Morgunblaðið - 23.12.1987, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987
Eru íslendingar um-
hverfisvemdarsinnar?
eftírKonráð O.
Jóhannsson
Þorri Islendinga heldur að svo
sé, en það stafar fyrst og fremst
af þrennu; gífurlegu áhugaleysi á
náttúruvemd, þekkingarskorti á
náttúru íslands, og síðast en ekki
síst röngum áróðri sumra forráða-
manna landsins og eru mér þá
efstir í huga þeir kumpánar, Stein-
grímur Hermannsson og Halldór
Asgrímsson. Steingrímur hefur
margoft sagt að íslendingar séu
allra þjóða fremstir í náttúru- og
umhverfísvemd og Halldór tekið í
sama streng þó einkum ef hann
hefur að eigin mati þurft að rétt-
læta framgöngu sína í hvalamálinu
svokallaða.
Sannleikurinn er hins vegar sá,
að islensk náttúra hefur til dagsins
í dag vemdað sig að mestu leyti
sjálf og er það að þakka hnattstöðu
landsins og þá um leið veðráttu.
En nú er svo komið að það vopn
dugir henni ekki lengur. Með batn-
andi veðráttu (þó einkum á vetuma)
og aukinni tækni á hún sífellt meira
í vök að veijast. Náttúran fær sífellt
minni og minni frið. Nú er sótt í
hana gegndarlaust allan ársins
hring. Aður vom frátafír vegna
brælu algengar til sjós, en nú næsta
fátíðar við tilkomu meiri sóknar-
hörku og stærri skipa og fullkomn-
ari. Einnig er sífellt verið að sækja
í fleiri tegundir og stafar það oft
af því að skortur er á annarri og
er þá bara stokkið í þá næstu þar
til hún er búin, eða því sem næst.
Öldum saman var hálendi Islands
ósnortið, en smám saman fórum
við að ferðast um það, en bámm
þó ekki gæfu til að skilja að þar
yrði að fara með gát. Er nú svo
komið að á fegurstu stöðum hálend-
isins ríkir örtröð á sumram og sífellt
em lagðar slóðir fyrir bíla í allar.
áttir, á hina ýmsu staði, og það
jafnvel þótt vitað sé að þeir þoli
mjög takmarkaðan umgang. Fyrir
fáum ámm einskorðuðust fjalla-
ferðir við sumarmánuðina, en nú
fara menn allra sinna ferða á öflug-
um snjósleðum, fjórhjólum og bflum
um þvert og endilangt hálendið á
hvaða tíma árs sem er.
En vendum okkar kvæði í kross.
Hvað hafa íslendingar gert í nátt-
úmvemd? Það er sorglega lítið og
skal nú greint frá af hveiju. Nátt-
úmvemdarráð er gjörsamlega
févana stofnun og hefur svo verið
frá fyrstu tíð og em þeir menn, sem
þurfa að halda á þeim fáu krónum
sem fást til framkvæmda þar, ekki
öfundsverðir! Það er viðtekin venja
að þegar á að fá fjárveitingu til
Náttúmvemdarráðs frá Alþingi, þá
er allt skorið við nögl, en það kveð-
ur við annan tón er veita á til
ferðamála, þá em nógir peningar á
lausu. Hver er skýringin á því? Jú,
vegna þess að þar em „bissnes-
mennimir" og með sambönd. á
réttum stöðum. Ferðamálaráð fékk
18 milljónir króna í fjárveitingu
síðastliðið ár og eyddi nánast hverri
krónu í landkynningu erlendis, nán-
ar tiltekið í New York og Frankfurt.
10% af tekjum í fríhöfninni eiga
að renna til framkvæmda innan-
•lands, en það fé hefur alltaf verið
skorið niður og lítið sem ekkert
sést af því eins og til dæmis í ár.
Náttúravemdarráð fékk 12,5 millj-
ónir til ráðstöfunar, en þyrfti ef vel
ætti að vera 35—40 milljónir.
Hundrað og þrettán þúsund útlend-
ir ferðamenn ferðuðust á landinu
okkar í ár, þar af fóm milli 60 og
70 þúsund í hálendisferðir, allt að
því eftirlitslaust.
En hvemig göngum við sjálfír
um landið okkar og lífríki þess? Það
er skemmst frá því að segja að hing-
að til höfum við hagað okkur svo
til að eigin geðþótta í umgengni við
landið. Islendingar em veiðiþjóð en
þeir hafa aldrei lært að umgangast
veiðina né bráðina, því magnið hef-
ur alltaf setið í fyrirrúmi, en gæðin
látin sitja á hakanum. Þetta er þó
að breytast töluvert til sjós og er
það vel, en þó er langt í að vel sé.
Það er opinbert leyndarmál að smá-
fískadráp hefur viðgengist í áratugi
til sjós, en allt ætlar vitlaust að
verða ef leiða á að því rök. En nú
er því miður orðið ljóst að við höfum
stundað rányrkju á fiskistofnunum
við landið í áraraðir, það sýna
vísindalegar niðurstöður.
Gamall málsháttur segir: Lengi
tekur sjórinn við; en nú er nóg kom-
KÆLI' OG FRYSTISKÁPUR
Samt. stærö: 275 1.
Frystihólf: 45 I. ★★★★
Hæö: 145 sm.
Breidd: 57 sm.
Dýpt: 60 sm.
Færanlegar hillur í hurð.
Sjálfvirk afþýðing í kæli.
Vinstri eða hægri opnun
Fullkomín vidgerða-
og varahlutaþjónusta.
—
HF
Laugavegi 170-172 Simi 695500
Konráð O. Jóhannsson
„Kæru landar. Tökum
höndum saman um að
vernda landið okkar og
lífríki þess svo að það
megi um aldur og æfi
verða sú paradís á jörðu
sem það er nú.“
ið. Allar fjömr og strandlengjur em
að fyllast af óþverra og rasli sem
sjómenn henda í hafíð af skipum
sínum. En hvemig er það í landi?
Þar em allar reglur og lög gagn-
vart veiði þverbrotnar enda lítið sem
ekkert eftirlit og margir samsekir.
Það er löngum vitað að á vorin
fara trillueigendur víða um land og
draga fyrir silung í eyðifjörðum, við
árósa og víðar og skófla upp físki.
Einnig á þetta sér stað á fáföm-
um heiðalöndum, í vötnum þar
draga menn fyrir með hestum og
jafnvel traktomm. Nokkuð víða em
gæsavörp, bæði heiðargæsa og grá-
gæsa, þar er farið ránshendi vor
eftir vor og þykir sjálfsagt. Sömu-
leiðis em gæs og helsingi skotin á
vorin og það er ekkert gert í mál-
inu. Lítum aðeins á ijúpnaveiðina:
Það er á allra vitorði að menn veiða
ijúpur af snjósleðum og fjórhjólum,
en ekkert er heldur gert í því. Það
er einnig vitað að á mörgum stöðum
á landinu fara menn í ijúpur hálfum
mánuði fyrir leyfðan tíma og leggja
svo inn í verslanir helling af ijúpu
á fyrsta degi. Á hina stóm flóa og
fírði landsins hópast gæsin í sámm
síðsumars, þar er hún murkuð niður
af óþokkum á hraðbátum ogtrillum.
Hreindýraveiðiþjófnaður er líka
stundaður svo vitað er og það í
töluverðum mæli. Þetta er ljót lesn-
ing, en ég get sannað hvert orð ef
í hart fer. Af mörgu er að taka ef
skoða á framkomu Islendinga gagn-
vart dýmm landsins gegnum aldim-
ar og má þá nefna flekaveiði á
svartfugli, hina viðbjóðslegu neta-
veiði á sel, ótrúlega óþokkalegar
aðgerðir við tófuveiðar og fleira og
fleira.
En höfum við lært af reynslunni?
Það er sorglega lítið, því miður.
Um það vitnar margt. Skoðum að-
eins löggjöfina um veiðar með
skotvopnum. Þar segir að ekki
megi nota stærri haglabyssu en
cal. 12 til fuglaveiða eða tófuveiða,
ekki er minnst á lágmarks
hlaupavídd né lágmarks hagla-
stærð. Sem sagt, þú mátt fara á
fugla- og tófuveiðar með eins litla
byssu og þú vilt og eins fín högl
og þér sýnist. Sama er uppi á ten-
ingnum ef skoðuð er löggjöf um-
hreindýraveiðar. Þar segir að lág-
marks hlaupvídd riffíls skuli vera
6,16x51 eða 342 cal. Ekkert er
minnst á kúluþyngd eða hleðslu-
magn, en 243 cal. er til í kúluþyngd-
um frá 75-80-90-100-110 „grains"
og að sjálfsögðu em jafnmargar
púðurhleðslur á bak við kúlumar.
Það er ljóst að mjög mismunandi
eiginleikar fylgja þessum mörgu
hleðslum.
Það er vitað að hreindýraveiði fer
fram með ótrúlega litlum rifflum,
til dæmis 22-250, 222, 222, mag.
223, 22, Homet og jafnvel 22, Rim-
fíre Og ættu þeir, sem það gera,
að skammast sín. Ef skoðuð em
skotvopnaleyfí sumra þeirra manna
sem stunda hreindýraveiðar kemur
í ljós að þar er ekki riffíll á skrá
með lágmarksstærð til hreindýra-
veiða. Og svo em menn að tala um
umhverfísvemd.
Ég slæ nú botninn í þetta spjall,
en ég tek það fram að ég gæti
skrifað meira um þetta mál, því af
nógu er að taka, en plássið leyfír
ekki meira að sinni. Að lokum þetta
til forráðamanna þjóðarinnar: Al-
menningur í landinu trúir ykkur
þegar þið fullyrðið eitthvað í fjöl-
miðlum um eitt eða annað málefnið,
vandið því málflutning ykkar og
munið að í fæstum tilvikum er ein-
hver á staðnum til að andmæla
ykkur ef rangt er farið með. Kæm
landar. Tökum höndum saman um
að vemda landið okkar og lífríki
þess svo að það megi um aldur og
æfi verða sú paradís á jörðu sem
það -er nú.
Höfundur er málmiðnaðarmaður
að mennt. Hann hefur réttindi sem
landvörður og starfar sem alíkur
á sumrin.
Telefáx þjónusta
Fyrirtæki - einstaklingar
Gerist áskrifendur að þjónustu okkar
fyrir árið ’88.
Við bjóðum lágan sendingarkostnað
og afslátt fyrir áskrifendur.
Telefaxþjónustan,
Skúlatúnl 6, 3. hæð.
Opið frá kl. 9-18.
Sími 621971.
CtD pioimeer
SJÓNVÖRP