Morgunblaðið - 31.03.1988, Page 17

Morgunblaðið - 31.03.1988, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988 C 17 Grafískir samleikir Valgerður Hauksdóttir myndlistarkona. Myndlist Bragi Ásgeirsson Það má vera borðleggjandi, að listgraflk nútímans einkennir öðru fremur hvers konar tæknilegar tilraunir. Fyrir örfáum árum var það sjálf þrykk-tæknin. Þ.e. hið hreina óað- finnanlega þrykk, sem var dýrkað um heim allan og háværar raddir voru um það, að útiloka bæri allt, sem ekki uppfyllti ákveðnar kröf- ur um tæknilegan frágang. Svo langt gekk þetta, að menn fengu skrifað upp á ákveðnar reglur hjá Sameinuðu þjóðunum, hvað teld- ist ekta listgrafík og hvað ekki. En það að fá einhveijar alþjóðleg- ar stofnanir til að skrifa upp á, hvað teljist ekta og hvað óekta í listinni, er frekar hæpinn verknað- ur og var enda mótmælt af hinum ágætustu listamönnum. Að sjálfsögðu einkenndust sýn- ingar á alþjóðlegri listgrafík af þessari samþykkt næstu árin svo og þróunin innan skólanna, og satt að segja urðu hinar ijölþjóð- legu grafík-stefnur, tvíæringar o.fl. yfirþyrmandi andlausar. Og eins og fyrri daginn varð þetta til þess að losa um andstæð- una og aiþjóðlegir listamenn eru margir á kafí í því að vinna að einhveiju leyti í blóra við áður- nefnda samþykkt, svo sem sjá mátti sýnishom af á sýningunni „Grafíca Atlantica" að Kjarvals- stöðum á sl. ári. Ætli það sé ekki hið mikilvæg- asta í listinni að hafa eitthvað að segja frá eigin bijósti, en traust tæknileg úrvinnsla er af hinu góða, en gengur ekki ein sér. Þá hefur fullkomnun prent- tækninnar á síðustu ámm gert það að verkum, að aldrei hefur verið auðveldara að setja „svört þrykk" í umferð, enda markaður- inn yfírfullur af slíku eftir meist- ara aldarinnar — þannig að frum- grafík, sem margur telur sig eiga eftir slíka, er kannski ættuð úr einhverri neðanjarðarprentsmiðj- unní! — Þar að auki geta miðl- ungslistamenn með brögðum tækninnar sett saman þekkile- gustu myndir. í ljósi framanskráðs er því eðli- legt, að listamönnum, sem er annt um heiður sinn, reyni að setja sitt persónulega mark á myndir sínar og gera það á þann hátt að tor- velt verði til eftirlíkingar. Eitt er það td. að mála með litum í svart-hvítar grafíkmyndir eða nota blandaða tækni í útfærslu þeirra, sem gerir samsetninguna flóknari og persónulegri og erfíð- ari til eftirlíkingar. Angi af þessari þróun kemur að mínu mati greinilega fram í myndum Valgerðar Hauksdótt- ur, sem um þessar mundir sýnir í Gallerí Borg við Pósthússtræti. Hún blandar t.d. kol. krit og tré- ristu í einni myndanna á sýning- unni og í annarri gengur hún ennþá lengra og bætir þurmál við. Þetta eru og einnig þær myndir, sem mér þóttu áhuga- verðastar í viðkynningu á sýning- unni, enda hefur þetta ekki verið gert áður hér á landi, svo ég viti. Ekki er það þó svo, að það sé vegna vinnsluaðferðarinnar sjálfr- ar einvörðungu, að þær vöktu athygli mína, heldur einnig fyrir útfærsluna og þau listrænu átök, sem mér fínnst meiri í þeim en flestu öðru á sýningunni. Hér á ég við myndimar „Dagur og Nótt“ (5) og „Þú og ég“ (22). Tæknilega má segja, að sýningin sé nær óaðfínnanleg nema þá helst, að í steinþrykkjunum kemur hin sérstaka áferð kalksteinsins ekki fram, sem getur stafað af því, að þær séu unnar á zink- plötur, sem einnig er hægt og raunar algengt. Picasso o.fl. blön- duðu þessu tvennu saman til að ná einnig inn blæbrigðum steins- ins. Plötumar em margfalt léttari og meðfærilegri en hafa sína ann- marka. í heild er sýningin nokkuð eintóna, en hér er á ferð listamað- ur sem telst í upphafi ferils síns og hefur tímann fyrir sér til að byggja á þeirri tæknilega undir- stöðu, sem virðist hafa verið inn- tak menntunar hennar... „Teiknað með myndavél“ í Listasafni ASÍ sýnir Guð- bjartur Gunnarsson 44 myndir gerðar í tækni, sem hann nefnir fótógrafík, og stendur sýningin til 10. apríl. Hér er auga myndavélarinnar, ljósopið, notað til að teikna með og myndimar gerðar með í huga að herða þær upp og búa til eftir þeim grafískar myndir með sáld- þrykki. Þetta er nokkuð flóknara ferli en t.d. að vinna beint á silk- ið með litógrafískri krit- túski eða útklipptum/niðurskomum fílmu- formum, en hins vegar verður útkoman í öllum tilvikum stómm vélrænni. Þetta er þó mjög algeng aðferð í nútíma sáldþrykki og er það sennilega vegna hennar, að margur vill meina, að hér sé ekki um hreina grafík að ræða. Hins vegar býr sáldþiykkið yfír miklum grafískum möguleikum í sinni hreinustu mynd, þegar hjálpar- tækjum sleppir. Málið er, að vegna meðfærileika þess þá hefur það verið notað svo mjög til hönnunar hvers konar, að það fær auðveld- lega á sig eins konar léttunnin flöldaframleiðslusvip og yfirbragð gervitækni, sem mjög ber að var- ast í listgrafík hvers konar. Myndir Guðbjarts Gunnarsson- ar, sem unnar eru á mislitan pappír í þrykkingu til að ná fram mismunandi blæbrigðum, eru ekki lausar við að vera þessu marki brenndar — einkum er hann nálg- ast sjálfa ljósmyndina full mikið. En hins vegar eru harðar myndir í svarthvítu, svo sem „Steinn yfir steini" (27), og „Svartir kassar og engir eins“ (28) lausar við þessa annmarka. Þessi tækni ásamt hliðargeirum hennar hefur verið notuð á marga vegu af listamönnum á undanf- ömum áratugum og þá ekki síst popplistamönnum, er þekktu hana úr auglýsingafaginu, sem þeir voru margir tengdir upphaflega. Myndir Guðbjarts vega salt á milli hlutvemleikans og hins ab- strakta og hvort heldur er, þá nær hann að mínu mati bestu tökunum á myndefninu og miðlinum, þegar hann vinnur einfalt og vafninga- laust... Eitt lítið hylki af GERICOMPLEX inniheldur: ----GINSENG G115 Staðlað þykkni úr Ginseng rótinni, eykur líkamlegt og andlegt starfsþrek. DIKALCIUM ----FOSFAT Mikilvægt byggingarefni fyrir tennur og bein, einnig mikilvægt fyrir vöðva, taugar og æðakerfi. -----LECITHIN Nauðsynlegt fyrir taugavefina og minnkar likur á æðakölkun með því að halda blóðfitu uppleystri. JARN Nauðsynlegt til blóðmyndunar, vöm gegn streitu og sjúkdómum. MAGNESIUM Mikilvægt byggingarefni fyrir bein, æðar, taugar og tennur. ----KALIUM Kemur í veg fyrir að of mikill vökvi bindist í líkamanum (bjúgur). KOPAR Nauðsynlegt til myndunar RNA-kjamsýra, hjálpar til við myndun hemoglobins og rauðra blóðkoma. ----MANGAN Nauðsynlegt við myndun kynhormóna, mikilvægur hluti ýmissa efnahvata. ZINK Mikilvægt við frumumyndun og efnaskipti. Mjög nauðsynlegt til þess að blöðruhálskyrtillinn starfi eðlilega. A-VITA3VHN Blóðaukandi, styrkir beinin og tennumar. Hefur góð áhrif á ným og lungu. —B-l VÍTAMÍN Styður orkugjafa líkainans. Viðheldur tauga- og j afnvægiskerfinu. Vinnur gegn streytu. —B-2 VÍTAMÍN Nauðsynlegt fyrir húðina, neglur og hár. -B-3 VÍTAMÍN Auðveldar starf taugakerfisins. Hjálpar til við meltinguna og hressir upp á húðina, -----B-5 VÍTAMÍN Aðstoðar við hormónamyndun og myndar mótefni. Tekur þátt í orkumyndun líkamans. Vinnur gegn streytu. -----B-6 VÍTAMÍN Nauðsynlegt fyrir nýtingu líkamans á fituefnum. Hjálpar til við myndun rauðra blóðkoma. —B-12 VÍTAMÍN Mjög blóðaukandi. Nauðsynlegt fyrir taugakerfið og heilasellumar. ------C-VÍTAMÍN Vinnur gegn kvefi og kvillum. Hefur stjóm á blóðfitumagninu. —D-VÍTAMÍN Nauðsynlegt í nýtingu kalks og fosfoms. Talið hindra vöðvarýmun. —E-VÍTAMÍN Mótefni sem hindrar óæskilega virkni siirefnis i líkamanum. Lengir lif rauðu blóðkomanna, eykur þrekið. ----P-VÍTAMÍN Eykur áhrif C-vítamíns og vinnur með því. Gericomplex fæst í Heilsuhúsinu, Skólavörðustíg 1 a og Kringlunni, einnig i heilsuhillum matvöruverslanna ogíapótekum. Éh eilsuhúsið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.