Morgunblaðið - 10.02.1988, Page 55

Morgunblaðið - 10.02.1988, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1988 55- HANDKNATTLEIKUR / HM-94 Sækja Vestur-Þjóðveijar um HM-keppnina 1994? Alþjóða handknattleikssambandið hefurfarið þess á leit við þá á bak við tjöldin. Litlar líkur eru á stofnun Evrópusambands strax vegna andstöðu þjóða í Austur-Evrópu ÞRATT yfir að enn hafi aðeins tvœr þjóðir sótt um að halda heimsmeistarakeppnina í handknattleik 1994, ísland og Svíþjóð, eru líkur á því að Vestur-Þjóðverjar sæki um að fá að halda keppnina, sam- kvæmt því sem heimildir Morgunblaðsins frá V-Þýska- landi herma. Nú stendur slagurinn milli ís- lands og Svíþjóðar en þó er ekki þar með sagt að fleiri þjóðir geti ekki bæst í hópinn. Umsókn- arfresturinn rennur ekki út fyrr en í apríl og að sögn stjómar-^ manna Alþjóða handknattleiks- sambandsins, IHF, gæti jafnvel farið svo að fresturinn yrði fram- lengdur. 40 milljóna króna tap 6 rekstri IHF1986-1987 Næsta A-heimsmeistarakeppni verður haldin í Tékkóslóvakíu 1990. Líklega mun verða nokkurt tap á keppninni, en IHF stendur illa fjárhagslega. Tapið á rekstri IHF 1986-1987 var t.d. hálf önn- ur milljón svissneskra franka, skv. heimildum Morgunblaðsins, en það samsvarar svarar tæpum 40 milljónum ísl. króna. Það er því mikilvægt að HM-94 komi vel út fjárhagslega og að sögn heimildarmanns Morgun- blaðsins í Vestur-Þýskalandi hef- ur stjóm IHF farið þess á leit við vestur-þýska handknattleikssam- bandið að það sæki um. V-Þjóð- veijar eiga mjög stórar hallir og marga dygga áhorfendur. í vetur héldu þeir Super-Cup keppnina og hún skilaði rúmlega 400.000 þýskum mörkum í hagnað, u.þ.b. 8,5 milljónum ísl. kr. Það er því auðséð að haldi V-Þjóðveijar keppnina þá ætti tapið a.m.k. ekki að verða mikið. V-Þjóðveijar hafa ekki látið í ljósi mikinn áhuga á að halda keppn- ina. Þess ber þó að geta að þeir em í augnablikinu í B-riðli og ef þeir halda HM-94 komast þeir sjálfkrafa í A-riðil sem gestgjaf- ar. Það væri mjög mikilvægt fyrir þá ef þeim tækist ekki að tryggja sér sæti í A-riðli fyrir 1994. Hvorug umsóknln enn oröin fullnægjandi Jörg Bahrke, framkvæmdastjóri IHF staðfesti það í símtali við Morgunblaðið frá aðalstöðvum IHF í Sviss, að fresturinn væri ekki enn útrunninn. Hann sagði m.a. að eins og staðan væri í dag væri ekki komin nein fullnægjandi umsókn. „ísland og Svíþjóð hafa bæði skilað inn umsóknum, en þær eru ekki fullnægjandi. í þær vantar til dæmis Qárhagsáætlun og ýmiskonar smátriði sem við verðum að hafa á hreinu. Þetta er þó nokkuð sem þjóðimar geta lagfært fyrir Seoul, en þá kemur þingið saman og ákveður hvar HM 1994 verður haldin." -Er það rétt að IHF vilji fá Vestur-Þjóðveija til að halda HM-94 vegna hugsanlegs taps sem gæti orðið á HM-90 í Tékkóslóvakíu? „Stjóm IHF hefur ekkert gefið út um hvaða þjóðir eru æskilegar til að halda keppnina og við sjáum ekki fram á verulegt tap á keppn- inni í Tékkóslóvakíu. Það er jú rétt að innkoma úr leikj- um verður ömgglega 'mun minni en áður, en við vonumst til að halda sömu auglýsingatekjum og tekjum af sjónvarpsútsendingum. Það er því ekkert til í því að við séum að setja pressu á Vestur- Þjóðveija um að sækja um. Um íjárhagsstöðu IHF vil ég hins veg- ar ekkert segja.“ Jón Hjattalín: Vestur-Þjóó- veijar stydja okkur Framanritað var borið undir Jón Hjaltalín Magnússon, formann HSÍ. „Það hafa aðeins tvær þjóð- ir sótt um keppnina og við höfum ekki ástæðu til að búast við að fleiri bætist í hópinn. Hvað Vest- ur-Þjóðveija varðar þá hafa þeir haldið képpnina tvisvar og ég hef ekki heyrt að þeir hafl áhuga að þessu sinni. Þeir hafa meðal ann- ars lýst yfír stuðningi við okkur.“ Elnhver blð verður á stofnun Evrópusambands Samkvæmt fréttatilkynningu sem HSÍ sendi frá sér fyrir síðustu helgi, eftir að fulltrúar HSÍ komu heim frá fundi forystumanna handknattleikssambanda Evrópu- þjóða í Prag, gerir stjóm HSÍ sér vonir um að Evrópusamband í handknattleik verði stofnað fljót- lega. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins mun þó líklega verða einhver bið á því , einkum vegna áhugaleysis þjóða í Aust- ur-Evrópu. í þessari sömu tiíkynningu er sagt að stofnun sambandsins strandi einna helst á forráðamönnum IHF. Jörg Bahrke neitaði þessu í sam- tali við Morgunblaðið: „Stjórn IHF hefur ekki lagst gegn stofnun Evrópusambands. Hinsvegar kom það fram á þessum fundi í Prag að þjóðir í Austur-Evrópu hafa alfarið hafnað stofnun sambands- ins, að minnsta kosti í nokkur ár.“ Jón Hjaltalín Magnússon, formað- ur HSÍ, sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að stjóm IHF væri mótfallin stofnun sambands- ins. „Það em þar menn frá Evr- ópu sem era hræddir við að Evr- ópukeppni, sem Evrópusambandið myndi sjá um, myndi vekja of mikla athygli. Þar að auki hefur Evrópukeppnin verið tekjulind fyrir IHF og þeir era hræddir við að missa hana. Það er hinsvegar rétt að þjóðir Austur-Evrópu hafa sagt að þær séu ekki tilbúnar, en ég held að þær vilji bara sjá hvemig málin þróast. En við erum þó bjartsýnir á að fá heimsmeistarakeppnina 1994, enda höfum við fengið stuðning hjá mjög mörgum þjóðum," sagði Jón Hjaltalín. ENSKI BIKARINN Wayne Clarke Everton gegn Liverpool Everton leikur gegn Liverpool í 5. umferð ensku bikarkeppn- innar 20. febrúar. Everton vann Middlesbrough í gærkvöldi 2:1 í þriðja leik liðanna Frá Bob og vora aðstæður Hennessy allar hinar verstu. I Englandi Graeme Sharp skor- aði fyrsta markið á Goodison á 17. mínútu, en Stuart Ripley jafnaði á 64. mínútu. Paul Power, sem nú lék með Everton í fyrsta sinn síðan í september, fór þá af velli og í staðinn kom Wayne Clarke. Sóknarleikurinn varð béitt- ari, en heppnisstimpill var á sigur- markinu. Gary Stevens átti skot að marki Boro sjö mínútum fyrir leiks- lok, knötturinn fór í Tony Mow- bray, fyrirliða Boro, breytti um stefnu og í netið. FRJALSAR IÞROTTIR Belgíumaður sótti um landsliðsþjálfarastöðu undir fölsku flaggi „Raes hefurfarið jrjálslega með sannleikann," seg- irÁgúst Ásgeirsson, formaður FRÍ ÞAÐ vakti mikia athygli á dög- unum þegar Belgíumaðurinn André Raes, knattspyrnuþjálf- ari hjá nýstofnuðu knatt- spyrnufélagi Ægis, sótti um starf sem landsliðsþjálfari ís- lands í frjálsum íþróttum. Í umsókn sinni sagði hann að hann hafi átt Evrópumet ungl- inga í400 m hlaupi, sem hann setti sextán ára gamall 1972. Einnig sagði Raes í umsókn sinni að hann hafí keppt í 400 m >pt i 400 m Ölympíuleik- hlaupi og boðhlaupi á unum í Miinchen 1972. Þegar gluggað var í bók frá Munchen 1972, til að kanna hvaða árangri Raes hafði náð, aðeins 16 ára — væntanlega jmgsti hlaupari ÓL frá upphafí — kom fram að hann var ekki skráður sem keppandi og að Belgíumenn sendu ekki boðhlaups- sveitir til leiks. Belgíumaðurinn Hermann Mignon keppti í 800 m hlaupi og hinn frægi Emiel Putte- mans keppti í 5.000 og 10.000 m hlaupi. Tryggði sér silfurverðlaun í 10.000 m hlaupi. André Raes sótti um landsliðsþjálf- arastöðuna I fijálsum íþróttum. Morgunblaðið hafði samband við belgíska fíjálsíþróttasambandið I gær til að fá upplýsingar um Evr- ópumet Raes og feril hans. Þau svör fengust á telex-skeyti, að Raes hafí verið efnilegur hlaupari á yngri áram, og meðal fremstu ungmenna í spretthlaupum í Evrópu. Hann hafí þó hvorki náð að setja Evrópu- met né belgísk unglingamet á sínum tíma. Heldur hafi hann ekki verið í ólympíuliði Belgíumanna 1972 í Miinchen. Eftir að hafa fengið þessar upplýs ingar hafði Morgunblaðið sambanc við Ágúst Ásgeirsson^ formann Fijálsíþróttasambands Islands og skýrði honum frá svari belgíska fijálsíþróttasambandsins. „Þetta er mjög alvarlegt. Það er greinilega að Raes hefur farið heldur betur fijálslega með sannleikann í um- sókn sinni til FRÍ,“ sagði Ágúst, Þess má og geta að með umsókn sinni til FRl gaf Raes upp árangur sinn I 100, 200 og 400 m hlaupi en aðeins var um réttar upplýsingar að ræða í 100 m hlaupi, svk. þeim upplýsingum sem belgíska fijáls- íþróttasambandið gaf í gær. ÍÞRÚMR FOLK* SVÍAR unnu Dam 24:23 í vin- áttulandsleik í handknattleik í Malmö f gærkvöldi. Danir leiddu lengst af og vora 14:11 yfír í hálf- leik, en heimamenn, með góðri hjálp vestur-þýskra dómara, náðu að sigra. Guðjón Guðmundsson, liðs- stjóri íslenska landsliðsins, var á leiknum og tók hann upp á mynd- band. Annar leikur verður í kvöld og fer hann fram í Bröndby, en )á dæma Gunnar Kjartansson og Rögnvald Erlingsson. THIJS Liebrechts hætti í gær sem þjálfari hjá gríska knattspymu- liðinu Olympiakos eftir að hafa >jálfað liðið í 75 daga. Samstarfíð gekk ekki og Liebrechts fer aftur til Hollands og tekur við landsliðinu eftir Evrópukeppnina, en þá hættir Rinus Michels sem landsliðsþjálf- ari. Liebrechts, sem er 47 ára, ijálfaði Feyenoord og PSV Eind- hoven áður en hann hélt til Grikk- lands 1984 og tók við Aris Salon- ika, þar sem hann var í tvö ár. Sfðan þjálfaði hann Paok og loks Olympiakos. SCARBOROUGH á í miklum fjárhagserfíðleikum. Félagið skuld^ „ ar nú 200.000 pund og tapar 1.000 pundum á viku og ef fjáröflun geng- ur ekki upp, bendir allt til þess að félagið hætti í vor. Peter Gargett, formaður 4. deildar félagsins, sagði í gær að kostnaðurinn við að leika í deildinni væri mun meiri en gert hefði verið ráð fyrir, en liðið byrj- aði í 4. deild fyrir yfírstandandi tímabil — kom í stað Lincoln. SEPP Piontek, landsliðsþjálf- ari Danmerkur, fer í „njósnaleið- angur“ til ítaliu og Spánar nú inm febrúar. Hann sér mótheija danska < landsliðsins á EM, Sovétmenn og Spánveija leika. Sovétmenn leika gegn ítölum í Bari 20. febrúar. Spánveijar leika gegn Tékkum Sórum dögum seinna í Malaga. I BRASILÍSKI landsliðsmaður- inn Josimar hefur gengið til liðs við SeviIIa á Spáni. Félag hans Botafogo lánaði hann til SeviUa út þetta keppnistímabil. ■ HOLLENDINGAR tilkynntu Dönum nú í vikunni að þeir gætu ekki tekið þátt f 100 ára admælis- móti danska knattspyrnusambands- ins 1989. Áður höfðu V-Þjóðveijar afþakkað boð frá Dönum. Brasilíu- — menn og Svíar era enn inn í mynd- inni. ■ BORIS Becker,tennisleikar- inn snjalli, hefur gert þriggja ára auglýsingasamning við Ford. Hann fær 3,1 milljón marka fyrir samn- inginn eða um 66 milljónir íslenskar krónur. Einng fær hann nýjan Ford Sierra Cosward til afnota. Hann er því ekki á flæðiskeri staddur fjár- hagslega. ■ JESUS Gil y Gil, forseti At- letico Madrid, neitaði í gær fregn- um um að hann ætlaði að selja portúgalska landsliðsmanninn Paulo Futre til Barcelona, en í spænskum blöðum var sagt að liðið hefði boðið meira en 10^ milljónir dollara fyrir kappann. Hann sagði að engar breytingar yrðu gerðar á liðinu fyrr en að lo- knu yfírstandandi keppnistímabili. Gil y Gil greiddi Porto um sex milljónir dollara fyrir Futre í fyrra og liðið undir stjórn Cesar Luis Menotti er í öðra sæti, sex stigum á eftir Real Madrid. ■ GUÐMUNDUR Guðmunds- son hefur ákveðið að leika með Völsungum í 1. deild í knattspyrnu á næsta keppnistímabili. Guð- mundur lék með yngri flokkum ÍA«^ en hefur verið með UBK undanfar- in tvö ár. ■ CRYSTAL Palace, sem nú er í 3. sæti í 2. deild í Englandi, hefur sett stefnuna á 1. deild. í gær bauð Steve Coppell, stjóri Palace 200.000 pund í Andy Linighan, vamarmann hjá Oldham. Linig- han er 26 ára og lék áður með Leeds.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.