Morgunblaðið - 24.04.1988, Síða 58

Morgunblaðið - 24.04.1988, Síða 58
‘58 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1988 Greinarhöfundur og Þorsteinn Svanlaugsson ræða við Ingigerði. Fjölmargt fór úrskeiðis Dagbókarbrot og þankar um Geysisslysið 1950 eftirJón ~ Sigvrgeirsson Að undanfömu hefur margt verið rifjað upp um Geysisslysið svokallaða á Bárðarbungu árið 1950. Nýlega var í sjónvarpinu þáttur um það, við- töl og kvikmynd sýnd. Þá hafa blöð tekið málið til umijöllunar. Guðfinnur Finnbogason í Miðhúsum minnist þess í Velvakanda og Tómas Einars- son skrifar alllanga upprifjun þjörg- unarinnar í Morgunblaðið. Hann seg- ir þar orðrétt: „Það sem mér fínnst vanta í þennan þátt var nákvæmari frásögn af þætti björgunarmanna, hann var þar fjarska rýr.“ Ég undirritaður var þátttakandi í björgunarleiðangrinum og skrifaði þá niður frásögn sem sýnir fleiri hlið- —-ar en greinar þær sem ég hefi síðan lesið um björgunina. Mér dettur í hug að líkja þessum greinum við tákn rafstraums sem teiknaður er á blað í mörgum lykkj- um, svo er dregið strik þvert á miðju þeirra sem skilur á milli jákvæðs og neikvæðs straums. Þessar greinar hafa yfírleitt verið jákvæði þátturinn en hinum er sleppt. Björgunarsveitin „Stefán“ í Mý- vatnssveit hefur reist veglegt björg- unarskýli við Kistufell, nálægt þeim stað er björgunarleiðangur Geysis hafði bækistöðvar sínar á sínum tíma. Fyrrverandi formaður, Hörður Sigurbjömsson, hefur margsinnis átt tal við mig um björgunarmál og kvatt mig til að láta í ljósi það sem ég áliti að betur hefði mátt fara í marg- nefndum Geysisleiðangri. Hefst hér frásögn mín svo til óbreytt er ég skrifaði rétt eftir heim- komuna. Loftleiðaflugvélin Geysir týndist á leiðinni frá Lúxemborg til Keflavíkur þann 14. sept. 1950. Flakið af vél- , inni fannst þann 18. s.m. á Bárðar- j bungu, öðru hæsta fjalli landsins. Þar hafði flugvélin rekist niður á | fullri ferð, sem ég held að sé 400 J km á klukkustund, í svarta nátt- myrkri og stórhríð. Tæplega er hægt i - að fínna á öræfum íslands betur fall- * inn stað til slíkrar blindlendingar en í smá hækkandi jökulhvel Bárðar- bungu. I sögu flugsins mun það enga hliðstæðu eiga að svo hraðskreið flugvéla sem þessi var, villist af leið og rekist á Qall án þess að nokkur maður týni lífí. Það var loftskeytamaður á íslensku varðskipi norðan við land sem heyrði mjög dauf merki í talstöð sinni og lagði við hlustir. Hann skildi að það var áhöfnin á Geysi sem sendi þessi veiku merki út í Ijósvakann, allir voru á lífí og einhverstaðar uppi á jökli en hvar vissi hann ekki. Veður- guðimir gáfu smá blettaskin í haus- tótíðinni yfír hálendinu svo leitar- flugvélar komu auga á flak Geysis- vélarinnar sunnan og austan á Bárð- arbungu. Það var misráðið að nota ekki fyrsta tækifæri til að koma tjaldi, fatnaði og vistum til áhafnarinnar. Það mátti geta sér’ þess til að flug- vél með stóra bensíngeyma og tæst hafði sundur í lendingu væri ekki ákjósanlegur langtíma bústaður. Björgun gat dregist vegna veðurum- hleypinga. Oftrú á björgunartækni virðist hafa villt um fyrir mönnum. Það var leitað til herstöðvarinnar í Keflavík og kallaði hún hingað til landsins skíðaflugvél frá Kanada eða Grænlandi. Að kveldi sama dags og flakið af Geysi fannst slógu sér saman all- margir fjallaferðamenn á Akureyri til að freista þess að komast á slys- stað sem fyrst. Var Þorsteinn Þor- steinsson, gamall ferðagarpur, kos- inn fararstjóri. Jeppaeigendur vom þá nokkrir orðnir í bænum og stóð ekki á liðsinni þeirra. Vörubfll með drifi á öllum hjólum var fenginn til að flytja bensín og farangur. Komið var seint til gistingar i Reykjahlíð. Eyddum við Þorsteinn miklum tíma nætur í símanum, reynt var að gefa okkur sem nákvæmasta stað- setningu flugvélarflaksins. Þorsteinn hafði hugsað sér að farið yrði suður vestan Dyngjuljalla. Við sem kunn- ugastir vorum á þessum slóðum töld- um það mikið óráð enda féllst hann á að austari leiðin væri auðrataðri þótt nokkuð lengri væri. Um þessar mundir var átta manna hópur úr Reykjavík í öræfaferð norð- an jökla á fjórum velbúnum Qallaj- eppum. Þeir fregnuðu um ferð okkar og buðu aðstoð sem fúslega var þeg- in. Voru þeir samnátta okkur í Reykjahlíð. Því fór fjarri að ferðabúnaður okk- ar Akureyringa væri góður enda far- ið af stað með litlum fyrirvara, til dæmis voru bílamir flestir vatns- kældir og þurfti strax fyrsta kvöldið að taka af kælivatn vegna frosts. Ekki tókst að láta renna af einum „Hugfsið ykkur mann aleinan í svartasta nátt- myrkri og þoku langt inni á Vatnajökli, þess- ari rúmlega 8.000 ferkílómetra fann- breiðu, æðandi áfram á skíðum eftir slóð sem hann alls ekki sér.“ jeppanum vegna þess að krani var brotinn. Hann var því látinn vera í gangi um nóttina og alla ferðina. Eg átti gamlan heijeppa og hlóð hann fatnaði, matvælakössum, skíðum og bensíni svo aðeins var rúm fyrir einn farþega sem var Ólafur Jónsson ráðunautur. Báðir vorum við vanir fjallaferðum og kunnugir öðr- um fremur á öræfunum. Klukkan fímm að morgni var lagt af stað úr Reykjahlíð, veður var kyrrt og aðeins snjóföl á jörð. í Herðubreið- arlindum var tafíð og tók ég þar saman allstórt knippi af feysknum hvannanjólum og batt á jeppann. Á leiðinni inn að Dyngjujökli var nokkrum sinnum um daginn kastað niður til okkar orðsendingum úr flug- vélum og vissum við því nokkum- veginn hvað var að gerast í björgun- arstarfínu. Skíðaflugvélin kom á slysstaðinn og átti að fljúga heim með fólkið, en þó vorum við beðnir að halda áfram að Geysisflakinu og að þar fengjum við að vita erindið. Við heyrðum tilkynnt í útvarpinu að þeim sem um slysstaðinn ættu -leið væri óheimilt að hnýsast nokkuð í flugvélarflakið. Ef vissa fengist fyrir því að búið væri að bjarga áhöfninni af jöklinum ákváðum við að snúa strax við heim á leið og láta hveija þá, sem kynni að bera að garði á Bárðarbungu, gramsa í dóti eftir vild. Síðar fréttum við að flugtak björg- unarvélarinnar hefði mistekist og fólkið biði komu okkar. Við svokall- aðan Urðarháls urðu tafir. Þar er bratt og grýtt og hafði ekki verið ekið áður. Vörubfllinn var nú skilinn eftir og farangri af honum jafnað á jeppana. Síðla kvölds tjaldaði þessi stóri hópur í krikanum við rætur Kistufells. í útvarpinu heyrðist að senda ætti okkur talstöð í tjaldbúðina svo hægara væri að fylgjast með og talast við. Veður var gott, kyrrt og bjart. Lítil flugvél birtist yfír, við merktum slétta sandflöt til að láta talstöðina falla á. Þetta passaði nákvæmlega en tækið féll eins og steinn og fór í þúsund mola. Fallhlífín hafði ekki opnast. Jaðar Dyngjujökuls var svo bratt- ur og sprunginn, að við sem til þekkt- um höfðum aldrei séð hann þvílíkan og ekki fær nema fuglinum fljúg- andi. Var þá leitað vestur fyrir fellið en það var sama þar. Eina leiðin til að komast upp á jökulinn var að fara yfír Kistufell 1.450 m hátt. Við gengum um kvöldið nokkrir upp á fellið. Það var glampandi bjart og sá vítt yfír Vatnajökul. Langt í fjarska í suðvestri sáum við flugvél hnita krappa hringi. Ályktuðum við það vera yfír slysstaðnum og tókum sem nákvæmasta kompásstefnu á staðinn og sigtuðum á hann með stikum. Auðveldustu leiðina niður að tjöldunum merktum við einnig með stikum. Þá var mikið brugðið birtu og þoka huldi norðuifyöll. Klukkan þijú að morgni þess 20. september vakti Þorsteinn mig til að sækja vatn í morgunkaffíð. Það var þreifandi náttmyrkur, norðaustan átt og þoka og ýrði úr lofti ísingu. Ég skreið upp úr hreindýraskinnpokan- um glóðheitur og hress, klæddi mig sem best ég gat, og dró loðhúfu nið- ur fyrir eyru. Ég tók klökuga mjólk- urskjólu, vasaljós og haka og staul- aðist upp að jökulröndinni. Þar sást hvergi vatnsdropi en eitthvað heyrð- ist sitra undir klakanum. Þorsteinn Svanlaugsson kom mér til hjálpar og hélt á vasaljósinu meðan ég hjó holu sem fljótlega fylltist af jökullit- uðu sandskólpi. Veðurútlit og baro- meterstaða gerði það að verkum að menn bjuggu sig í hálfgerðu ráðale- ysi. Það var vonlaust að ráðast til jökulgöngu í svona dimmviðrri, ekki var heldur hægt að bíða. Fyrir birtingu lagði heldur óhress hópur af stað upp Kistufellsbrekku. Allir voru með skíði á öxlum og smápoka á baki, smá matarbita, sokkaplögg og einhver drykkjarföng, mjög af skomum skammti. Ekkert hitunartæki eða Ijósfæri var með eða nokkuð til að miðla öðrum af. Okkur hafði verið sagt að Geysisfólkið hefði allt til alls og biði bara komu okkar. Eftir stikum röktum við leiðina frá kvöldinu áður í stefnu á hábrún fells- ins. Þá skeði það sem ég gleymi aldr- ei. Sólin kom upp og heiðríkt að sjá inn á jökul, hamingjan var með okk- ur. Það voru skjótar kveðjur, nokkrir menn höfðu fylgt okkur og sneru kátir við en hinir sem áfram héldu voru: Tryggvi Þorsteinsson, Ólafur Jónsson, Vignir Guðmundsson, Þor- steinn Svanlaugsson, Þórarinn frá Hátúni í Reykjavík og undirritaður. Auk þessara fóru tveir starfsmenn Loftleiða á Akureyri, Sigurður og Þráinn, og myndatökumaðurinn okk- ar og ferðagarpurinn Eðvarð Sigur- geirsson. Þokubelti lá við Kistufell og teygði sig inn á jökulinn. Við bundum upp skíðin og stungum okkur inn í þok- una í ný. Njólafeyskjum og ull úr Reykjahlíð var dreift við slóðina sem lá í krókum um jökulstrýtur næst fellinu. Brátt komum við í sól og sléttur jökullinn lá framundan. Við gengum í sporaslóð með fremsta mann ávallt í kaðli. Við höfðum óljósan grun um að vera ekki meir en svo velkomnir á slysstað. Björgunin átti að koma að sunnan og vera eitthvað tæknilegri en við höfðum upp á að bjóða. Klukk- an var farin að ganga 11 þegar yfír okkur flaug vélin Vestfírðingur og kastaði niður þeim skilaboðum að við hefðum rétta stefnu og kl. hálf tólf yrði skotið á loft svifblysi af slys- stað. Eins og áður er sagt átti fólkið að sitja í allsnægtum, manni datt í hug að það sæti í stoppuðum stólum í baðhita og væri að spila Ólsen Óls- en. Við sáum blysið og komum klukkustund síðar á slysstaðinn. Fólkið kom á móti okkur og heilsast var með faðmlögum. Þama var öm- urlegt um að litast, vængjalaus flug- vélarskrokkur eins og snævi drifínn fjallgarður en mótorar, vængir og allskonar vamingur lá dreift um jök- ulinn. Margraddað hundaspangól lét illa í eyrum en aumast var þó að sá fólkið sjálft, vafíð og dúðað í allskon- ar efni með blóðhlaupin augu, marið í andliti og blátt af kulda í frostnæð- ingnum. Því var nú gefínn kostur á að setjast inn í björgunarvélina sem tilbúin var að reyna að komast á loft. „Ég fer ekki, ég fer ekki,“ kvað við hjá fólkinu, en hvað með farang- ur áhafnarinnar? „Það er eins gott að henda honum," sagði flugfreyjan. Einn af áhöfninni fékkst þó til að fara inn í vélina. Reynslan frá degin- um áður þegar vélin komst ekki á loft skapaði fólkinu óvissu og hræðslu og því fannst sér best borg- ið undir handleiðslu okkar komu- manna. Þessi björgunarvél var tveggja hreyfla „Douglas". Neðan á bol henn- ar vom festar gríðarstórar jámplötur með rifum fyrir lendingarhjól. Neðan á þessar jámplötur var festur marg- faldur krossspónn, líklega svo jámið ekki frysi fast við ísinn. Meðferðis í vélinni vom nokkrar rakettur er grípa átt til ef illa gengi að komast á loft. Hafði flestum verið eytt degin- um áður, án árangurs nema hrella fólkið. Nú skyldi reyna til þrautar. Vélin brá sér í villtan dans, raket- tumar spúðu eldi og hún hvarf næst- um í gufu og snjóroki og haldið var um tíma að hún væri komin á loft en svo var eigi. Þegar rakettumar vom útbmnnar kom vélin til baka heldur rislág og stillti sér við hlið Geysis. Það kvisaðist meðal fólksins að illa hefði farið ef vélin hefði kom- ist á loft því í hamförunum hefði losnað krossspónsplata og skemmt stýrisbúnaðinn. í öllum þeim forvitnisferðum sem flugvélar höfðu sveimað yfir fólkinu hafði láðst að koma til þess raun- hæfum jöklabúnaði eins og áður er getið. Það hafði að vísu fengið smá prímus algerlega ónothæfan, bauka- mat, vítamíntöflur, súkkulaði og smá vatnsbauka svo og skíði og skíðaskó en of lítið af brúklegum skjólfatn- aði. Vistin á jöklinum var óþolandi. Fólkið hélt til I bol vélarinnar sem lá á hvolfí, hurðir vom á bak og burt og dymar of stórar til að hægt væri að byrgja þær. Skafrenningur átti greiðan aðgang inn en bót var það í máli að þama inni var mikið af álnavöm og taui ýmiskonar sem fólk- ið jafnaði undir sig og hafði skjól af. Ingigerður hafði stagað saman

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.