Morgunblaðið - 31.03.1988, Page 38
oo
38
C
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
Mikill sálarliáski að
afrækja kirkju sína
Lítil kirkjusókn er
mörgum áhyggjuefni. A
sunnudögum er allur
fjöldinn annars staðar en
í messu. Þorlákur biskup
Skúlason hafði einnig af
því nokkrar áhyggjur á
sinni tíð ef menn van-
ræktu messur. E.t.v. eiga
umvandanir kirkjuhöfð-
ingjans ekki síður erindi
til landsins barna í dag
en árið 1645.
Þverúðugar persónur
Árið 1645 fengu sóknarmenn í
Tjamarsókn og Kirkjuhvamms-
sókn á Vatnsnesi bréf frá bisk
upi. „Látandi þá hér með vita að
fyrir mig er komið, að þar skuli
vera ein persóna eður tvær sem
þverúðarlega afrækja kirkju sína
og gegni ekki sóknarprestinum
þó hann þar um vandi, hvar þeir
munu í samvisku sinni, (ef þeir
hafa nokkra þekkinga á Guði og
hans orði) sjálfir dæma að vera
hinn mesta sálarháska fyrir sjálfa
sig og mesta hneyksli fyrir
aðra . . .“
„Yfir þvílíkum klagar drottinn,
Esa. 30 cap., segjandi það er eitt
óhlýðugt fólk og lygigjörn börn
sem ekki vilja hlýða lögmáli drott-
ins, heldur segja til þeirra sem
kenna skulu, kenn þú oss ekki,
og til umsjónarmannanna, gef
engan gaum að oss með réttum
lærdómi heldur predika oss mjúk-
lega . . .“
„Svo áminni ég nú áðursagða
þyngjunauta eftir skyldu míns
embættis hvort þeir eru einn, tveir
eður fleiri að þeir ekki með af-
ræki sinni við kirkjuna og Guðs
orða heym, reiti Guð til reiði og
safni sér hinum mesta sálarháska,
en samkristnum náunga dauðlegt
hneyksli. En vilji þeir ekki hér að
gjöra og það bevísist að nokkrir
af þeim séu - 3 helga daga í samt
frá sóknarkirkju sinni þá embætt-
að er, þá befala ég sóknarprestin-
um, eftir upplesin þessi mín bréfs-
orð og að gjörðum þremur áminn-
ingum, að frávísa þvflíkum Guðs-
orða forögturum frá heilögu
sakramenti og Guðsbarna sam-
neyti, eftir því sem stendur í
skikkun sáluga Páls Stígssonar
höfuðsmanns, góðrar minningar,
vilji það og ekki hjálpa þá hlýt
ég vegna Guðs vandlætingar að
láta lesa yfir þeim kirkjunnar
bann og forboð . . .“
Forboð, bann hið minna, var í
því fólgið að menn voru útilokaðir
frá kirkjusókn og þjónustu presta.
Bannsetning, bann hið meira, úti-
lokaði menn frá samneyti við
kristið fólk og útskúfaði þeim úr
þjóðfélaginu. Bannfæring hélst
áfram eftir siðaskipti, einkum
bann hið minna eða forboð og var
ekki numið úr lögum fyrr en með
konungsbréfi 1782.
Röggsamur og réttlátur
Þorlákur Skúlason fæddist á
Eiríksstöðum í Svartárdal 24.
ágúst 1597. Móðir hans, Stein-
unn, var laundóttir Guðbrands
biskups Þorlákssonar. Þorlákur
ólst upp á Hólum hjá Guðbrandi
afa sínum og nam í Hólaskóla.
Hann vígðist til prests 1624 og
var kjörinn Hólabiskup 1627.
Heimildir benda til þess að hon-
um hafí farið biskupsstjórnin vel
úr hendi, röggsamur en þó réttlát-
ur. Jón Halldórsson segir í Bisk-
upasögum sínum: „Herra Þorlák-
ur var mikill lánsmaður, vel lærð-
ur gáfumaður, vandaði mjög alla
sína embættisgerð og var í stórri
gúnst hjá höfuðsmönnum hér á
landi og einna mest ríxadmíral
Hendrick Bjelke, vel látinn af
prestum sínum sem öllum öðrum,
því hann hélt alla æfi sína sama
lítillæti, ljúflyndi, guðhræðslu,
hýrlyndi, örlæti, siðprýði, guðs-
þakkagirni og var því flestum
harmdauði."
Þorlákur var einnig hamingju-
samur í einkalífí, hann kvæntist
Kristínu, dóttur Gísla lögmanns
Hákonarsonar. Þeim hjónum varð
6 barna auðið og urðu tveir son-
anna biskupar, þeir Gísli og Þórð-
Þorlákur biskup Skúlason.
ur. Þorlákur biskup var lærdóms-
maður og menningarfrömuður og
studdi m.a. Björn Jónsson frá
Skarðsá við annálaskrif hans.
Einnig er talið að hann hafi í bisk-
upstíð sinni látið prenta 30-40
bækur. Mest þessara bóka er Bi-
blían, Þorláksbiblía svonefnd
1644.
Þorlákur biskup andaðist 4.
janúar 1656 eftir stutta banalegu.
Tannstangarstýri.
Léttur í stýri.
Stærri
vel
1500
Stórir hliðarspeglar
báðum megin.
Hliðarlistar
Oryggisbelti fyrir
alla farþega.
Otrúlegt
farangursrými.
Nýtt grill
£5&. Wfg"W ■■ v-Ö**"■
jJk
rv-x.'' .. . ■■'■
Qn/Iidm. ab; Zy “.
_____
Einstok fjöðrun
Hjólkoppar.
m
Opið á laugardögum frá kl. 10—16.
Beinn sími í söludeild: 31236.
Framdrifsbíllá 1/. 04 0 AAA
algjöru undraverði: J ■ öiUUU|B
BiFREIÐAR & LANDBUNAÐARVELAR
Suðurlandsbraut 14. Sími 681200.
UmboðsaAilar:
Bílás, Akranesi. S. 93-12622.
Jóhannes Kristjánsson, Akureyri. S. 96-23630.
Bílaleiga Húsavikur. S. 96-41888.
samapa 1500
Þegar hugað er að bílakaupum.vakna margar spurningar, m.a.
hver er tilgangur bílsins, hverjar eru aðstæðurnar o.s.frv. Hér
að neðan gefur að líta nokkrar staðreyndir um Lada Samara.
Sem dæmi má nefna framúrskarandi fjöðrun, hátt undir lægsta
punkt, kraftmikill og sparneytinn. Sé einhverjum spurningum
ósvarað, ræddu þá við sölumenn okkar, sem gefa nánari upplýs-
ingar um Lada Samara og ath. að verðið er engin spurning.
LADA