Morgunblaðið - 30.06.1988, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988
Rit um Jón Axel Bjömsson
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Einn af þeim ungn málurum,
sem hafa vakið hvað mesta at-
hygli á undanfömum árum, er
án tvímæla Jón Axel Bjömsson.
Hann var einn af þeim fyrstu,
sem lét hrífast af „nýja málverk-
inu“ svonefnda,_ og vakti sýning,
er hann hélt í Asmundarsal árið
1982, mikla athygli. Einkum fyr-
ir það, að þrátt fyrir augljós
áhrif mátti greina sterk persónu-
einkenni á bak við vinnubrögð
málarans.
A þeim sex árum, sem liðin
eru, hefur Jón unnið að list sinni
af miklum krafti og skipað sér
í fremstu röð framsækinna
íslenzkra myndlistarmanna og
er enn í örum vexti svo sem
marka má af síðustu sýningum
hans.
Nýlega kom út ritlingur með
allnokkrum litmyndum af nýrri
málverkum Jóns Axels, fáeinum
grafík-myndum og einu mótlist-
arverki. Kynningarformála, sem
er á íslenzku og ensku (þýð.
Anna Yates) ritar Halldór Bjöm
Runólfsson, listsagnfræðingur,
en dreifingaraðili er GalleríSvart
á hvítu, Laufásvegi 17. Útlits-
hönnun annaðist Harpa Bjöms-
dóttir, en setningu, litgreiningu,
filmuvinnu og prentun, prent-
smiðjan Oddi og er það allt vel
af hendi leyst. Ljósmyndir af
myndverkunum tók Sigurgeir
Siguijónsson, en af listamannin-
um Páll Stefánsson og er hér
einnig allt í sómanum.
— Hér er tvímælalaust um
mjög athyglisvert og þarft kynn-
ingarframtak að ræða og væri
vel, ef framhald yrði á í þessu
formi, vegna þess óþarfi er að
íþyngja jafnan listaverkabækur
með löngum textum og ætt-
fræði. Það em myndlistarverkin
sjálf, sem eiga að segja mikla
sögu, en ekki einungis textarnir
þótt nauðsynlegir séu. Lista-
verkabókaútgáfa í útlandinu er
í mjög fjölþættu formi en hefur
fallið í hálf einhæfan og staðlað-
an farveg hér á landi þar sem
t.d. er sagt frá flestu öðru en
t.d. sjálfri tilurð verkanna.
Stutt og fræðandi spjall við
listamanninn hefði aukið gildi
ritsins, t.d. í formi krufningar
myndverkanna og viðhorfa hans
til samtímalistar, svo og eigin
hugleiðingar. Iðulega afhjúpar
slíkt heilmikið af lífsskoðunum
viðkomandi listamanna, og
bregður jafnvel nýju ljósi á list
þeirra — eykur skilning leik-
mannsins á sérstæðri köllun og
metnaði, sem ávallt er að baki
svipmiklum athöfnum.
En hvað sem öðru líður þá
má bóka, að hver sá sem flettir
upp í þessu riti, sem, þótt ótrú-
legt sé, kostar einungis 500
krónur, verður margs vísari um
list Jóns Axels Bjömssonar, því
að hér er um að ræða kynningar-
rit í háum gæðaflokki.
Eitthvad út í buskann
MED GÓÐAN ÚTBÚNAD
Krikketsett
Veiðihjól 1.995,- Veiðistöng og hjói 2.170,- Grillkol 125,-
Tjaldborð með stólum 2.900,- Pottasett 1.695,- Bastkarfa
Svefnpoki 3.495,- Strigaskór 1.495,- Ferðaborðbúnaður í tösku 2.445,-
Stranddýna 1.090,- Kælibox 1.145,- Einnota diskar, 12 stk. 99,- Grill 1.799,-
1.200,-
Opiö: Mánudago - fimmtudotja kl.9-183Q — Föstudaga U.9-20Q0 — Laugardaga lokað
MIKLIG4RDUR
MIKIÐ FYRIR LÍTIÐ
GYLMiR/SlA