Morgunblaðið - 06.03.1988, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1988
Leysir
Licio Gelli,
yfirmaður P2,
frá
skjóðunni?
LICIO GELLI,
illræmdur ítalskur
fjármálamaður, sem
hefur verið ákærður í
sambandi við einhverja
mestu glæpi á Italíu á
síðari árum, hefur verið
framseldur ítölskum
yfirvöldum og þess er
beðið með eftirvæntingu
hvort hann mun leysa frá
skjóðunni. Gelli var
leiðtogi illa þokkaðrar
leynistúku frímúrara, P2,
sem reyndi að ná
undirtökunum í
stjórnkerfinu á Italíu og
hafði svo mikil áhrif að
hún var kölluð „ríki í
ríkinu“. Hann hafði ráð
félagsmanna í hendi sér
og kallaði sig il
burattinaio
„leikbrúðustjórnandann“.
Maðurinn
sem
veft of mikið
ari“ og var ávarpaður „háæruverð-
ugur“ í virðingarskyni. Starfsemi
sinni stjórnaði hann frá veglegu
sveitasetri frá 16. öld, „Villa
Wanda“, í hæðum Toscana-héraðs,
rétt fyrir ofan bæinn Arezzo, og
glæsilegri íbúð í Excelsior-hótelinu
í Róm.
Hann fæddist í Pistoia, fyrir
norðan Flórenz, 21. apríl 1919, var
rekinn úr skóla 17 ára gamall og
barðist með fasistum á Spáni og í
heimsstyrjöldinni 1939-1945. Eftir
stríðið flúði hann til Argentínu, þar
sem hann kynntist mörgum áhrifa-
mönnum og varð trúnaðarvinur
Juan Peróns einræðisherra. Með
hjálp þessara manna tókst honum
að koma á fót öflugri fyrirtækja-
samsteypu í Argentínu og Uruguay.
Þegar Gelli sneri aftur til Italíu
fékk hann starf í gormdýnuverk-
smiðju og varð brátt framkvæmda-
stjóri hennar og forstjóri nokkurra
skyldra fyrirtækja. Árið 1966 gekk
hann í P2, sem er skammstöfun og
táknar Propaganda Due (Áróður
tveir). Starf stúkunnar var svo
leynilegt að aðeins stórmeistari
hennar vissi hverjir væru í henni
og hún hélt ekki fundi. Sjö árum
síðar varð hann sjálfur yfirmaður
P2.
Helztu „leikbrúður" Gellis voru
Michele Sindona, spilltur en fágað-
ur, sikileyskur fjármálamaður í
Róm og íjármálaráðunautur Páfa-
garðs um og eftir 1970, og Roberto
Calvi, formaður bankaráðs Banco
Ambrosiano, stærsta einkabanka
Ítalíu. Að beiðni Gellis kynnti Sin-
dona Calvi fyrir vini sínum, Paul
Marcinkus erkibiskupi, forstöðu-
manni banka Páfagarðs, IOR (Istit-
uto per la Opere Religiose), sem
varð síðar helzti viðskiptabanki
Ambrosiano-bankans.
Þegar banki Sindona, Banco
Privata Italiana í Mflanó, varð
gjaldþrota 1974 tók Calvi við hlut-
verki hans sem helzti fjármálaráð-
gjafl Páfagarðs og hlaut viðumefn-
ið „bankastjóri Guðs“. IOR átti 26
milljóna dollara innistæðu í banka
Sindona og seinna sama ár varð
banki hans í New York, Franklin
National, einnig gjaldþrota.
Árið 1978 skipulagði Sindona
opinbera rógsherferð gegn Calvi til
að reyna að kúga út úr honum fé,
en Gelli fékk þá til að sættast. Sin-
dona hafði þá flúið til New York
og til stóð að handtaka hann. Sama
ár hóf Italíubanki rannsókn á fjár-
reiðum Ambrosiano-banka. Dómar-
inn, sem stjómaði rannsókninni, var
skotinn til bana í Mflanó í janúar
1979. Um sumarið var skiptafor-
stjóri banka Sindona í Mílanó,
Giorgio Ambrosoli, myrtur skömmu
áður en hann átti að leggja fram
skýrslu sína. Hann hafði m.a. upp-
götvað tengsl Sindona við Marcink-
us.
Sindona var dæmdur í 25 ára
fangelsi í Bandaríkjunum 1980 fyr-
ir 45 milljóna dollara flárdrátt.
Lítill vafi leikur á því að hann var
mikilvægur tengiliður glæpasam-
taka á Ítalíu og í Bandaríkjunum.
í marz 1981 neyddist Gelli til að
flýja til Argentínu vegna tengsla
við Sindona, Calvi og fleiri menn,
sem höfðu flækzt í hneykslismál.
Flótti
Skömmu eftir flótta Gellis gerði
lögreglan leit í „Villa Wanda" vegna
rannsóknarinnar á gjaldþroti Sin-
dona og fann mikið skjalasafn, sem
svipti hulunni af leynineti P2. Nöfn
Sindona, Calvis og 980 annarra
manna var að finna á grunsamlegri
skrá, sem reyndist vera félagatal
P2, og auk þess fundust skjöl með
ítarlegum upplýsingum um marga
félagsmenn. I ljós kom að félagar
P2 voru kjami hægrimanna á Ítalíu
og í þeirra hópi reyndust vera fjór-
ir ráðherrar, yfírmenn heraflans og
beggja leyniþjónustustofnana ítal-
íu, 50 herforingjar og aðmírálar,
38 þingmenn, dómarar, umsvifa-
miklir iðnrekendur, auðugir kaup-
sýslumenn, embættismenn og 24
kunnir blaðamenn, þeirra á meðal
ritstjóri helzta dagblaðs íhalds-
manna á Ítalíu.
Samsteypustjóm Amaldos Forl-
ani hrökklaðist frá völdum og marg-
ir valdamiklir embættismenn
neyddust til að segja af sér, þeirra
á meðal yfírmenn leyniþjónustunn-
ar.
Hinn 18. júní 1982 fannst Calvi
hengdur undir Sva.rtmunkabrúnni í
Lundúnum. Daginn áður hafði
einkaritari hans svipt sig lífí, tveim-
ur klukkustundum eftir að sjóm
Ambrosiano-bankans hafði sagt af
sér og beðið ítalska seðlabankann
að taka bankann til rannsóknar.
Calvi hafði flúið frá Ítalíu viku áður
og beið lokaniðurstöðu áfrýjunar-
réttar um fangelsisdóm vegna
gjaldeyrissmygls.
Tveimur mánuðum síðar varð
Banco Ambrosiano gjaldþrota.
Þetta var mesta gjaldþrot einka-
banka í sögu Ítalíu og í ljós kom
að 1,3 milljarðar dollara höfðu
„horfið". Enn er ekki vitað hvar
þetta fé er niðurkomið, en Calvi var
sakaður um að hafa komið milljón-
um dollara úr bönkum í Bretlandi
og víðar til Gellis í Argentínu, þar
sem hann naut enn mikilla áhrifa
vegna vináttu sinnar við Perón. Féð
frá Banco Ambrosiano var látið
berast til Gellis um gervifyrirtækið-
„Bellatrix" í Panama, sem var í
eigu Páfagarðs, og Gelli notaði það
til að styrkja herforingjastjómina í
Argentínu og kaupa Exocet-eld-
flaugar. Því var haldið fram að
Gelli, Calvi og fleiri leiðtogar P2
hefðu dregið sér 320 milljónir doll-
ara frá Ambrosiano með þessum
hætti.
„Týndu milljónirnar“
Calvi hafði verið kappsmál að
auka ítök Banco Ambrosiano í Róm-
önsku Ameríku með liðsinni Gellis,
sem hann taldi ómetanlegt. Hann
hélt því fram að Gelli hefði smám
saman náð æ meiri tökum á fjár-
málum hans og fengið sig til að
Margir af auðugustu,
frægustu og valda-
mestu mönnum ít-
alíu vora félagar í
P2 og þar með
„leikbrúður" Gellis,
sem kom sér upp viðamiklu safni
upplýsinga um þá með stuðningi
leyniþjónustunnar, beitti suma
þeirra fjárkúgun og hagnaðist vel.
Til þess að komast áfram á Italíu
er jafnmikilvægt að njóta fyrir-
greiðslu og pólitískrar vemdar og
að hafa eitthvað til branns að bera
og hann taldi mönnum trú um að
hann gæti hækkað þá í tign vegna
áhrifa sinna.
Undir stjóm Gellis varð P2 eitt
flóknasta spillingar- og undirróð-
ursnet, sem um getur. Hann var
orðaður við helztu fjármálahneyksli
á Ítalíu áranna 1970-1980, sem
hafa verið kölluð „blóðugi áratugur-
inn“. Hryðjuverkamenn Rauðu her-
deildanna óðu þá uppi og Gelli not-
aði P2 til að mynda nokkurs konar
„skuggaráðuneyti" hægrimanna,
sem virðast hafa verið þess albúnir
að gera stjómarbyltingu.
„Leikbrúðumar“
Gelli bar nafnbótina „stórmeist-
Éftir sprengingfuna í BoÍogná'(1980): fjárstuðningur frá Gelli.