Morgunblaðið - 12.06.1988, Síða 28
f»o 28
táÖRGUNkíiÁÖlto; SÚNÚÚDÁIfíÚÚ11!# 'JÚM 'i 988
Það er erfitt að ímynda sér
betri sviðsmynd fyrir alþjóð-
lega kvikmyndahátíð en Can-
nes, 80 þúsund manna strand-
bæ á frönsku rivíerunni, þar
sem pálmatré prýða strandgö-
tumar, þar sem ströndin er fal-
leg, sjórinn hreinn, búðimar
hver annarri glæsilegri, veit-
ingastaðir og hótel í fyrsta
gæðaflokki, og síðast en ekki
síst þar sem „fína fólkið“ dvel-
ur í sumarleyfum sínum. Kvik-
myndahátíðin hefur enda verið
haldin 41 sinni í Cannes og
hefur frá upphafi laðaó til sín
ótrúlegan fólksfjölda. Ekki ein-
göngu menn sem vinna í tengsl-
um við kvikmyndir heldur
einnig ferðamenn og smástimi
í von um athygli.
■ Sonia Braga sem fer með aðalhlutverk í „Mila- ■ Robert Redford við leikstjórn á „Milagro".
gro“ sem Robert Redford leikstýrir.
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Cannes
Cannes-búar segja að suma-
rið heQist nokkrum dögum
áður en kvikmyndahátíðin hefst,
en Iangflestir þeirra sem búa í
bænum vinna beint eða óbeint í
tengslum við ferðamenn. Kvik-
mynahátíðin er haldin á hveiju
vori. Þá koma fyrstu ferðamenn-
imir og viðskiptahjólin fara að
snúast. Ferðamannastraumurinn
er síðan stanslaus fram eftir
hausti. Kvikmyndahátíðin í Cannes
er álitin ein sú merkasta sem hald-
in er í heiminum og því mikilvægt
fyrir kvikmyndagerðarmenn,
framleiðendur og aðra sem vinna
í tengslum við kvikmyndir að vera
á staðnum meðan á hátíðinni
stendur. Hátíðin er í sjálfu sér
ekkert sérlega vel skipulögð, það
má segja að hið sérkennilega suð-
ræna yfirbragð sé yfír henni, yfir-
bragð sem einkennist af óreiðu og
skemmtilegu kæruleysi.
700 myndir á boðstólum
Fyrir hveija hátíð er skipuð
nefnd sérfróðra manna sem ákveð-
ur hvaða myndir taka þátt í aðal-
keppninni í Cannes. Þá eru alltaf
nokkrar myndir í svokallaðri hlið-
arkeppni, en afgangurinn af þeim
700 myndum, sem á boðstólum eru
þessar tvær vikur sem hátíðin var-
ir, eru á staðnum til kynningar og
sölu. Engin íslensk mynd hefur
tekið þátt í aðalkeppni í Cannes,
en í ár var bandaríska myndin The
Blue Iguana í hliðarkeppninni, þar
sem íslenska myndin Atómstöðin
hefur áður tekið þátt. Siguijón
Sighvatsson, sem búsettur er í
Bandaríkjunum, er framleiðandi
myndarinnar. Risafyrirtækin 20th
Century Fox og Paramount höfðu
þegar keypt dreifíngarréttinn að
myndinni þegar hátíðin hófst. Þá
er skipuð alþjóðleg dómnefnd fyrir
keppnina, sem ákveður hvaða
mynd hljóti Gullpálmann, sem er
tákn hátíðarinnar. í ár var 21
mynd í aðalkeppninni. 14 myndir
fi-á Evrópulöndum, þijár frá
Bandaríkjunum, ein frá Japan, ein
frá Nýja Sjálandi, ein frá Kína og
ein frá Argentínu.
íslenska myndin seld
fyrir 30 milljónir
Foxtrot, íslenska myndin sem
framleidd er af Frost-film í sam-
vinnu við tvö norsk fyrirtæki, var
eina íslenska myndin á hátíðinni.
Danska fyrirtækið Nordisk film
keypti heimsdreifíngarrétt að
myndinni fyrir 30 milljónir
íslenskra króna. Myndimar sem
taka þátt í keppnunum eru sýndar
í stórri kvikmyndahöll, aðajkvik-
myndahúsinu, meðan hinar mynd-
imar em sýndar í smærri kvik-
myndasölum í bænum. Hver mynd
er oftast sýnd nokkrum sinnum
og er oft mikill asi á útsendurum
dreifingarfyrirtækja, því þeir vilja
að sjálfsögðu sjá sem flestar mynd-
ir sem fyrst til að ná samningum
við framleiðenduma „á undan hin-
um“. Þeir þjóta því á milli kvik-
myndahúsa frá morgni til kvölds,
skoða hveija mynd í 10—20 mínút-
ur og ákveða svo hvaða myndir
þeir vilja taka að sér að dreifa.
Foxtrot er gerð eftir samnefndu
handritj Sveinbjarnar I. Baldvips-
sonar. íslensku aðilamir sem fóru
til Cannes með myndina gerðu sér
litlar vonir um sölu á henni í upp-
hafi, en náðu þó góðum samningi
við hið danska fyrirtæki áður en
hátíðinni lauk. Aðstandendur Foxt-
rots hafa sem minnst látið hafa
eftir sér um efni myndarinnar,
segja aðeins að þetta sé spennu-
mynd. „Þetta er besta myndin sem
við höftim séð á hátíðinni,“ sögðu
■ Atríði úr „The blue Iguana“ sem leidd er af Siguijóni Sig-
hvatssyni. Myndin er bandarísk og tók þátt í hliðarkeppni í Cannes
þeir í Cannes, en tóku samt lífinu
með ró og gerðu lítið til að lata á
sér bera. Hið sama verður ekki
sagt um alla sem vora í Cannes á
sama tíma, því á hveijum degi
vora hinar ýmsu uppákomur í
bænum, þar sem smástimi í von
um athygli notuðu ímyndunaraflið
óspart til að laða ljósmyndara að.
Cicciolina háttar sig
fyrir Robert Redford
Kvikmyndahátíðin í Cannes býð-
ur mönnum uppá að nálgast ótrú-
legan fjölda þekktra leikara,
söngvara og leikstjóra. Flestir
þeirra era þó í felum og kjósa að
halda til á stöðum utan við mið-
bæinn. Eitt skemmtilegt atvik
gerðist skömmu áður en „Mila-
gro“, myndin sem Robert Redford
leikstýrir, var sýnd í aðalkvik-
myndahúsinu. Mikill fjöldi fólks
hafði safnast saman framan við
húsið til að fylgjast með þeim sem
komu á sýninguna, en meðal þeirra
var að sjálfsögðu hinn heimskunni
Robert Redford. Illona Staller, sem
kannski er betur þekkt undir nafn-
inu Cicciolina, var stödd þama og
tók að fækka fötum fyrir við-
stadda. Hún er fræg fatafella (auk
þess að vera þingmaður róttæka
flokksins á Ítalíu) og vakti óvænt
uppákoma hennar mikla ánægju
viðstaddra. Sérstaklega vora þó
karlmennimir ánægðir með þetta
framtak, en konumar vora ánægð-
ari þegar Robert Redford mætti á
staðinn. Cicciolina skemmti í næt-
urklúbb í Cannes á þessu tímabili,
en hún mun leika í kvikmynd á
næsta ári. LStið sem ekkert er vit-
að um myndina, nema hvað þetta
mun verða fyrsta myndin sem hún
leikur í sem ekki er klámmynd.
Eiturlyfjavandamál
hjá Clint Eastwood
Fyrrverandi bæjarstjóri í Car-
mel, Clint Eastwood, sem þekkt-
astur er fyrir hluverk sín í kúreka-
myndum, kom til Cannes með
„Bird“, mynd sem byggð er á
ævisögu jassistans Charlie Park-
ers, sem lést fyrir aldur fram vegna
ofneyslu vímuefna. Clint Eastwood
hefur, sem kunnugt er, barist mik-
ið gegn vímuefnaneyslu í gegnum
árin og hefur einnig mikinn áhuga
á jass-tónlist. Því má segja að þessi
mynd sameini helstu áhugamál
leikstjórans. „Hjartans mynd“
segja Frakkaram„Bird“ og eiga við
að hún sé unnin af hjartahlýju og
sannfæringu. Charlie Parker lagði
heiminn að fótum sér með tónlist-
argáfu sinni. Hann var framkvöð-
ull Be-bop-stefnunnar ásamt Dizzy
Gillespie og Miles Davis, en var
alkóhólisti og eiturlyfjaneytandi.
Hann lést á sjötta áratugnum eftir
að hafa tekið of stóran heróín-
skammt.
Tónlist Charlie Parkers
í myndinni Bird er tónlist
Charlie Parkers leikin og era not-
aðar upptökur þar sem hann leikur
sjálfur. En Clint Eastwood gerði
annað athyglisvert við gerð mynd-
arinnar. Upphaflega höfðu fram-
leiðendur myndarinnar ákveðið að
láta Richard Pryor að fara með
hlutverk Parkers, en Eastwood
kaus frekar að láta Forest Whita-
ker leika Parker.
Vondu og góðu mennirnir
hans Redfords
„Milagro“ nefnist myndin sem
Robert Redford leikstýrir og tók
þátt í hliðarkeppninni í Cannes.
Sonia Braga er í aðalhlutverki í
myndinni, sem í stuttu máli fjallar
um baráttu íbúa 'i Nýju Mexíkó
og Norður-Ameríkana um vatns-
ból. Hinir innfæddu era „góðu
mennirnir", fátækir bændur, en
aðkomumennirnir úr Norðri éru
fégráðugir og vondir. Að lokum
bera hinir innfæddu sigur af