Morgunblaðið - 12.06.1988, Qupperneq 63
Hlíðarætt, eins og þetta kyn er
gjaman nefnt, en til þess teljast
margir listfengir menn og konur í
útskurði og hannyrðum, auk fleiri
góðra verka. Ólafur lést á heimili
sinu 7. maí sl. og það má því segja
að stutt er á milli þeirra hjóna. En
Helga hefur síðustu árin ekki geng-
ið heil til skógar og hún lést á
Landspítalanum eftir langvarandi
veikindi 30. maí sl.
Og hún bað mig sérstaklega um,
og undir það get ég og konan mín
heilshugar tekið, að færa öllu
starfsfólki á G-ll sérstakar þakkir
fyrir frábæra hjúkrun og allan þann
kærleika sem starfsfólkið sýndi
henni í veikindum hennar.
Helga systir hefur nú kvatt þenn-
an heim og lifír í náð og dýrð Guðs.
I jarðneska lífinu var henni margt
til lista lagt. Hún var með eindæm-
um bamgóð og mikill dýravinur.
Hún vildi öllum hjálpa, sem leituðu
til hennar með margvísleg vanda-
mál sín. Og mörgum ættmennum
sínum og vandalausum hlúði hún
að og tók þá inn á heimili sitt um
lengri tíma, þegar þeir áttu hvergi
höfði sínu að halla.
Margt af útsaumi hennar og
hannyrðum em hrein listaverk, en
það var þó úti í náttúrunni og við
að græða upp flóru þessa lands, sem
hún undi sér best, því allt gréri og
dafnaði í höndum hennar.
Helga vann við nudd og mörg
önnur störf á ævi sinni og við getum
sagt að margt er það sem miður
fer á æfi manns. En ég hef kosið
að dvelja við það góða og hreina í
fari Helgu systur minnar, sem ég
er að kveðja með þessum fátæklegu
línum. Hún átti sína galla eins og
við öll, en kostirnir voru líka marg-
ir og það er við þá sem ég hef kos-
ið að dvelja á þessari kveðjustund.
í Orðskviðum Salómons 28:13
standa þessi orð: „Sá sem dylur
yfírsjónir sínar, verður ekki lángef-
inn, en sá sem játar þær og lætur
af þeim, mun miskunn hljóta."
Og það er þetta sem Helga hafði
gert, þegar hún kvaddi þennan
heim. Hún var sátt við alla menn
og konur. Og það er í anda þeirra
orða sem ég vitnaði í og í anda
trúar minnar um það að látinn lifir
og einnig í fullvissu þess að fyrir-
heit og náð blessaðs frelsarans
bregðast okkur aldrei, að ég fel
anda elskaðrar systur minnar í náð-
arfaðm hans sem öllu ræður.
„Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt."
(V. Briem)
Sigurður Arngrímsson
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í
Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
Blómastofa
Friðfinm
Suöuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið ötl kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
a«or tmt'tt <?r H8 nrrr'' Títmtiohom
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JUNI 1988
t
Móðir mín,
AGNES ODDGEIRSDÓTTIR
fró Grenivík,
Sólvallagötu 17,
lést í Vifilsstaðaspítala fimmtudaginn 9. júní.
Magnús Jónsson.
t
Móðir okkar,
MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR,
áður til heimilis á Seljavegi 13,
andaðist að Droplaugarstöðum að morgni 10. júní.
Ólafur R. Magnússon, Brynjólfur Á. Magnússon,
Kristrún Magnúsdóttir, Erna B. Magnúsdóttir,
Unnur S. Magnúsdóttir, Sigrún Magnúsdóttir.
t
Móðir mín og fósturmóðir,
JAKOBÍKA ÁGÚSTSDÓTTIR,
Hólavegi 21,
Siglufirði,
andaðist í Sjúkrahúsi Siglufjarðar 9. júní.
Jarðsett verður frá Siglufjarðarkirkju 14. júní kl. 14.00.
Guðrún Reimarsdóttir,
Vilborg Reimarsdóttir.
t
Frænka mín,
ÁSLAUG JENSDÓTTIR,
Stýrimannastfg 4,
verður jarðsungin frá Kapellunni i Fossvogi þriðjudaginn 14. júní
kl. 15.00.
Guðlaug Jónsdóttir.
t
Ástkær systir, frænka og mágkona,
HELGA ARNGRÍMSDÓTTIR,
Bergstaöastræti 64,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 13. júní kl
15.00 e.h.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurður Arngrímsson.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
GUÐRÚN G. HJALTESTED,
Seljahlfð,
Hjallaseli 65,
Reykjavfk,
verður jarðsungin frá Seljakirkju í Reykjavík þriðjudaginn 14. júní
kl. 15.00.
Bruno Hjaltested, Arnfrfður Ó. Hjaltested,
Edda Hjaltested, Sveinn Jóhannesson.
t
Eiginmaður minn og faðir,
SIGURÞÓR HERSIR
brytl,
Rauðalæk 13,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 13. júní kl.
13.30. Jarösett verður í Fossvogskirkjugarði.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðlaug Pálsdóttir,
Gylfi Páll Hersir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaöir, afi og langafi,
FRIÐÞJÓFUR HELGASON,
Þinghólsbraut 26,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 14. júnf kl. 13.30.
Bergdfs Ingimarsdóttir,
Valgeir Friðþjófsson,
Auður Friðþjófsdóttir, Eysteinn Guðmundsson,
Bóthildur Friðþjófsdóttir, Finnbogi Baldvinsson,
Valgerður Friðþjófsdóttir, Ólafur Jónsson,
Helgi Friðþjófsson, Guörfður Daníelsdóttir,
Fjóla Friðþjófsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Bróðir okkar, t
JÓN EMIL GUÐJÓNSSON fyrrverandi framkvæmdastjóri, Eskihlfð 6, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, þriðjudaginn 14. júní kl.
13.30. Herdfs Guðjónsdóttir, Unnur Guðjónsdóttir, Svava Guðjónsdóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúö og vinarhug við andlát og útför
ELÍSAR VALGEIRS MEYVANTSSONAR,
Asparfelli 4.
Jóhanna Finnbogadóttir,
Ámundi Elísson.
t
Þökkum af alhug auösýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
ÞÓRÐAR SIGURÐSSONAR,
Stigahlíð 22.
Guðlaug Erlendsdóttir,
Erlendur Þórðarson, Una Hlín Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð við fráfall og jarðar-
för eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
ALBERTS IMSLAND.
Guö blessi ykkur öll.
Ásta Imsland,
Jón B. Baldursson,
Dagbjört E. Imsland,
Edda Imsland,
Thorvald Imsland,
Páll Imsland
Albert, Engilbert, Ásta Steina, Bryngeir, Róbert og Matthfas
Páll.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug
og samuð við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður, tengda-
föður og afa,
AUGUSTARHÁKANSSON,
Mjóuhlfð 6.
Greta Hákansson,
Sonja Hðkansson,
Frantz Hákansson,
Ellen Hákansson,
Petra Hákansson,
Sigurður Björnsson,
Bragi Óskarsson,
Málfrfður Hákansson,
Kristján Kjartansson
og barnabörn.
t
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
EBENESAR ERLENDSSONAR,
Jökulgrunni, Hrafnistu.
Jóna Sigurðardóttir.
Sigrfður Ebeneserdóttir, Jón Þórbergsson,
Hulda Ebeneserdóttir,
Valgeröur Ebeneserdóttir, Grfmur Grfmsson,
Eygló Ebeneserdóttir, Eyjólfur Guðmundsson,
Magnús Ebeneserson, Brynja Jóhannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 681960
Legsteinar
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fuslega upplýsingar og ráðgjof
um gerð og val legsteina.
I
S.HELGASON HF
STEINSNIKUA
SWEMMUVEGI 48 SlMt 7œ77