Morgunblaðið - 23.12.1987, Síða 34

Morgunblaðið - 23.12.1987, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 198' Hjá afa og ömmu á Skriðuklaustri Békmenntir Jóhann Hjálmarsson Franzisca Gunnarsdóttir: VANDRATAÐ í VERÖLDINNI. V aka-Helgaf ell 1987. Nokkuð hljótt, of hljótt, hefur verið um Gunnar Gunnarsson og verk hans að undanfömu. En verk hans eru ekki týnd okkur heldur bíða eftir því að vera lesin af nýjum kynslóðum. Slík verðmæti mega ekki rykfalla í skápum. Þegar Gunnar Gunnarsson ásamt fjölskyldu sinni settist að á Skriðu- klaustri í Fljótsdal í Norður-Múla- sýslu var hann orðinn einn kunnasti rithöfundur Islendinga fyrr og síðar og vegur hans mikill erlendis, eink- um á Norðurlöndum og í Þýska- landi. í Vandratað í veröldinni, bók Franziscu Gunnarsdóttur, sonar- dóttur skáldsins, eru rifjaðar upp minningar frá bernskuárum hennar Míele. Heimilistœki annað er mála- miðlun. á Skriðuklaustri. Margir koma við sögu auk hennar sjálfrar, en fremst í flokki eru afi hennar og arama, foreldrar og bróðir. Fólk er þó ekki alltaf í aðalhlutverki hjá Franziscu heldur dýr. Hún finnur oft til meiri samúðar með dýrum en mönnum. Kaflamir í Vandratað í veröldinni mynda heild, þannig að bókin verð- ur samstæð. En þá má líka lesa eins og sjálfstæða þætti frá þessum ámm. Ekki er ólíklegt að fleiri slíkir hafi verið skrifaðir. Bókin lýsir hugarheimi bams með skarpa dómgreind sem ekki er alltaf tilbúið til að taka mark á hinum fullorðnu, vill fara sínar eig- in leiðir. Þótt allmörgum persónum bókarinnar sé lýst náið þannig að lesandinn fer að þekkja þær vel er það þó fyrst og fremst Franzisca í bemsku sem er hinn eiginlegi efni- viður. Að mínu viti er það Gunnar listmálari, faðir Franziscu, sem rís hvað hæst í minningunni. Næst kemur Franzisca amma. Myndin af afanum er einnig skýr og drættir móðurinnar em ljósir. Franzisca Gunnarsdóttir er ekki alltaf neinn sérstakur mannvinur í bókinni, enda vissulega stundum tilefni til annars. Réttlætishneigð hennar er rík ásamt þeim eiginleika að sjá fleiri en eina hlið á hlutun- um. Þeir sem kalla yfir sig reiði hennar mega vara sig. Gegn þeim leitar hún liðsinnis bæði hjá lifend- um og dauðum. Mjög skemmtilega og skáldlega em þættir úr Hrafnkelssögu Freys- goða og atburðir í lífinu á Skriðu- klaustri tengdir saman. Og Lagar- fljótsormurinn „og íjölskylda hans“ er á sínum stað. Aldrei langt undan er minningin um Jón Hrak, enda leiði hans skammt frá Skriðuk- Síður kiðlingapels. , Mjög gott snið. Allar gerðir. 4_éttur og þægilegur. >' Verð kr. 49.000,- Kirkjuhvoli-sími 20160 * Franzisca Gunnarsdóttir ásamt Gunnari bróður sínum laustri og um hann hafði afi frætt telpuna. Franzisca lifir í heimi þjóðsagna og ævintýra og hefur mikla ást á dýmm; refum, hundum, hestum, músum og köttum. En hún er ekki bam draumóra heldur athugul og raunsæ og alráðin í að koma sínu fram. Þessu tekur afinn eftir snemma og aðdáunin leynir sér ekki. Aftur á móti em sumir hinna fullorðnu ekki tilbúnir til að meta þetta við telpuna. Stíllinn á bókinni er agaður og í honum breidd og þyngd, sem stund- um minnir á afann, en hvergi er um neins konar stælingu að ræða. Það vekur athygli að viðkvæmar tilfinningar em tjáðar á mjög hóg- væran hátt og varfærnislega. Kaldhæðni er þó ekki óalgeng, en ekki í eftirfarandi dæmi: „Ég man líka, að þegar ég varð þreytt, einhvers staðar á ferð, þá tók pabbi mig upp, á þennan þögla, skilningsríka hátt, og hann hélt á mér eins lengi og þess þurfti með . . . Það var ekkert minna en hræðilegt, þegar að því kom, að ég varð bæði of stór og þung til þess að pabbi bæri mig. Það var þó ekki fyrr en suður var komið, eins og allt annað kaldranalegt." Og það er sárt þegar ekki má taka hundinn Rebba með suður því að ekki var leyft að hafa hund „í þessari Reykjavík, þarna fyrir sunn- an . . . Eins og hvaða erindi áttum við líka þangað?“. Sumir kaflar bókarinnar verka á mig sem efni í smásögur. Vandrat- að í veröldinni er ekki venjuleg minningabók, þegar best lætur er metnaður hennar meiri og þá stígur fram telpan Franzisca líkt og per- sóna í skáldverki. Þess þarf naumast að geta að bókin mun gleðja alla unnendur verka Gunnars Gunnarssonar. Af sakamálum Bókmenntir Sigurjón Björnsson Náttfari. Sautján sakamál íslensk og erlend. Sigurður Hreiðar Heiðarsson tók saman. Almenna bókafélagið. Reykjavík. 1987. 255 bls. I eftirmála segir frá því að Iþróttasamband lögreglumanna á Norðurlöndum gefi út árbækur, sem nefnast Nordisk Kriminal- reportage. Þar segir af athyglis- verðum lögreglumálum, norrænum og öðrum. Nú ætlar íþróttasamband lög- reglumanna (á íslandi) að feta í fótspor kollega sinna ytra og er þetta fyrsta bók Iþróttasambands- ins um-lögreglumál. í þessari bók er greint frá 17 málum í jafn- mörgum bókarköflum. Atta þeirra eru íslensk og öll nema eitt tekin saman af Sigurði Hreiðari vegna þessarar bókar. Hið áttunda, Vist- arverur vesaldómsins, þar sem segir frá fangavist íslendinga í Kaupmannahöfn fyrr á tímum, er eftir Svein Stefánsson, lögreglu- þjón, en samantekt eftir bók Björns Th. Bjömssonar A Islendingaslóð- um. Níu frásagnir eru svo erlendar og allar nema ein frá Norðurlöndum og er höfunda þeirra getið aftan- máls. Ég fæ ekki betur séð en vand- virknislega sé að þessari bók staðið. Textar eru laglega samdir og þýdd- ir. Hófsemi er viðhöfð í málflutn- ingi, stundum með nokkm ívafí af glettni og þeirrar tillitssemi er gætt að breyta nöfnum sakborninga og annarra sem við mál em bendlaðir. Prentvillur em sárafáar. Sum málin em mjög alvarlegs eðlis og kannski þar af leiðandi ekki neinn skemmtilestur. Aðrar sögur em öllu kúnstugri og sumar heyra raunar einna helst undir gam- ansögur (Ást við fyrstu sýn) fremur en sakamál. Þetta er þannig séð hreint ekki slakur afþreyingarlestur fyrir þá Sigurður Hreiðar Hreiðarsson sem á annað borð vilja lesa um misferli og dapurleg örlög sér til afþreyingar. Og Iþróttasamband lögreglumanna þarf sjálfsagt á ágóða þessarar bókar að halda til gagnlegrar starfsemi. Hallbjarnarætt og Guðrunar Bókmenntir Sigurjón Björnsson Hallbjarnarætt. Niðjatal Hall- bjarnar Eðvarðs Oddssonar og Sigrúnar Sigurðardóttur ásamt niðjatali Guðrúnar Oddsdóttur og Guðmundar Sturlusonar. Þor- steinn Jónsson tók saman. Is- lenskt ættfræðisafn. Niðjatal V. Ritstjórn: Þorsteinn Jónsson. Sögusteinn — bókaforlag. Reykjavík 1987. 316 bls. Bók þessi, sem er fimmta niðja- talið í þessari fallegu og merku ritröð (en sjötta bindið, því að Knudsensætt var í tveimur bind- um), inniheldur í raun tvö niðjatöl, þ.e. afkomendur tveggja systkina, Hallbjamar Eðvarðs Oddssonar og Guðrúnar systur hans. Hallbjörn var fæddur árið 1867 og dó 1953. Framan af ævi bjó hann ásamt konu sinni, Sigrúnu Sigurðardóttur, vestur á fjörðum þar sem hann var sjómaður og verk- stjóri, auk þess sem hann kenndi bömum. Frá 1928 bjuggu þau hjón á Akranesi og fékkst Hallbjöm þá aðallega við kennslu. Hallbjöm og Sigrún eignuðust tólf böm og em niðjar frá tíu þeirra. Alls em niðjar þeirra 513 í fimm ættliðum. Guðrún Oddsdóttir fæddist 1874 og dó 1962. Hún giftist Guðmundi Sturlusyni (d. 1931). Þau bjuggu fyrst á Amarstapa í Táiknafirði, en áttu síðar heima á Súganda- fírði. Þar stundaði Guðmundur aðallega smíðar. Börn þeirra urðu tíu (sbr. bls. 139, þó að ég finni ekki nema níu í bókinni) og urðu afkomendur frá átta þeirra. Alls em afkomendur þeirra hjóna orðnir 432 í fímm ættliðum. Nálgast því niðjar systkinanna beggja þúsundið. Niðjatölin em með sama sniði og önnur niðjatöl í þessu safni. Ifyrst er allítarlegt æviágrip ættfeðranna, í þessu tilviki að vísu að hluta til sjálfsævisöguágrip systkinanna Hallbjarnar og Guðrúnar. Þá tekur við sjálft niðjatalið og fær hvert bam systkinanna sérstakan kafla, sem hefst á nýrri blaðsíðu. Ævifer- ill barnanna er rakinn í stærstu dráttum, en um næstu liði er ein- ungis tilgreint fd. ár, dd. ár, starf. Maki fd. ár, dd. ár, starf. Foreldrar maka fd. ár, dd. ár, starf. Notað er það skráningarkerfi sem alvan- legast er núorðið og notað er í ritsafninu öllu, þ.e. ættliðir em merktir með tölustaf, en aldursröð systkina með litlum bókstöfum. Nöfn niðja og maka þeirra em feit- letmð og skera sig því vel úr texta. Myndir em þar sem um einstakling- ana er fjallað. Að þessu leyti öllu fylgir þetta niðjatal þeirri uppsetningu sem við þekkjum úr öðmm niðjatölum safnsins. Nýmæli er þó eitt og það umtalsvert. Aftan við niðjatölin er 100 bls. kafli, sem nefnist Fram- ættir og frændgarður. Framætt- imar em rækilegar, alls 171 grein. Það frávik er frá hinu venjulega að mjög víða er greint frá niðjum þeirra sem greinin fjallar um, oft í Þorsteinn Jónsson eina þrjá liði. Gerir þetta ritið sér- staklega forvitnilegt fyrir ættfræð- igrúskara, auk þess sem það kynnir að sjálfsögðu frændgarðinn mun betur en ella yrði fyrir niðjum Hall- bjamar og Guðrúnar. Mjög mikið myndefni er í þessu riti. Flestar em myndirnar auðvitað af ættmennunum og mökum þeirra, en einig er margt mynda af húsum, bæjum og landslagi. Bók þessi kom út í maí sl. í for- mála kemur fram að samantekt niðjatalanna hófst ekki fyrr en haustið 1986. Þykir mér undmm sæta hve rösklega verkið hefur gengið og hversu missmíðalaust það er.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.