Morgunblaðið - 28.05.1988, Síða 2

Morgunblaðið - 28.05.1988, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988 Þýskaland: Hátt verð fyrir karfa HÁTT VERÐ fékkst fyrir karfa sem seldur var úr Ögra RE f Bremerhaven f Vestur-Þýska- landi sl. þriðjudag og miðvikudag. Seld voru m.a. 99 tonn af karfa úr skipinu fyrir 96,09 króna með- alverð og 237 tonn af grálúðu fyrir 34,40 króna meðalverð. „Norðmenn hafa lítið selt af karfa í Vestur-þýskalandi í þessari viku og einnig hefur lítið verið selt þar af karfa úr þýskum skipum undan- farið," sagði Vilhjálmur Vilhjálms- son hjá Landssambandi íslenskra útvegsmanna í samtali við Morgun- blaðið. Utanríkisráð- herra Búlgaríu í heimsókn Utanrfkisráðherra Búlgarfu, hr. Petar Mladenov og kona hans ásamt fylgdarliði, dvelja á íslandi 29. til 31. maf nk. f boði Steingríms Hermannssonar, utanrfkisráð- herra. í fréttatilkynningu frá utanríkis- ráðuneytinu segir, að auk þess að eiga viðræður við utanríkisráðherra muni búlgarski utanríkisráðherrann m.a. hitta að máli forseta íslands, forseta Sameinaðs þings og heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra. Jafnframt mun ráðherrann heim- sækja Þingvelli og fiskeldisstöð ríkisins í Kollafírði. Morgunblaðið/Kr.Ben. Fíkjutréð byrjað að laufgast eftir að hafa fölnað upp f vetur. Flugstöð Leifs Eiríkssonar: Annað fíkjutréð byrjað að laufgast Kvikmyndatíma- rítið Varíety: Foxtrot fær góða dóma ÍSLENSKA kvikmyndin Foxtrot fær nyög lofsamlega dóma f nýj- asta tölublaði bandarfska kvik- myndatímaritsins Variety, sem kom út 25. maí síðastliðinn. Vari- ety er eitt virtasta tfmarit sinnar tegundar f heiminum, kemur út f 94 þjóðlöndum og er almennt ta- lið höfuðrit kvikmyndagerðar- manna og áhugamanna um kvik- myndir um allan heim. í upphafi dómsins segir gagnrýn- andinn meðal annars að Foxtrot búi yfir öllum kostum góðrar spennu- myndar. Bakgrunnur myndarinnar sé áhrifaríkur og sagan sögð með hnitmiðuðum samtölum, nákvæmri klippingu og næmum hreyfingum í kvikmyndatökunni, sem hæfí vel söguþræðinum. Þá er leikurunum hælt fyrir góða frammistöðu. í gagnrýninni er söguþráður myndarinnar rakinn og síðan segir: „Spennan myndast strax í byijun og dettur aldrei niður. Söguþráður- inn er trúverðugur og sannfærandi og í myndinni verður ofbeldið aðeins eðlileg afleiðing af þeim mannlegu þrengingum, sem söguhetjumar rata í.“ Slðan segir að handrit Svein- bjöms Baldvinssonar og klipping Russels Lloyds falli einkar vel að þeim stílbrögðum sem notast er við í leikstjóm og hvort tveggja þjóni sögunni af næmi. Grindavík. FÍKJUTRÉÐ, sem eftir er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, er að braggast þar sem það stend- ur í suðurenda stöðvarinnar, en hitt var sagað niður fyrir skömmu eftir að seljendurnir höfðu dæmt það dautt. Að sögn Péturs Guðmundsonar flugvallarstjóra voru trén bæði í ábyrgð svo tjón flugstöðvarinnar af dauða annars trésins er ekkert. „Við erum að prófa hér fleiri tré og lærum af reynslunni hvaða tegundir þola þetta umhverfi líkt og hver og einn verður að gera sem er með plönturækt heima hjá sér,“ sagði Pétur. Kr.Ben Skýrsla Seðlabanka um gjaldeyrisviðskiptin komin: Býst við að hægt sé að birta skýrsluna - segir Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra VIÐSKIPTARÁÐHERRA barst f gær bréf frá Seðlabankanum þar sem það er tilgreint hvaða aðilar það voru sem stóðu að gjaldeyr- iskaupunum dagana 9.-11. maf þegar fjórðungur gjaldeyrisforðans streymdi út úr bönkum. Jón Sigurðsson sagði f samtali við Morgun- blaðið að hann ætti ekki von á þvf að f skýrslunni væri neitt sem ekki væri hægt að birta. Dagana 9.-11. maí var gjaldeyr- isútstreymið 2,5 milljarðar króna eða sem samsvarar fjórðungi gjaldeyrisforðans. Varð þetta til þess að ríkisstjómin lét loka gjald- eyrisdeildum bankanna. Jón Bald- vin Hannibalsson, sem gegndi embætti viðskiptaráðherra á þess- um tíma, meðan Jón Sigurðsson sótti fund OECD-ríkja í París, krafðist þess að Seðlabanki tæki saman og sendi viðskiptaráðherra lista yfír þá aðila sem hefðu stað- ið að þessum gjaldeyriskaupum. Jón Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, sagði í samtali við Morgun- blaðið að bréfíð hefði borist undir lok dagsins í gær og honum hefði því ekki gefíst fyllilega tækifæri til þess að kynna sér innihald þess. Vildi hann því ekki tjá sig nánar um innihald bréfs Seðlabankans á þessu stigi. Jón sagði að að það yrði vonandi fljótlega ljóst hvað yrði birt úr bréfínu og hvemig. Sagðist hann ekki eiga von á því að í því væri neitt sem ekki væri hægt að birta. Flensufaraklur enn á ferðinni AÐ sögn Skúla G. Johnsen, borgarlæknis, er ekki vitað til þess að flensan, sem heijað hef- ur undanfarið, sé f rénun. Enn mun vera nokkuð um það að fólk leggist af hennar völdum. Skúli sagði að dauðsföll af völd- um flensunnar á sjúkrahúsum undanfarið, einkum meðal aldr- Ellefu sumarbúðir fengu meðmæli í gær Bamaveradarráð afgreiddi á fundi í gær meðmæli til 11 sumar- búða, þar af fengu fernar búðir meðmæli um tveggja ára leyfi. Áður hafði Baraaverndarráð veitt fimm búðum meðmæli. Mennta- málaráðuneytið veitir sumarbúðum starfsleyfi að fengnum með- mælum Barnaverndarráðs. Sumarbúðimar sem í gær fengu meðmæli eru Ástjöm, Hólavatn, Riftún, Kjamholt, Laugagerðis- skóli, Lýsuhóll, Tölvusumarbúðir Tölvufræðslunnar, UMSB Vamia- landi, KFUM Vatnaskógi, Ölver og Sumarbúðir Þjóðkirkjunnar að Eiðum. Femar fyrstnefndu búðim- ar fengu meðmæli um tveggja ára starfsleyfí. Áður hafði Bama- vemdarráð veitt meðmæli til sum- arbúðanna f Ásaskóla, Bifröst, Hofí, Skúfslæk og Súluholti. Með tveggja ára leyfí frá í fyrra eru Bergsstaðir, Glæsibær, Skálholt, Tunga, Vestmannsvatn og KFUK í Vindáshlíð. Alls hafa því 22 sum- arbúðir fengið starfsleyfí eða með- mæli Bamavemdarráðs. Hjá Bamavemdarráði fengust þær upplýsingar í gær, að enn væru að berast umsóknir til ráðs- ins um meðmæli með sumarbúð- um. Ráðið hefur sent bréf til for- ráðamanna sumarbúða, þar sem öryggismál eru í ólagi. Þar er minnt á reglur, sem í gildi eru um öryggismál f sumarbúðum og að starfsleyfí fáist ekki nema viðeig- andi endurbætur fari fram. Vitað er um nokkra staði, þar sem unn- ið er af krafti við endurbætur og verða umsóknir þeirra staða af- greiddar síðar. Sumarbúðum er óheimilt að starfa, nema að fengn- um meðmælum Bamavemdar- ráðs. Næsti fundur Bamavemdar- ráðs um umsóknir sumarbúða verður haldinn fímmtudaginn 9. júní. aðra, tengdust alls ekki hermanna- veiki, sem mun hafa greinst í fá- einum tilfellum á sjúkrahúsum í Reykjavík undanfama mánuði. „Það er ekki nokkur möguleiki á því að þama sé tenging á milli,“ sagði Skúli. Guðjón Magnússon, aðstoðar- landlæknir, sagði að flensa og hermannaveiki lýstu sér á gjörólík- an hátt. Að hans sögn kemur her- mannaveikin fram sem lungna- bólga af völdum bakteríu, sem hægt er að rækta frá sjúklingun- um, en flensan lýsir sér hins vegar sem beinverkir, hálsbólga, hósti og hár hiti. Að sögn Guðjóns em nú í ræktun sýni frá nokkmm sjúklingum til þess að ganga úr skugga um hvort þeir hafí verið haldnir hermannaveiki, en niður- stöður em í fyrsta lagi væntanleg- ar í síðari hluta næstu viku. €> INNLENT Samgönguráðherra: Stofnunum falið að fylgj- ast með þörungamyndun MATTHÍAS Á. Mathiesen, sam- gönguráðherra, hefur falið sigl- ingamálastjóra, í samvinnu við fuUtrúa hlutaðeigandi stofnanna sjávarútvegsráðuneytis og land- búnaðarráðuneytis, að fylgjast með og afla upplýsinga hjá norskum stjórnvöldum um hugs- anlegar orsakir og afleiðingar þörungamyndana i sjó við strend- ur Noregs. Skal sérstaklega kannað að hvaða marki megi hugsanlega rekja þetta ástand til aukinnar mengunar í hafínu, svo sem af völdum köfnun- arefnis og fosfats. Ragnar S. Halldórsson kjör- inn sljómarformaður ÍSAL RAGNAR S. Halldórsson sem hefur verið forstjóri ÍSAL var kosinn í stjórn fyrirtækisins á aðalfundi þess sem haldinn var f ZUrich f gær f stað Halldórs H. Jónssonar, sem ekki gaf kost á sér til endurkjörs. Á stjóraarfundi sem haldinn var f framhaldi af aðalfundinum var Ragnar S. Halldórsson kjörinn formaður. Síðar er gert ráð fyrir að nýr forsfjóri verði skipaður. Fyrst um sinn gegnir Ragnar stöðu forsljóra. Hagnaður ÍSAL árið 1987 nam 21,8 miiyónum króna. Magnús Óskarsson var endur- S. Halldórsson tekur við for- skipaður í stjómina af iðnaðar- ráðherra og í stað Jóns A. Jónas- sonar skipaði ráðherra Eggert Hauksson. Gunnar J. Friðriksson og Sigurður Halldórsson voru endurkjömir í stjómina. Ragnar mennsku í stjóminni af Halldóri H. Jónssyni, sem hefur gegnt þeirri stöðu síðan fyrirtækið var stofnað 1966. Afkoma ÍSAL á árinu 1987 var mun betri en á undanfömum árum. Rekstrarreikningur sýnir 21,8 milljóna hagnað eftir að 67,3 milljóna króna framleiðslu- gjald hefur verið gjaldfært. Af- skriftir námu 237,4 milljónum og launakostnaður var 897,9 milljónir króna. Bætta afkomu ISAL má bæði rekja til hækk- andi markaðssverðs á áli og miklu framlagi móðurfyrirtækis- ins til eflingar eigin fjár ÍSAL. ISAL er að fullu dótturfyrirtæki Swiss Aluminum Ltd. (Alu- suisse).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.