Morgunblaðið - 10.02.1988, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 10.02.1988, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1988 Austurríki: Deilt um skýrslu sa^nfræðinganna Hópur Palestínumanna hyggst ýta úr vör í Aþenu í dag skipi sem kallað er „Afturhvarfið“. Mönn- unum hefur öllum verið vísað úr landi í ísrael og hyggjast þeir taka land í Haifa í ísrael innan tíðar. Stjórnvöld í ísrael ætla að hindra landtöku mannanna og eru margir ísraelar ævareiðir yfir nafngift skipsins sem vísar til þess er ísraels- menn yfirgáfu Egyptaland og einnig til sigling- ar skipsins Exodus frá Grikklandi til Palestínu fyrir fjörtíu árum. Þá sneru Bretar skipveijum við og vakti það mikla samúð með málstað zíon- ista og stuðlaði óbeint að stofnun Ísraelsríkis árið 1948. Vln, frá Önnu Bjarnad&ttur, fréttaritara Morgunblaðsins. HANS-RUDOLF Kurz, formaður sagnfræðinganefndar s^m ránnsak- aði aðgerðir Kurts Waldheims, forseta Austurríkis, á striðsárunum, tjáði æðstu ráðamönnum Austurríkis á mánudag að nefndin hefði ekki fundið neitt sem sannaði persónulega sekt Waldheims eða þátt- töku hans í stríðsglæpum í heimsstyxjöldinni síðari. Þetta var megin- efnið í forsíðufréttum Vínarblaða í gær og liöfuðatriðið í umfjöllun um starf nefndarinnar. En nefndin tekur hvergi svo afdráttarlaust til orða um sakleysi Waldheims í skýrslu sinni. Hún sakar hann ekki um stríðsglæpi en segist hvergi hafa fundið dæmi um að hann hafi mótmælt eða reynt að draga úr óréttlæti sem átti sér stað og hann vissi örugglega um. „Starf hans tengdist á hinn bóginn oft ólöglegum aðgerðum og þannig auðveldaði hann framkvæmd þeirra," segir í sýrslunni. Palestínumenn snúa heim Reuter Forkosningar í Iowa: Bush fær ir hafi unnið verkið fræðilega og hlutlægt. „Það leikur enginn vafi á að margir líta það sem stendur í skýrslunni alvarlegum augum. En það er ekki í okkar verkahring að segja réttkjörnum forseta landsins fyrir verkum. Hann tekur sínar eig- in ákvarðanir." Vranitzky er sann- færður um að deilumar um Wald- heim muni halda áfram. „Þessi umræða mun krefjast þess að við beinum athygli okkar að vandamáli sem við vildum helst ekki hafa,“ sagði hann.„En stjómmálaflokkam- ir í ríkisstjóminni munu ekki hætta samstarfí út af þessu máli. Það er mikilvægt að stjómin starfi áfram þegar vandi steðjar að.“ I dagblaðinu Kurier var komist þannig að orði: „Forsetinn situr vafalaust áfram og þjáist. Við mun- um þjást með honum." Waldheim ánægður Óeining ríkir í ríkisstjórninni um gildi skýrslu sagnfræðinganna. Alo- is Mock, varakanslari og pólitískur stuðningsmaður Waldheims, segir að nefndin hafi farið út fyrir starfs- svið sitt með því að fjalla almennt um herþjónustu Waldheims. Hann segir að hún hafí aðeins átt að. rann- saka sannleiksgildi ásakana um að Waldheim hafí framið stríðsglæpi. „Hún fann ekkert sem sannaði per- sónulega sök hans. Það eitt skiptir máli í skýrslunni," segir Mock. Franz Vranitzky, kanslari og pólitískur andstæðingur Waldheims, segir hins vegar að sagnfræðingam- á baukinn en sam- an dregur með demókrötum Des Moines í Iowa, Reuter. VARAFORSETI Bandaríkjanna, George Bush, varð fyrir nokkru áfalli í forkosningum Repúblikanaflokksins í Iowa-ríki á mánudag, en þær voru hinar fyrstu áður en flokkarnir vestra tilnefna forsetaframbjóðendur sína. Varð Bush í þriðja sæti, en Robert Dole varð hlutskarpastur með 38% atkvæða. í öðru sæti varð síra Pat Robertson með 24% atkvæða og kom mönnum það mjög á óvart að hann skyldi skjóta Bush ref fyrir rass. í búðum demókrata var hins vegar tíðindalausara — Richard Gephardt varð í fyrsta sætí með 31% atkvæða, en fast honum á hæla komu þeir Paul Simon og Michael Dukak- is. Gary Hart reyndist hins vegar sá sem verst fór út úr þess- um forkosningum, því hann fékk tæplega 1% atkvæða. Fréttaskýrendur telja að Bush verði að sigra forkosningamar í New Hampshire, sem fram fara í Vmnuborð og vagnar Iðnaðarborð, öll sterk og stillanleg. Með og án hjóla. Hafðu hvern hlut viö hendina, það léttir vinnuna og sparar tímann. Leitið upplýsinga. UMBODS OG HEILDVERSL UN BÍLDSHÖFDA 16 SÍM16724 44 næstu viku, með óyggjandi hætti eigi hann að halda hlut sínum í kapphlaupinu um tilnefningu Repúblikanaflokksins til forseta- framboðs. Fáum kom reyndar á óvart að hann skyldi ekki verða í fyrsta sæti í Iowa, en að síra Pat Robertson skyldi hafa af honum annað sætið kom mönnum í opna skjöldu. Meðal demókrata voru línumar óskýrari. Þrátt fyrir að Richard Gephardt reyndist vera hlutskarp- astur var hann þó ekki einn um að geta hreykt sér af niðustöðu forkosninganna því Paul Simon hafði litlu minna atkvæðamagn á bak við sig og Michael Dukakis dró einnig mun meira á þá Gep- hardt og Simon en búist hafði verið við. Höfðu menn á orði að forkosn- ingamar hefðu í engu gert stöðu Demókrataflokksins ljósari — hið eina sem væri á hreinu væri að Gary Hart væri búinn að vera, en hann náði ekki einum hundraðs- hluta greiddra atkvæða. „Látum fólkið ákveða," var kjörorð Harts og vísaði hann þar til þess að það væri kjósenda að ákveða hvort hann skyldi gjalda mistaka í einkalífinu í sókn sinni eftir forsetastólnum eður ei. Greinilegt má telja hverrar skoð- unar kjörfulltrúar demókrata í Iowa eru í þeim efnum. Talið er að Bush eigi sér við- Reuter Robert Dole með úrslitin í hendi sér. reisnar von í New Hampshire, en þar njóta hann og Reagan forseti nokkurra vinsælda, sem þeir félag- ar gera hins vegar ekki í Iowa. Hver staða síra Pats Robertsons og „hulduhers" hans úr röðum heittrúaðra í New Hampshire er, er hins vegar mjög óljóst. Meðal demókrata vom margir, sem töldu Dukakis vera þann sem mest vann á í forkosningunum. Honum hafði ekki verið spáð miklu fylgi í Iowa en kom á óvart með því að sópa að sér 22% atkvæða, en skoðanakannanir höfðu bent til þess að hann fengi mun minni stuðning. Þá er það einnig talið Dukakis til tekna, að næsta víst má telja að hann sigri í New Hampshire, en hann er ríkisstjóri í Massachusetts, næsta ríki við. Hver sem úrslitin þar verða, hafa þó margir fréttaskýrendur bent á, að þessi úrslit demókrata Forkosningar í iowa Riehard Gephardt DEMÓKRATAR Hiutfall atkvœða Gephardt Simon Dukakis Jackson Babb'itt Hart Gore Auó og ógild 31% 27% 22% 9% 6% 1 % (tCBPt) 0% 4% Robert Dole REPÚBLIKANAR Hlutfall atkveöa 38% Robertson 24% Bush 19% Kemp 11% du Pont 7% Haig 0% Auó og ógild 1 % Heimild: Reuter MorgunblaflióAM Dole hafí litlu breytt — enginn fram- bjóðenda geti talist fremstur með- al jafningja — að nú kunni hins vegar óráðnir menn eins og Mario Cuomo, ríkisstjóri New York-ríkis, og öldungadeildarþingmaðurinn Sam Nunn að taka af skarið og gefa kost á sér. Waldheim virtist rólegur og hæstánægður með niðurstöðu sagn- fræðinganefndarinnar í viðtali sem hann veitti austurríska sjónvarpinu á mánudagskvöld. Hann gerði lítið úr fullyrðingum hennar um að hann hafi vitað um stríðsglæpi og sagði að allir hefðu vitað um þá. Hann sagði að allir af sinni kynslóð sætu undir ákæru, ef hann væri sakaður um að hafa vitað um glæpina án þess að hafast nokkuð að. Hann gat þess ekki að hann hefði stundað upplýsingaöflun í Grikklandi og þess vegna verið óvenju vel upplýstur um gang stytjaldarinnar. Það fór vel á með honum og fúll- trúum nefndarinnar sem heimsóttu hann stuttlega á mánudagskvöld. Hann sagði þeim frá erfíðleikum fjölskyldu sinnar á stríðsárunum og sagðist ekki hafa verið með upp- steyt í hemum hennar vegná. Hann sagði að einhveijum öðrum hefði verið skipað að taka við hlutverki sínu, ef hann hefði neitað að fara að fyrirmælum og gaf til kynna, að hann hefði verið tekinn af lífí ef hann óhlýðnaðist skipunum. Waldheim sagðist ekki hafa neina ástæðu til að segja af sér embætti. Meirihluti þjóðarinnar styður hann, þótt hann hafí ekki reynst þjóðinni góður forseti, eins og einn frétta- skýrandi og stuðningsmaður hans komst að orði í gær. Austurríkis- menn taka harðri gagnrýni á hendur forsetanum erlendis óstinnt upp og gagnrýnin styrkir stöðu hans heima- fyrir. Stóryrtum yfírlýsingum for- seta Heimsráðs gyðinga er tekið sérstaklega illa og eins hafa af- skipti Der Spiegel af málinu ekki fallið í góðan jarðveg. í skýrslu sagnfræðinganna er gefíð til kynna að Waldheim hafí vikið sér undan að segja sannleikann um fortíð sína. Kröfur um að hann segi af sér eru taldar verða hávær- ari eftir því sem fleirum gefst kost- ur á að kynna sér skýrsluna. Bruno Kreisky, fv. kanslari, sagði að hann hefði aldrei stuðlað að því að Wald- heim yrði aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna ef hann hefði vitað um fortíð hans. Og Simon Wiesenthal sagði að skýrsla sagn- fræðinganna krefðist þess að aust- urrískir menntamenn reyndu að hafa áhrif á Waldheim svo að hann skipti um skoðun og hyrfí úr forseta- stóli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.