Morgunblaðið - 10.02.1988, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B
33. tbl. 76. árg.
MEÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1988
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Bandaríkjaþing:
Demókratar
vilja styðja
kontra-liða
Washington, Reuter.
JIM Wright, forseti fulltrúadeild-
ar Bandaríkjaþings, hefur sent
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seta bréf þar sem hann óskar
eftir því að forsetinn aðstoði
þingmenn við gerð áætlunar um
áframhaldandi stuðning við
kontra-skæruliða i Nicaragua.
í bréfínu er skýrt tekið fram að
stuðningurinn verði ekki í formi
vopnakaupa en nýlega hafnaði full-
trúadeildin beiðni Reagans um 36
milljóna dala fjárstuðning við
skæruiiða. Hafði forsetinn áætlað
að 90 prósentum upphæðarinnar
yrði varið í friðsamlegum tilgangi
m.a. til kaupa á hjálpargögnum. í
bréfí Wrights segir að slíkur stuðn-
ingur verði til þess að flýta fyrir
friðarviðræðum í Mið-Ameríku.
Wright lætur ennfremur í ljós
þá von að Bandaríkjaþing geti
greitt atkvæði um stuðninginn á
næstu tveimur vikum en þess er
ekki getið hversu miklum ijármun-
um Demókrataflokkurinn er reiðu-
búinn til að veija í þessu skyni.
Ónefndir talsmenn flokksins hafa
sagt að til greina komi að veita
skæruliðum 10 til 15 milljónir
Bandaríkjadala.
FlóðíSignu
Reuter
Úrhellisrigning hefur bulið á strætum Parísarborgar undanfama daga
og í gær flæddi áin Signa yfír bakka sína. Myndin var tekin við
Pont d’Alma-brúna en þegar vatnsborðið hefur náð fótum styttunnar
segja innfæddir að flóð sé í Signu.
Innrásarlið Sovétmanna í Afganistan:
Deilur um brott-
flutning að leysast
- segir sendimaður Sameinuðu þjóðanna
Ulamabad, Peshawar, Reuter.
DIEGO Cordovez, sendimaður Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær að
samkomulag milli stjórnvalda í Pakistan og Afganistan um tímasetn-
ingu brottflutnings innrásarliðs Sovétmanna frá Afganistan væri inn-
an seilingar. Ákveðið hefur verið að næsta lota samningaviðræðna
fulltrúa ríkjanna hefjist í Genf 2. mars. Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovét-
leiðtogi sagði á mánudag að Sovétmenn væru reiðubúnir til að hefja
brottflutninginn 15. maí hefðu ríkin náð samkomulagi um þetta fyr-
ir 15. mars.
Cordovez kvaðst telja mjög líklegt
að fulltrúar þeirra næðu sáttum um
þetta á fyrirhugðum fundum þeirra
í Genf í næsta mánuði. Pakistanir
styðja frelsissveitir afganskra
skæruliða og hefur Cordovez að
undanfömu rætt við ráðamenn í
ríkjunum tveimur um leiðir til að
binda enda á ófriðinn í Afganistan.
Talsmenn skæruliða sögðust ef-
ast um heilindi Sovétstjómarinnar
í þessu efni og kváðust ekki sjá
nein merki þess í Afganistan að
Sovétmenn hygðust kalla innrásar-
liðið heim. „Sjálf tímasetningin
skiptir ekki höfuðmáli. Mestu varðar
hvort Sovétmenn gera alvöm úr
yfirlýsingum sínum og hverfa frá
Afganistan," sagði einn þeirra.
Ríkisstjómir á Vesturlöndum hafa
tekið yfírlýsingu Gorbatsjovs með
varfæmi.
Harðorð skýrsla um Kurt Waldheim, forseta Austurríkis:
Waldheim sakaður uni að
rangtúlka niðurstöðumar
Vín, frá Önnu Bjaraadóttur, fréttaritara
Morgunbtaðsina.
NEFND sagnf ræðinga, sem
rannsakað hefur fortið Kurts
Waldheims, forseta Austurríkis,
komst að þeirri niðurstöðu að
hann hefði ekki gerst sekur um
beina stríðsglæpi á árum síðari
heimsstyrjaldarinnar en að hon-
um hefði verið kunnugt um ólög-
mætar aðgerðir svo sem brott-
flutning gyðinga i flóttamanna-
búðir og aftökur liðsmanna frels-
issveita. Waldheim hefur lýst
yfir þvi að hann hyggist ekki
segja af sér embætti forseta.
ísraelskur sagnfræðingur, sem
sat i nefndinni, sagði í gær að
Waldheim hefði snúið út úr nið-
urstöðum nefndarinnar. í Aust-
urríki deila menn hins vegar um
hvort nefndarmenn hafi farið út
fyrir starfssvið sitt.
ísraeiski sagnfræðingurinn Yeh-
udah Wallach sagði í gær að niður-
stöður nefndarinnar bentu til þess
að unnt yrði að ákæra Waldheim
fyrir stríðsglæpi á ámm síðari
heimsstyijaldarinnar. „Ég tel að
lögfræðingar ættu að kynna sér
niðurstöður nefndarinnar," sagði
Wallach og bætti við að hann hefði
þegar rætt málið við lögfróða menn.
Waldheim sagði á mánudagskvöld
Fjórir sagnfræðinganna, sem sátu í nefndinni, svara spuraingum blaðamanna í Vín í gær.
Reuter
að nefndin hefði hreinsað hann af
ásökunum um stríðsglæpi. Wallach
sagði þetta §arri hinu sanna. „Þetta
er útúrsnúningur. Niðurstaða Okkar
kveður einmitt á um hið gagn-
stæða,“ sagði hann.
Alois Mock, varakanslari, sagði
í gær að nefndinni hefði aðeins
verið ætlað að kanna hvort Wald-
heim hefði gerst sekur um
stríðsglæpi. Sagnfræðingarnir sem
sátu í nefndinni báru á móti því í
gær að þeir hefðu farið út fyrir
eiginlegt verksvið sitt með því að
rannsaka gerðir Waldheims á
stríðsárunum og bera þær saman
við fullyrðingar hans um eigin
fortíð. Kváðust nefndarmenn ekki
telja það í sínum verkahring að
dæma um aðgerðir forsetans heldur
að leggja fram staðreyndir sem
aðrir gætu lagt mat á. I skýrslunni
eru fjölmörg dæmi nefnd þar sem
Waldheim hefur farið með rangt
mál um gerðir sínar á styijaldarár-
unum. „Hann vildi gleyma her-
þjónustu sinni og reyndi að draga
úr mikilvægi hennar þegar það
reyndist ekki unnt,“ segir í skýrsl-
unni.
Fréttaskýrendur virðast almennt
þeirrar skoðunar að skýrsla sagn-
fræðinganefndarinnar verði ekki til
að þagga niður í þeim sem krafist
hafa afsagnar Waldheims. Er litið
svo á að nefndin hafi kveðið upp
siðferðislegan dóm yfír Waldheim
sem skaðað geti ímynd Austurríkis
og samskipti stjómvalda þar við
önnur ríki.
Sjá einnig „Deilt um skýrslu
. . . á bls. 24.
Marlin Fitzwater, talsmaður Ron-
alds Reagans Bandaríkjaforseta,
sagði hins vegar á blaðamannafundi
í gær að tillaga Gorbatsjovs væri
„sérlega jákvætt skref í rétta átt“.
Minntist Fitzwater sérstaklega á að
Sovétstjómin væri nú reiðubúin til
að flytja innrásarliðið á brott á tíu
mánuðum í stað tólf. Sovétmenn
hafa einnig bundið brottflutninginn
því skiljrrði að Bandaríkjamenn
hætti að styðja skæruliða og kvaðst
Fitzwater ekki fá séð að ekki yrði
unnt að laysa þann ágreining.
Sjá einnig „Sovétstjórnin reyn-
ir ... á bls. 25.
Kína:
Barnungir
stærðfræði-
snillingar
Peking, Reuter.
SKÓLABÖRN í smáþorpi
einu í Innri-Mongólíu leika
sér að því að leysa hinar
aðskiljanlegustu stærðfræði-
þrautir í huganum en for-
eldrar þeirra, sem flestir eru
fátækir smábændur, eru al-
mennt og yfirleitt ólæsir og
eiga í hinum mestu ecf iðleik-
um með að leggja saman og
draga frá.
Að sögn fréttastofunnar
Nýja Kína hefur skólabömun-
um, sem búa í fjallaþorpinu
Yihe, verið kennd sérstök að-
ferð til að leysa stærðfræði-
dæmi í huganum. Árangurinn
er sagður ótrúlegur og skýrði
fréttastofan frá því að 11 ára
gömul stúlka, Liu Gouqin að
nafni, hefði margfaldað 856
með 758 og fengið rétta niður-
stöðu (648.848) á aðeins sex
sekúndum. Á sama tíma
skemmtu bekkjarsystkini
hennar sér við að draga fem-
ings- og teningsrætur og leysa
önnur áhug^verð og uppbyggi-
leg stærðfræðiverkefni.
Shi Fengshou, 31 árs gam
all stærðfræðingur, fann að
ferð þessa upp en félagar hans
og vinir kalla hann gjaman
„tvífætta reikniheilann”. Að
sögn Nýja Kína hafa skóla-
bömin oftlega verið fengin til
að sýna erlendum gestum
Peking listir sínar en þess á
milli aðstoða þau foreldra sína
við samlagningu og frádrátt á
markaðinum í Yihe.