Morgunblaðið - 10.02.1988, Síða 54

Morgunblaðið - 10.02.1988, Síða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1988 SUND / ALÞJÓÐLEGT MÓT í AUSTUR-BERLÍN Eövarð Þór Eövarösson náði sínum besta tíma á þessum árstíma ( 100 metra baksundi í gærkvöldi. „Ég er mjög ánægður með árangurinn" - sagði Eðvarð Þór Eðvarðsson, sem varð í 2. sæti í b-úrslitum í 100 metra baksundi „ÉG er mjöjg ánægður með ár- angurinn. Eg hef ekki fyrr synt 100 metra baksund undir 59 ^ sekúndum á þessum árstíma, en nú synti ég á 58,52 sekúnd- um, sem sýnir að ág er á réttri leið,“ sagði Eðvarð Þór Eð- varðsson, sundmaður úr Njarðvfk, við Morgunblaðið í gærkvöldi. Eðvarð er nú í Austur-Berlín og tekur þar þátt í mjög sterku alþjóðlegu sundmóti. í gærkvöldi keppti hann í 100 metra baksundi og hafnaði í öðru sæti í b-úrslitum, en í a-úrslitum sigraði Austur- Þjóðveijinn Dirk Richter á 57,08. Keppnin var mjög jöfn, en heima- menn, sem leggja mikla áherslu á þetta mót, röðuðu sér í fjögur af fímm efstu sætunum. „Austur-þjóðveijamir líta á þetta sem meistaramót og eru því allir vel hvíldir og rakaðir. Ég er hins vegar óhvfldur og ekki rakaður og má því vel við una. Mér gekk reynd- ar frekar illa í undanrásunum, varð í 13. sæti á 59,57 sekúndum, en bætti mig vel í úrslitunum," sagði Eðvarð. Hann keppir í 200 metra baksundi í dag, en fer til Bonn á morgun og tekur þar þátt í ámóta sterku móti, sem hefst á föstudaginn. KNATTSPYRNA / DANMÖRK Friðrik byrjar vel með B1909 Hélt hreinu þegar liðið sigraði Vejle 3:0 FRIÐRIK Friðriksson, lands- liðsmarkvörður f knattspyrnu, byrjaði vel með sínu nýja fé- lagi, B 1909 í Danmörku, en um helgina var fyrsti æfinga- leikur Friðriks og félaga, sem leika í 3. deildinni í sumar Friðrik og félagar mættu 1. deildarliðinu Vejle, með Alan Simonsen í broddi fylkingar, og sigruðu 3:0. Þessi sigur kom nokkuð á óvart, enda Vejle eitt sterkasta lið Dan- merkur. Flestir eru því á því að B-1909 vinni sér sæti í 2. deild í sumar. „Þetta hefur gengið mjög vel og aðstaðan hér er allt önnur en heima," sagði Friðrik Friðriksson í samtali við Morgunblaðið í gær. „Það var keypt mikið af nýjum leik- mönnum og það virðist hafa gengið upp. Annars er ekki svo mikið að marka þetta ennþá, hálfgerður vor- bragur á öllu.“ Rikard Möller, þjálfari danska olympíulandsliðsins og U-21 árs landsliðsins er þjálfari B-1909, þrátt fyrir að hann sé ekki titlaður sem slíkur vegna þess að hann starfar hjá danska knattspyrnu- sambandinu. Hann stjómar þó æf- ingum hjá liðinu og er kallaður „tæknilegur ráðunautur liðsins." „Við eigum fyrsta leik 4. apríl og ég held að við getum verið bjartsýn- ir. Þetta gengur vel og ég kann mjög vel við mig hér. Þó hefur málið verið að vefjast fyrir mér og það er svolítið óþægilegt þar sem markmenn verða á láta vel í sér heyra. En þá lætur maður það bara vaða á bjagaðri dönsku!" BLAK / BIKARKEPPNIN ** Deildarmeistarar UBK úr leik VÍKINGAR slógu lið UBK úr bik- arkeppninni íblaki kvenna um helgina í spennandi og skemmtilegum leik. Blikastúlk- ur höfðu aðeins tapað einni hrinu í vetur áður en þær mættu Víkingum. að er því ljóst að það verður ekki sama liðið sem vinnur .deild og bikar í kvennablakinu að þessu sinni. Blikar eru með forystu og eru þegar orðnir Skúli Unnar deildarmeistarar en Sveinsson nú er það baráttan skrifar um Islandsmeistara- titilinn sem er fram- undan hjá blökurum. Blikar unnu fyrstu hrinuna 15:8 en ‘ Víkingar þá næstu 15:9. Þriðja hrinan var æsispennandi og lauk með 16:14 sigri UBK en það var dýru verði keypt því næstu hrinu unnu Víkingar auðveldlega 15:4. Lokahrinuna vann Víkingur síðan 15:13 eftir æsispennandi keppni. Þróttarar unnu lið HSK í þremur hrinum en kvennalið HSK tekur ekki þátt í deildarkeppninni - kepp- ir aðeins í bikarkeppninni, og stóð sig ágætlega gegn Þrótti. Úrslit hrina urðu 15:4, 15:10 og 15:11. Leik Völsungs og KA varð að fresta vegna veðurs nyrðra. í bikarkeppni karla vann Þróttur Rvk. ótrúlega auðveldan sigur á HK og tryggðuisér þar með sæti 1 undanúrslitum. Úrslit urðu 15:6, 15:13 og 16:14. Á Akureyri vann KA lið Óðins í Ijórum hrinum. Lið Óðins er skipað „gömlum" blakrefum sem eru að reyna að hætta. KA-menn unnu fyrstu tvær hrinurnar 15:13 og 15:4 en þá tóku þeir „gömlu“ við sér og unnu þriðju hrinuna 16:14. Fjórðu hrinuna vann KA 15:7. Stúdentar komust til Neskaupstað- ar og léku þar við heimamenn. IS vann bæði í karla- og kvenna- flokki. í karlaflokki var baráttan hörð. ÍS vann fyrstu hrinuna að vísu 15:0 en næstu tvaer vann Þrótt- ur 15:13 og 15:9. ÍS vann síðan 15:2 og 15:4. Stúdínur unnu fyrstu hrinuna 15:6 og þá næstu 15:9 en heimamenn snéru dæminu við og unnu 15:4 í þriðju hrinu en ÍS var sterkari aðil- inn og vann 15:8 í fjórðu hrinu. ÞJALFARAR Þeir eru besbr sem láta verkin tala Enginn verður óbannn biskup TVeysta þarf ungum mönnum fyrir ábyrgðarstöðu Olympíuskjálfti er kominn í marga nú þegar sól (Seoul) hækkar á lofti. Það eru margir sem sækja fast að komast á OL í Seoul. Ekki hefur verið spurt um árangur, heldur um peninga- styrki. Hin furðulegustu skrif um peninga- styrki, íþróttafor- ustuna, stjómar- menn afreksmanna- sjóðs ÍSÍ og þjálfara hafa skotið upp koll- inurri síðustu daga. Fyrst var rekið upp heróp um styrki, styrkþega og þá sem veita styrki. Síðan kom í kjölfarið hver á að þjálfa þá sem fá styrki. Spuming- in er hver er svo góður að hann fái styrki, eða hvaða þjálfari hefur mest- leik, þá aðeins 22 ára. „Ijaldað til einnar nætur" mátti þá lesa. Nú má lesa: „Ólafur Unnsteins- son, Stefán Jóhannsson og Andre Raes eru allir þrautreynd- ir þjálfarar. Guðmundur hefur Umdelldur Ráðning Hilmars Björnssonar sem landsliösþjálf- ara í handknattleik fyrir tuttugu árum var umdeild. Hann kom þá, sá og sigraði. an styrk til að þjálfa íþrótta- menn sem fá styrk. „Formaðurinn og stjóm FRÍ eru ekki starfí sínu vaxnir," sagði einn þjálfarinn, eftir að búið var að rálða landsliðsþiálfara Fijáls- íþróttasambands íslands. „Hreinn dónaskapur við mig,“ segir annar þjálfari og bætir síðan við: „Ég er sem betur fer umdeildur þjálfari enda lft ég svo á að sá sem er umdeildur sé góður.“ Þjálfarinn benti á að boðhlaups- sveitír hafi alltaf sett íslandsmet undir hans stjóm. Getur það verið að hann sé búinn að gleyma, að báðar boðsveitimar undir hans stjóm, voru dæmdar úr ieik í Evrópubikarkeppninni 1985? Ástæðan fyrir þessum ummæl- um þjálfaranna er að þeir fengu ekki landsliðsþjálfarastöðu hjá FRÍ. Sambandið réði ungan mann, Guðmund Karísson, sem stundar nám við hinn virta íþróttaháskóla í Köln. Báðir þjálfaramir tala um reynsluleysi Guðmundar. Telja báðir að þeir séu réttu mennim- ir. Ég þekki vel til þjálfaranna tveggja og veit að: Ef annar þeirra hefði verið ráðinn sem landsliðsþjálfari, hefði hinn talið gróflega hafí verið gengið fram hins vega ekki þjálfað áður.“ Það er rétt að Ólafur og Stefán eru reyndir þjálfarar. En hver er Raes? Er hann þrautreyndur frjálsíþróttaþjálfari? Nei, hann er knattspymumaður sem hefur ekki komið nálægt þjálfun ftjálsíþróttamanna. Hilmar Bjömsson lét ekki ósanngjamar árásir á sig fá á sínum tíma. Hann var maðurinn sem kom með nýtt blóð f lands- liðið. Undir hans stjóm tryggði íslenska landsliðið sér farseðil- inn á Ólympíuleikana S Múnchen 1972. Hilmar er einn virtasti þjálfari sem hefur komið fram á íslandi, enda þekktur fyrir að láta verkin tala. Guðmundur, sem er 24 ára, stfgur nú í fótspor Hilmars. Vonandi lætur hann ekki illar tungur hafa áhrif á starf sitt. Hann hefur aflar sér þekkingar í þjálfun við íþróttaháskólann í Köln, með frjálsar íþróttir og handknattleik sem sérmenntun. Hann hefur staðist mörg erfíð próf og er verðugur þjálfari landsliðsins. Guðmundur er ekki ókunnugur landsliðsmálum. Hann er sleggjukastari og hjó nærri Islandsmeti Erlends Valdimarssonar sl. haust. Guð- mundur er vel virtur fijáls- íþróttamaður. r-.rr+ - v- - r á wi t ‘ ^ É 'WlU/. .. /íÁÍ'Wl hjá sér. Það hefur gerst áður. Þessir menn eru báðir ágætir þjálfarar á sínu sviði, en þó ekki réttu mennimir til að gera stór- átak S þjálfaramálum hjá FRÍ. Það var rétt þjá FRÍ að fá nýtt blóð í þjálfun. Blóð sem hefur illilega vantað undanfarin ár. Það er rétt ákvörðun hjá FRÍ að treysta ungum manni fyrir ábyrgðastöðu. Menn vaxa með aukinni ábyrgð. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fáir menn ijúka upp til handa og fóta vegna ráðningu á lands- liðsþjálfara. Fyrir nákvæmlega 20 ámm börðu margir bumbur þegar Hilmar Bjömsson var ráð- inn landsliðsþjálfari í handknatt- Guðmundur lætur ekki orð sem sögð em f stundaræsingi á sig fá. Hann hugsaði ekki um far- seðil til ÓL S Seoul, þegar hann sótti um þjálfarastöðuna. Hans hugur er að leggja sitt að mörk- um til að koma fijálsum íþrótt- um hér heima upp úr þeim öldudal sem þær hafa verið f undanfarin ár. Hann kemur heirri, en fer ekki út, til að reyna að ná árangri. Við eigum því að veita Guð- mundi allan þann styrk sem hann þarf, en ekki leggja gijót f götu hans. Sigmundur Ó. Steinarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.