Morgunblaðið - 10.02.1988, Page 32

Morgunblaðið - 10.02.1988, Page 32
82 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1988 Yerkmenntaskólinn: Synjað um heimild til að brautskrá fóstrur Menntamálaráðuneytíð hefur synjað skólanefnd Verkmennta- skólans um héimild til að út- skrifa fóstrur. Þetta er í annað skipti sem skólinn sækir um slíka heimild án þess að fá jákvætt svar, að sögn Bernharðs Haralds- sonar skólameistara. Nýskráningum bifreiða fjölgaði um 700 í fyrra SKRÁÐIR voru um 1.800 nýir og innfluttir notaðir bílar á síðasta ári á Akureyri miðað við um 1.100 árið áður. Á móti voru hinsvegar afskráðir um 600 bilar í fyrra. Sigurður Indriðason fulltrúi hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins á Akureyri sagði í samtali við Morgunblaðið að þessi fjölgun væri með mesta móti og ætti fjölgunin rætur að rekja til tollalækkana á bifreiðum, sem gengu í gildi á síðasta ári. Um nýliðin áramót munu öku- tæki með umdæmisbókstafnum A hafa verið alls 9.483 talsins. Um áramótin 1986/1987 voru bifreiðir með A-númeri hinsvegar 8.843 tals- ins. Sigurður sagði að innfluttar notaðar bifreiðir væri aðeins mikill minnihluti þessara talna, enda hefði miklu meira borið á þeirri iðn í Reykjavík en hér fyrir norðan. Uppinn opinn til 5 á næturnar: Nýti smásöluleyfið eins og sjoppurnar — segir Þráinn Lárusson veitingamaður ÞRÁINN Lárusson veitinga- maður á Uppanum á Akureyri sótti í síðustu viku um leyfi til bæjarráðs til að hafa opið um helgar til klukkan 5 á næturn- ar. Þráinn heldur bæði veitinga- leyfi og smásöluleyfi og sagðist hann með þessum nýja opnun- artíma hyggjast nýta smásöluleyfi sitt, eins og sjoppumar gerðu sem væru á hverju götuhomi, seldu heitan mat og væm með opið fram á nótt um helgar. Á Uppanum hefur verið opið til klukkan 3 hingað til. Þó hefur verið lokað fyrir áfengissölu klukkan 2.30, eins og iög gera ráð fyrir. Um- sóknin fór fyrir bæjarráð sl. fímmtudag og fékk þar jákvæða umfjöllun. Hinsvegar fékkst ekki leyfíð þar sem lögreglusamþykkt fyrir Akureyri gerir ráð fyrir að veitingastaðir skuli vera lokaðir á milli kl. 3 og 6 á nætumar. „Eft- ir að hafa fengið þessa niðurstöðu ákvað ég að reka Uppann milli kl. 3 og 5 á næturnar á smásölu- leyfínu, eins og sjoppumar allt í kringum mig gera og bjóða upp á heitan mat eins og þær. Þannig fór ég af stað á föstudagskvöldið, en síðar þann sama dag fékk ég þau boð að gestimir gætu komið inn, pantað sér mat og borðað matinn alls staðar annars staðar en á Uppanum. Með öðrum orðum þurftu kúnnamir annaðhvort að borða matinn úti á götu eða taka hann með sér heim. Þeir máttu ekki nýta sér þau borð og stóla sem til staðar voru á staðnum og þar við sat um helgina. Þráinn sagði að engin lagabók- stafur væri til um það að fólk mætti ekki neyta þeirra vara í verslunum sem það keypti þar. Að auki væri fjöldi stóla, borða og bekkja í verslunum út um allt land, þar á meðal í sjoppunum, og hlytu menn að gera ráð fyrir því að viðskiptavinirnir fengju sér nart þar. „Spumingin er ekki sú hvort kúnninn sest niður eða ekki, heldur hlýtur hún að snúast um það hvað á boðstólum er á hveij- um stað fyrir sig,“ sagði Þráinn. Hann sagði að Uppinn yrði áfram opinn næstu helgar til klukkan 5.00. Maturinn yrði afgreiddur á n— Morgnnblaðið/Guðmundur Svansson Ivetrarsól í svari ráðuneytisins til Verk- menntaskólans segir: „Ráðuneytið hefur ákveðið að skipa nefnd til að endurskoða lög um fóstmmenntun í landinu, hugsanlega greiningu hennar í mismunandi stig og starfs- réttindi. Fyrir nokkm var beðið um tilnefningu í nefndina og vonast ráðuneytið til að nefndin geti tekið til starfa innan tíðar. Engar heim- ildir verða veittar til skóla um að brautskrá fóstmr, að minnsta kosti eigi fyrr en að fyrir liggur álitsgerð nefndarinnar sem að ofan getur og mörkuð hefur verið stefna um menntun fóstra í landinu." Bemharð sagði að töluvert væri um það að fólk spyrði hvort í bígerð væri fóstmnám við Verkmennta- skólann, aðallega væri um að ræða fólk af Norðurlandi. Morgunblaðið/GSV Frá árekstrinum á mótum Glerárgötu og Tryggvabrautar í fyrradag. • • Bilvelta í Bilvelta varð rétt við Engimýri i Öxnadal um kl. 15.15 i gærdag og sluppu hjón, sem í bílnum voru, ómeidd. Þá urðu þrír minniháttar árekstrar fyrrihluta gærdagsins á Akureyri. Enginn slasaðist. I fyrradag urðu níu árekstrar í bænum og er það heldur meiri fjöldi en gengur og gerist á einum degi Oxnadal á Akureyri, að sögn varðstjóra. Hann sagði að töluverð hálka væri á götum bæjarins þessa dagana og ætti hún eflaust sinn þátt í árekstr- unum. Þó væri ekki hálku einni saman um að kenna heldur mættu ökumenn fara mun varlegar í um- ferðinni. Menn gættu ekki nægjan- lega vel að sér þó skyggni væri mjög gott. Ánægja með útkomuna úr fyrstu prófunum — segja brautarstjórar Háskólans á Akureyri sunnan þó erfítt sé að dæma um það hafandi þetta smáan hóp. Mesta fallið var í félagsfræðinni og er sú raunin reyndar líka fyrir sunnan. Fjórir féllu hjá okkur í félagsfræði og ekki er óalgengt að fallið sé þetta 40-50% í þeirri grein fyrir sunnan. Tveir nemend- ur féllu á efnafræðinni, en í öðrum fögum náðu allir prófíim, en út- koma úr frumulíffræði hafði ekki verið reiknuð þegar rætt var við Margréti. Upptökupróf fara fram að loknu páskaleyfí." Þrettán nemendur eru nú í fullu námi í hjúkrunarfræðum á vegum Háskólans á Akureyri og fjórir nemendur eru að hluta til í skólan- um. Margrét sagði að upphaflega hefðu þrettán nemendur byijað í deildinni í haust, einn hefði helst úr lestinni og annar komið í stað- inn, þannig að tala nemenda stæði í stað. Einn nemendanna kemur frá Egilsstöðum, en aðrir eru frá Akureyri og nágrenni. Stefán Jónsson brautarstjóri í iðnrekstrarfræðum sagði að átján nemendur væru nú við nám á iðn- rekstrarbraut við Háskólann á Akureyri. Brautin skiptist í tvö svið, framleiðslusvið og markaðs- svið. Stefán sagði að nokkrir hefðu hætt námi fyrst í haust, en þessi átján manna hópur sem eftir væri héldi áfram. „Áður en komið var af endurtökuprófum og sjúkra- prófum höfðum við gefið 133 ein- kunnir. Af þeim voru aðeins níu falleinkunnir. Aðallega féllu þeir sem höfðu léiegan enskuundirbún- ing úr framhaldsskólum og eins er einstaka nemandi með slæman undirbúning í stærðfræði sem jafnframt kemur niður á reikn- ingshaldinu," sagði Stefán. Hann sagði að erfítt væri að bera útkomuna saman við iðn- rekstrarffæðina í Reykjavík. Hún væri á vegum Tækniskóla Islands þar og gæfí hann einkunnir í bók- stöfum, en háskólinn í tölustöf- um.„Persónulega er ég ánægður með útkomuna og tekur maður eftir jafngóðum einkunnum í mörgum fögum,“ sagði Stefán að lokum. Brautarstjórar Háskólans á Akureyri segjast ánægðir með útkomuna úr fyrstu prófum skólans en þeim er nú öllum nýlokið. Þeir segja að nær dag- Iega berist fyrirspurnir um nám næsta vetur. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvað í boði verður þá, en nefnd hef- ur skilað áliti á námi í matvæla- fræði auk þess sem unnið er að undirbúningi viðskipta- og hagfræðináms. Þá er mikill áhugi fyrir námi í sjávarút- vegsfræði á vegum skólans, en ljóst er að af því getur ekki orðið fyrr en síðar. Margrét Tómasdóttir brautar- stjóri í hjúkrunarfræðum sagðist ekki hafa endanlegar niðurstöður þegar Morgunblaðið ræddi við hana, en þó virtist árangurinn vera þokkalega góður. „Við feng- um inn einkunnir allt frá mjög góðu niður í nokkuð lélegt. Ég held að útkoman hjá okkur sé svip- uð því sem gengur og gerist fyrir Morgunblaðið/GSV Gunnar Páll Gunnarsson yfirmatreiðslumaður Uppans og Þráinn Lárusson veitingamaður. sama hátt og tíðkaðist í verslun- um og myndi starfsfólk Uppans síst standa í veginum fyrir því að viðskiptavinimir fengju afnot af stólum og borðum þar innan dyra. „Ég vil að skýrar línur séu dregnar um það hvað má selja í verslunum og hvað ekki. Ég rek til dæmis verslun hér á Akureyri sem heitir Sjávargull og þar hef ég selt heitan mat í hádeginu í nokkra mánuði án þess að þurfa nokkurt veitingaleyfí. Hinsvegar hefði ég þurft veitingaleyfi hefði ég sett stól i afgreiðsluna. Þá þarf maður ekki að hafa lærðan kokk við matreiðsluna nema því aðeins að kúnnamir setjist niður á staðnum og borði mat sinn þar,“ sagði Þráinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.