Morgunblaðið - 28.05.1988, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988
33
Páll Guðmundsson við eitt verka
sinna fyrir framan Galleri Grjót
á Skólavörðustíg.
Höggmynda-
sýning í Gall-
erí Gíýóti
PÁLL Guðmundsson frá Húsa-
felli opnaði í gær höggmynda-
sýningu í Gallerí Gijóti, Skóla-
vörðustig 4A.
Myndimar em allar höggnar í
rautt og blátt gijót sem fannst í
bæjargiiinu á Húsafelli.
Páll fæddist 27. mars 1959 á
Húsafelli í Borgarfirði. Hann stund-
aði nám við Myndlista- og
handíðaskóla íslands á ámnum
1977—81, en 1985 var Páll við nám
í höggmyndalist við listaháskólann
í Köln og nam þar hjá prófessor
Burgeff í eitt ár.
Páll Guðmundsson hefur haldið
10 einkasýningar, 8 á íslandi og 2
í Þýskalandi. Verk eftir hann em
m.a. f eigu Listasafns íslands,
Reylq'avíkurborgar, Safnahússins á
Selfossi og listasafnsins í Borgar-
nesi.
Sýningunni lýkur 12. júní. Opið
er virka daga frá kl. 12—18 og um
helgar frá 14—18.
(Fréttatilkynning)
Netaveiðin í Hvítá hafin:
Góður afli strax í upphafi
NETAVEIÐIN í Hvítá í Borg-
arfirði hófst þann 20. maí, en
fyrir marga er sá viðburður
eins konar staðfesting á sumar-
komunni. Yfir 20 bæir eiga
veiðirétt i ánni og í fyrra fengu
þeir í net sín 4.508 laxa, sem
var talsvert undir meðaUagi
eins og víðast gerðist þá. Veið-
in í ár byrjar vel og þegar eru
fáein hundruð laxa komin á
land, en veiðin hefst ekki fyrir
alvöru fyrr en komið er fram
íjúní.
Ólafur Davíðsson bóndi á Hvítár-
völlum II segist ekki vera neitt
sérstaklega dús við góða byijun,
þar sem þá vildi veiðin oft verða
treg á besta tímanu'm, frá miðjum
júní fram í miðjan júlí. Hann er
einn af stærri veiðiréttarhöfum
við ána með 13 lagnir og mun
oft hafa fengið um fímmtung alls
afla í ánni. Olafur vildi hins veg-
ar ekki gefa upp neinar tölur,
sagði aðeins: „Það sem ég fæ er
eins mikið og kemur upp úr
ágætri laxveiðiá."
Blaðamaður og ljósmyndari
Morgunblaðsins fóru með Ólafí
að vitja neta í gærmorgunn, þrátt
fyrir tortryggni hans um fiski-
fælni gestanna. Sem betur fer var
það ástæðulaus ótti og strax í
fyrstu lögn var tvo laxa að fá.
Hann er búinn að koma út 7 net-
um en hefur leyfi fyrir 13 eins
og áður sagði. Fiskur var í ann-
arri lögninni og fimm í þeirri
þriðju. Þetta voru vænir fiskar
flestir 10—12 pund, enda koma
smálaxagöngumar ekki fyrr en
komið er fram á sumar. „Þá kem-
ur fyrir að á annað hundrað laxa
ánetjist yfir nóttina", sagði Ólafur
og greinilegt var að hann hlakk-
aði til þess tíma þegar hann kem-
ur á drekkhlöðnum báti til lands.
Áfram var haldið á bátnum og
Morgunblaðið/KGÁ
Ólafur Davídsson bóndí á Hvítarvöilum II við Hvitá í Borgarfirði losar vænan iax úr einni netalögn-
inni í gær.
Morgunblaðið/KGA
Feðgamir Óiafur Davíðsson og Davíð ólafsson með aflann sem
fékkst í morgunvitjun í Hvitá í gær.
alls staðar var eitthvað að hafa.
Það var létt á Ólafí brúnin þar
sem hann sat í skutnum og stýrði
bátnum milli lagna. Og þegar
rennt var að árbakkanum kom í
ljós að aflinn í þessari morgun-
vitjun var 14 laxar, sem Ólafur
sagði góðan afla, enda oft lítið
sem ekkert að hafa í maí.
Klukkan var um stundaifyórð-
ung gengin í ellefu þegar aflanum
var landað eftir 45 minútna vitj-
un. Það eru mest kaupmenn og
veitingahús á Reykjavíkursvæð-
inu, sem kaupa laxinn af Ólafí.
Hann er sendur með rútunni strax
um hádegið spriklandi ferskur og
nýr og ekki er ósennilegt að stór-
um hluta hafi verið rennt niður
þegar sama kvöld því ekki vantar
eftirspumina. g(j
Danshópurinn sem er á förum til Englands.
Dansskóli Auðar Haralds:
Dansflokkur er á
förum til Englands
DANSFLOKKUR frá Dansskóla
Auðar Haralds er nú á förum
til Englands til að taka i þátt í
alþjóðlegu danskeppninni
„Blackpool Dance Festival“ sem
haldin er ár hvert í maí. I fyrra
tók flokkur frá skólanum lfka
þátt í keppninni og vakti sá
hópur sérstaka athygli og fékk
mikið lof í dansblöðum erlendis.
Flokkurinn sem keppir í Eng-
landi kallar sig „ Reykjavík - Lat-
in - Team “ og samanstendur af
átta danspömm sem mynda eina
heild á dansgólfínu. Flokkurinn
mun keppa í svokölluðum mynst-
urdansi í suðuramerískum döns-
um. fjálfari hópsins er Auður
Haraldsdóttir. Dansskóli Auðar
Haralds vill koma á framfærið
sérstökum þökkum til Flugleiða,
Samvinnuferða Landsýn og hár-
greiðslustofunnar Salon Ritz fyrir
veitta aðstoð við undirbúing
keppninnar.
RITVÉLAR
REIKNIVÉLAR
PRENTARAR
TÖLVUHÚSGÖGN
SYNINGIDAG
KL. 10-16
á eldhúsinnréttingum frá JP
og eldhústækjum frá Míeie
í húsnæði JPinnréttinga
SKEIFUNNI 7.
JPinnréttingar