Morgunblaðið - 10.12.1987, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987
53
Flugslysið á ísafjarðardjúpi 21. janúar sl.:
Allar forsendur fyrir hendi
sem stuðlað gátu að skynviílu
- segir í skýrslu Flugslysanefndar og Flugmálastjórnar
LÍKLEGASTA orsök þess að flugvélin TF-ORN lenti í sjónum á
Isafjarðardjúpi að kvöldi 21. janúar sl. er að mati Flugslysanefnd-
ar sú að flugmaðurinn hafi af óþekktum ástæðum flogið í sjóinn
þegar hann var upptekinn við að reyna að ná eða halda sjónflugi
og sjá ljós úr landi. Flugmaðurinn, sem sem lést í slysinu, var einn
í vélinni.
í skýrslu nefndarinnar og Flugmálstjórnar um slysið segir einn-
ig að í slíku flugi sem þarna var um að ræða sé afar mikil hætta
á skynvillu, svimatilfinningu og stöðuvillu og þá megi lítið út af
bregða í sjónflugi yfir svörtum sjónum með lélega eða enga ytri
viðmiðun og hugsaniega skert útsýni, til þess að flugvélin taki
niðri.
Flugvélin TF-ORN, sem var af
gerðinni Piper PA-31-350 frá flug-
félaginu Ömum hf., var í feijuflugi
frá Akureyri til ísaflarðar. Flugtak
á Akureyri var kl. 19.07 og flogið
var blindflug og flugið síðan lækk-
að út ísafjarðardjúp eftir radíóvit-
anum á Reykjanesi. Eftir að
sjónflugi væri náð átti að fljúga
inn yfir Skutulsfjörð og lenda á
flugvellinum þar. Flugmaðurinn
var í sambandi við flugradíóið á
ísafírði en samband við vélina
rofnaði áður en flugvélin kom að
Skutulsfírði. í ljós kom að vélin
hafði farið í sjóinn og sokkið og
fannst lík flugmannsins ásamt
braki úr flugvélinni á floti um
nóttina.
í skýrslu Flugslysanefndar og
Flugmálastjómar, sem skilað hef-
ur verið til samgönguráðuneytis,
eru líklegustu orsakaþættir slyss-
ins taldir þeir, að flugvélin hafí
flogið gegnum ísingu í lækkun sem
byijaði kl. 19.36 og var í líklegum
ísingarskilyrðum eftir það eða í
um 22 mínútur. Á þeim tíma sem
slysið varð vora ekki sjónflugsveð-
urskilyrði yfír ísaQarðardjúpi og
víða éljabólstrar niður að sjó.
Líklegt er talið að á síðustu augna-
blikum flugsins hafí sjónflug og
blindflug skipst á og það hefði
getað valdið því að yfírsýn flug-
mannsins yfír mælitækin hafí
traflast nægilega lengi til þess að
flugvélin lækkaði flugið niður í
sjóinn. Talið er að erfíðir um-
hverfísþættir og hugsanlega
þreyta hafí háð flugmanninum og
flugvélinni hafí verið flogið of lágt
þegar flugmaðurinn var að öllum
líkindum að reyna að ná sjónflugi
og sjá ljósin á Amamesi eða Ijósin
vestan fjarðarminnisins við
Hnífsdal og í ísaijarðarkaupstað.
í skýrslunni segir að fyrir liggi
skýrsla Bandarísku alríkisstofun-
arinnar um öryggi í atvinnuflutn-
ingum, um flugslys vélar sömu
gerðar og TF-ORN. Það slys varð
í mjög lélegum veðurskilyrðum. í
þeirri skýrslu er kafli úr bók sem
fjallar um skynvillu, svimatilfínn-
ingu og stöðuvillu. í skýrslu
Flugslysanefndar er bent 4 að
kvöldið sem slysið varð á ísafjarð-
ardjúpi hafí öil skilyrði verið fyrir
hendi, sem stuðlað gætu að þessu.
Gögn liggi ekki fyrir svo unnt sé
að fullyrða að þessi atriði hafí
verið meðal orsakaþátta slyssins,
en það sé líklegt að svo hafí verið.
I skýrslunni segir að slys þetta
hafí vakið umhugsun um það hvort
gildandi reglur séu nægilega
strangar hvað varðar tvo flug-
menn og það orki tvímælis að
hafa aðeins einn flugmann við þær
aðstæður sem þama vora fyrir
hendi. Einnig segir að álíta verði
að málavextir þessa slyss og ann-
ara svipaðra sem orðið hafa
krefjist þess að raunveralegt um-
hverfí, sem atvinnuflugrekstur
með einum flugmanni í leiguflugi
og þjónustuflugi eftir blindflugs-
reglum fer fram í, verði tekinn til
ítarlegarar og gagnrýninnar um-
ræðu og endurmats.
Finnskar og ítalskar peysur
v/Laugalæk, sími 33755.
GEKK EG YFIR
SJÓ OG LAND
eftir Kristján Róbertsson
Hór segir (rá þeim miklu urnbrotum
sem áttu sér stað í lifi (ólks i
Vestmannaeyjum a siöari hluta 19.
aldar. þegar islenskir mormónatru-
boðar birtust þar og (óru oð boða
nýtt íagnaðarerindi sem okki hafði
heyrst hér a landi áður.
Þetta er bæði furðuleg og (róðleg
saga, sem margir munu aroiðanloga
hafa gaman a( að kynna sor.
LeÖurklœddir hvíldarstólar.
Tilboðsverð kr. 23.000,- stgr.
VALHÚSGÖGN
Ármúla 8, símar 82275 > 685575.