Morgunblaðið - 10.02.1988, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1988
17
I skugga sögunnar
Erlendar bækur
Siglaugur Brynleifsson
Sebastian Haffner: Im Schatten
der Geschichte. Historischpolit-
ische Variationen aus zwanzig
Jahren. Deutscher Taschenbuch
Verlag 1987.
Seabastian Haffner fæddist í
Berlín 1907 og varð áttræður 27.
desember sl. Hann er meðal áhuga-
verðustu höfunda sem skrifa um
sögu, stjómmál og samtímaviðburði
í Vestur-Þýskalandi nú. Bækur
hans fjalla um þýska sögu, einkum
19. aldar. Meðal bóka hans eru:
„Anmerkungen zu Hitler", 1978;
„Preussen ohne Legende", 1979;
„Úberlegungen eines Wechselwáhl-
ers“, 1980. Hann setti einnig saman
kunna bók um Winston Churchill.
Kunnastur er Haffner sem blaða-
maður. Hann flúði land 1938, var
kvæntur konu af gyðingaættum, fór
til Englands. Hann var lítt mæltur
á ensku að eigin sögn, en 1940 kom
út bók eftir hann, „Germany —
Jekyll and Hyde“. Hinn kunni út-
gefandi Warburg greiddi götu hans
um erfiðasta hjallann, meðan hann
var að koma undir sig fótunum á
Englandi. Bókin vaxti athygli og
hann varð blaðamaður hjá Obser-
ver, sem var og er eitt virtasta blað
Englands. 1954 sneri hann aftur
til Þýskalands og starfði hjá Die
Welt til 1963 og síðar Der Stem.
Hann er kunnur fyrirlesari í þýsku
útvarpi.
í þessari sýnisbók úr fyrirlestrum
og greinum Haffners frá árunum
1966 til 1983 kennir margra grasa,
en allar þessar samantektir eiga
eitt sameiginlegt, þær eru allar
skemmtilegar og mjög persónuleg-
ar. Haffner er aldrei leiðinlegur.
Hann sér viðburði fyrri tíðar og
samtíðar skýrt og í sögulegu sam-
hengi. Skilningur har.s á viðburðum
líðandi stundar er sprottinn af meira
víðfeðmi en almennt gerist í um-
ræðum um dægurmál. Persónulýs-
ingar hans eru hnyttnar og hann
er einkar laginn að einkenna þær
persónur, sem hann fjallar um. Eins
og áður segir skrifaði hann ævisögu
Churchills og í lýsingu hans á því
sem hann dáði mest í fari Churc-
hills, birtist gleggst smekkur og
viðhorf Haffners sjálfs. Hann er
alls ófeiminn að segja skoðanir
sínar á atburðum og persónum og
óbundinn öllum hugmyndafræðum.
Samanburður Haffners á Churchill
og Hitler er í grófum dráttur sá,
að báðir voru gæddir „charisma",
náðu tangarhaldi og tengslum við
fjöldann, annar vissi að hann var
þegar allt kom til alls aðeins mað-
ur, en hinn varð að mynda með sér
hugmyndir um ofurmennið til þess
að geta fyllt eigið tóm. Annar var
fæddur í Blenheim-höll, sem tók
honum einkar vel, hinn komst aldr-
ei yfir öngstrætisumhverfi fátækra-
hverfa Vínarborgar.
Annar mælti á þeirri ensku, sem
getur hljómað fegurst, hinn öskraði
á götu-þýsku, í rauninni er saman-
burður Haffners samanburður á
aristókratanum og plebeijanum og
í því birtist einnig smekkur Haffn-
ers, en hvað er það annað en smekk-
ur, sem ræður viðbrögðum manna?
Þessi sýnisbók skiptist í greina-
flokka. Pyrst eru sögulegar athug-
anir og íhuganir, þar á meðal um
valdatöku Hitlers og Parísarkomm-
únuna. Næsti greinaflokkur er um
stjórnmál, þar á meðal greinin
„Hægri og vinstri", en samkvæmt
IL
TOLVUPRENTARAR
skoðun Haffners hafa hugtökin
snúist við, nítjándu aldar hægri
stefna er nú tuttugustu aldar vinstri
stefna og öfugt. Þriðji flokkur eru
svipmyndir af nokkrum einstakling-
um, sem kunnir eru af spjöldum
sögunnar og í lokaflokknum eru það
sem hann kallar „borgaralegar
íhuganir". Þar á meðal eru greinar
um framfarir og framtíð.
Flestallar greinamar eru mjög
stuttar, en það er hægt að segja
mikið í stuttu máli og í því er snilli
Haffners m.a. fólgin.
Kveikjan að flestum þessara
greina er að viðfangsefnin hafa
vakið athygli höfundarins vegna
þess að honum var efnið kært eða
það vakti leiða hans, svo mikinn
Reykjavík:
815 hundar á skrá
Sebastian Haffner
að hann gat ekki orða bundist. Og
það er einmitt þessvegna sem grein-
amar og fyrirlestramir verða svo
skemmtilegir og athyglisverðir.
í ÁRSLOK 1987 voru 815 hundar
skráðir í Reykjavík samkvæmt
skýrslu heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur, sem lögð hefur ver-
ið fram í borgarráði. Borgarráð
veitti 206 undanþágur frá banni
við hundahaldi á árinu en 83 leyfi
voru afturkölluð ýmist þegar
hundar voru aflífaðir eða fluttir
úr lögsagnarumdæminu. Átta
hundaeigendur voru kærðir
vegna meintra brota á samþykkt
um hundahald.
í skýrslunni kemur fram að all-
margir hundaeigendur viðast ekki
gera sér grein fyrir að afla þarf
leyfis meirihluta húseigenda fyrir
hvolpa, þótt þeir séu ekki skráning-
arskyldir fyrr en 6 mánaða. Kvört-
unum vegna hundahalds fjölgar ár
frá ári og bárast 161 kvörtun til
eftirlitsins og 39 til lögreglu. Þar
af var tvisvar kvartað vegna hunds-
bits, 34 sinnum vegna óþrifnaðar,
30 sinnum vegna ónæðis og 137
sinnum vegna lausra hunda.
Starfsmenn hundaeftirlitsins
vora tveir auk skrifstofumanns á
síðasta ári og áttu þeir samstarf
við lögreglu og starfsfólk dýraspít-
ala. í skýrslunni er bent á að fjar-
skiptabúnaði eftirlitsins sé ábóta-
vant og ljóst að farsími myndi bæta
mjög þjónustun eftirlitsmanna.
MAZDA 626
Sedan GLX
------TT-
Sjlfoh. <U . Art/d'on
i . o
r .. :.rT
Coupe GTi
Frá því að MAZDA 626 kom fyrst á
markaðinn hefur hann verið
langvinsælasti bíllinn í sínum flokki
hérlendis.
Nú er 3. kynslóð af þessum
geysivinsæla bíl komin á markaðinn
nýr frá grunni, stærri, aflmeiri og
glæsilegri en nokkru sinni fyrr.
Hatchback 4WS
MAZDA 626 kostar nú fráaðeins
658 þúsund krónum.
(1.8L Sedan 5 gíra m/vökvastyri)
Syningarbilar a staðnum.
Opið laugardaga frá kl. 1—5.
(stgr. - gengisskr. 8.1.88)
ÐILAÐORG HF.
FOSSHÁLSI 1, S.68 12 99.