Morgunblaðið - 24.04.1988, Síða 68

Morgunblaðið - 24.04.1988, Síða 68
SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR. V erkfallsver ðir vakta hótel og bíó 100 manns sinntu verkfalls- vörslu lýá VR í gær, laugardag. Nokkuð var um verkfallsbrot, að sögn Péturs A. Maack, formanns verkfallsstj órnar VR, en þau hefðu flest verið smávægileg og oftast vegna misskilnings, vilj- andi eða óviljandi. Pétur sagði að verkfallsverðir myndu starfa alla helgina, meðal annars til að athuga framkvæmd verkfallsins hjá hótelum og bíóum. Um 30-40 verkfallsverðir mættu til starfa hjá Verslunarmannafélagi Hafnarfjarðar í gær, að sögn Frið- riks Jónssonar, formanns verkfalls- stjómar VH, en þeir hefðu haft lítið að gera. Á Akureyri voru nokkrir tugir verkfallsvarða við störf í gær, en þar var allt rólegt að sögn Guð- ihundar Bjömssonar, formanns verkfallsstjómar þar. Samningafundur fulltrúa versl- unarmanna og vinnuveitenda hófst hjá ríkissáttasemjara klukkan 13 í gær. Stjóm lífeyrissjóðs verslunar- manna hefur ekki verið kölluð sam- an, en vinnuveitendur hafa mót- mælt ákvæði á minnisblöðum verk- fallssvarða VR um að þeir sem gangi úr VR missi lífeyrisréttindi sín. Sjúkrahús á Suðurlandi: Verkföll yfirvofandi VERKFÖLL hafa verið boðuð hjá ræstingarkonum á sjúkrahúsum og dvalarheimilum á Suðurlandi frá og með miðvikudeginum 27. aprfl. Samningafundur fulltrúa Alþýðusambands Suðurlands og Rússar og Búlgarar: Fimmtíu togarar við mörkin Landhelgisgæslan varð að fresta könnunarflugi út af Reykjanesi á föstudag vegna veðurs. Við síðustu talningu voru 46 rússneskir og búlg- arskir togarar að veiðum skammt undan 200 mflna mörkunum. Að sögn starfsmanna Land- helgisgæsiunnar er það árviss atburður að flotinn sæki í karfa á þessum slóðum. í flotanum eru verksmiðjuskip og smærri togarar. Þá eru birgðaskip með í för enda er úthaldið oft marg- ir mánuðir í senn. Við eftirlit í dagsbirtu voru veiðiskipin öll um 20-30 sjómíl- ur fyrir utan landhelgina. viðsemjenda þeirra vegna starfs- fólks á sjúkrahúsum var haldinn hjá ríkissáttasemjara síðastliðinn miðvikudag, en hann var árang- urslaus, að sögn Helgu Frímanns- dóttur, sem sæti á samninganefnd ASS. Annar fundur hefur ekki verið boðaður. Verkfall ræstingarkvenna á sjúkrastofnunum nær til fimm stofn- ana: Sjúkrahúss Suðurlands, Ljós- heima á Selfossi, Heilsuhælis NLFI í Hveragerði, Dvalarheimilisins Áss í Hveragerði og Dvalarheimilisins Lundar á Hellu. Morgunblaöið/Rúnar Þór Bjömsson / UTREIÐARTÚR í SIGLUFIRÐI Forustumenn Framsóknarflokksins á miðsljórnarfundi: Fiskvinnslufyrirtæki að stöðv- ast og atvinnuleysi blasir við FORU STUMENN Framsóknar- flokksins segja að rekstrargrund- völlur útflutningsfyrirtækja sé orðinn það slæmur að hætta sé á að fiskvinnslufyrirtæki stöðvist innan skamms, grípi rfldsstjórn- inn ekki í taumana, og afleiðingin verði stórfellt atvinnuleysi. Steingrímur Hermannsson ut- anrfldsráðherra sagði við upphaf miðstjómarfundar flokksins I gær að sú ríkisstjórn sem nú sæti ætti að geta tekið á þessum mál- um, og Framsóknarflokkurinn myndi vinna að þvi af fullkomnum heilindum. Á fundinum rakti Steingrímur Hermannsson með dæmum hvemig afkoma fyrirtækja hefði versnað stöðugt síðan í október á síðasta Halli frystíngar- innar nálægt 10% Þj óðhagsstof nun undirbýr greinargerð í greinargerð sem Þjóð- hagsstofnun undirbýr fyrir ríkisstjómina verður fjailað ► um afkomu sjávarútvegsins sem rekinn er með umtalsverð- um halla. Að sögn Þórðar Frið- jónssonar, forstjóra Þjóðhags- stofnunar, er ekki fráleitt að halli frystingarinnar nemi ná- lægt 10 prósentum. „Þær tölur sem fram koma eru verulega —^iæmar. Hallinn er sérstaklega mikill á frystingunni en af- koma allrar greinarinnar er mjög erfið. Okkur var falið að kortleggja vandann og I því felast ákveðnar ráðleggingar til ríkisstjórnarinnar,“ sagði Þórður. Aðspurður um orsakir fyrir þessum vanda er væru tíundaðar í skýrslunni nefndi Þórður vaxandi kostnað hérlendis umfram hækk- anir erlendis og lækkandi verð á helstu útflutningsvörum. Hann kvaðst ekki vilja ræða um nauðsvn gengisfellingar á þessu stigi máls- ins, hún hlyti að skoðast í sam- hengi við aðrar ráðstafanir. „Annað er markleysa. Gengis- felling er aðeins ein af hagstjóm- artækjunum. Það skiptir útvegs- menn í raun ekki máli til hvaða úrræða er gripið ef þau ná tilæt- luðum árangri," sagði Þórður. Úttektin á vanda sjávarútvegs- ins er hluti af víðtækari greinar- gerð um byggðamál sem ríkis- stjómin fól Þjóðhagsstofnun að semja. Samkvæmt áætlun á hún að berast ráðherrum að viku lið- inni, um næstu mánáðmót. ári. Hann sagði að frystingin væri nú rekin með 10% tapi og saitfísk- verkun væri að komast niður á núll. Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra sagði að flestöll fyrirtæki í fiskvinnslu stæðu frammi fyrir stöðvun næstu vikumar og ef fisk- vinnslan stöðvaðist mundi verulegt atvinnuleysi bresta á sem síðar mundi leiða til samdráttar tekna ríkissjóðs svo hann yrði ófær um að sinna viðfangsefnum sínum. Slíkt myndi leiða til gjaldþrots fyrirtækja um land allt og meira atvinnuleysins en menn hafa kynnst. Fundarmönnum var tíðrætt um fjármagnsmarkaðinn og sagði Jón Helgason landbúnaðaráðherra í því sambandi að nauðsynlegt væri að velta um borðum víxlaranna. Steingrímur Hermannsson sagði að sjálfstæðismenn hefðu komið í veg fyrir að lagafrumvarp um fjár- magnsmarkaðinn hefði náð fram að ganga. Hann sagðist síðan vera þeirrar skoðunar að afnema þurfi allar vísitölur um leið og tækifæri gæfist. Halldór Ásgrímsson taldi upp nokkur atriði sem nauðsynlega þyrfti að framkvæma. Þar á meðal þyrfti að skapa útflutningsgreinun- um rekstrargrundvöll og draga úr viðskiptahalla. Launastefna yrði að taka mið af getu útflutningsatvinnu- vega. Draga þyrfti úr fjárfestingum og kæmi þar til álita flárfestingar- skattur, frestun opinberra fjárfest- inga, sérstaklega þeirra sem byggj- ast á erlendum lanum og hertar regl- ur um innlendar lántökur til fjárfest- inga f atvinnulífinu. Auka þyrfti jöfnuð í landinu með opinberum að- gerðum, m.a að breyta jöfnunarsjóði sveitarfélaga, jafna orkuverð, skatt- leggja rauntekjur af fjármagsntelq'- um, flytja þjónustustörf frá höfuð- borgarsvæðinu út á land til að stuðla að jafnvægi og herða eftirlit með fjármagnsmarkaði. Suðurnes; Kæran tefur ekki verkfall STEFNA Vinnumálasambands samvinnufélaganna á hendur Verslunarmannafélags Suður- nesja vegna meintrar ólöglegrar verkfallsboðunar verður þingfest fajá Félagsdómi á þriðjudaginn klukkan 16. Stefnan mun því ekki geta komið i veg fyrir að til verk- 'falls VS komi á morgun, mánu- dag, hafi ekki samist. Garðar Gíslason, formaður Félags- dóms, sagði að eftir að málið væri þingfest gæti VS óskað eftir stuttum fresti til að taka saman greinargerð og að þeim fresti liðnum gæti Félags- dómur tekið afstöðu til afgreiðslu málsins. Vinnumálasambandið segist hafa fengið verkfallsboðunina of seint, en VS segist hafa sent hana á réttum tíma.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.