Morgunblaðið - 06.03.1988, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ1988
47
Jewell söngleikinn þegar hann var
fluttur, og skrifaði hann einstaklega
jákvæða gagnrýni í blað sitt Sunday
Times. Þessi litla grein varð til þess
að mun fleiri sáu verkið en höfund-
amir höfðu ráð fyrir gert.
Það var svo árið 1971 að frum-
sýndur var fyrsti stóri söngleikur
þeirra félaga: „Jesus Christ Sup-
erstar". Áður en frumsýningin fór
fram var gefin út lítil plata, svo
tvöfalt albúm með öllum lögunum.
Webber þoldi ekki leikstjórann Tom
O’Horgan né heldur breytingar
hans (lét Heródes klæðast eins og
kynskipting, og Júdas stuttbuxum
úr siiki). Engu að síður, eða kannski
þess vegna, var verkið sýnt 720
sinnum áður en það var sett upp í
stærsta leikhúsi Lundúna, og síðar
út um allan heim. Fá leikhúsverk
hafa vakið eins mikla athygli á
síðari árum.
Það var um þetta leyti sem Web-
ber kvæntist æskuástinni sinni Söm
Tudor Hugill. En um leið og tón-
skáldið fór að sinna konu sinni
meira þá fór textahöfundinum að
leiðast æ meir samstarfið. Rice neit-
aði að skrifa textann fyrir næsta
söngleik Webbers, „Jeeves", sem
hann byggði á gamansögu eftir
Wodehouse. Webber fékk því annan
textahöfund til liðs við sig. „Jeeves"
var aðeins sýndur 47 sinnum og er
eina verk Webbers til þessa dags
sem ekki hefur hlotið náð fyrir aug-
um almennings,
Webber sneri sér því aftur til
Rice með spennandi verk sem hann
kallaði einfaldlega „Evita", en efnið
í það sótti hann alla leið til Arg-
entínu. Rice samþykkti að skrifa
textann. „Evita" varð skjótt einn
vinsælasti söngleikur allra tíma, og
einn sá besti. En samstarfi þeirra
gömlu félaga varð ekki haldið
áfram. yVið emm svo ólíkir," segir
Rice. „Eg vil ekki vinna og vinna
og vinna aðeins vinnunnar vegna,
eins og Webber. Hann vill vera alls
staðar og helst miðpunkturinn sem
allt snýst í kringum.“
Webber hélt því áfram án síns
gamla vinar. Hann var fljótur að
fínna efniviðinn í næsta söngleik,
en það var „Old Possum’s Book of
Practical Cats" eftir ljóðskáldið T.S.
Eliot, og þótti mörgum harla ólík-
legt að hægt væri að gera skemmti-
legan söngleik eftir þeim texta. En
til að allt blessaðist sneri Webber
sér til leikstjórans Trevors Nunn
sem af mörgum er talinn töframað-
ur, snillingur. Á meðan æfingum
stóð féll Webber fyrir einni söng-
konunni í hópnum, hinni kattliðugu
Söm Brightman. Webber skildi við
konu sína (sem sfðan hefur verið
kölluð Sara I) árið 1983 eftir tólf
ára hjúskap og fylgdu böm þeirra
tvö, Imogen tíu ára, og Nicholas
átta ára, móður sinni.
„Vofan“
Menn greinir á um ágæti þessar-
ar Söm Brightman (sem gámng-
arnir kalla Söm II), af sumum er
hún talin hjónadjöfull. Síðan þau
fóm að búa saman hafa bresku
blöðin ekki látið þau í friði og mörg
þeeirra birt vafasamar forsíðufrétt-
ir um framhjáhald og ýmislegt í
þeim dúr. Webber er dagfarsprúður
maður en hann umtumast þegar
hann sér svæsnar fréttir í gulu
pressunni bresku. Á síðasta ári fór
hann oft í mál við þessi blöð og
vann í öll skiptin.
Þegar Webber byrjaði að semja
„Vofuna f ópemnni" ákvað hann
að breyta örlítið til. Hann langaði
nú til að semja hreina ópem; ekki
söngleik sem samanstóð af mörgum
ólíkum uppskrúfuðum popplögum
sem sniðin vom fyrir vinsældalist-
ana. „Vofan" er jafnframt hans
flóknasta verk. Söguna fann Webb-
er í gamalli bók, „Le Fantome de
l’Opera", eftir Gaston Leroux og
kom fyrst út árið 1910. Sagan sú
hefur margoft verið rakin í máli og
myndum, meira að segja hryllings-
myndum, en Webber einbeitti sér
að sérkennilegu sambandi tveggja
aðalpersónanna; afmyndaða snill-
ingnum sem gengur aftur í París-
arópemnni, og ungu sænsku söng-
konunni Kristínu, sem vofan er
meira en lítið hrifin af. Webber var
ekki í nokkram vafa um hver skyldi
leika ungu sænsku söngkonuna.
Segja má að hann hafi samið hlut-
verkið með eiginkonu sína Söm (þá
seinni!) í huga. Hún hefur fengið
mjög góða gagnrýni fyrir leik og
söng. En lengri tima tók að finna
karlinn í hlutverk vofunnar. Með
aðstoð leikstjórans Hal Prince
fannst gamall refur innan breska
leikhússins, Michael Crawford.
Vofan hafði ekki lengi fengið að
ráfa um leiksviðið breska á síðasta
ári þegar ákveðið var að flytja hana
vestur um haf. En þá kom babb í
bátinn. Leikarafélagið bandaríska
neitaði Söm Brightman um at-
vinnuleyfi, á sama tíma og margar
þarlendar söngkonur gengu um at-
vinnulausar. Onnur ástæða var að
Sara þótti ekki nógu fræg fyrir
bandaríska áhorfendur. Þá varð
Andrew Lloyd Webber vondur.
Hann ætlaði ekki að leyfa að setja
vofuna upp þar vestra nema Sara
Brightman fengi aðalhlutverkið.
Þess vegna urðu menn að setjast
að samningaborði. Niðurstaðan
varð sú að Sara fær að leika aðal-
hlutverkið fyrstu sex mánuðina, og
þá í aðeins sex sýningum af átta í
viku hverri. Að þeim tíma liðnum
tekur bandarísk söngkona við.
Crawford fær hins vegar að leika
fyrstu níu mánuðina.
Það þykir nokkuð ömggt að
„Vofan“ gangi lengur en tólf mán-
uði, því löngu áður en fmmsýning
fór fram höfðu, eins og áður sagði,
miðar selst fyrir 18 milljónir dala
(sem mun vera tæpar 700 milljónir
ísl. króna). Það má kalla þokkalega
byijun. En það má líka kalla undar-
lega hegðun hjá fólki þar vestra
að láta svona. Áldrei í sögunni hafa
selst svo margir miðar (á svo háu
verði) áður en nokkur lifandi sála
hefur heyrt svo mikið sem lagstúf
úr verkinu eða lesið sér til um hvort
verkið sé peninganna virði. En það
virðist vera með „Vofuna“ eins og
svo mörg önnur verk Webbers; nafn
hans eitt tryggir vinsældir.
Tónskáld með viðskiptavit
Andrew Lloyd Webber er eins
mikil andstæða gömlu ímyndarinn-
ar um hinn sanna listamann og
hægt er að ímynda sér. Listamaður-
inn átti að vera einfari í eðli sínu
en halda til manna til þess að
drekka frá sér vit og rænu; hann
átti að vinna að list sinni einn og
óstuddur og hafa helst ekkert vit á
peningum; þess vegna var listamað-
urinn alltaf staurblankur og átti
ekki einu sinni fyrir súpu; og best
var ef hann fór ungur inn í eilífð-
ina. En þannig verður Webber vist
aldrei lýst.
„Hæfileikar hans ná ekki aðeins
til tónlistarsköpunar," segir félagi
Webbers, framleiðandinn Cameron
Mackintosh, sem hefur flármagnað
nokkur leikverk, þeirra á meðal
„Cats“, „Vesalingana" og „Vof-
una“. Cameron heldur áfram:
„Andrew kann svo sannarlega að
notfæra sér aftur og aftur það sem
vel tekst í gömlu verkunum. Hann
kann að skemmta fólki, finnur létt-
leikandi lög sem líkleg eru til að
falla fólki í geð, hann veit hvaða
listamaður hæfir hveiju hlutverki,
og hann veit hvemig og hvenær er
hentugast að veita blöðum og tíma-
ritum viðtöl."
Og hann lætur ekki staðar num-
ið. Hann vinnur um þessar mundir
að nýjum söngleik sem kallast
„Aspects of Love“, sem á óskáld-
legu máli mætti þýða sem „Eitt og
annað um ástina“. Sagt er að hér
sé á ferð hrein og klár ópera frá
Andrew Lloyd Webber, byggð á
skáldsögu eftir David Gamett, sem
út kom 1955, og fjallar um hvað
nema ástir lítils vinahrings.
„Þetta verk verður mitt alvarleg-
asta til þessa," segir tónskáldið.
„Ég læri alltaf eitthvað nýtt í hvert
skipti sem ég byija á nýju verki.“
HJÓ.
FORD
SIERRA
Ford Sierra 1988, Glœsilegur þýskur gœðabíll,
vel búinn og traustur.
Verð frá kr. 639.800.-
Útborgun aðeins 25% og eftirstöðvar lánaðar
í allt að 30 mánuði.
SVEINN EGILSSON HF.
Framtíð við Skeifuna. S. 685100/689633