Morgunblaðið - 31.03.1988, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 31.03.1988, Qupperneq 38
oo 38 C MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988 Mikill sálarliáski að afrækja kirkju sína Lítil kirkjusókn er mörgum áhyggjuefni. A sunnudögum er allur fjöldinn annars staðar en í messu. Þorlákur biskup Skúlason hafði einnig af því nokkrar áhyggjur á sinni tíð ef menn van- ræktu messur. E.t.v. eiga umvandanir kirkjuhöfð- ingjans ekki síður erindi til landsins barna í dag en árið 1645. Þverúðugar persónur Árið 1645 fengu sóknarmenn í Tjamarsókn og Kirkjuhvamms- sókn á Vatnsnesi bréf frá bisk upi. „Látandi þá hér með vita að fyrir mig er komið, að þar skuli vera ein persóna eður tvær sem þverúðarlega afrækja kirkju sína og gegni ekki sóknarprestinum þó hann þar um vandi, hvar þeir munu í samvisku sinni, (ef þeir hafa nokkra þekkinga á Guði og hans orði) sjálfir dæma að vera hinn mesta sálarháska fyrir sjálfa sig og mesta hneyksli fyrir aðra . . .“ „Yfir þvílíkum klagar drottinn, Esa. 30 cap., segjandi það er eitt óhlýðugt fólk og lygigjörn börn sem ekki vilja hlýða lögmáli drott- ins, heldur segja til þeirra sem kenna skulu, kenn þú oss ekki, og til umsjónarmannanna, gef engan gaum að oss með réttum lærdómi heldur predika oss mjúk- lega . . .“ „Svo áminni ég nú áðursagða þyngjunauta eftir skyldu míns embættis hvort þeir eru einn, tveir eður fleiri að þeir ekki með af- ræki sinni við kirkjuna og Guðs orða heym, reiti Guð til reiði og safni sér hinum mesta sálarháska, en samkristnum náunga dauðlegt hneyksli. En vilji þeir ekki hér að gjöra og það bevísist að nokkrir af þeim séu - 3 helga daga í samt frá sóknarkirkju sinni þá embætt- að er, þá befala ég sóknarprestin- um, eftir upplesin þessi mín bréfs- orð og að gjörðum þremur áminn- ingum, að frávísa þvflíkum Guðs- orða forögturum frá heilögu sakramenti og Guðsbarna sam- neyti, eftir því sem stendur í skikkun sáluga Páls Stígssonar höfuðsmanns, góðrar minningar, vilji það og ekki hjálpa þá hlýt ég vegna Guðs vandlætingar að láta lesa yfir þeim kirkjunnar bann og forboð . . .“ Forboð, bann hið minna, var í því fólgið að menn voru útilokaðir frá kirkjusókn og þjónustu presta. Bannsetning, bann hið meira, úti- lokaði menn frá samneyti við kristið fólk og útskúfaði þeim úr þjóðfélaginu. Bannfæring hélst áfram eftir siðaskipti, einkum bann hið minna eða forboð og var ekki numið úr lögum fyrr en með konungsbréfi 1782. Röggsamur og réttlátur Þorlákur Skúlason fæddist á Eiríksstöðum í Svartárdal 24. ágúst 1597. Móðir hans, Stein- unn, var laundóttir Guðbrands biskups Þorlákssonar. Þorlákur ólst upp á Hólum hjá Guðbrandi afa sínum og nam í Hólaskóla. Hann vígðist til prests 1624 og var kjörinn Hólabiskup 1627. Heimildir benda til þess að hon- um hafí farið biskupsstjórnin vel úr hendi, röggsamur en þó réttlát- ur. Jón Halldórsson segir í Bisk- upasögum sínum: „Herra Þorlák- ur var mikill lánsmaður, vel lærð- ur gáfumaður, vandaði mjög alla sína embættisgerð og var í stórri gúnst hjá höfuðsmönnum hér á landi og einna mest ríxadmíral Hendrick Bjelke, vel látinn af prestum sínum sem öllum öðrum, því hann hélt alla æfi sína sama lítillæti, ljúflyndi, guðhræðslu, hýrlyndi, örlæti, siðprýði, guðs- þakkagirni og var því flestum harmdauði." Þorlákur var einnig hamingju- samur í einkalífí, hann kvæntist Kristínu, dóttur Gísla lögmanns Hákonarsonar. Þeim hjónum varð 6 barna auðið og urðu tveir son- anna biskupar, þeir Gísli og Þórð- Þorlákur biskup Skúlason. ur. Þorlákur biskup var lærdóms- maður og menningarfrömuður og studdi m.a. Björn Jónsson frá Skarðsá við annálaskrif hans. Einnig er talið að hann hafi í bisk- upstíð sinni látið prenta 30-40 bækur. Mest þessara bóka er Bi- blían, Þorláksbiblía svonefnd 1644. Þorlákur biskup andaðist 4. janúar 1656 eftir stutta banalegu. Tannstangarstýri. Léttur í stýri. Stærri vel 1500 Stórir hliðarspeglar báðum megin. Hliðarlistar Oryggisbelti fyrir alla farþega. Otrúlegt farangursrými. Nýtt grill £5&. Wfg"W ■■ v-Ö**"■ jJk rv-x.'' .. . ■■'■ Qn/Iidm. ab; Zy “. _____ Einstok fjöðrun Hjólkoppar. m Opið á laugardögum frá kl. 10—16. Beinn sími í söludeild: 31236. Framdrifsbíllá 1/. 04 0 AAA algjöru undraverði: J ■ öiUUU|B BiFREIÐAR & LANDBUNAÐARVELAR Suðurlandsbraut 14. Sími 681200. UmboðsaAilar: Bílás, Akranesi. S. 93-12622. Jóhannes Kristjánsson, Akureyri. S. 96-23630. Bílaleiga Húsavikur. S. 96-41888. samapa 1500 Þegar hugað er að bílakaupum.vakna margar spurningar, m.a. hver er tilgangur bílsins, hverjar eru aðstæðurnar o.s.frv. Hér að neðan gefur að líta nokkrar staðreyndir um Lada Samara. Sem dæmi má nefna framúrskarandi fjöðrun, hátt undir lægsta punkt, kraftmikill og sparneytinn. Sé einhverjum spurningum ósvarað, ræddu þá við sölumenn okkar, sem gefa nánari upplýs- ingar um Lada Samara og ath. að verðið er engin spurning. LADA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.