Morgunblaðið - 23.03.1988, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1988
23
Þátttaka íslands í vor-
hátíð NATO í Norfolk
eftir Ivar Guðmunds-
son, Washington D.C.
Það hefír verið siður undanfarin
34 ár, að deild Norður-Atlantshafs-
vamarbandalagsins í Norfolk í
Virginiafylki hefir gengist fyrir
vor- og blómahátíð, sem kennd er
við alparósina (azelia). Hátíðahöld-
in fara m.a. fram með skrúðgöngu
að bandarískum sið, þar sem sér-
lega búnum skrautvögnum, er
minna á þátttökuríki NATO, er
ekið í fylkingunni. Sérlega kjörin
„drottning" blómahátíðarinnar fer
í fararbroddi, en eftir fylgja „prins-
essur“ frá NATO-ríkjunum 15.
Norfolk er aðalbækistöð Atl-
antshafsfíota Bandaríkjanna og
hefír það komið í hlut flotans að
aðstoða við undirbúning og fram-
kvæmd vorhátíðarinnar ásamt full-
trúum frá NATO- löndum. Borgar-
stjórinn í Norfolk og lið hans að-
stoðar við hátíðarhöldin.
Þátttaka íslands í þessum há-
tíðarhöldum hefir ekki verið áber-
andi að öðru leyti en því, að Island
hefír lagt til „prinsessu", einsog
önnur NATO-lönd og fulltrúar frá
sendiráði íslands í Washington
hafa venjulega verið viðstaddir
með sendiherrann í broddi fylking-
ar.
Við alparósar-hátíðarhöldin,
sem venjulega standa yfir í eina
viku fara fram margskonar
skemmtanir og leikir. I vor hefst
hátíðin þriðjudaginn 19. apríl og
lýkur sunnudaginn 24.
íþróttakeppni, listsýningar, leik-
sýningar og útiskemmtanir verða
daglega á dagskránni. Aðalskrúð-
gangan fer fram laugardaginn
23., en hátíðinni lýkur daginn eftir
með flugsýningum.
íslenskur skrautvagn kem-
ur til sögunnar
Það var ekki fyrr en á hátíðinni
í fyrravor, að íslendingar áttu sinn
eiginn skrautvagn í skrúð-
göngunni. Áður hafði það fallið í
hlut Bandaríkjaflotans að sjá um
íslenska vagninn og var undir
hælinn lagt hvemig til tókst í það
og það skiptið. Þeir sjóliðar, sem
skreyttu vagninn, voru ekki ávallt
vel kunnugir íslandi eða íslenskum
venjum og sérkennum. Þetta varð
oft til þess, að íslensku prinses-
sunni var ekið í vagni, sem ekkert
átti skylt við né minnti á ísland
eða Islendinga.
íslendingafélagið
tekur af skarið
í fyrravor tók svo íslendingafé-
lagið í Norfolk, undir forystu for-
manns síns, Sesselju Siggeirsdótt-
ur Seifert, að sér að láta gera vagn
í líki víkingaskips, þar sem víking-
ur stóð í stafni. Því miður var
hjálmur hans skreyttur hrútshom-
um, sem fyrst mun hafa komið í
tísku í Wagner-óperum, illu heilli.
Þetta tókst þó svo vel þrátt fyrir
hrútshomin, að íslenska skipið
hlaut önnur verðlaun hjá sýningar-
nefndinni. Talið fmmlegt og við-
eigandi „flot“, einsog þessir
skrautvagnar í bandarískum
skrúðgöngum em nefndir. Nátt-
úmöflin vom ekki jafn gjafmild
við landann að þessu sinni, því það
var hellirigning allan daginn, jafn
ofsaleg og úrkoman getur verið
hvað verst á íslenskum afréttum.
Segja má að það hafi verið þrek-
virki af stjóm Islendingafélagsins
í Norfolk að láta gera þennan vagn.
Fyrst varð að fá að láni vömbíl í
heila viku, en síðan kostaði það
félagið um 1.200 dollara (um 40
þús. kr.) að útbúa vagninn. Leitað
var til Coldwater og Iceland Sea-
food til fjáröflunar. Fisksölufyrir-
tækin gáfu físk, sem félagar í ís-
lendingafélaginu keyptu og hressti
það upp á fjárhaginn.
íslendingafélagið hafði gert sér
vonir um, að það væri kominn tími
til, að ísland legði nú til sjálfa
drottninguna á alparósarhátíð
NATO. Aðeins tvö önnur NATO-
lönd en ísland hafa orðið útundan
við drottningarval í þau 34 ár, sem
alparósarhátíðin hefír verið haldin.
Það em Spánn, sem hefír verið
hálfvolgur félagi í þessum félags-
skap sem kunnugt er, og Tyrkland.
Bandaríkin hafa lagt til drottn-
ingu samtals 14 sinnum, Bretland
Qóram sinnum og Þýskaland þrisv-
ar sinnum. Kanada, Ítalía, Holland
og Noregur þrisvar sinnum og eft-
irtalin lönd einu sinni hvert: Grikk-
land, Danmörk, Lúxemborg,
Frakkland, Portúgal og Belgía.
Ef ástæðan fyrir því, að Island
hefír orðið útundan í drottningar-
vali, er, að við áttum ekki nógu
þokkalegt „flot“ í skrautgöngun-
um, þá er sú mótbára úr sögunni.
Þakka má það ötulli stjóm og for-
göngu íslendingafélagsins í Nor-
folk.
Alparósarprinsessan í ár verður
Kristín, dóttir Gunnars Guðjóns-
sonar hjá Eimskip í Norfolk.
Drottningin er þýsk.
Þvottheldni og styrkleiki
í hámarki
í fjórum gijástigum
• Kópal Innlmálnlngln fæst nú í fjórum gljástigum.
• l\lú velur þú þann gljáa sem hentar þér best og
málnlngln er tilbúln beint úr dóslnni.
• IMú heyrlr það fortiðlnnl tll aö þurfa að blanda
málnlnguna með herðl og öðrum gljáefnum.
VELDU KÓPAL í FJÓRUM GLJASTIGUM: