Morgunblaðið - 04.02.1988, Page 57
57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1988
stiku og alltaf voru línumar í
tvéimur litum. Nákvæmnin var
ótrúleg og get ég ekki ímyndað
mér að nokkur píanókennari í dag
myndi nenna að leggja svona mikla
rækt við stílabækumar. Sá bunki
sem ég á af stílabókum frá Ragn-
ari kallar fram ótrúlegustu minn-
ingar og er á við besta skemmtiat-
riði.
í lok hvers spilatíma kvaddi
Ragnar alltaf með handabandi,
klæddi okkur í yfirhöfnina (nema í
anorakk) og bað fyrir góða kveðju
heim. Mér þótti hann alltaf eins og
ekta séntilmenni, en þeir eru víst
fáir nú á dögum. Alltaf var hann
fínn í tauinu, ég man aldrei eftir
að hafa séð hann öðruvísi en I jakka-
fötum þau 20 ár sem leiðir okkar
lágu saman — utan þau skipti er
hann snaraði sér úr jakkanum og
stóð við uppþvottinn. Úti á götu
mátti þekkja Ragnar á iöngu færi.
Hann gekk hægum skrefum, tein-
réttur, í íslandsúlpu, jakkafötum
og skóhlífum, og með þessa líka
eldgömlu skólatösku sér við hlið.
Tangagata 29 hafði alltaf sitt
aðdráttarafl. Utan spilatíma mátt-
um við æfa þar eins mikið og við
vildum og aldrei minnist ég þess
að hafa heyrt Björgu, sem býr þar
í húsinu, kvarta einu orði. Tónlistar-
skólinn leigði þetta herbergi, þama
inni í íbúðinni hjá konunni, og þótt
veggimir væru þunnir — gáfu meira
að segja eftir þegar potað var í þá
— var hvergi betra að æfa sig. Enn
hefur mér ekki tekist að fínna þann
stað í heiminum þar sem meira
næði fæst til píanóæfínga, það er
eins og Jón gamla Sigurðs vanti á
veggina eða einfaldlega þann kraft
sem alltaf lá í loftinu á þeim stöðum
sem Ragnar fór um.
Það var ekki nóg með að spila-
tímamir hjá Ragnari væru langir
heldur var hann alltaf reiðubúinn
að kenna utan venjulegs skólatíma.
Á sumrin bauð hann okkur spila-
tíma, eins oft á viku og við vildum,
og tók hann aldrei krónu fyrir.
Hann vildi helst að nemendur sínir,
sem á annað borð ætluðu að leggja
tónlist fyrir sig, æfðu sig í ellefu
mánuði á ári og slepptu sumarvinnu
af öllu tagi. Honum leist ekkert á
blikuna er hann mætti mér eitt sinn
úti á götu, akandi hjólbörum fullum
af gijóti. Hann andvarpaði og sagði
alvarlegur í bragði: „Nú gætirðu
verið búin að æfa þig í sex tíma í
dag, værirðu ekki í vinnu.“
Ragnar lagði mikið upp úr því
að nemendur skólans kæmu sem
oftast fram og léku fyrir aðra.
Yngri nemendumir mættu á hveij-
um sunnudegi á samæfíngu, en
þeir eldri hálfsmánaðarlega. Und-
antekningarlaust áttu píanónem-
endur Ragnars að mæta jafnfram
í Smiðjugötuna á laugardögum og
æfa fyrir samæfíngu daginn eftir.
Auk samæfínganna voru jóla-,
miðsvetrar- og vorhljómleikar (sök-
um fjölmennis þrennir í hvert sinn)
auk annarra nemendahljómleika.
Þá hafa jafnan ótal tónlistarmenn
sótt ísafjörð heim og sveikst maður
ekki undan að mæta á tónleika af
öllu tagi. Á ísafírði fékk maður
betri þverskurðarmynd af tónleika-
haldi en víðast hvar annars staðar
þar sem úrvalið af t.d. píanótónleik-
um er svo mikið að tími vinnst varla
til að sækja annars konar tónleika.
Vorhljómleikamir í Alþýðuhúsinu
þótti okkur krökkunum merkileg-
astir og voru þá stelpumar gjaman
í nýsaumuðum kjólum, með slöngu-
lokka í hári (þær sem á annað borð
höfðu hár). Eg sé Ragnar fyrir mér
að tjaldabaki í Alþýðuhúsinu þar
sem hann sat og merkti með rauðu
bleki við hvem nemanda — í efnis-
skrá prentaða í prentsmiðju. Alltaf
var hann á sínum stað og alltaf
jafn ómissandi. Á menntaskólaár-
unum, þegar sviðsskrekkurinn fór
að segja verulega til sín, stappaði
Ragnar í okkur stálinu — þar sem
við stóðum og skulfum á beinunum
— og söng brosandi byijun lagsins
svo við gleymdum síður upphafstón-
unum. Að eldskíminni lokinni
vorum við föðmuð og kysst — öllu
heldur kramin og kreist — og ef
klapp áheyrendanna reyndist í
skárra lagi þá bókstaflega henti
hann okkur, nauðugum viljugum,
aftur inn á sviðið. Fannst mér alltaf
vanta mikinn stuðning, að hafa
engan Ragnar baksviðs, þegar ég
spilaði einhvers staðar utan tónlist-
arskólans.
En þótt ég hafí verið sannfærð
um að Ragnar væri sá besti kenn-
ari sem völ væri á, þá kom nú samt
að því að okkur þótti mál til komið
að ég leitaði eitthvert annað. Þá
hafði ég verið í skólanum hans í
15 ár og það er nú einu sinni svo,
að hversu góðir sem kennarar em,
þá hafa þeir allir sínar takmarkanir
— það má alltaf læra eitthvað nýtt
hjá nýjum kennara. Ragnar lagði á
það ríka áherslu að nemendur sínir
færu í framhaldsnám í Reykjavík
og sérstaklega erlendis, því við það
myndi sjóndeildarhringurinn víkka
til muna. Sjálfur bjó hann í 24 ár
í Kanada og Bandaríkjunum (jafn-
mörg ár og skilja hjónin að ) og
var sú lífsreynsla honum mikils
virði. En erlendis fínnast ekki skól-
ar eins og sá sem Ragnar stjómaði
og eru mestu viðbrigðin að vera
naumt skammtaður tími. Hugsjóna-
menn eins og Ragnar, sem hafa
endalausa ást á viðfangsefninu,
gefa endalausan tíma og slíkt er
auðvitað ómetanlegt. Ragnar hafði
ekki eingöngu áhrif á námsval mitt
og þar með líf mitt, hann hafði
mannbætandi áhrif á alla þá sem
voru svo lánsamir að kynnast per-
sónu hans. Ég er þakklát Ragnari
fyrir að hafa gert mig að vini sínum
og fyrir að leiða mig inn í heim
tónlistarinnar — fyrir að benda mér
á þann vin sem hljóðfærið er. Sé ég
í leiðu skapi nægir að setjast við
píanóið, hlýða á góða tónleika eða
hljómplötu, og upp stend ég sem
ný og betri manneskja. Hvemig á
að vera hægt að láta sér leiðast
yfír tónlist sem hefur það hlutverk
að vera uppspretta gleðinnar,
mönnum til lífsfyllingar og sálu-
hjálpar?
Eins og áður sagði hefur það
alltaf verið hluti af daglegu lífí
Ragnars og Siggu að taka á móti
gestum. Ég geng um hús þeirra
rétt eins og ég eigi þar heima og
er ég ekki sú eina sem er þar heima-
gangur. Þótt ég flytti frá ísafírði
slitnuðu ekki tengslin við Ragnar,
við héldum bréfasambandi og auk
þess notaði ég hvert tækifæri til
að koma í heimsókn í Smiðjugöt-
una. Alltaf var manni tekið með
kostum og kynjum og ævinlega var
eitt það fyrsta sem Ragnar gerði,
að þreifa á köldum fíngmm mínum
og senda mig upp til að „fylla vask-
inn af heitu vatni og bleyta
hendumar vel upp fyrir olnboga“.
Því næst spurði hann: „Viltu byija
á því að leika fyrir okkur eða viltu
fyrst fá kökubita?" Þótt heilsu
Ragnars hafí hrakað nú síðustu
árin var hann andlega hress, elsk-
aði tónlistina sem fyrr, spjallaði við
gesti, kenndi og las bækur. (Sjón-
varp horfði hann næstum aldrei á,
enda var elckert slíkt tæki til a
heimilinu.) í síðasta sinn sem við
Ragnar hittumst tók hann um hend-
ur mínar, horfði alvarlegur í augu
mín og sagði: „Björk mín, lestu
Pablo Casals, Neuhaus og Njálu.“
Það má með sanni segja að margt
líkt hafí veri með þessum tveimur
höfðingjum, Ragnari og Casals —
þeim mikla sellósnillingi og húman-
ista, en hannlést fyrir allmörgum
árum 96 ára að aldri.
Þótt Tónlistarskóli ísaQarðar
hafi breyst —' náttborðið hans
Ragnars er ekki lengur skrifborð
skólastjóra — þá starfar skólinn enn
í anda Ragnars H. Ragnar. Sigga
yngri er tekin við og Sigga eldri
er aldrei langt undan. Rejmdar
sagði Ragnar oft í ræðum sínum:
„Ég er bara skólastjórí upp á punt,
hún Sigga konan mín sér um þetta
allt sarnan." í einni ræðunni skor-
aði Ragnar á kvenfólk að sjá til
þess að Tónlistarskóli ísafjarðar
eignaðist þak yfír höfuðið. Hann
bar mikla virðingu fyrir konum og
treysti þeim best til að stjóma heim-
inum. Ekki lifði Ragnar það að sjá
tónlistarskólabygginguna rísa, en í
virðingarskyni við hans störf mætti
sú bygging alveg fara að láta á sér
kræla.
Við það að missa Ragnar, fínnst
mér ég hafa misst góðan uppal-
anda. Meira er þó missir þinn, elsku
Sigga og ykkar allra í fjölskyld-
unni. Ég sendi ykkur kæra kveðju
Að minnsta kosti 300 böm voru
handtekin af öryggissveitum
ríkisins í Norður-írak síðla árs
1985. Þau voru að því er virðist
tekin í hefndarskyni við pólitíska
starfserhi foreldra þeirra eða ætt-
menna. Á árinu 1986 bárust
fréttir af misþyrmingum þessara
300 bama, og í janúar 1987 var
líkum 29 ungmenna á aldrinum
17 til 23 ára skilað til fjölskyldna
sinna. Fjölskyldunum var gert að
greiða tiltekna §árhæð fyrir hvert
lík.
Handtökumar áttu sér stað í
Sulaimanija í Norður-írak frá því
seint í september og fram til miðs
októbers 1985. Sumum bamanna
var greinilega haldið í gíslingu
vegna ættingja sem gerst höfðu
liðhlaupar úr hemum eða gengið
í lið með kúrdísku andspymu-
hreyfíngunni Pesj Merga. Onnur
voru handtekin í því skyni að toga
út úr þeim upplýsingar um athafn-
ir Pesj Merga og samheija
hreyfingarinnar í borginni, sem
sumir kunna að hafa verið ætt-
ingjar bamanna.
I fyrstu voru bömin í haldi í
borginni, og hugsanlegt er að ein-
hveijum þeirra hafí verið sleppt
síðar, en flest vom þau sennilega
flutt í fangelsi í Kirkuk. Ung-
mennin sem líflátin vom höfðu
greinilega verið flutt til höfuð-
stöðva öryggislögreglunnar í
Bagdad fyrir aftökuna, og sam-
kvæmt upplýsingum fanga, sem
losnaði úr haldi hjá öryggislög-
reglunni, vom hin líflátnu
ungmenni pynduð meðan þau
vom þar í haldi, ofurseld barsmíð-
um, svipuhöggum, kynferðislegu
ofbeldi og raflostum. Þijú þeirra
vom flutt á spítala eftir pynding-
amar og síðan lokuð inni í klefum
sínum. Eitt þeirra dó í klefanum.
Líkin sem send vom til fjölskyldna
þeirra bám merki um pyndingar,
og nokkur vom augnalaus.
Amnesty Intemational hefur
skrá yfír nöfn þeirra 29 ung-
menna sem líflátin vom án dóms
og laga, en sumar fregnir herma
að mörg fleiri hafí verið tekin af
lífí með leynd. í september 1987
staðfestu stjómvöld í írak líflát 7
þeirra 29 ungmenna sem um ræð-
ir og sökuðu þau um „glæpsam-
lega niðurrifsstarfsemi með
skotvopnum og sprengjum". Þessi
sjö ungmenni vom eldri en 18 ára
og talin fullveðja samkvæmt
landslögum. Stjómvöld í írak
neita vitneskju um hin ungmenn-
in, en meðal þeirra em tveir 17
ára piltar, Dara Hussain Hassan
og Dlir Mahmud.
Amnesty Intemational heldur
áfram að skora á stjómvöld í írak
að vemda þau ungmenni sem eft-
ir em í haldi og láta laus böm
og unglinga sem handtekin hafa
verið fyrir pólitískar athafnir for-
eldranna:
Áskorunum skal beint til:
President Saddam Hussain, Bagh-
dad, IRAQ.
(Fréttatilkynninfj)
héðan frá Freiburg og vona að sá
skuggi sem hvíldi yfír aðfangadegi
hverfí með hækkandi sól. Það er
skrýtið að eiga aldrei eftir að sjá
Ragnar H. Ragnar aftur, en í minn-
ingunni verður mynd hans ávallt
skýr.
Björk Sig.
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Öll heimilistækin
í glæsilegu mjúku línunni
Einar Farestveit&Co.hf.
■OWURfUN M, SÍMAR: (S1) IStSft OO «22*00 - NSO ftlUSTSM
KARAKTER
v/Bankastræti