Morgunblaðið - 28.05.1988, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988
45-
Minning:
Ólöf Bessadóttir
frá Siglufirði
Fædd 4. ágúst 1899
Dáin 10. maí 1988
Ólöf Bessadóttir frá Siglufírði er
öll. Hún lést á ofanverðu 89. aldurs-
ári, fædd árinu fyrir aldamótin. Hún
var því af aldamótakynslóðinni,
þeirri kynslóð sem lifði meiri fram-
farir í tæknivæðingu samfélagsins
en nokkur önnur. Það þurfti
óbrenglaða skynsemi til að fylgja
þessari þróun. Ólöf hafði hana til
að bera og færði sér tæknina í nyt
meðan hún fékk notið sjálfstæðs
lífs. Ólöf hafði auk þess tilfínningu
fyrir lífínu og lystisemdunum, sem
það hefír upp á að bjóða. Hún vissi
því hve gæðum lífsins er oft mis-
skipt. Það var stundum eins og hún
skammaðist sín fyrir að hafa vinnu-
þrek og vit til þess að geta unnið
sig áfram í lífínu. A.m.k. var það
snar þáttur í lífí hennar, að láta
aðra njóta hennar eigin dugnaðar.
Þannig urðu margir aðnjótandi
gjafmildi Löllu Bessa.
Ólöf var yngst sjö systkina. Á
unglingsárunum var hún ærsla-
fengin og stríðin, átti til hina ýmsu
pretti, fjölskyldunni og samfélaginu
til armæðu. Jafnframt blundaði í
henni víðsýn listamannsþrá, þrá til
þess að skapa eitthvað áþreifanlegt
úr hugarsmíð sinni. Fyrir aldamóta-
kynslóðina var hins vegar hvorki
mikið svigrúm né fé til að láta
draumana rætast. Hún giftist að-
eins nítján ára gömul, tvítug var
hún orðin móðir og 24 ára stóð hún
uppi sem ekkja, eftir að hafa horft
á skip eiginmanns síns farast
skammt fyrir utan innsiglinguna í
Siglufjörð. Það er erfítt að gera sér
í hugarlur.d hversu mikil áhrif slík
reynsla hafði á unga konu alda-
mótakynslóðarinnar. Ólöf lét þó
ekki bugast og lifði lífínu áfram
upprétt og stælt með litla dóttur
sér við hlið. Ólöf var glæsileg kona
og ósérhlífín, kona sem var trú yfír
því, sem lífíð lagði henni á herðar,
og hafði kenningar kristinnar trúar
að leiðarljósi. Fljótlega giftist hún
aftur manni, sem varð hennar
lífsförunautur. Þau byggðu sér hús
við Hlíðarveg í Siglufírði og undu
þar sinn aldur. Með síðari manni
sínum eignaðist hún tvær dætur,
hina síðari 25 árum eftir að hún
ól sitt fyrsta barn, þá orðin 45 ára
að aldri. ólöf lifði því hvort tveggja
að vera ung móðir og gömul. Hvort
tveggja bar hún með þreki þess sem
hefír trú á tilgang lífsins.
Ólöf lifði síldarævintýrið á Siglu-
fírði og tók þátt í því af lífí og sál.
Hótal Saga Siml 12013
Blóm og
skreytingar
við öll tœkifœri
Blóma-og
skreytingaþjónusta w
hmt sem tilefnið er.
GLÆSIBLÓMID
GLÆSIBÆ,
ÁHhcimum 74. sími 84200
Margar ánægjulegustu minningar
hennár voru tengdar sfldarsöltun á
plani með iðandi mannlífi og erfíðis-
vinnu, þar sem allir voru jafnir,
vinnugleðin var allsráðandi, glettn-
ar og tvíræðar setningar voru látn-
ar fjúka og hver uppskar laun síns
erfiðis svo sem hann lagði sig fram.
Símon, maður Ólafar, vann sem
kyndari í sfldarverksmiðjunum á
Siglufírði ein 40 ár, og hún þekkti
því einnig mjöl- og lýsishlið sfldar-
ævintýrisins.
Ólöf átti sér lítið ríki í Siglufirði,
þar sem var heimili hennar, húsið
og garðurinn. Litla húsið á Hlíðar-
vegi 23 var einstakiega snyrtilegt
og notalegt. Þar voru allir aufúsu-
gestir. Ólöf var létt á fæti og snör
í snúningum, það var oft unun að
sjá hversu kvik hún var við húsverk-
in.
Þau Símon áttu dálitla lóð í
kringum húsið sitt. Þau ræktuðu
þau tré, og er mörgum minnisstætt
hve reynitrén þeirra döfnuðu vel. í
blómabeðinu undi Ólöf marga sum-
amóttina við að snyrta og fegra
umhverfí sitt.
t
Innilegar þakkir faerum við öllum þeim ættingjum og vinum sem
sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför sambýliskonu
minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
KRISTBJARGAR BJARNADÓTTUR,
Austurbrún 6,
Reykjavfk.
Hjalti Elnarsson,
Indriði E. Baldvinsson, Karólfna Ingólfsdóttir,
Dfana Sjöfn Garðarsdóttir, Sigurður G. Jónsson,
Steinunn Garðarsdóttir, Guðmundur Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þegar Ólöf varð að yfírgefa
Siglufjörð sakir heilsubrests á átt-
ugasta aldursári má segja að hún
hafí lokið lífsbaráttu sinni. Hún
fann sig aldrei héima hér sunnan
heiða. Hugurinn dvaldi við minning-
una um Siglufjörð, iðandi af at-
hafnalífi sfldarsumranna eða á kafí
í snjó í svörtu skammdegi.
Nú höfum við kvatt Ólöfu hinsta
sinni fullviss þess að hún fái notið
ávaxta lífs síns og þeirrar um-
hyggju sem hún ávallt sýndi þeim
sem minna mega sín.
Góður Guð geymi minninguna
um Ólöfu Bessa.
Atli Dagbjartsson
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki
eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er
að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfund-
ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú,
að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar.
RYMINGAR-
SALAI
%
Vegna eigendaskipta og
breyttrar sölustefnu verður
rýmingarsala á ýmsum
vörum hjá okkur
í nokkra daga.
Við erum aðeins
að skapa rými fyrir
nýjar vörulínur!
IMotið tækifæri
sem ekki gefst aftur
og gerið hagkvæm kaup.
Á rýmingarsölunni bjóAum vlA m.a.:
Verðdæmi
flo
Afsláttur Áður: Nú:
-Heilar tepparúllur 20% Ballet 139.500 111.600
-Teppabútaogafganga 30-50% Ýmsir 5.000 2.500
-Motturog stökteppi 20% L. 1,70 X 2,40 36.025 28.820
-Fyrsta flokks gólfdúka 25% Rikett fm. 595 446
-ítölsk leðursófasett 20% Altana 121.000 96.800
-Sófaborð 30% Turin 15.250 12.200
-Borðlampa 20% Lampi 6.450 5.160
-Amerísk málverk 30% Stærsta gerð 21.900
Góðir greiðsluskilmálar — Eurokredit — Visa-raðgreiðslur.
TEPPABÚÐIN hf.
SUÐURLANDSBRAUT26, S. 681950-84850.
Verið velkomin!