Morgunblaðið - 10.02.1988, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 10.02.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1988 7 Sölustofnun lagmetis: Beiðni Síldar hf. um leyf i til gaffalbita framleiðslu hafnað SÖLUSTOFNUN lagmetis hef- ur neitað Slld hf. á Siglufirði um leyfi til að framleiða gaffal- bita fyrir Sovétmenn á þeirri forsendu að fyrir væru í landinu verksmiðjur sem gætu framleitt gaffalbita upp í samninga við Sovétmenn, að sögn Theódórs S. Halldórssonar framkvæmda- stjóra Sölustofnunarinnar. K. Jónsson & Co hf. á Akur- eyri, Siglufjarðarbær og Verka- lýðsfélagið Vaka á Siglufirði eiga hlut í Síld hf. Sigló hf. á Siglu- firði, sem framleiddi gaffalbita fyrir Rússlandsmarkað, var nýlega selt Kaupfélagi Austur-Skaftfell- inga á Höfn í Homafirði. „K. Jónsson á Akureyri á 60% af hlutafé Síldar,“ sagði ísak Ól- afsson bæjarstjóri á Siglufirði. „Hlutafé Síldar er 50 þúsund krón- ur en það átti að auka í 5 milljón- ir króna ef það skilyrði K. Jónsson- ar að Síld og K. Jónsson fengju einkale}rfí á framleiðslu gaffalbita fyrir Rússlandsmarkað fengist uppfyllt. K. Jónsson og Sigló hafa framleitt þá gaffalbita sem hafa verið seldir til Sovétríkjanna. Átj- án til tuttugu manns hafa að und- anfömu unnið við framleiðslu gaffalbitanna hjá Sigló en þenslan er svo mikil hér á Siglufirði að þetta fólk getur fengið vinnu hjá öðmm fýrirtækjum hér,“ sagði ísak. Besta meðalnyt frá upphafi: - segir Hjörtur Ólafsson eigandi Blöðru 80, en hún mjólkaði mest á síðasta ári Morgunblaðið/Siguröur Jónsson Kostagripur sem gott er að hafa í fjósi Seifossi KÝRIN Blaðra nr. 80 á Efri- Brúnavöllum I á Skeiðum mjólk- aði mest allra kúa á landinu á síðasta ári, 9.226 kg mjólkur. Eigandi Blöðru er Hjörtur Ól- afsson. Hann er hreykinn af Blöðru sinni: „Þetta er kosta- gripur sem gott er að hafa í fjósi.“ Besta meðalnytin var í kúm Sturlaugs Eyjólfssonar á Efri-Brunná í Dölum, 6.187 kg mjólkur. Samkvæmt uppgjöri á skýrslum nautgriparæktarfélaganna var meðalnytin yfír landið á síðasta ári 3.986 kg. Er þetta langbesti árangur hjá bændum landsins frá því skráning hófst Þetta gerðist þrátt fyrir að kjamfóðumotkun hafí verið minni en mörg undanfar- in ár. Jón Viðar Jónmundsson naut- griparæktarráðunautur segir að gott árferði um allt land komi fram í þessum árangri, auk þess sem jafnar framfarir í kúastofninum almennt séu famar að segja vem- lega til sín. Þessu til viðbótar nefndi hann að skerðing fram- leiðsluréttar bænda hafi leitt til þess að menn hafí grisjað talsvert í fjósum sínum og meðaltalið því batnað. Bændur hefðu því bmgðist skynsamlega við breyttum aðstæð- um. Blaðra er stæðilegur gripur, 8 vetra. Hún bar í janúar á síðast- liðnu ári og er eins og bestu grip- imir, eykur nytina jafnt og þétt. Hjörtur á Brúnavöllum sagði að í mars hefði dagsnytin verið komin í 44 kíló. Hann kvaðst gefa nokkuð af kjamfóðri bæði vegna frekar slakra heyja og líka vegna þess að beitarland væri lítið. Að meðal- tali gefur hann fullmjólka kúm 900 kíló en skammtar góðgætið annars eftir burðartíma og mjólkurmagni. — Sig.Jóns. Hjörtur Ólafsson bóndi með Blöðru sína i fjósinu á Brúnavöllum I. eru ekki bara net! Á sjónum snýst lífið um eitt: FISK. Þessvegna gera farsælir skipstjórnar- menn miklar kröfur til veiðafæra sinna. NICHIMO og KING eru þorskanet sem má treysta. NICHIMO japönsku þorskanetin eru óvenju fiskin, vönduð og meðfærileg. KING þorskanetin eru einnig afarfiskin og í góðum litum. Taktu upp símann, kannaðu málið. Nú er rétti tíminn fyrir næstu vertíð. Mundu að skynsamleg ráðstöfun í landi, getur komið sér vel úti á rúmsjó. KRISTJÁN O. SKAGFJÖRÐ HF. Hólmaslóð4, sími 24120, Rvk. INGAPJÖNUSTAN / SÍA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.