Morgunblaðið - 28.05.1988, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988
Skoðanakönnun í Frakklandi:
Jafnaðarmenn
auka fvlei sitt
Parfs, Reuter. ^ *
Skoðanakönnun, sem birt var f franska vikuritinu Paris-Match í gser,
gefur til kynna að jafnaðarmenn vinni mikinn sigur í þingkosningunum
f næsta mánuði, fái 44,5 af hundraði atkvæða.
Hlytu jafnaðarmenn þetta fylgi í
þingkosningunum yrði það mesti sig-
ur fransks stjómmálaflokks síðan
Fimmta lýðveldið var stofnað fyrir
30 árum.
Francois Mitterrand Frakklands-
forseti hefur gefíð í skyn, að hann
sé ekki ánægður með að flokkur
hans vinni jafn afgerandi sigur og
þessar tölur gefa til kynna. Það kynni
að eyðileggja áform hans um að
mynduð verði samsteypustjóm sósía-
lista og miðjumanna eftir kosningar-
nar. „Það er ekki gott fyrir flokk að
vera einn við stjómvölinn. Þetta er
ekki í samræmi við franska raun-
veruleikann," sagði hann meðal ann-
ars um síðustu helgi.
Fréttaskýrendur segja að forset-
inn vilji forðast mistökin frá árinu
1981, þegar stjóm sósíalista missti
mikið fylgi meðal almennings og
hægrimenn náðu að sameinast gegn
henni. Jacques Chirac, fyirum for-
sætisráðherra, sem tapaði fyrir Mit-
terrand í forsetakosningnum á dög-
unum hefur sagt, að eina mál þing-
kosninganna sé, hvort veita eigi só-
síalistum óskomð völd.
Israel:
Enn fjölgar fórnar-
lömbum óeirðanna
Jerúsalem, Reuter.
TALSMAÐUR fsraelskra her-
yfirvalda sagði f gær að tveir
palestínskir unglingar hefðu lát-
ist af sárum er þeir hlutu af
völdum ísraelskra hermanna.
Annar unglinganna var f febrúar
skotinn f maga og bak í óeirðum
f borginni Kalkilya á vestur-
bakka Jórdanár. Hinn varð, að
sögn ísraelska útvarpsins, fyrir
gúmmikúlu þegar hann stóð við
gluggann heima hjá sér á mið-
vikudaginn og horfði á hermenn
brjóta á bak aftur mótmæla-
göngu.
Fjórir Palestínumenn halda því
fram að ísraelskir hermenn hafi í
síðustu viku mokað yfir þá gijóti í
þorpi á Vesturbakkanum, segir í
frétt vikuritsins Kol Hairsem gefíð
er út í Jerúsalem. Nokkrir hermenn
vom nýlega dregnir fyrir herrétt
vegna svipaðara ásakana í nálægu
þorpi. Talsmaður hersins segir að
málið hafí verið rannsakað og eng-
ar sannanir hafi fundist.
Palestínumenn á Gaza-svæðinu
segja að þriggja ára stúlka hafi
látist af völdum táragass í gær
þegar hermenn dreifðu hópi mót-
mælenda. Heryfírvöld mótmæltu
þessu og töldu læknaskýrslur ekki
gefa þetta til kynna. Á hinn bóginn
hefðu foreldrar bamsins Qarlægt
líkið áður en kmfning hafði farið
fram og því hefði ekki verið hægt
að ganga úr skugga um dánaror-
sökina.
Abu Ayyash, formaður Sam-
bands palestínskra blaðamanna, var
í gær látinn laus, níu dögum áður
en hann hafði afplánað sex mánaða
varðhaldsdóm fyrir að hafa starfað
á vegum _ skæmliðasamtakanna A1
Fatah. ísraelskir embættismenn
sögðu að líta bæri á styttingu varð-
haldsins sem tákn um góðan vilja
stjómvalda.
Reuter
í skýrslu Alþjóðahermálastofnunarinnar f London segir að um þessar mundir sé einstakt tækifæri til
að bæta samskipti austurs og vesturs. Á leiðtogafundi risaveldanna, sem hefst um helgina f Moskvu,
er búist við að sá árangur sem náðist f afvopnunarmálnm á síðasta ári verði treystur og nýjar leiðir
ræddar til batnandi sambúðar risaveldanna. Hér sjást feðgin f Moskvu virða fyrir sér myndir af banda-
rfsku forsetahjónunum.
Skýrsla Alþjóðahermálastofnunarinnar:
Tækifæri til að breyta sam-
skiptum austurs og vesturs
HÆTTAN á klofningi vofir yfir Atlantshafsbandalaginu ef það endur-
skoðar ekki stefnu sfna andspænis öldu nýrra afvopnunartillagna frá
Sovétmönnum. Vestrænum þjóðum er ögrað en jafnframt opnast
margvíslegir möguleikar. Vestræn rfki mega ekki vera svo upptekin
af ögruninni sem f þessu felst að þau glati tækifærinu, segir f ár-
legri skýrslu Alþjóðahermálastofnunarinnar í London (HSS), sem birt
var á fimmtudag.
í skýrslunni segir að viðleitni
Míkhafls Gorbatsjovs til að endur-
skoða utan- og innanríkisstefnu Sov-
étríkjanna sé einkum að þakka að
árið 1987 var ár þíðunnar í sam-
skiptum austurs og vesturs. Há-
punktur ársins í þessu tilliti var leið-
togafundurinn í desember, sem ein-
kenndist af gagnkvæmum velvilja.
í fyrsta kafla skýrslunnar þar sem
fjallað er um horfur í alþjóðamálum
segir að engum dyljist að grundvall-
arbreytingar hafi mótast á síðasta
ári. Þróun heimsmála virðist vera
að taka nýja stefnu en enginn getur
þó sagt til um hvert hún leiðir. Heim-
ur sem skipst hefur í tvær andstæð-
ar fyikingar er að taka á sig fleiri
myndir. Það sem einu sinn taldist
einlit ógnun af kommúnisma er nú
að leysast upp í frumhluta sína, seg-
ir í skýrslunni.
Andspænis afvopnunarfrumkvæði
Sovétmanna ættu vestræn ríki nú
að endurskoða stefnu sína varðandi
samskipti austurs og vesturs og
reyna sjálf að sýna frumkvæði til
að stuðla að traustara alþjóðakerfí.
Samningurinn um útrýmingu meðal-
drægra flauga og horfur á frekari
niðurskurði á kjamorkuvopnum
þjóna þessu markmiði. Nú virðist
mögulegt að sæta lagi á öllum svið-
um. Vert er til dæmis að skora á
Sovétmenn að fallast á ójafnan nið-
urskurð hefðbundinna vopna í Evr-
ópu með tölulegt jafnvægi að leiðar-
ljósi. Sovétmenn hafa sýnt að þeir
vilja fá ráðrúm til að leysa úr efna-
hagsvandræðum heima fyrir.
Bregðist vestræn ríki ekki skjótt
við má búast við því að Gorbatsjov
gangi á lagið og leggi annað hvort
til að þriðja núll-lausnin verði að
veruleika með tilheyrandi klofningi
innan NATO eða grípi til einhliða
afvopnunar sem tryggir honum
pólitískt frumkvæði. Það er nauð-
synlegt fyrir Atlantshafsbandalagið
að íhuga nákvæmlega hvaða hlut-
verki kjamorkuvopn eiga að gegna
í heildarvömum bandalagsins. INF-
samningurinn hefur þegar vakið efa-
semdir innan NATO um gildi eldri
vamarhugmynda.
Eiturlyfjasalar
ógna öryggi
í kafla um þróun mála í Suður-
Ameríku segir að þijú meginmál
ráði þróun í innanríkismálum þar í
álfu: Leitin að leiðum til að tryggja
hagvöxt andspænis gífurlegum er-
lendum skuldum, baráttan við að
halda í það sem unnist hefur í lýð-
ræðisátt og sú ógnun sem stafar af
veldi eiturlyfjasala.
EiturlyQaiðnaðurinn hefur plagað
stjómvöld í Suður-Ameríku mörg
undanfarin ár en á siðasta ári fór
hann að skipta höfuðmáli varðandi
þjóðaröiyggi í Kólombíu og Panama.
Vandamálin em ólík í hveiju landi
en það sýnir best hversu margslung-
in ógnun eiturlyflahringir eru við
öryggi á svæðinu.
I Kólombíu virðist svo sem fíkni-
eftiabarónamir í „Medellín-sam-
steypunni" séu ofar lögunum. Þeir
hafa yfír ágóða af kókaínsmygli til
Bandarfkjanna að ráða sem nemur
milljörðum dala og hann færir þeim
óhugnanleg völd. Þeir eru vel vopn-
um búnir og beita mútum og ógnun-
um til að hindra framgang réttvís-
innar. Eina færa leiðin fyrir stjóm-
völd virtist löngum vera að fram-
selja fíkniefnasala til Bandaríkjanna
þar sem þeirra biðu ákærur fyrir
smygl. En kókaínkóngamir hafa
tekið fyrir þann leka. í júní á síðasta
ári lýsti óttasleginn hæstiréttur
Kólombíu því yfír að framsalssamn-
ingur við Bandaríkin bryti í bága
við stjómarskrána.
Carlos Mauro Hoyos ríkissaksókn-
ari Kólombíu féll fyrir morðingja-
hendi í janúar síðastliðnum. Líkt og
svo margir landar hans virðist eftir-
maður hans hafa gefíst upp í barát-
tunni við glæpamennina. Hann segir
' ef til vill verði að semja við þá
og lögleiða fíkniefnaverslun.
Eituriyfjabarónar ógna stjóm-
völdum í Kólombíu en í Panama
halda þeir sjálfír um stjómtaumana.
Manuel Noriega hefur töglin og
hagldimar sem yfírmaður hersins.
Undir hans stjóm er Panama griða-
staður eiturlyflaiðnaðarins. Noriega
hefur þegið milljónir dala fyrir að
leyfa smyglurum að nota flugvelli
landsins og ríkisbanka til að geyma
illa fengið fé.
Hagsmunir Bandaríkjanna eru á
tvennan hátt í húfí í Panama. Pa-
nama-skurðurinn kemst undir yfír-
stjóm ríkisstjómar Panama árið
1990. Bandaríkjamenn munu varla
taka því þegjandi að Noriega og
hans nótar fái full jrfírráð yfír skurð-
inum. í öðru lagi veldur tilhugsunin
um að svipað tilfelii og Noriega komi
upp í öðmm ríkjum Suður-Ameríku
hryllingi. „Fíkniefnaterrorisminn"
gæti verið orðinn jafn hættulegur
hagsmunum vestrænna ríkja í Suð-
ur-Ameríku og kommúnisminn, seg-
ir í ársskýrslu Alþjóðahermálastofn-
unarinnar.
Verður Rockall breytt í
geislavirkan sorphaug?
Harkaleg viðbrögð við „bijálæðislegum“ áætiunum Breta
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaösins f Noregi.
Forráðamenn breska kjamorkuiðnaðarins hafa látið kanna hvort
unnt sé að koma fyrir og geyma mikinn, geislavirkan úrgang á kletta-
eyjunni Rockall vestur af H'altlandi. Hér í Noregi hafa menn brugðist
ókvæða við tiðindunum og hafa þau orð um, að þessar áætlanir séu
„bijálæðislegar“. Morgunblaðið sneri sér til Eyjólfs Konráðs Jónsson-
ar, formanns utanríkismálanefndar Alþingis, sem sagðist ekki hafa
fengið neinar óyggjandi upplýsingar um þessi áform, en hann teldi
þau fáránleg og tryði ekki að bresk stjómvöld samþykktu slíka vitleysu.
Breski kjamorkuiðnaðurinn hefur úrgangi í geymslu.
1 tilk\
unnið að áætluninni í samvinnu við
verkfræðifyrirtækið Merrick-Allen
og var fyrst frá henni skýrt í frétta-
tilkynningu frá fyrirtækinu og
Nirex-stofnuninni, opinberri stofnun,
sem sér um að koma geislavirkum
tilkynningunni sagði, að unnt
væri að steypa sexhymdan geymi
utan um Rockall og koma síðan fyrir
í honum geislavirkum úrgangi. Seg-
ist Merrick-Allen geta ábyrgst, að
enginn leki komi að geyminum í 300
ár og telur raunar líklegt, að hægt
sé að geyma úrganginn með þessum
hætti f 3000 ár.
Þessum ráðagerðum hefur verið
mótmælt harðlega á Hjaltlandi og í
Noregi þar sem menn kalla þær
„bijálæðislegar".
„Þetta einkennist af örvæntingu,
ráðamenn f Iq'amorkuiðnaðinum
hljóta að vera viti sínu fjær þegar
þeim dettur ekki annað f hug en
Rockall," sagði Jan Klövstad, tals-
maður norsku hreyfingarinnar, sem
berst gegn kjamorkuendurvinnslu-
stöðinni í Dounreay í Skotlandi.
Meese-málið:
Háttsett-
ur ráðgjafi
segir upp
Wasbington, Reuter.
CHARLES Cooper, yfirmaður
lögfræðideildar bandarfska
dómsmálaráðuneytisins,
sagði f gær upp starfi. Hann
sagði uppsögnina ekki tengj-
ast ásökunum á hendur Ed-
win Meese, dómsmálaráð-
herra, um mútuþægni.
Rannsókn stendur yfír í máli
Meese. Talið er að niðurstöður
hennar muni verða mjög gagn-
rýnar á framferði ráðherrans.
Frá því í mars hafa þrír aðrir
háttsettir embættismenn í ráðu-
neytinu sagt upp.