Morgunblaðið - 23.12.1987, Blaðsíða 72
| ■ 'ALHLIÐA PREWT WÓNUSTA
1 GuðjónÓ.hf.
| / 91-27233
Þjónusta
íþína þágu
SAMVINNUBANKI
^ ISLANDS HF.
MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Könnun á jólasiðum:
Margir borða skötu
og drekka jólaglögg
STÓR hluti íslendinga heldur í
þá gömlu hefð að borða skötu á
Þorláksmessu. En þrátt fyrir að
sá siður að drekka jólaglögg sé
tiltölulega nýr af nálinni hér á
landi hefur hann náð mikilli út-
breiðslu ef marka má niðurstöðu
könnunar sem Hagvangur gerði
nýlega.
Samkvæmt könnuninni, sem
gerð var um síðustu mánaðamót,
borða 40% íslendinga skötu á Þor-
láksmessu. Yfír 60% þeirra Vest-
fírðingá sem tóku þátt í könnuninni
halda þessum sið, en hann er einn-
ig algengur á öðrum stöðum á
landinu. Skötuát virðist njóta meiri
vinsælda hjá eldra fólki.
Yngra fólkið hefur frekar tileink-
að sér að drekka jólaglögg þegar
hátíðin nálgast, en samkvæmt
könnuninni fara um 30% lands-
manna í jólaglöggveislur. Helst á
þetta við um fólk sem býr á höfuð-
borgarsvæðinu eða á öðrum þétt-
býlisstöðum.
Sjá nánar á miðopnu.
Eskifjörður:
Smyglvamingi stolið
úr lögreglustöðinni
EskifirðL
BROTIST var inn í lögreglustöð-
ina á Eskifirði aðfaranótt
mánudagsins 21. desember sl. og
stolið þaðan smyglvarningi,
myndbandstæki og geislaspilara
úr geymsluherbergi.
Tæki þessi voru í geymslu vegna
tollafgreiðslu á mótorbátnum Sæ-
ljóni SU 104. Að sögn Inger
Jónsdóttur, fulltrúa -bæjarfógeta,
hafði verið brotin rúða á bakhlið
hússins og farið þar inn. Ekki er
vitað um verðmæti þýfisins en mál-
ið er í rannsókn hjá bæjarfógeta-
embætti.
— Ingólfur.
Morgunblaðið/Einar Falur
Brugðið á leik í jólasnjó
BORNIN voru snögg að taka við sér þegar fyrsti jólasnjórinn féll
í Vogum á Vatnsleysuströnd í gærmorgun. Drengurinn var óð-
ara kominn út með snjóþotuna sina og byrjaður að hnoða
snjóbolta.
Féll 15 metra
niður af þaki
MAÐUR féll um 15 metra ofan
af húsþaki í fyrrinótt. Hann var
fluttur á slysadeild og reyndist
alvarlega slasaður.
Tildrög slyssins voru þau, að
maðurinn og kona hans komu heim
upp úr miðnætti, en uppgötvuðu
þá að þau höfðu læst húslyklana
inni. Það hefur gerst áður og mað-
urinn þá Ieyst vandann með því að
klifra upp um þakglugga og niður
á svalir íbúðar sinnar. I þetta sinn
varð honum hins vegar fótaskortur
á hálu bárujámsþakinu og féll hann
niður. Hann lenti á grasflöt við
húsið og slasaðist töluvert.
Auglýsendur
athugið
Fyrsta blað eftir jól kemur
út þriðjudaginn 29. desember.
Skilatími auglýsinga er fyrir kl.
16 á Þorláksmessu, þann 23.
desember.
Auglýsingar í blaðið á gaml-
ársdag, 31. desember, þurfa að
berast fyrir kl. 16 þriðjudaginn
29. desember.
Fyrsta blað á nýju ári kemur
út sunnudagirin 3. janúar og
þurfa auglýsingar í blaðið að
berast eigi síðar en kl. 11 mið-
vikudaginn 30. desember.
DAGUR
TIL JÓLA
Þingfundum frestað í gær fram yfir jól:
Ovíst hvort kvótafrumvarpið
verði afgreitt fyrir áramót
Hefði ófyrirséða erfiðleika í för með sér, segir sjávarútvegsráðherra
ÞRIÐJU umræðu um fjárlaga-
frumvarpið lauk á Alþingi um
klukkan 18 í gær og var þá at-
kvæðagreiðslu um frumvarpið,
og frekara þinghaldi, frestað
fram yfir jól. Þá höfðu þingmenn
efri deildar verið á stöðugum
þingfundum í 32 klukkutíma. Þar
hófst umræða um kvótafrum-
varpið svokallaða upp úr ldukkan
10 á mánudagsmorgun og lauk
ekki fyrr en kl. 10.30 á þriðju-
dagsmorgun en þá var frum-
varpið afgreitt til neðri deildar.
Umræða um kvótafrumvarpið
verður á dagskrá neðri deildar
mánudaginn 28. desember en
óvist er talið að takist að afgreiða
það fyrir áramót en þá rennur
út gildistími núgildandi laga.
Eldur í
jólaskrauti
SLÖKKVILIÐIÐ í
Reykjavík var kvatt að
Fischersundi um kvöld-
matarleytið i gær þar sem
eldur var laus í jólaskrauti
á ritstjómarskrifstofum
tímartisins Heimsmyndar.
Vegfarandi hafði tilkynnt
um eldinn og var bmgðið
skjótt við og ráðið niður-
lögum hans, en litlu
munaði að illa færi að
sögn varstjóra í slökkvilið-
inu. Sagði hann að talsvert
væri um útköll vegna elds
í jólaskrauti og fuU ástæða
tíl að hvetja fólk til að
fara varlega með kertaljós
og annan eld nú um jólin.
Morgunblaðið/Þorkell
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra sagðist þó, í samtali
við Morgunblaðið, enga ástæðu
hafa til að ætla að frumvarpið
verði ekki að lögum fyrir áramót
en ef það takist ekki hafi það
ófyrirséða erfiðleika í för með
sér.
Stjómarþingmenn sökuðu stjóm-
arandstöðuna um málþóf við
umræðuna um kvótafmmvarpið í
efri deild, en stjómarandstaðan sagði
að nauðsynlegt hefði verið að ræða
frumvarpið ítarlega til að freista
þess að fá einhveijar breytingartil-
lögur samþykktar. Þær vom þó allar
felldar en tveir stjómarþingmenn
greiddu atkvæði gegn frumvarpinu
við lokaatkvæðagreiðslu, þeir Þor-
valdur Garðar Kristjánsson Sjálf-
stæðisflokki og Karvel Pálmason
Alþýðuflokki.
í neðri deild hafa ýmsir stjómar-
þingmenn gert fyrirvara við fmm-
varpið, aðallega ákvæði þess um
smábáta. Matthías Bjamason, form-
aður sjávarútvegsnefndar neðri
deildar, sagði við Morgunblaðið að
hann styddi ekki frumvarpið eins og
það lægi fyrir, og kæmi þar margt
til. Hann sagðist engu geta spáð um
hvenær eða hvemig frumvarpið yrði
afgreitt sem lög. Aðeins 3 dagar
væm milli hátíðanna og frumvarpið
kæmi ekki á dagskrá neðri deildar
fyrr en eftir atkvæðagreiðslu um
fjárlög í sameinuðu þingi og í það
færi obbinn af fyrsta deginum. „Þá
er ekki mikill tími til stefnu fyrir
áramot nema láta frumvarpið renna
á færibandi gegnum deildina og ég
hafði ekki hugsað mér það. Þetta er
ekki færibandafrumvarp," sagði
Matthías.
Við þriðju umræðu fjárlagafmm-
varpsins kom fram að niðurstöðutöl-
ur þess hafa hækkað um 5,9% frá
annari umræðu og er gert ráð fyrir
að tekjur ríkissjóðs verði 63.090
milljónir á næsta ári en gjöld verði
63.037 milljónir. Meirihluti fíárveit-
ingamefndar Tagði fram nokkrar
breytingartillögur, þar á meðal um
að útgjöld til Alþingis hækki um 45
milljónir. Lagt er til að Háskólinn á
Akureyri fái rúmlega 15 milljóna
króna hækkun, framlög til UMFÍ og
ÍSÍ hækki um 5 milljónir til hvors
sambands og að Aburðarverksmiðja
ríkisins fái 20 milijóna króna fram-
lag. Lagt er til að framlag til
K-byggingar Landspítala hækki um
20 milljónir, Póst- og símamálastofn-
unin fái 14,3. milljóna hækkun í
almennan rekstur og gjaldskrá verði
hækkuð um 20% á árinu 1988. Einn-
ig er gert ráð fyrir að afnotagjöld
ríkisútvarps hækki nú um 13% og
stefnt að 10% raunhækkun auglýs-
inga. Þá er tillaga um sérstaka
heimild til að greiða bætur til þeirra
sem sýkst hafa af alnæmi við blóð-
gjöf hér á landi fyrir árið 1986.