Morgunblaðið - 12.06.1988, Síða 68
NÝTT FRÁ KODAK
RAFHLAÐA SEM ENDIST OG ENDIST
JPK.
ALLTAF
SOLARMEGIIU
SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR.
Egilsstaðir:
Flóð stöðva
flugvallar-
framkvæmdir
MIKLIR vatnavextir eru nú í Lag-
arfljóti og Eyvindará við Egils-
staði og hafa bæði fljótið og áin
flætt yfir bakka sína. Vegna þess-
ara vatnavaxta liggnr vinna við
nýja flugvöllinn á Egilsstöðum nú
niðri þar sem flætt hefur yfir
veginn að flugvellinum.
Hlýtt hefur verið í veðri fyrir aust-
an að undanfomu og leysingar því
töluverðar þar sem mikill snjór er í
flöllum. Ef hlýindin halda áfram mun
vatnsmagnið í fljótinu enn aukast.
Slíkar leysingar eru algengar þama
á þessum árstíma. Að sögn kunn-
ugra eru þær með meira móti í ár.
Ejrjafjarðará
flæðir gegn-
um flugskýlin
EKKERT lát er á flóðunum í Eyja-
fjarðaránni. í fyrrinótt braut áin
sér leið gegnum gamlan veg sunn-
an við flugvöllinn á Akureyri með
þeim afleiðingum að hún flæddi
"^■gegnum flugskýlin og slökkvistöð-
> ina á flugvellinum. Náði vatns-
hæðin mönnum í miðjan legg er
mest var.
Tjón á eignum er lítilsháttar að
sögn Amar Ragnarssonar hjá Flug-
málastjóm á Akureyri en fuglar hafa
orðið hart úti og sagði Örn að egg
og dauðir ungar lægju um allt flug-
vallarsvæðið.
„Það er orðinn árviss viðburður
að þetta gerist en samt hefur ekkert
verið gert til að koma í veg fyrir
þessi flóð þrátt fyrir ítrekaðar beiðn-
ir þar um,“ sagði Öm Ragnarsson.
Frá slysstað í fyrrinótt.
Morgunblaðið/Júlíus.
Banaslysá
ÞRJÁTÍU og tveggja ára kona
beið bana, er ölvaður maður
ók framan á bíl, sem hún var
farþegi í aðfaranótt Iaugar-
dagsins.
Slysið varð kl. 02.20 á Skúla-
götu. Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar var ölvaði ökumað-
urinn á leið austur Skúlagötu í
stolnum Chevrolet. Móts við Vit-
astíg ók hann yfir á ranga ak-
rein og framan á Lödu, sem kom
Skúlagötu
á móti honum. Áreksturinn varð
það harður að nota þurfti björg-
unartæki slökkviliðsins til að losa
fólkið úr bílunum. Ökumaður
Lödunnar slasaðist mikið, en
meiðsli hins ökumannsins eru
óveruleg.
Rétt áður en slysið varð hafði
leigubílstjóri forðað sér undan
Chevroletinum með því að aka
upp á gangstétt.
Morgunblaðið/Ól.K.M.
JUrgen Schauer um borð í rannsóknakafbátnum Geo. Hann,
ásamt félaga sínum og eiganda bátsins, Hans Fricke, uppgötv-
uðu áður óþekkta kynjaveröld í undirdjúpunum við Kolbeinsey
£ þessum báti. Þeir hafa farið meira en 700 ferðir á bátnum
víða um heirn.
Rannsóknarkafbáturinn Geo:
Stórkostlag kynjaveröld
Frá blaðamanni Morgunblaðsins Benedikt Stefánssyni
dýpi í lítilli kvos efst á neðansjáv-
arhryggnum. Þar er fjölskrúðugt.
dýra- og plöntulíf, nánast hver
steinn þakinn svampdýrum, þör-
ungum og gróðri. Inn á milli stein-
anna synda litlir rauðir fiskar, sem
virðast njóta þess að baða sig í
baneitruðu brennisteinsmettuðu
umhverfinu. „Þetta sýnir ótrúlega
aðlögun. Það er eitthvað þarna
niðri sem við vitum ekki um, en
fiskamir kunna að meta,“ sagði
Jakob Kristjánsson, annar leið-
angursstjórinn, þegar hann skoð-
aði myndband úr ferð Geo.
ÞAÐ RIKTI mikill fögnuður
um borð í ms. Árvakri á föstu-
dagskvöld þegar Hans Fricke
og JUrgen Schauer sneru úr sjö
klukkustunda og tuttugu
mínútna leiðangri sínum um
undirdjúpin við Kolbeinsey á
kafbátnum Geo. „Þetta er stór-
kostleg kynjaveröld þarna
niðri, ólík nokkru sem ég hef
séð,“ sagði Hans þegar hann
steig upp úr bátnum á þilfari
Árvakurs.
Bátsveijar á Geo fundu geysi-
öflugt hverasvæði á um 96 metra
Skreiðargreiðslurnar:
Ikenze endurgreiðir
sex milljónir króna
SAMKOMULAG hefur tekizt i
deilu skreiðarútflytjenda hér á
landi og Mike Ikenzis, umboðs-
manns við skreiðarsölu í Nígeríu
og ræðismanns Islands þar. Hefur
Ikenze fallizt á að endurgreiða
75.000 pund, 6 milljónir króna,
af 300.000, 24 milljónum, sem
honum voru á sínum tíma fengin
til að liðka fyrir sölu skreiðar til
Nígeríu. Málsókn gegn Ikenze
hefur því verið felld niður, en hún
var hafin fyrir nokkrum misser-
um í London.
Árið 1984 voru miklir erfiðleikar
á sölu skreiðar til Nígeríu og samein-
uðust þá allir helztu útflytjendur
skreiðar hér á landi í sérstök sam-
tök, sem hétu Stockfish Marketing
Board. Horfur voru taldar á því að
nígerísk stjómvöld væru fáanleg til
skreiðarkaupa, væri aðeins um einn
útflytjanda héðan að ræða. Til að
liðka fyrir þessum samningum var
tekið lán að upphæð 300.000 pund,
nú um 24 milljónir króna, í Lands-
bankanum og féð fengið Mike Ikenze
til að liðka fyrir samningum að sögn
útflytjenda hér.
Samningar náðust ekki og kröfðu
útflytjendur Ikenze þá um féð. Hann
sagði fénu hafa verið eytt til að liðka
fyrir viðskiptunum eins og um hefði
verið samið og honum bæri alls ekki
að endurgreiða það. Útflytjendur
voru á öðm máli og höfðuðu mál
gegn honum fyrir rétti í London.
Ikenze leitaði meðal annars ásjár
forseta íslands vegna þessa, en
stjómvöld á íslandi höfðu engin bein
Ráðið leggur til að æskulýðsfull-
trúi ríkisins starfi áfram og sinni
upplýsingamiðlun miHi ríkis og
æskulýðsfélaga. Einnig verði boðað
til ráðstefnu á hálfs árs fresti með
öllum æskulýðsfélögum, þar sem
stefnu ríkisins í æskulýðsmálum
afskipti af málinu. Málalok urðu
síðan þau, að fyrir skömmu var sam-
ið við Ikenze um greiðslu fjórðungs
fjárins, 6 milljóna króna, og fer það
til innborgunar á skuld skreiðarút-
flytjenda í Landsbankanum. Þijá
§órðu fjárhæðarinnar verða þeir að
greiða sjálfir.
verði komið á framfæri og skipst á
skoðunum um æskulýðsstarf. Þá er
lagt til að það Ijármagn sem Æsku-
lýðsráð hefur haft til styrkveitinga
verði falið ráðherra til úthlutunar í
samráði við æskulýðsfulltrúa.
Æskulýðsráð vill
leggja ráðið niður
Æskulýðsráð ríkisins hefur sent menntamálaráðherra bréf þar sem
lagt er til að ráðið verði lagt niður. Segir í bréfinu að við athugun
hafi komið glöggt i ljós að að ráðið hafi aldrei getað starfað eftir
æskulýðslögunum. Bæði hafi skort pólitíska viðurkenningu og fjár-
magn til að framfylgja lögskipuðum verkefnum. Þá hafi verið bent á
að auðveldlega megi færa verkefni ráðsins til æskulýðsfélaga eða í
annað samstarfsform.