Morgunblaðið - 24.04.1988, Síða 60
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1988
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
HREFNA EIRÍKSDÓTTIR,
Norðurbrún 1,
Reykjavfk,
lést á gjörgæsludeild Landakotsspítala föstudaginn 22. apríl.
Eiríkur Sigurðsson, Anna Vernharðsdóttir,
Hulda Teitsd. Jeckell, Róbert Jeckell,
Þórunn Teitsdóttir, Kristján Guðlaugsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn,
VILHJÁLMUR KR. INGIBERGSSON,
lóst í Borgarspítalanum 20. apríl.
Ragnheiður Þ. Jónsdóttir.
t
Eiginmaður minn og faðir,
BERGUR LÁRUSSON
kaupmaður,
Vanabyggð11,
Akureyri,
er iést sunnudaginn 17. apríl, verður jarðsunginn frá Akureyrar-
kirkju þriðjudaginn 26. apríl kl. 13.30.
Ásta T ryggvadóttir,
Gísli Bergsson.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og tengdasonur,
BIRGIR BERGMANN GUÐBJARTSSON
prentari,
Kóngsbakka11,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Breiðholtskirkju mánudaginn 25. apríl kl.
13.30.
Þóra Guðrún Vaitýsdóttir,
Reynir Bergmann Birgisson,
Víðir Bergmann Birgisson,
Hlynur Bergmann Birgisson,
Guðrún D. Frimannsdóttir, Guðbjartur Bergmann Franss.,
Valgerður Jónsdóttir, Guðmundur Valtýr Guðmundss.
t
Faðir okkar, tengdafaöir og afi,
BJÖRN FINNBOGASON
frá Hitardal,
Álfheimum 58, Reykjavik,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 26. apríl kl.
15.00.
Pétur Björnsson, SigrUn Jónsdóttir,
Guðbrandur Gunnar Björnsson, Álfheiður Erla Sigurðardóttir,
og barnabörn.
t
Maðurinn minn og faðir okkar,
GUÐGEIR MAGNÚSSON
fyrrverandi blaðamaður,
síðast til heimilis í Hófgerði 5,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 25. apríl kl. 15.00.
Herdís Kolbrún Jónsdóttir,
og synir hins látna.
t
Innilegar þakkir fyrir hluttekningu við fráfall og Utför
HELGU H. ÁSGEIRSDÓTTUR,
aður á Skólavörðustig 28.
Jónína Ásgeirsdóttir,
Knud Kaaber,
Sverrir Þórðarson.
t
Sendum öllum þakkir sem sýnt hafa okkur hlýhug og hjálp í veik-
indum og við andlát og jarðarför
PÉTURS ÞÓRISSONAR
bónda, Baldursheimi.
Guð blessi ykkur öll.
Þórunn Einarsdóttir og börn.
Minning:
BirgirB. Guð-
bjartsson prentari
Fæddur 13. marz 1944
Dáinn 14. apríl 1988
Á morgun verður lagður til
hinstu hvílu mágur minn og svili
Birgir Bergmann eða Biggi eins og
hann var alltaf kallaður. Biggi var
fæddur 13. marz 1944 í Reykjavík.
Foreldrar hans eru Guðbjartur
Bergmann Fransson og Guðrún
Dagbjört Frímannsdóttir.
Hann kvæntist Þóru Guðrúnu
Valtýsdóttur 26. júlí 1962 þau eign-
uðust þtj'syni: Reyni Bergmann,
Víði Bergmann og Hlyn Bergmann.
Hann hóf snemma nám í setningu
og starfaði við hana í yfir 20 ár
en síðustu 5 árin hjá Ásbimi Olafs-
syni.
Þegar við hugsum til Bigga þá
kemur fram í hugskot okkar sem
stóri bróðir sem alltaf var hægt að
leita til, þá skipti engu máli hvort
skoða þurfti bfl, íbúð, skipuleggja
ferðalag eða redda einhverju sem
aflaga fór, þá var Biggi alltaf reiðu-
búinn.
Þegar farið var í ferðalag mörg
saman á mörgum bílum þá fór Biggi
ávallt fremstur og leiddi hópinn
röggsamlega.
Þegar fjölskyldan kom saman þá
var kátt í kringum Bigga og var
hann ávallt hrókur alls fagnaðar.
Biggi var mikill útivistarmaður
og ferðuðust þau Þóra geysimikið
innanlands og utan. Voru þeir fáir
staðirnir á Islandi sem ekki voru
heimsóttir.
Við viljum þakka Bigga sérstak-
lega fyrir alla þá hjálp og ráðlegg-
ingar sem hann veitti okkur í gegn-
um árin.
Elsku Þóra og synir megi Guð
styrkja ykkur í framtíðinni.
„Gakk þú á Guðs þíns fund
glaður á hverri stund.
Varðveislu víst munt fá,
vemd Drottins himni frá.
Ljós í hans líknar hönd
lýsir um gjörvöll lönd,
græðir vor sorgar sár,
signir manns gleði tár.
(P. Hallbj.)
Erla og Tryggvi
Að heilsast og kveðjast, það er
hin síendurtekna saga lífsins hér á
jörð.
Andlát Birgis B. Guðbjartssonar
kom okkur samstarfsmönnum hans
ekki á óvart, því undanfarið höfðum
við öll meira og minna fylgst með
hetjulegri baráttu hans.
Fýrir um það bil fimm árum kom
Birgir til starfa hér hjá fyrirtækinu
og er ekki að orðlengja það, að á
skömmum tíma hafði hann unnið
allra hylli hér, með sínu þægilega
og ljúfmannlega viðmóti.
Ævinlega var hann hinn síkáti
og brosmildi félagi og sífellt reiðu-
búinn til að leysa hvers manns
vanda, hvort heldur það var vandi
viðskiptavinanna eða bara okkar
félaganna. Öll hugðum við því gott
til langra og ánægjulegra samvista
við hann, en allt er í heiminum
hverfult, og að fór það er okkur
grunaði síst.
Fyrir um það bil ári fór hann að
kenna lasleika, sem hann þó eigi
vildi gera mikið úr, en þar kom að
hann varð að ganga undir erfiðan
uppskurð, hann taldi sig þó hafa
náð fullum bata, og þannig leit út
um hríð.
Síðastliðið sumar fór hann til
útlanda með fjölskyldu sinni glaður
og hress að vanda, því ferðalög og
útivist voru hans líf og yndi, enda
víða farið utanlands og innan.
Á haustdögum síðastliðnum tók
veikin sig upp á ný og eftir stranga
sjúkdómslegu tók hann örlögum
sínum æðrulaus og rólegur. Hann
andaðist hinn 14. apríl sl. aðeins
44 ára að aldri. Nú er hans sárt
saknað af okkur öllum, en í hug-
skoti okkar geymum við fagra
minningu um góðan, geðþekkan
félaga, sem við nú kveðjum með
virðingu og þökk.
Eiginkonu hans, sonum og öðrum
ættingjum og vinum, sendum við
okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Megi sá er öllu ræður styðja þau
og styrkja í sorg sinni og söknuði.
F.h. starfsfólks
Heildv. Asbjörns Ólafssonar,
Guðbjartur Ólason.
t
Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR Ó. JÓNSSON,
bakarameistari,
Auðarstræti 11,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 26. apríl kl.
15.00.
Sæmundur Sigurðsson, Snæfriður Jensdóttir,
Stella Sæmundsdóttir,
Marsibell Jóna Sæmundsdóttir,
Sigurður Jens Sæmundsson.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sfmi 681960
t
Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JENSRAGNARSSON
Meistaravöllum 35,
verður jarðsunglnn frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 26.
apríl kl. 13.30.
Sigurður Agúst Jensson,
Sigrún Jensdóttir Larson,
Ásdís Jensdóttir,
Þóranna Rósa Jensdóttir Roy,
Kristjana Ragna Jensdóttir,
Hafsteinn Viðar Jensson,
Guðbjörg Jensdóttir,
Sigurbjörg Kristjánsdóttir,
Helga Valdemarsdóttir,
Gordon Larson,
Ísleifur Ingimarsson,
Rob Roy,
Guðjón Hjartarson,
Inga Lára Birgisdóttir,
Ragnar Antonsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Þungan harm berum við í hjarta.
Orð eru ósköp fátækleg þegar ást-
vinur hverfur burt. Og hann sem
hlakkaði svo til sumarsins og var
alltaf svo hress og með svo mikla
lífslöngun og elskaði lífið og var
og er sólskinsbam, því hann elskaði
sólina og blómin. Oft hafði hann
tekið svo fallegar blómamyndir að
maður dáðist að.
Eitt af mörgum áhugamálum
hans var að taka myndir. Hann
hafði unun af að ferðast innan og
utanlands og ferðaðist mikið á
sumrin. Oft dáðist maður að hve
þau hjónin voru miklir félagar og
hvort öðru trú og kær. Því er það
mikill söknuður sem eftirlifandi eig-
inkona hans ber í bijósti ásamt
þrem elskulegum drengjum og okk-
ur öllum sem elskuðum hann svo
heitt, en hann var kallaður burt
frá. En við treystum Guði og vitum
að hann sér um sína. Því biðjum
við Guð að varðveita og hughreysta
eftirlifandi eiginkonu og syni og
alla ættingja og vini nær og fjær.
„Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð."
(V. Briem)
Systir og mágur
Blömastofn
Friöfmm
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
tll kl. 22,-einnig um helgar.
Skreytingar við öll tllefni.
Gjafavörur.
VJterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiöill!