Morgunblaðið - 23.12.1987, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 23.12.1987, Blaðsíða 68
68 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987 Jólaljósin tendr- > uð á Skagaströnd Skagastrðnd. NOKKUR mannfjöldi var við- staddur þegar Guðmundur Sigvaldason sveitarstjóri kveikti ljós á jólatré, sem komið hefur verið fyrir á Hnappstaðatúni á Skagaströnd. Fram kom hjá Guðmundi við þetta tækifæri að tréð er úr Vatns- dalnum eins og jólatréð sem sett var upp fyrir síðustu jól. Við athöfn- ina var gengið í kringum tréð og sungin jólalög og einnig söng kirkjukórinn tvo sálma undir stjórn Jane Sillar organista. - ÓB Grænlenskir rækjutog- arar á ísafirði: Ahafnimarfara heim um jólin ísafjörði FIMM grænlenskir rækjutog- arar hafa komið til hafnar á ísafirði undanfarna daga. Tveir þeirra tóku olíu og vist- ir og héldu síðan eftir skamma viðdvöl aftur til veiða, en hinir þrír lönduðu aflanum hér og voru síðan bundnir til lengri dvalar, því mestur hluti áhafnanna held- ur tíl heimkynna sinna til að halda jól. A mánudag fóru tvær flugvél- ar frá Helga Jónssyni til Grænlands með skipverja og í gær fóru þrjár vélar frá honum til Grænlands og Qórða vélin til Færeyja. Þá fara tvær vélar til Grænlands í dag. Auk þess fara einhveijir skipveijanna með áætlunarflugi til Danmerkur. Eftir verða þrír vélstjórar til að gæta skipanna og sex Japanir, sem jafnan eru um borð þegar veitt er á Japansmarkað. Tveir af þremur vélstjórunum fá konur sínar yfir með fluginu til að halda með þeim jól. Aðalbjöm Jóakimsson, skip- stjóri, sem nú er kominn í land hefur verið fenginn til þess að vera til taks ef hætta stafar að skipunum vegna óveðurs. Skips- hainimar koma síðan aftur milli jóla og nýárs og er áætlaða að skipin verði öll farin til veiða fyrir áramót. Úlfar. Morgunblaðið/Albert Kemp Búið er að koma upp fjórum jólatrjám á Fáskrúðsfirði og er þetta eitt þeirra. Fáskrúðsfj örður: c Jólalegt þó enn vanti snjó Fáskrúðsfirði. JÓLALEGT er um að litast í Fáskrúðsfirði eins og endranær þó að enn vanti allan snjó og hálfdimmt sé nú í bænum vegna _ þess. Sett hafa verið upp fjögur jólatré í bænum, auk þess • sem mikið er um skreytingar á húsum og í görð- um. Togarinn Ljósafell er nú kominn í höfn fyrir jólin en togarinn Hof- fell er enn á veiðum og verður á veiðum fram á aðfangadag en kem- ur þá í land, þannig að áhöfnin heldur jólin heima. Ráðgert er að skipið haldi síðan aftur til veiða að kvöldi annars í jólum og sigli með aflann á erlendan markað um ára- mót. Slíkt hefur ekki gerst hér áður síðan skipin komu hingað. Bátarnir þrír sem héðan eru gerðir út eru allir í siglingu erlend- is. Tveir þeirra eru væntanlegir heim fyrir jól en af þriðja bátnum kemur áhöfnin flugleiðis heim fyrir jól þar sem báturinn verður i við- gerð í Englandi þessa daga. — Albert Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Aftari röð, nemendur, talið frá vinstri: Óskar Páll Friðriksson, Ingibergur Vestmann, dúxinn Guðmund- ur Pálsson, Björgvin Siguijónsson og Sigurður Jónsson. Fremri röð, kennarar, talið frá vinstri: Sigurgeir Jónsson, skólastjóri Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum, Friðrik Ásmundsson og Brynjúlfur Jónatans- son. V estmannaeyjar: „Gamlir“ sjómenn fá réttindi Notfærðu sér síðasta undanþágunámskeiðið Vestniannaeyjum. í SÍÐUSTU viku lauk seinna undanþágunámskeiði við Stýri- mannaskólann í Vestmannaeyj- um. Fimm sjómenn sem allir höfðu verið til sjós, án réttinda, sumir lengi, fengu þá réttindi til að stjórna 200 tonna skipum. Samkvæmt lögum var þetta sein- asta tækifæri fyrir unndanþágu- skipstjórnarmenn að öðlast réttindi, því fleiri slík námskeið verða ekki haldin. Það hlýtur að vera nokkurt átak fyrir sjómann sem árum saman hefur stundað sjóinn, jafnvel á eig- in bát, að fara í land og setjast á skólabekk til þess að fá pappír til þess að mega sigla fiskibát. Sér- staklega ef menn hafa ekki nálægt námi komið árum saman. Á seinasta ári drifu samt nokkrir sjómenn sig í Stýrimannaskólann í Vestmannaeyjum og námu skip- stjómarfræði. Fengu þeir þá rétt- indi til þess að stjóma 80 tonna bátum. Megnið af þessum hópi sett- ist síðan á skólabekk aftur í haust og lauk námi nú nýverið. Öðluðust þeir þarmeð rétt til þess að sigla allt að 200 tonna skipum. Einn nemandinn, Guðmundur Pálsson, 44 ára, fékk ágætiseinkunnina 9,38. Er þetta frábær árangur en Guðmundur hefur ekki nærri skóla- bekk komið í áratugi. Prófdómarar á námskeiðinu voru Áslaug Tryggvadóttir kennari og Sævaldur Elíasson stýrimaður. — Bjarni. Stykkishólmur: Mikið annríki í prent- smiðju systranna Stykkishólmi. MIKIÐ annríki er alltaf fyrir jólin i prentsmiðju St. Fransisku- systranna i Stykkishólmi. Það var óhemju mikið gefið út af jólakortum, bæði myndir af Hólminum og sjúkrahúsinu. Systurnar vom snemma með jólabókina og vönduðu mjög til hennar og hefír salan gengið ágæt- lega eftir því sem fréttaritara var tjáð. Allur frágangur hennar var til fyrirmyndar. Þá voru þær fyrir skemmstu að ljúka við að prenta nýja bók sem komin er út á vegum kaþólsku kirkjunnar. Heitir hún „Betlidrengurinn Jugga finnur móður Teresu" og er hún eftir Kirsten Bang, danska konu, en yfir 30 teikningar eru eftir Kömmu Svenson og hefír Torfí Ólafsson þýtt bókina, en Anna Torfadóttir séð um útlit. Sagan er af bækluðum dreng sem elst upp hjá bláfátækum foreldrum sem selja hann manni sem ætlar að láta hann betla fyrir sig. Margar raunir lendir þessi umkomulausi drengur í uns hann lendir hjá reglu móður Teresu og um leið lýkur raunum hans. „Þetta er mjög athyglisverð bók,“ sagði systir Petra sem veg og vanda hefír af prentsmiðjunni. „Hún er vel sögð og skilmerkileg. Hún á erindi til allra og hefir mik- inn boðskap. Nú prentum við ekki meira fyrir jólin. Tökum okkur frí og tökum til fyrir árið, svo við getum byijað á hreinu borði á nýju ári.“ — Árni Ný kaffi- tería á Neskaupstað Neskaupstað. NÝLEGA var opnuð kaffit- ería á Egilsbraut 11 hér í bæ. Kaffiterían er opin á laugar- dögum og sunnudögum og er þar á boðstólum gimilegt kaffi- hlaðborð á sunnudögum en á laugardögum allskonar kökur, vöfflur með ijóma og fleira góð- gæti. Að sögn Bimu Kristjánsdótt- ur sem rekur kaffíteríuna er hún vel sótt. Húsnæðið sem kaffíterían er í er nefnt Kreml og er ástæðan sú að húsið er í eigu Alþýðu- bandalagsins og Brunabótafé- lags íslands. — Ágúst
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.