Morgunblaðið - 28.05.1988, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988
Stjarnan og Stöð tvö:
Fjársöfnun fyrir slysa-
varnarskóla sjómanna
Bein útsending frá Hótel Islandi
á f östudagskvöldum í sumar
STÖÐ tvö, Stjarnan og Hótel ís-
land efna í sumar til skemmti-
þátta á föstudagskvöldum í
beinni útsendingu undir heitinu
„í sumarskapi". Fyrsti þátturinn
verður sendur út 3. júní næst-
komandi og er hann helgaður
sjómannadegimun. Af því tilefni
verður dagskrá Stjörnunnar
þennan föstudag tileinkuð söfn-
un handa slysavarnaskóla Slysa-
vamafélags íslands. Hiustendum
býðst að kaupa óskalög til flutn-
ings og slá önnur út gegn gjaldi.
Afraksturinn kemur i ljós i þætt-
inum um kvöldið.
Hannnes Hafstein framkvæmda-
stjóri Slysavamafélagsins kveðst
fagna framtaki fjölmiðlanna. „Það
er meira átak en flestir gera sér í
hugarlund að reka slysavamaskól-
ann oggífurlegt hagsmunamál fyrir
sjómenn að fræðsla um slysavamir
sé öflug. Við vonum að sem flestir
verði tilbúnir að hlaupa undir
bagga," sagði Hannes.
Slysavamaskólinn hefur frá því
sumarið 1986 starfað um borð í
skólaskipinu Sæbjörgu sem áður
var varðskipið Þór. Miðskips hefur
verið gerður kennslusalur en í aftur-
lest skipsins er aðstaða til að kenna
reykköfun, sú eina sinnar tegundar
á landinu. Nemendur koma víðs
vegar að af landinu til náms í skó-
lanum. Á síðasta ári sóttu skólann
um 1500 sjómenn, en það sem af
er þessu ári hafa verið haldin 22
námskeið fyrir 470 menn.
Stjómendur skemmtiþáttanna
verða Saga Jónsdóttir og Jörundur
Guðmundsson. Flosi Ólafsson flytur
hugleiðingu hverju sinni, en Gunnar
Þórðarsson stjómar tónlistarflutn-
ingi. Hver þáttur verður helgaður
einhveijum viðburði eins og sjó-
mannadeginum, listahátíð, þjóð-
hátíðardeginum, landsmóti hesta-
manna, flugdeginum eða þjóðhátið
í Vestmanneyjum. Þættimir heflast
kl. 20.00 og verða sendir út sam-
tímis á Stöð tvö og Stjömunni.
Þeir verða þriggja stundarfjórð-
unga langir.
Á fundi til kynningar þáttunum
sagði Bjöm Bjömsson hjá Stöð tvö
að reynt yrði að mynda einskonar
árshátíðarstemningu í hverjum
þætti. „Við ætlum að bjóða hópum
og félagasamtökum sem tengjast
efni hvers þáttar að vera viðstaddir
útsendinguna. Gestir fyrsta þáttar-
ins verða meðal annarra sjómenn
og félagar í Slysavamarfélaginu.
Það getur hver ímyndað sér að
þegar slíkir hópar sitja í salnum er
hægt að ná upp miklu fjöri,“ sagði
Bjöm.
Húsið verður opið almenningi og
veitingamenn í Hótel íslandi bjóða
gestum að panta sér mat fyrir og
eftir útsendinguna af sérstökum
matseðli. Tekið verður við matar-
gestum frá því kl. 18.00 og eftir
að útsendingu lýkur hefst dansleik-
ur sem stendur fram á nótt.
Nýkjömir heiðursfélagar FÍS, f.v.: Ami Gestsson, Kristján Þorvaldsson, Elín Egilsdóttir, Haraldur
Haraldsson formaður FÍS, Kristján G. Gíslason og Jón Magnússon. Á myndina vantar Hilmar Fenger.
Félag íslenskra stór-
kaupmanna 60 ára
FÉLAG íslenskra stórkaup-
manna hélt á dögunum upp á
60 ára afmæli sitt, en félagið
var stofnað 21. maí 1928. í til-
efni afmælisins komu félags-
menn og gestir þeirra saman
og vom 6 félagsmenn heiðrað-
ir. Formaður þess er Haraldur
Haraldsson og framkvæmda-
stjóri Ami Reynisson.
Þau fyrirtæki sem aðild eiga
að FÍS, starfa flest að innflutn-
ingi og að vörudreifingu. Nokkkr-
ir tugir útflutningsfyrirtækja inn-
an FIS annast um það bil fjórðung
útflutnings á ísienskum sjávaraf-
urðum.
Aðilum FÍS hefur fjölgað ört,
stofnfélagar voru 25 en nú eru í
félaginu um 320 fyrirtæki. Hefur
þeim fjölgað um nærri helming á
síðustu §órum árum.
í upphafi var stefna félagsins
að efla samvinnu stórkaupmanna,
framleiðenda og umboðssala til
hagsbóta fyrir verslun í landinu.
Fyrstu 3 áratugina barðist FÍS
fýrst og fremst gegn ríkiseinka-
sölu og verðlagshöftum og síðar
tóku við baráttumál félagsins á
borð við aukið frelsi í gjaldeyris-
og vaxtamálum, frelsi í verðmynd-
un auk þeirrar uppstokkunar á
tolla- og skattakerfinu sem nú
stendur yfir. Og nú, á sextugasta
afmælisári FIS, beinir félagið
sjónum að því hvemig ísland geti
tengst Evrópubandalaginu án
þess að tengsli við önnur helstu
markaðssvæði heimsins rofni.
Félag íslenskra stórkaupmanna
hefur aðsetur sitt í Húsi verslun-
arinnar í Reykjavík en FÍS var
eitt 7 samtaka sem byggðu húsið
árið 1982. Félagsstarf FIS er
margbreytilegt, má þar nefna
byggingarstarf stórkaupmanna á
Sundahafnarsvæðinu. Þar hafa 2
hópar fyrirtækja reist byggingar
undir vörugeymslur og skrifstof-
ur. Félagið hefur unnið að því að
innleiða nútíma vinnubrögð með
námskeiðahaldi og fræðslufund-
um. Þá rekur félagið sameiginlega
fjarskiptaþjónustu, reiknar út
hagtölur í heildverslun, gefur út
vörusýningarskrá, árbókina
Heildverslanir, vaxtatölur og toll-
gengi.
Á siðasta aðalfundi félagsins í
janúar síðastliðnum, var ákveðið
að minnast 60 ára afmælisins í
sumar með því að aðstoða Land-
græðsluna við uppgræðslu lands
og fá til liðs við sig önnur félög
innan verslunar og viðskipta.
Könnun á meðferöarstofnunum 1974-1985:
Tíundi hver karl á fimm-
tugsaldri til meðferðar
UM 6400 íslendingar gengust
undir meðferð vegna misnotkun-
ar áfengis og vimuefna á árunum
1974-’85. Að meðaltali var hver
maður lagður inn fjórum sinnum.
Tíundi hver karl á fimmtugsaldri
hefur einhverntíma á ævinni
lagst inn vegna ofdrykkju. Skýrt
er frá þessum niðurstöðum í nýj-
asta hefti Læknablaðsins.
Tómas Helgason forstöðumaður
Geðdeildar Landspítalans og Hildi-
gunnur Ólafsdóttir eru höfundar
greinarinnar. Þau könnuðu gögn
1200:
Kálfatjarnarkirkja.
Kirkjudagiir
á Kálfatjörn
Á MORGUN, sunnudag, verður
hinn árlegi kirkjudagur í Kálfa-
tjamarkirkju, en hún verður 95
ára á þessu ári.
Guðsþjónusta fer fram í kirkjunni
kl. 14.00. Formaður sóknamefiidar,
Sesselja Sigurðardóttir, flytur
ávarp, Ragnheiður Erla Bjamadótt-
ir guðfræðingur predikar og kór
kirkjunnar syngur undir stjóm
Franks Herlufsen. Gestir á kirkju-
degi eru 50 ára fermingarböm. Að
lokinni guðsþjónustu verða kaffí-
veitingar seldar í Glaðheimum á
vegum kvenfélagsins Fjólu.
B00
<100
oí
1974 1985
Morgunblaðið/BS
Innlagnir á meðferðarstofnanir
vegna misnotkunar áfengis og
annarra vímuefna á árunum
1974-1985.
7008
1974 1985
Morgunblaðið/BS
Skipting kynjanna á meðferðar-
stofnunum. Konum hefur hlut-
fallslega fjölgað hin síðari ár.
KyKK* ^ tölum frá Geðdeild
Landsspítalans.
frá Geðdeild Landspítalans, Gunn-
arsholti og yíðinesi auk meðferðar-
stofnana SÁÁ, Vogi, Sogni og Stað-
arfelli sem taka við níu af hverjum
tíu ofdrykkjumönnum sem leita sér
meðferðar.
Kariar eru enn í meirihluta þeirra
sem leggjast inn til meðferðar en
komur kvenna verða sífellt tíðari.
Fyrir fjórtán árum komu sex karlar
í meðferð á móti hverri konu, en
árið 1985 voru þeir 2,8 á móti
hverri konu. Ungu fólki hefur §ölg-
að í hópnum og meðalaldurinn hef-
ur lækkað úr 44 árum í 36.
Morgunblsðið/BAR
Frá blaðamannafundi til kynningar þáttunum „í sumarskapiu. Frá
vinstri: Jón Aðalbjöm Jónsson frá Slysavarnarfélaginu, Jörundur
Guðmundsson kynnir, Ólafur Hauksson útvarpsstjóri Stjörnunnar,
Hannes Hafstein framkvæmdastjóri Slysavamarfélagsins, Hörður
Siguijónsson frá Hótel íslandi, Saga Jónsdóttir kynnir og Björn
Björnsson frá Stöð tvö.
Orkustofnun sér um jarð-
hitarannsóknir í Afríku
ÞRÍR starfsmenn Orkustofnunar
halda utan til Afríkuríkisins
Djibouti f dag, laugardag, þar sem
þeir munu starfa við svokallaðar
viðnámsmælingar í sambandi við
jarðhitaverkefni þar í landi. Þeir
munu dveljast þar f fímm vikur,
en þetta er f fyrsta sinn sem
starfsmenn Orkustofnunar fara
erlendis til yiðnámsmælinga, að
sögn Knúts Ámasonar, jarðeðlis-
fræðings, sem er einn þremenn-
inganna.
Áformað er að reisa gufuaflsvirkj-
un í Djibouti fyrir tilstuðlan Samein-
uðu þjóðanna, en stjómandi þess
verkefnis er íslendingur, ísleifur
Jónsson, sem hefur starfað á vegum
Sameinuðu Þjóðanna við jarðhita-
verkefni í Afríku. Hópurinn frá
Orkustofnun sér hins vegar sjálfur
um viðnámsmælingamar, en í hon-
um eru þeir Grímur Bjöfnsson og
Einar Hrafnkell Haraldsson, auk
Knúts Ámasonar.
Með viðnámsmælingum er leitað
að heitu vatni undir yfirborði jarðar
með því að hleypa rafmagni í gegn-
um jarðlögin og mæla viðnám þeirra,
en aðferðin sem beitt verður í Djibo-
uti er sérhönnuð fyrir eyðimerkurað-
stæður og hefur hún verið reynd hér
á landi með góðum árangri. Að sögn
Knúts fékk Orkustofnun þetta verk-
efiii vegna þess að enginn annar
hefur beitt þessarri mæliaðferð á
virkum eldflallasvæðum, en þess má
geta að hugbúnaðurinn við mæling-
amar er þróaður hérlendis.
Knútur sagði að landslagið í
Djibouti, sem liggur á milli Eþfópfu
og Sómalfu, væri ekki ósvipað Þing-
völlum eða Mývatnssveit, en lofts-
lagið væri heldur hlýrra, því þama
mun vera 30 gráðu ársmeðalhiti,
sem er hærra en í nokkm öðm landi
í heiminum. Knútur sagði að aðstað-
an ætti að vera góð, en Orkustofnun-
armenn fá inni í búðum bandarískra
bomnarmanna á væntanlegum virkj-
unarstað.