Morgunblaðið - 09.01.1988, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1988
raðauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Skattmat í staðgreiðslu
áárinu 1988
1. Samkvæmt 5. gr. laga nr. 45/1987 um
staðgreiðslu opinberra gjalda teljast
fríðindi og hlunnindi svo sem fatnaður,
fæði, húsnæði og afnot bifreiða til launa
sem reikna skal staðgreiðslu af. Sam-
kvæmt 116. gr. laga nr. 75/1981 um
tekjuskatt og eignaskatt skal ríkisskatt-
stjóri meta hlunnindi til verðs.
Með tilvísun til áðurnefndra lagagreina
metur ríkisskattstjóri eftirtalin hlunnindi
sem veitt verða á árinu 1988 þannig til
verðs sem staðgreiðsla reiknast af.
1.1. Fullt fæði, sem launagreiðandi lætur
launamanni í té endurgjaldslaust, skal
metið honum til tekna sem hér segir:
Fyrir fullt fæði, fulloröins............437 kr. á dag
Fyrir fullt fæði barns, yngra en 12 ára.350 kr. á dag
Fyrir fæði að hluta (ein máltið).175 kr. á dag
Fjárhæð fæðisstyrks (fæðispeninga) í
stað fulls fæðis eða fæðis að hluta ber
að telja til tekna að fullu.
Allt fæði, sem fjölskyldu launamanns
er látið í té endurgjaldslaust hjá launa-
greiðanda hans, svo og fjárhæð fæðis-
styrkja (fæðispeninga) sem launamanni
er greidd frá launagreiðanda hans
vegna fjölskyldu launamannsins, ber að
telja til tekna á sama hátt.
Sérhver önnur fæðishlunnindi, látln
launamanni og fjölskyldu hans í té end-
urgjaldslaust, ber að telja til tekna á
kostnaðarverði.
1.2. Endurgjaldslaus afnot íbúðarhúsnæðis,
sem launagreiðandi lætur launamanni
sínum í té, skulu metin launamanni til
tekna sem hér segir:
Fyrir ársafnot reiknast 2,7% af gildandi
fasteignarmati íbúðarhúsnæðisins,
þ.m.t. bílskúr og lóðar. Fjárhæð þessi
skiptist hlutfallslega á greiðslutímabil
miðað við tímalengd þeirra.
Hafi launamaður afnot íbúðarhúsnæðis,
sem launagreiðandi hans lætur honum
í té gegn endurgjaldi sem er lægra held-
ur en 2,7% af gildandi fasteignarmati
íbúðarhúsnæðisins (þ.m.t. bílskúr) og
lóðar, skal meta launþega mismuninn
til tekna eftir því sem hlutfall greiðslu-
tímabils segirtil um. Sá hluti orkukostn-
aðar launamanns sem launagreiðandi
hans greiðir skal talinn að fullu til tekna.
Endurgjaldslaus afnot launamanns á
orku (rafmagni og hita) skulu talin að
fullu til tekna á kostnaðarverði.
Húsaleigustyrk, sem launagreiðandi
greiðir launamanni sínum, ber að telja
til tekna að fullu.
Fylgi starfi launþega kvöð um búsetu í
húsnæði, sem vinnuveitandi lætur hon-
um í té, er skattstjóra heimilt að lækka
mat húsnæðishlunninda með hliðsjón
af ákvæðum 5. gr. reglugerðar nr.
104/1970 við álagningu opinberra
gjalda á næsta ári eftir staðgreiðsluár,
svo sem verið hefur.
Eigi skal meta launamanni til hlunninda
afnot af húsnæði í verbúðum eða vinnu-
búðum þar sem launamaður dvelur um
takmarkaðan tíma í þjónustu launa-
greiðanda.
1.3. 'Fatnaður, sem ekki telst einkennisfatn-
aður, skal talinn til tekna á kostnaðar-
verði.
Eigi skal reikna launamanni til tekna
nauðsynlegan hlífðarfatnað sem launa-
greiðandi afhendir honum til afnota við
störf í þágu launagreiðandans. Af
greiðslum launagreiðanda til launa-
manns til kaupa á fatnaði skal hins
vegar ávallt reikna staðgreiðslu af allri
greiðslunni.
1.4. Endurgjaldslaus afnot launamanns af
bifreið, sem launagreiðandi hans lætur
honum í té, skulu metin honum til tekna
sem hér segir:
Fyrir fyrstu
Fyrir næstu
Yfir
10.000 km afnot
10.000 km afnot
20.000 km afnot
kr. 15,50pr. km.
kr. 13,90pr. km.
kr. 12,25 pr. km.
Láti launagreiðandi launamanni í té af-
not bifreiðar gegn endurgjaldi sem
lægra er en framangreint mat skal mis-
munurinn teljast launamanni til tekna.
Hafi launamaður fullan umráðarétt yfir
bifreið í eigu launagreiðanda hans skal
við það miða að launamaður aki bifreið-
inni a.m.k. 10.000 km á ári í eigin þágu
eða 833 km á mánuði. Staðgreiðslu-
skyld hlunnindi slíks launamanns skulu
því teljast nema kr. 12.912 hið lægsta
á mánuði. Ef vitað er að umræddur
akstur launamanns í eigin þágu muni
nema meiru en 10.000 km á ári skal
ákveða mánaðarlegan akstur sem V12
af áætluðum heildarakstri á ári. Við
ákvörðun á staðgreiðsluskyldum hlunn-
indum á mánuði er þá mat á eknum km
umfram 833 km kr. 13,90, enda fari
heildarakstur á ári eigi fram úr 20.000 km.
Leggi launamaður fram gögn með
skattframtali sínu er sanni óvéfengjan-
lega að akstur hans í eigin þágu hafi
verið minni en viðmiðun ríkisskattstjóra
til ákvörðunar staðgreiðslu byggir á
skal leiðrétta hlunnindamat vegna bif-
reiðaafnota í samræmi við fram komnar
upplýsingar við álagninu.
2. Samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr.
591/1987 um laun, greiðslur og hlunn-
indi utan staðgreiðslu skal ríkisskatt-
stjóri meta endurgreiddan kostnað til
launamanns, vegna afnota launagreið-
anda af bifreið hans, sem halda má
utan staðgreiðslu. Samkvæmt 6. gr.
sömu reglugerðar skal ríkisskattstjóri
meta fjárhæð dagpeninga sem launa-
maður fær greidda vegna ferða sinna
á vegum launagreiðanda og sem halda
má utan staðgreiðslu.
Með tilvísun til áðurnefndra reglugerð-
argreina metur ríkisskattstjóri endur-
greiddan bifreiða- og ferðakostnað sem
halda má utan staðgreiðslu á árinu
1988 þannig:
2.1. Mat samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 3.
gr. reglugerðarinnar, þ.e. á kílómetra-
gjaldi undir viðmiðunarmörkum:
Fyrir 1-10.000 km kr. 15,50 pr. km.
Fyrir 10.001-20.000 km kr. 13,90 pr. km.
Fyrir 20.001 - kr. 12,25 pr. km.
Þar eð kílómetragjald er lægra fyrir
akstur umfram 10.000 km þarf launa-
greiðandi að fylgjast með heildarakstri
launamanna í hans þágu.
Fái launamaður greitt kílómetragjald frá
opinberum aðilum vegna aksturs í þágu
þeirra, sem miðast við „sérstakt gjald“
sem Ferðakostnaðarnefnd ákveður, má
hækka viðmiðunarfjárhæðir fyrir
1-10.000 km akstur um 2,55 pr. km
og um kr. 5,60 pr. km miðist kílómetra-
gjaldið við „torfærugjald" sem Ferða-
kostnaðarnefnd ákveður einnig. Fyrir
akstur á bilinu 10.001-20.000 km má
hækkun vegna sérstaks gjalds nema
kr. 2,25 pr. km en kr. 5 pr. km vegna
torfærugjalds. Fyrir akstur umfram
20.000 km má hækkun vegna sérstaks
gjalds nema 2 kr. pr. km en kr. 4,40
vegna torfærugjalds.
Varðandi skilyrði fyrir því að heimilt sé
að fella greiðslur samkvæmt framan-
greindri viðmiðun fyrir afnot launagreið-
anda af bifreið launamanns undan
staðgreiðslu er vísað til þeirra skilyrða
sem um það eru sett i áðurnefndri 3.
gr. reglugerðarinnar, sbr. 2. mgr, þeirr-
ar gr., sem hljóðar svo:
„Heimild þessi er að öðru leyti bundin
þeim skilyrðum að færð sé akstursdag-
bók eða akstursskýrsla þar sem skráð
er hver ferð, dagsetning, ekin vega-
lengd, aksturserindi, kílómetragjald
greitt launamanni, nafn og kennitala
launamanns og einkennisnúmer við-
komandi ökutækis. Gögn þessi skulu
færð reglulega og vera aðgengileg
skattyfirvöldum þegar þau óska þess,
hvort sem er í bókhaldi launagreiðanda
eða hjá launamanni."
2.2. Mat samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 6.
gr. reglugerðarinnar á dagpeningum
undir viðmiðunarmörkum til greiðslu á
gistingu, fæði og fargjöldum frá og að
flugvöllum og öðrum sambærilegum
fárgjöldum erlendis verður sem hér
segir:
Almennir dagpeningar:
Noregur og Svíþjóð SDR165
Annarsstaðar SDR150
Dagpeningar vegna þjálfunar, náms eða
eftirlitsstarfa:
Noregur og Sviþjóð
Annars staðar
SDR105
SDR 95
2.3. Mat samkvæmt 2. mgr. 6. gr. reglugerð-
arinnar á dagpeningum undir viðmiðun-
armörkum til greiðslu á gistingu og
fæði innanlands:
Gisting og fæði i einn sólarhring kr. 3.960
Gisting í einn sólárhring kr. 1.890
Fæði hvem heilan dag, minnst 10 tima ferðalag kr. 2.070
Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 1.035
Varðandi skilyrði fyrir því að heimilt sé
að fella dagpeninga, sem greiddir eru
samkvæmt framangreindri viðmiðun
undan staðgreiðslu, er vísað til þeirra
skilyrða sem um það eru sett í áður-
nefndri 6. gr. reglugerðarinnar.
Sé gisting erlendis greidd samkvæmt
reikningi frá þriðja aðila og launa-
manni, auk þess greitt ferðafé til að
standa straum af öðrum ferðakostnaði
erlendis, skal við það miða að heildarfj-
árhæð þeirra dagpeninga sem falla
innan mats ríkisskattstjóra hverju sinni
sé 67 SDR á dag. Af þeim hluta dag-
peninga sem er umfram þá fjárhæð
skal þá reikna staðgreiðslu. Sambæri-
legri reglu skal beitt um staðgreiðslu
af umframfjárhæð, hafi annar ferða-
kostnaður en gisting verið greiddur
samkvæmt reikningi, en ferðafé greitt
til að standa straum af gistingu. Reikn-
ast þá staðgreiðsla af greiddum
dagpeningum sem eru umfram 83 SDR
á dag.
Fái launamaður greidda dagpeninga
fyrir 30 daga eða fleiri á sama ári, skulu
viðmiðunarmörk skv. 2.2. og 2.3. hér
að framan lækka um kr. 437 fyrir hvern
dag umfram 30 daga.
Reykjavík, 4.janúar 1988.
Garðar Valdimarsson,
ríkisskattsstjóri.
fundir — mannfagnaöir
Grunnvíkingar
Hinn árlegi þrettándafagnaður Grunnvíkinga-
félagsins verður haldinn í félagsheimili
Seltjarnarness laugardaginn 9. janúar og
hefst kl. 21.00. Skemmtinefndin.
Þorrablót
Þorrablót brottfluttra Patreksfirðinga og
Rauðasandshreppsbúa verður haldið í Domus
Medica fyrsta dag þorra, föstudaginn 22. jan.
Miðar verða seldir í Domus fimmtudaginn 14.
jan. kl. 17-19 og laugardaginn 16. jan. kl.
14-17. Athugið, ekki verður hringt í fólk.
Stjórnin.
Eyja s.: 25335, Bjargmundur s.: 685959,
Eyrún s.: 35651.