Morgunblaðið - 31.03.1988, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
C 39
Eydís og Daði í Gallerí List
SÝNING á keramikverkum eftir
þau Eydísi Lúðvíksdóttur og
Daða Harðarson verður opnuð á
morgun, skírdag, kl. 14 i Gallerí
List, Skipholti 50b.
Daði og Eydís hafa rekið saman
verkstæði á Asi í Mosfellsbæ síðan
í nóvember 1987. Þau vinna ýmist
Ættfræði-
námskeið
SENN hefjast ný ættfræðinám-
skeið hjá Ættfræðiþjónustunni í
Reykjavík. Námskeiðin standa í
8 vikur.
Á ættfræðinámskeiði fræðast
menn um fljótvirkar og öruggar
leitaraðferðir, fá leiðarvísa og yfir-
sýn um helztu heimildir, sem notað-
ar eru, og leiðbeiningar um gerð
ættartölu og niðjatals. Þá æfa þátt-
takendur sig í verki á eigin ættum
eða frændgarði, en á námskeiðinu
bjóðast þeim ákjósanleg skilyrði til
ættarrannsókna, þar sem unnið er
úr Qölda heimilda, útgefnum sem
óútgefnum. M.a. fá þátttakendur
aðgang og afnot af öllum mann-
tölum á íslandi frá 1703 til 1930,
íbúaskrám o.s.frv., auk kirkjubóka
úr öllum landshlutum.
Skráning er hafin í námskeiðin
hjá forstöðumanni Ættfræðiþjón-
ustunnar, Jóni Val Jenssyni. Hver
námshópur kemur saman áinu sinni
í viku, þijár kennslustundir í senn.
Hámarksfjöldi í hveijum hópi er 8
manns. Auk 8 vikna grunnnám-
skeiða er boðið upp á 5 vikna fram-
haldsnámskeið. Áthygli skal vakin
á, að þetta eru síðustu námskeiðin,
sem í boði eru í Reykjavík á þessu
starfsári. í sumar verða einnig hald-
in slík grunnnámskeið á nokkrum
stöðum úti á landi, ef næg þátttaka
fæst.
(Fréttatilkynning)
saman eða sitt í hvoru lagi að gerð
listmuna úr postulínsleir og hafa á
síðustu mánuðum gert fjölda til-
rauna með leirinn, liti og glerunga,
form og skreytingar. Sýningin í
Gallerí List er afrakstur þeirra til-
rauna.
Eydís Lúðvíksdóttir fæddist 16.
febrúar 1950. Hún lauk prófi úr
kennaradeild Myndlista- og
handíðaskóla íslands árið 1971 og
hefur síðan m.a. starfað við mynd-
menntakennslu, útstillingar, hönn-
un hjá Glit hf. uns kom að stofnun
Leirsmiðjunnar Áss. Eydís starfaði
einnig á eigin vegum og tók þátt í
sýningunni Hönnun ’82 og hélt
einkasýningar á Kjarvaisstöðum
1985 og 1987.
Daði Harðarson fæddist 6. apríl
1958. Hann lauk námi í keramik-
deild Myndlista- og handíðaskólans
árið 1982 og var næstu tvö árin
gestanemi við Skolen for Brugs-
kunst í Kaupmannahöfn. Daði rak
sjálfstætt verkstæði í Kaupmanna-
höfn 1984—85 og starfaði við vöru-
þróun og hönnun hjá Glit hf. á árun-
um 1985—87. Hann hélt einkasýn-
ingu í Gallerí Langbrók 1985 og
hefur tekið þátt í samsýningum.
Sýningin stendur frá 31. mars
til 10, apríl. Hún er opin virka daga
frá klukkan 10 tii 18 og helgidaga
kl. 14-18, en er lokuð á föstudaginn
langa.
(Fréttatilkynning)
Eydís Lúðvíksdóttir og Daði Harðarson í vinnustofu sinni.
Athugasemd
við greinina
Leikminjar
Mín vegna má Sveinn Einarsson
vera önugur til eilífðamóns, en
rangindum í minn garð í greininni
Leikminjar í Morgunblaðinu 27.
mars kemst ég ekki hjá að svara.
Hann vænir mig um þá fákunnáttu
að vita ekki um tengsl myndarinnar
Gotcha og sjónleiksins Hremming,
sem hefur gengið „lungann úr
vetri" hjá Leikfélagi Reylqavíkur.
Það má ekki minna vera en leik-
húsmaðurinn uppfræði mig og aðra
um þann skyldleika. Það er leiðin-
legt að vera önugur, en eins og
þeir best vita sem telja sig fylgjast
með bíómyndum og leikhúsi er sá
skyldleiki enginn. Varðandi aðkast
um notkun á nöfnum myndbanda á
frummáii er því til að svara að ég
hef margoft útskýrt það óyndisúr-
ræði sem kemur til vegna þess að
oft er heitið ekki einu sinni íslensk-
að í upphafi (kvikmyndin); að
íslenska heitið höfðar sjaldnast til
efnis myndarinnar og er því vel-
flestum óskiljanlegt eða gleymt
nokkrum mánuðum síðar (er mynd-
bandið kemur út), en þó fyrst og
fremst sökum þess að myndbanda-
útgefendur sjá yfírleitt ekki sóma
sinn í að nota annað nafn á kápum
en frumheitið. Ég hef oft fundið
að þeim vinnubrögðum í greinum
mínum og mættu gjarnan fleiri taka
undir þá gagnrýni.
Virðingarfyllst,
Sæbjörn Valdimarsson
16. og 30. júní verða sérstakar
fjölskylduferðir til Costa Del
Sol. í þessum ferðum sem
kallaðar eru HNOKKA-
FERÐIR, fá öll börn á aldrin-
um 2-11 ára 40% afslátt og
12-15 ára 11.700 kr. afslátt.
Hnokkaferðir okkar til
Costa Del Sol hafa slegið í
gegn. Fjöldi ánægðra við-
skiptavina vitnar um það.
Við bjóðum aðeins fyrsta
flokks gististaði, þar sem
aðstaða og þjónusta er til
fyrirmyndar. PRINCIPTO
SOL, SUNSET BEACH CLUB
ofl.
Fararstjórarnir Þórunn
Sigurðardóttir og Sigríður
Stephensen sjá um að allir
séu ánægðir. Jakobína
Davíðsdóttir, HNOKKA-
FARARSTJÓRI, heldur uppi
fjörinu hjá ungu kynslóðinni
og léttir áhyggjum af
foreldrunum.
Öll börn fá fría húfu, Sögu-
bol og meðlimakort í
Hnokkaklúbbnum. í lok
sumars verður svo dregið úr
öllum kortunum og þá verða
5 börn svo heppin að fá fría
ferð sumarið 1989
Askriftarsimirm er 83033
BROTTFARIR
W- í™'3VXr.
mörgsætitaus.
FERÐASKRIFSTOFAN
Suöurgötu 7
S.624040