Morgunblaðið - 24.04.1988, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1988
6*^
Khalil al-Wazir, öðru nafni Abu
Jihad, í pílagrimsferð i Mecca:
vel látinn i PLO.
„Auga fyrir auga ...“
PLO hefur áður orðið fyrir ísra-
elskri árás í Túnisborg, þar sem
aðalstöðvar samtakanna eru nú. í
október 1986 gerðu ísraelsmenn
loftárás á aðalstöðvamar til að
hefna morðs á þremur ísraelskum
borgurum um borð í snekkju undan
strönd Kýpur og rúmlega 20 Pal-
estínumenn féliu.
Segja má að ísraelsmenn hafi
haft málshátt biblíunnar „auga fyr-
ir auga, tönn fyrir tönn“ að leiðar-
ljósi síðan palestínskir skæruliðar
myrtu 11 ísraelska íþróttamenn á
Ólympíuleikunum í Miinchen 1972.
Víðtæk leit að tilræðismönnunum
náði hámarki þegar yfirmaður
leyniþjónustu PLÓ, Ali Hassan Sal-
ameh, var myrtur með bílsprengju
í Beirút í janúar 1979. Palestínskir
skæruliðar hafa aldrei gert eins
umfangsmikla árás á ísraelska
borgara og í Munchen, þótt þeir
hafi einnig ráðizt á ísraelsk sendi-
ráð, ísraelskar flugvélar o.fl. Á ár-
unum 1968-1986 féllu 392 gyðing-
ar í árásum Palestínumanna í ísra-
el og rúmlega 70 í öðrum löndum.
Víðtækustu aðgerðir ísraels-
manna gegn palestínskum útsend-
urum fóru fram um miðjan síðasta
áratug og fjallað hefur verið um
nokkrar þeirra í kvikmyndum og
bókum, m.a. The Little Drummer
Girl eftir John Le Carré. Meðal
þeirra sem hafa fallið eru Wadal
Abdel Zwaiter (Róm), Mahmoud
Hamchari (París), Ghassan Kana-
fani (Beirút), Abdel Haddi Nakka
(Róm) Abdel Hamid Chibi (Róm),
Mohammed Boudia (París), Zaid
Muchasi (Kýpur) og Basil al-Kuba-
isi (París). Nokkrir valdamiklir
skæruliðaleiðtogar hafa komizt lífs
af, þeirra á meðal Abu Daoud og
Abu Sharif. Daoud skipuiagði árás-
ina í Miinchen og særðist á hóteli
í Varsjá 1981. Bassam, sem nú er
talsmaður Arafats, missti annað
augað og nokkra fingur í Beirút
1972.
Nokkrir foringjar PLO hafa beðið
bana í innbyrðis væringum, þeirra
á meðal fulltrúar PLO í París og
London, Ezzedine Kallak og Said
Hammami. Issam Sartawi féll fyrir
kúlum útsendara Abu Nidals á fundi
Alþjóðasambands jafiiaðarmanna í
Lissabon. ísraelsmenn hafa einnig
misst erindreka í leynilegum að-
gerðum og heill flokkur ísraelskra
árásarmanna var handtekinn í Nor-
egi þegar Marrokkómaður nokkur
hafði verið drepinn „af misgáningi".
Blóðugur ferill
Sjálfur var Abu Jihad, sem var
53 ára gamall þegar hann var veg-
inn í Túnisborg, eitt helzta skot-
mark ísraelsmanna, sem sökuðu
hann um að hafa skipulagt tugi
blóðugra árása Palestínumanna
innan ísraels. Nokkrar misheppnað-
ar tilraunir höfðu verið gerðar til
að ráða hann af dögum, m.a. í
Líbanon 1978 og 1982 og í Teheran
1980.
Börn Abu Jihads (Iman,
Hanan og Basem): „Enn
ákveðnari en áður.“
Sumir leiðtogar Israelsmanna
fögnuðu dauða Abu Jihads. Ariel
Sharon viðskiptaráðherra sagði að
„hendur fárra manna væru ataðar
blóði eins margra gyðinga" og
kvaðst styðja útrýmingu fleiri
skæruliðaleiðtoga. Shamir hefur
ekkert sagt, nema hvað að hann
hefur neitað því að hafa þakkað
mönnunum, sem tóku þátt í árás-
inni. Eini ísraelski ráðamaðurinn,
sem hefur lýst sig andvígan morð-
inu, er Ezer Weizman, sem teiur
að það geti leitt til aukinna árása
Palestfnumanna.
Fögnuður í ísrael
Þótt stjórnin þegi þunnu hljóði
eru flestir ísraelsmenn sannfærðir
um að Mossad hafi myrt Abu Jihad
og fagna dauða þess manns, sem
þeir töldu bera ábyrgð á einhveijum
blóðugustu árásum skæruliða á
ísrael frá upphafi. Slíka gleðifrétt
virtust þeir einmitt þurfa á 40 ára
afmæli fsraelsríkis, sem var r
fimmtudaginn. „Þetta eru beztu
fréttir, sem við höfum fengið lengi,“
sagði gömul kona í Haifa. „Það er
ekki annað hægt en að dást að
þessu," sagði ritari í Tel Aviv.
„Þetta kennir þeim að þeir eru
hvergi óhultir fyrir okkur.“ „Hverjir
aðrir hefðu getað þetta og komizt
upp með það?“ spurði rafeindafræð-
ingur í Tel Aviv.
En hafi ísraelsmenn myrt Abu
Jihad í von um að geta kveðið nið-
ur uppreisn Palestínumanna hefur
sú von trúlega verið byggð á mis-
skilningi. Dauði hans hefur magnað
ólguna á herteknu svæðunum og
kann að leiða til þess að Arafat og
Hafez Assad Sýrlandsforseta sættW't'
ist eftir margra ára misklíð. Auknar
líkur eru á því að sundurleit hreyf-
ing Patestínumanna sameinist á ný
undir forystu Arafats og morðið
kann því að efla PLO i stað þes.-s
að veikja samtökin.
Ef sættir takast gæti PLO e.t.v.
flutt starfsemi sína til Sýrlands, þar
sem auðveldara yrði að stjóma bar-
áttu hreyfingarinnar en frá Túnis.
Þess ber þó að gæta að margir
búast ekki við róttækum breyting-
um og eru vantrúaðir á að PLO og
Assad forseti geti náð samkomu-
lagi.
I Washington er það talið áfall
fyrir friðartilraunir George Shultz
utanríkisráðherra að ísraelsmenn
eru sakaðir um að hafa staðið á
bak við árásina á Abu Jihad. „Þetta
markar þáttaskil, þetta er
stríðsyfirlýsing af hálfu ísraels,"
segir sérfræðingur Brookings-
stofnunarinnar, William Quandt.
„Vandséð er hvort PLO getur yfir-
leitt tekið þátt í stjómmálaþróun-
inni, en kannski vilja ísraelsmenn
það.“ Ónefndur embættismaður tel-
ur að hafi einhver möguleiki verið
á sáttum hafí árásin í Túnis torveld-
að samninga um friðsamlega lausn
og gert deiluaðila harðari í afstöðu
sinni. Fjandskapur deiluaðila mun
aukast og erfiðara verður fyrir
Shultz að fá Palestínumenn til að
samþykkja friðaráætlun Banda-
ríkjastjómar. Um leið er búizt við
aukinni hörku á báða bóga á her-
teknu svæðunum.
GH
Abu Jihad, Intisar kona hans, dóttirin Eman og sonurinn Basem (t.h.): „Við munum hefna hans ...“
ið.„Hvað ætlarðu að gera, ef ég
verð píslarvottur?" Hún kvaðst ekki
hafa séð hann síðustu sex æviár
hans. „Hann skipti oft um dvalar-
stað og hafði lítinn tíma til að hitta
okkur," sagði hún.
Ungur sonur Abu Jihads sagði
þegar hann kom til Damaskus til
að vera við útförina, sem rúmlega
hálf milljón Palestínumanna sótti:
„Við erum ennþá ákveðnari en áður
að beijast fyrir frelsun allrar Pal-
estínu." Kona hans sagði: „Abu Ji-
had dó ekki. Hann lifir enn í hjört-
um allra Palestínumanna og ann-
arra Araba. Ég er viss um að
Mossad drap eiginmann minn og
---------------------------------------------- við munum hefna hans ...“
Lík Abu Jihads flutt frá Túnis: „Við fyrirgefum þetta aldrei.“ Dauði Abu Jihads er mikið áfall
Hann var kaupmannssonur frá
Ramleh skammt frá Tel Aviv og
hafði tekið þátt í baráttu Palestínu-
manna frá byijun. Fjölskylda hans
var flæmd frá heimili sínu og leit-
aði hælis í fátækrahverfum Gaza,
þar sem stjómmálaskoðanir hans
mótuðust og hann vann fyrir sér
sem götusali og síðar sem kennari.
Hann fór f útlegð ásamt fjölskyldu
sinni skömmu eftir stofnun Isra-
elsríkis fyrir réttum 40 árum og
kynntist Yasser Arafat í háskólan-
um í Kafró 1951. Hann var þá þeg-
ar tekinn til við að skipuleggja árás-
ir palestínskra skæruliða að baki
ísraelsku víglínunnar og 18 ára
gamall stofnaði hann Fatah-hreyf-
inguna ásamt Arafat.
Egyptar ráku Abu Jihad úr landi
vegna skæruliðastarfsemi hans og
hann fór til Saudi-Arabíu, þar sem
stundaði kennslu, og síðan til
Kuwait. Seinna varð hann sátta-
semjari og erindreki PLO, vopna-
kaupandi, hermálasérfræðingur og
loks æðsti herforingi samtakanna
og hægri hönd Arafats. Hann bjó
lengi f Amman, en var rekinn þaðan
og var einnig rekinn frá Sýrlandi
ásamt Arafat í júní 1983, þegar
Abu Musa ofursti gerði uppreisn
gegn yfirstjórn PLO með stuðningi
Sýrlendinga.
Abu Jihad kvæntist frænku sinni,
Intissar („Emrnu") Jihad, sem er
einn af leiðtogum PLO. Hún er
formaður nefndar, sem hjálpar að-
standendum palestínskra „píslar-
votta“ og fanga á herteknu svæðun-
um og á sæti í byltingarráði Fatah.
Abu Jihad kallaði hana alltaf „sam-
heija“ sinn. Hann sagði stundum
frá því að þau hefðu orðið ást-
fangin þegar hún smyglaði vopnum
fyrir hann á árunum 1960- 1970.
Arabískar konur þrátta við ísraelska hermenn í Gaza: dauði Abu
Jihads magnaði ólguna.
Þegar Abo Jihad og Arafat sátu í
fangelsi um tíma í Sýrlandi var hún
f raun æðsti herforingi PLO.
„Fyrirgefum aldrei...“
Fáir leiðtogar Palestínumanna
nutu eins mikilla vinsælda og Abu
Jihad, sem þótti „hógvær og skap-
góður, en engu að síður staðfastur
þjóðemissinni" og naut virðingar
fyrir að „vilja láta verkin tala og
hafa óbeit á óþarfa málalenging-
um“. Arafat átti fullt f fangi með
að hemja tilfinningar sfnar þegar
honum var sagt frá láti vinar síns
í Bahrain, þar sem hann var á ferða-
lagi, og ungur liðsmaður PLO í
Túnisborg sagði: „Abu Jihad var
enginn venjulegur maður — hann
var palestínska þjóðin. Við fyrirgef-
um þetta aldrei."
Foreldrar Abu Jihads, sem hafa
búið í Damaskus í 14 ár, sögðu að
hann hefði viljáð deyja pfslarvættis-
dauða. „Khalil sagði stundum við
mig: einn góðan veðurdag færðu
fréttir um að ég hafi verið drep-
inn,“ sagði móðir hans eftir morð-
fyrir PLO vegna reynslu hans og
hæfileika. Flestir nv. leiðtogar sam-
takanna eru á svipuðu reki og hann
og Arafat og skortur er á hæfum
forystumönnum af yngri kynslóð-
inni. Evrópskur sérfraeðingur
kvaðst telja að tilraun „hófsamra"
Palestínuleiðtoga til að gera PLO
að lögmætu afli í heimsmálunum
hefði beðið hnekki og kvað ísraels-
menn hafa áður reynt að grafa
þannig undan samtökunum.
Sennilega var enginn leiðtogi
PLO eins vel að sér um ísraelsk
málefni og Abu Jihad. ísraelsmenn
þekktu hann frá fomu fari þegar
hann tók við stjóm hinna harðnandi
aðgerða Palestínumanna á her-
numdu svæðunum og auknu árása
þeirra yfir landamærin frá Líbanon
fyrir §órum mánuðum. Þeir höfðu
fyrst reynt að koma honum fyrir
kattamef þegar þeir töldu sig kom-
ast að því að hann hefði stjómað
árás skæruliðahóps frá Líbanon á
þjóðveginn, sem liggur eftir strönd
Israels, í marz 1978. í þeirri árás
biðu 33 óbreyttir borgarar bana.
4