Morgunblaðið - 10.02.1988, Blaðsíða 56
| 'ALHLIÐA PRENTÞJÓNUSTA |
í GuójónÓ.hf.
91-2 7233 I
i
Spari' .R..
á téKKareiKnir
SAMVINNU
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Ný kröfugerð VMSÍ:
Miðast við samn-
Jng til eins árs
Kraf izt uppbótar á laun í desember
Á ráðstefnu formanna aðildar-
félag-a Verkamannasambands ís-
lands í dag, verður lögð fram
kröfugerð fyrir samninga til
lengri tíma, sem kjaranefnd
VMSÍ hefur undirbúið undan-
farna daga. Fullur einhugur er
um kröfugerðina í nefndinni og
í framkvæmdastjórn VMSÍ.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er í kröfugerðinni gert ráð
fyrir samningi til eins árs eða til
15. febrúar á næsta ári. Ekki er
krafizt hárrar launahækkunar við
undirritun samninga, heldur
margra áfangahækkana á samn-
ingstímanum. Þá er lögð áherzla á
að samræma kjör félaga innan
VMSÍ við kjör annarra starfshópa
í landinu, meðal annars krafizt upp-
bótar á laun í desember og að
starfsaldurshækkanir verði færðar
í fyrra horf í áföngum á samnings-
tímanum.
Fiskverð erlendis
í hærri kantinum
LÍTIÐ framboð er nú á ferskum
fiski í Bretlandi. Gæftir hafa ver-
ið slæmar í Norðursjó og afli
tregur hér heima. Verð hefur því
H Tannlæknadeild:
Teningurinn
réð úrslitum
AÐ LOKNUM prófum fyrsta
árs nema í Tannlæknadeild
Háskóla íslands um áramótin
réð hlutkesti þvi hverjir endan-
lega komust áfram á annað ár.
Aðeins 7 þeir hæstu komast
hveiju sinni milli ára, en nú
urðu þrir jafnir í 6. 7. og 8.
sæti. Við hlutkestið féll einn
þeirra út.
Samkvæmt ákvörðun Háskóla-
ráðs er §öldi nemenda milli fyrsta
og annars árs í Tannlæknadeild
takmarkaður, en sú takmörkum
miðast við ijolda tannlæknastóla
á deildinni. Samkvæmt reglugerð
ræður svo hlutkesti því hveijir
fara áfram, séu menn jafnir í
síðasta sætið eða sætin. Einn
þessara þriggja áskildi sér allan
lagalegan rétt til að hnekkja hlut-
kestinu, fyndust á því einhveijir
meinbugir og fór svo að hann
féll út. Hlutkestið fer þannig fram
að viðkomandi nemendur kasta
teningi og ræður talan, sem upp
kemur, röð þeirra.
verið í hærri kantinum. Meðal-
verð fyrir kola, ýsu og þorsk er
nú um og yfir 90 krónur á hvert
kíló.
Á mánudag var seit 151 tonn af
gámafíski héðan í Bretlandi. Heild-
arverð var 13,4 milljónir króna,
meðalverð 88,62. Meðalverð fyrir
þorsk var 93,31, 92.46 fyrir ýsu og
90,06 fyrir kola. Rúmlega 20 tonn
voru af ódýrari tegundum og dró
það heildarverð nokkuð niður.
I síðustu viku voru með satna
hætti seld 749 tonn af físki úr gám-
um. Heildarverð var 29,5 milljónir
króna, meðalverð 77,18. Meðalverð
fyrir þorsk var 80,12 krónur, fyrir
ýsu 81,70 og fyrir kola 79,51. Verð-
ið fyrir þessar tegundir hefur því
hækkað um það bil um 10 krónur
milli vikna.
Morgunblaðið/RAX
NÚ er óttast að allt að 250 þúsund
seiði i kvíum Strandar hf. og
Hvammsvíkurstöðvar Laxalóns drep-
ist úr kulda vegna mikilla og langvar-
andi sjávarkulda í Hvalfirði. Á mynd-
inni hér að ofan sjást kvíarnar í
Hvammsvíkurstöðinni við ísröndina
og vindbáran hreyfir jökulkaldan sjó-
inn í kvíunum. Á innfelldu myndinni
sjást Logi Jónsson dósent við líffræði-
deild Háskólans og Finnur Garðars-
son stöðvarstjóri Strandar hf. virða
fyrir sér frosin og afhreistruð seiði
úr kvíum fyrirtækisins.
Sjá bls. 2: Stefnir i tugmilljónatjón
Morgunblaðið/Sverrir
Viðræðurnar í Washington:
Áf:ramhaldandi samvinna um
breytingar á vísindanefndmni
Washington. Frá Guðmundi Sv. Hermannssyni blaðamanni Morgunblaðsins.
FUNDUM íslenskra og banda- I að unnið verði sameiginlega að
rískra sendinefnda í Washington tillögu um breytingar á starfs-
lauk í gær með samkomulagi um I háttum vísindanefndar Alþjóða-
Myndi sýna siðferðisstyrk ef
hann segði sig úr bankaráðinu
- segir Steingrímur Hermannsson um setu Stefáns Val-
geirssonar í bankaráði Búnaðarbankans
„Ég ER Stefáni nyög ósammála.
Hann var kosinn í bankaráðið
sem fulltrúi Framsóknarflokks-
■Jns og þá um leið sem fulltrúi
Framsóknarmanna í þéttbýli og
dreifbýli. Það myndi sýna sið-
ferðilegan styrkleika ef hann
segði sig úr bankaráðinu," sagði
Steingrímur Hermannsson, ut-
anríkisráðherra og formaður
Framsóknarflokksins, er Morg-
unblaðið innti hann álits á þeim
ummælum Stefáns Valgeirsson-
ar, þingmanns Samtaka um jafn-
rétti og félagshyggju, að ekkert
óeðlilegt væri við það að hann
sæti í bankaráði Búnaðarbank-
ans fyrir tilverknað Framsóknar-
flokksins.
í síðustu kosningum var Stefán
kjörinn á þing fyrir Samtök um
jafnrétti og félagshyggju. Hann var
áður þingmaður Framsóknarflokks-
ins og var kjörinn í bankaráð Bún-
aðarbankans um áramótin
1985/86. Kjörtímabilið var hálfnað
um síðastliðin áramót. Steingrímur
sagði að þessi mál hefðu ekki verið
rædd við Stefán og Framsóknar-
flokkurinn hefði ekki hugsað sér
að beita neinum bolabrögðum í
þessu máli.
„Það hafa mjög margir lýst undr-
un sinni og furðu á því að hann
skuli telja sér fært að sitja þarna,
en ég hef verið mótfallinn því að
beita hann einhverri hörku, enda
er það kannski ekki hægt. Það veld-
ur mér hins vegar vonbrigðum að
hann skuli ekki sjá hvað er rétt í
þessu tilfelli," sagði Steingrímur
Hermannsson.
hvalveiðiráðsins. íslendingar
munu vinna að áætlun um að
vísindanefndin meti niðurstöður
hvalarannsókna með tilliti til
vistkerfis sjávarins i heild.
Bandaríkjamenn munu vinna að
tillögu um breytt skipulag á
vinnubrögðum nefndarinnar.
Tillögunum á að skila innan mán-
aðar. Guðmundur Eiríksson þjóð-
réttarfræðingur sagði, að andinn
og viðræðurnar á fundinum
hefðu verið mjög vinsamlegar
og Bandaríkjamönnum væri um-
hugað um að vinna að þessu
máli samkvæmt samkomulagi
þjóðanna sem gert var í Ottawa
í Kanada sl. haust. Þar var m.a.
gert ráð fyrir að þjóðirnar ynnu
sameiginlega að því að gera
vísindanefnd Hvalveiðiráðsins
trúverðugri og vinnubrögð henn-
ar markvissari.
Á fundinum í gær hittust nefnd-
ir undir stjóm Halldórs Ásgríms-
sonar, sjávarútvegsráðherra, og dr.
Anthonys Calios fulltrúa Banda-
ríkjanna í hvalveiðiráðinu. Að sögn
Guðmundar Eiríkssonar voru rædd-
ar tillögur íslendinga um breytt
skipulag vísindanefndarinnar þar
sem m.a. er gert ráð fyrir að kom-
ið verði á fót sérstakri stýrinefnd
innan vísindanefndarinnar. Guð-
mundur sagði það einnig mjög mik-
ilvægt að vísindanefndin fjalli um
rannsóknir á hvölum og hvalveiðar
með tilliti til vistkerfísins.
Á fundinum voru af hálfu íslend-
inga auk Halldórs og Guðmundar
þeir Ingvi Ingvarsson, sendiherra,
Helgi Ágústsson, skrifstofustjóri,
Hermann Sveinbjömsson, aðstoðar-
maður sjávarútvegsráðherra, Jó-
hann Sigurjónsson, sjávarlíffræð-
ingur, Kjartan Júlíusson, deildar-
stjóri, Hörður Bjamason, sendifull-
trúi og Stefán Stefánsson, sendi-
ráðsritari. í bandarísku nefndinni
voru fulltrúar viðskipta og utanrík-
isráðuneytisins. Enginn fulltrúi við-
skiptaráðuneytisins var tilbúinn til
að ræða um fundinn. Longmayer,
yfírmaður Islandsdeildar utanríkis-
ráðuneytisins, vildi það eitt segja
við blaðamann að fundurinn hefði
verið gagnlegur.