Morgunblaðið - 10.02.1988, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1988
Carrington lávarður
kominn til landsins
OPINBER kveðjuheimsókn
Carringtons lávarðar, aðal-
framkvæmdastjóra Atlants-
hafsbandalagsins, hingað til
lands hófst síðdegis í gær, er
flugvél hans lenti á Reykjavík-
Selárskóli:
Annar áfangi
boðinn út
BYGGINGADEILD Reykjavíkur-
borgar hefur auglýst útboð í ann-
an áfanga Selásskóla. Kostnaður
við áfangann er áætlaður 26 milij-
ónir króna.
Annar áfangi er 466 fermetrar að
stærð með tveimur sérkennslustof-
um, fyrir hand- og myndmennt auk
salema. Að sögn Guðmundar Pálma
Kristinssonar forstöðumanns bygg-
ingadeildar borgarverkfræðings er
gert ráð fyrir að framkvæmdir hefj-
ist í byrjun mars. Guðmundur Þór
Pálsson arkitekt hannaði bygging-
una.
urflugvelli. Hann mun hitta
forsetann, forsætisráðherra,
utanríkisráðherra og utanrík-
ismálanefnd Alþingis í dag, en
heldur síðan utan á morgun.
Heimsókn Carringtons hófst
með óformlegum kvöldverði á
heimili utanríkisráðherra,
Steingríms Hermannssonar, og
eiginkonu hans, Eddu Guðmunds-
dóttur. Fyrir hádegi í dag fer Carr-
ington lávarður til fundar við ut-
anríkisráðherra og síðan forsætis-
ráðherra en eiginkona hans skoðar
Þjóðminjasafnið. Hádegisverður
verður snæddur í boði Þorsteins
Pálssonar, forsætisráðherra, í ráð-
herrabústaðnum. Síðdegis hittir
Carrington utanríkismálanefnd
Alþingis og heimsækir Vigdísi
Finnbogadóttur forseta íslands á
Bessastöðum. Um kvöldið verður
kvöldverður í boði utanríkisráð-
herra og eiginkonu hans á Hótel
Holti.
Carrington og fylgdariið hans
heldur af landi brott í fyrramálið.
Morgunblaðið/Bjarni
Við komuna til Reylgavíkur vakti grein um Sykurmolana í blaðinu
Indepeadant frá þriðjudeginum athygli utanríkisráðherra, en Einar
Benediktsson, sendiherra i Brussel, og Carrington lávarður höfðu
blaðið í pússi sínu.
Loðna:
Veiðin fær-
ist sunnar
LOÐNUSKIPIN eru nú byijuð
veiðar við Berufjarðarál, syðst í
göngunni, sem þau hafa verið að
veiða úr að undanförnu. Talsvert
er af loðnunni og gæftir ráða því
mestu um aflann. Veiðin á þriðju-
dag var nokkri líflegri en síðsutu
daga.
Auk þeirra skipa, sem áður er
getið, fór Gígja VE með 750 tonn
til Vestmannaeyja á mánudag og
Bergur VE með 530 til Reyðarfjarð-
ar.
Síðdegis í gær höfðu eftirtalin
skip tilkynnt um afla: Magnús NK
470 til Reyðarfjarðar, Húnaröst ÁR
620 til Homafjarðar, Víkingur AK
1.100 til Akraness, Hilmir II SU 580
og Helga II RE 430 til Seyðisfjarð-
ar, Guðmundur VE 750 til Vest-
mannaeyja, Guðmundur Ólafur ÓF
430, Hrafn GK 500 og Skarðsvík
SH 550 til Neskaupstaðar og Svanur
RE með 400 tonn, löndunarstaður
óákveðinn.
VEÐURHORFUR í DAG, 10.2.88
YFIRLIT í gær: Yflr Grænlandi er 1.010 mb hæð en 875 mb lægð
skammt austur af Jan Mayen hreyfist lítið. Á sunnanverðu Græn-
landshafi er önnur 975 mb lægð sem þokast austur og kröpp lægð
er yflr Skotlandi á leið austur. Áfram verður frost um allt land
vfðast 5—10 stig.
SPÁ: Norðan- og norö-austanótt um land allt. Áfram verða él norð-
anlands, einkum þó við ströndina, en víðast bjart veður um landiö
sunnanvert. Frost verður á bilinu 3 til 13 stlg.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR A FIMMTUDAG: Norðlæg ótt og frost um land allt. Él
allvíða noröanlands, en úrkomulaust og léttskýjað syöra.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Fremur hæg, breytlleg átt og kalt í veðri.
Dálftil él við norð-austurströndina og á annesjum vestanlands,
annars bjart veður.
TÁKN:
Hei6s|<,rt
Léttskýjað
Hólfskýjað
Skýjað
ÍT^SAiskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / #
/ * / # Slydda
/ * /
* * #
# # * * Snjókoma
# # #
-) 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
Él
Þoka
Þokumóða
Súld
Mistur
Skafrenningur
Þrumuveður
V
V
5 9
5
oo
4
R
VEÐ UR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gœr að isl. tíma
Akureyri Reykjavlk hltl +8 +7 veöur alskýjað akýjaö
Bergen 3 alskýjað
Helsinki 0 snjókoma
Jan Mayen +4 akýjaö
Kaupmannah. 3 skýjað
Narasarasuaq +11 úrkoma
Nuuk +8 alskýjað
Oaló +1 súld
Stokkhólmur 1 slydda
Þórahöfn 2 rignlng
Algarve 16 skýjað
Amsterdam 8 lóttskýjað
Aþena 16 alskýjað
Barcelona vantar
Berifn 6 akýjað
Chicago +10 láttskýjað
Feneyjar B skýjað
Frankfurt 3 rignlng
Glasgow 4 skúr
Hamborg 3 rignlng
Lea Palmaa 18 skýjsð
London 6 skur
Loa Angelea 10 þokumóða
Lúxemborg 3 rigning
Madrid 14 léttskýjað
Malaga 18 Mttskýjað
Mallorca 18 léttskýjað
Montreal +18 skýjað
NewVork +4 helðskfrt
Parfs 8 haglél
Róm vantar
Vln 7 láttakýjað
Washlngton +3 alskýjað
Winnlpeg +28 helðskfrt
Valancla 18 léttBkýjað
Reykjavík:
107,7 milljónir
fyrir tvær lóðir
STEINTAK átti hæsta tilboð, eða
77,7 milljónir króna, í lóð við
Klapparstíg 1 og Dögun hf. átti
hæsta tilboð, eða 32 milljónir, í
Ióð við Laugaveg 148. Borgar-
yfirvöld hafa ákveðið að selja
lóðirnar hæstbjóðanda.
Samkvæmt samþykktu deili-
skipulagi er gert ráð fyrir að byggð-
ar verði 50 íbúðir á lóðinni við
Laugaveg og að rúmlega 500 fer-
metrum verði varið í atvinnuhús-
næði. Að sögn Hjörleifs Kvaran,
framkvæmdastjóra lögfræði- og
stjómsýsludeildar, er gert ráð fyrir
að byggðar verði 109 íbúðir og rúm-
lega 700 fermetrum verði varið í
atvinnuhúsnæði á þeim hluta lóðar-
innar við Klappastíg 1, sem boðinn
var út. Verið er að ræða við hæstu
tilboðsgjafa um þær tryggingar sem
setja þarf fyrir kaupverðinu.
Að sögn Hjartar Aðalsteinssonar,
framkvæmdastjóra Dögunar hf.,
hyggst fyrirtækið byggja íbúðar-
hótel við Laugaveg 148 að fengnu
samþykki borgaryfirvalda. Yrði ein-
staklingum, fyrirtækjum og félaga-
samtökum gefinn kostur á að kaupa
íbúðimar en sérstakt húsfélag eða
stjóm sæi um rekstur þeirra og
leigu þegar eigendur óskuðu eftir.
„Þetta verður svipað fyrirkomulag
og á sólarströnd Spánar, en þar em
íbúðir í einkaeign leigðar þann hluta
ársins sem eigendur þurfa þeirra
ekki með,“ sagði Hjörtur. „íbúðirn-
ar gætu einnig verið góð fjárfesting
fyrir fyrirtæki og félagasamtök sem
ekki þurfa að nýta þær nema hluta
úr ári. Einnig kæmi til greina að
leigja þær skólafólki að vetri en
ferðamönnum á sumrin."
INNLENT
Viðar Pétursson
tannlæknir látínn
Viðar Pétursson, iæknir og
tannlæknir, Sólheimum 42, lést í
Reykjavík mánudaginn 8. febrúar.
Viðar fæddist í Reykjavík 24.
nóvember 1908, sonur °éturs
Zóphóníassonar ættfræðings og
konu hans Guðrúnar Jónsdóttur.
Hann varð stúdent frá Menntaskó-
lanum í Reykjavík 1928, lauk
læknaprófi frá Háskóla Islands
1935 og hélt þá til Danmerkur til
náms í taugasjúkdómum. Jafn-
framt lauk hann þar prófi í tann-
lækningum 1942 og var síðan
starfandi tannlæknir í Reykjavík
frá 1945.
Eftirlifandi eiginkona Viðars er
Ellen Petersdóttir Knudsen frá
Jótlandi. Viðar lætur eftir sig þijú
böm.