tækjum
og hvemig þau tæki virka á hættu-
stundum. Annars stóla þeir á falskt
öryggi.
Reginmunur á Sig-
mundsbúnaði og Olsen
Það er rétt hjá Óskari Þórhalls-
syni að mikið hefur verið rætt og
ritað um þessa gálga, en oftast
ekki nógu málefnalega. Ég er full-
viss um það, að þó sjómenn hafí
fylgst með þessum blaðaskrifum
gegnum árin, þá era fæstir þeirra
sem hafa gert sér grein fyrir því
hve mikill munur er á þeim tveim
búnuðum, sem aðallega era um
borð í skipunum, þ.e.a.s. Olsen og
Sigmund. (Olsen hefur um 85—90%
— en Sigmundsbúnaður er í 10%
flotans.)
Sjómenn ættu nú að kynna sér
þessa báða björgunar- og öryggis-
búnaði í ljósi þeirra slysa sem orðið
hafa á undanfömum tveimur áram,
sérstaklega þeir sjómenn sem era
á smábátunum.
Höfundur er stýrimaður á Herj-
ólfifrá Vestmannaeyjumogá
sæti í rannsóknarnefnd qjóslysa.
NAUTALEÐUR
Verðið er
68.650
— þetta er ekki prentvilla
Bergen 6 sæta homsófi.
í púðum er polyester og dacr-
onló. Klætt með krómsútuðu
anilíngegnum lituðu nauta-
leðri á öllum slitflötum og með
leðurlíki á grind utanverðu.
húsgagn»höllinp
Stærðir B 210 x L 265.
2ja ára ábyrgð.
REYKJAVlK